Leita í fréttum mbl.is

,,Já, við getum vel setið hjá..."

Haraldur BenediktssonÍ framhaldi af áliti ESB um aðildarumsókn Íslands er áhugavert að kíkja á það sem bændur hafa að segja. Í nýju Bændablaði er langt og ítarlegt viðtal við formann Bændasamtakanna, Harald Benediktsson. Fram til þessa hefur afstaða bænda(samtakanna) verið þessi: NEI, við viljum ekki vera með, við viljum ekki RÆÐA málið. Þessi afstaða kemur frá samtökum og starfsstétt sem tekur árlega við framlögum frá ríkinu (les: skattborgurum) á bilinu 10-13 MILLJARÐAR króna. Í fáum löndum er landbúnaður styrktur jafn mikið og á Íslandi.

Á komandi Búnaðarþingi, sem sett verður á morgun, undir yfirskriftinni AFTUR KEMUR VOR Í DAL, verða ESB-málin sennilega RÆDD! En grípum aðeins niður í viðtalið við Harald í Bændablaðinu. (Leturbreytingar, bloggritari ES)

Blaðamaður spyr: ,,– Finnst þér Búnaðarþing þá vera í annarri stöðu nú í ár en fyrir ári síðan þegar þingið afgreiddi þessi mál með því að Bændasamtökin væru á móti aðild og ættu að beita sér alfarið gegn henni? Áttu von á að menn taki þá afstöðu núna að skoða verði hvort að móta þurfi markmið sem ekki sé hægt að hvika frá í samningum?

Haraldur svarar: ,,Í fyrsta lagi á ég von á því að þingið hafi ekki breytt um afstöðu til ESB og Bændasamtökin eigi áfram að berjast gegn henni. En við erum í aðildarferli og það felur í sér að
ríkisstjórnin eigi að móta samningsafstöðu handa samninganefndinni."
– Hver er þín afstaða? Geta
bændur leyft sér að sitja hjá í starfshópum, samningagerð og öðru slíku á grunni eindreginnar
andstöðu sinnar?
„Já, við getum vel setið hjá. Við höfum yfirgripsmikla þekkingu á því sem ESB er, hvað getur beðið okkar. Við getum ítrekað og haldið á lofti þeim ýtrustu varúðarkröfum sem við þurfum að gera. Við eigum að mínu mati ekki að koma nálægt því að fara að semja eða ímynda
okkur að einhverjar aðrar þolanlegar leiðir séu til.“

Hvað er hægt að segja um afstöðu sem þessa? Heitir þetta ekki að loka öllum dyrum? Samt segir Haraldur að samtökin búi yfir mikilli þekkingu á sviðinu, sem bloggritara er kunnugt um (m.a. af lestri Bændablaðsins). En er þetta ekki nokkuð sem heitir EINANGRUNARHYGGJA? Þ.e.a.s. Bændasamtökin vilja ekki taka þátt í þeirri lýðræðislegu umræðu sem ÞARF að fara fram um ESB-málið. Er ekki tími til kominn fyrir Bændasamtökin að skipta um skoðun og horfa með víðsýni á ESB-málið, í stað þess að mála sig út í horn með þessum hætti. Er eitthvað að marka slík samtök?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björn Heiðdal

Eina alheimsstjórn undir merkjum UN.  Framtíðin er í dag.

Björn Heiðdal, 27.2.2010 kl. 17:40

2 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Þetta svar Haraldar lýsir því að bændasamtökin gera sér grein fyrir því að ekkert er um að semja til handa þeim.

Þessa afstöðu taka þeir eftir að hafa kynnt sér þessi mál hjá þeim þjóðum sem nú þegar hafa gengið í ESB. Það er engin ástæða að ætla að Íslendingar geti fengið betri samning en þær. Þeir sem halda því fram eru veruleikafyrrtir.

Gunnar Heiðarsson, 27.2.2010 kl. 19:48

3 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Það væri kannski gott fyrir Evrópusamtökin að kynna sér hvað Finnar eru að borga til landbúnaðar úr eigin kassa. Það væri líka ágætt ef þið kynntuð ykkur hversu margir Íslendingar vinna við arfleifð störf í landbúnaði fyrir utan bændurna sjálfa.

Nei við ESB

Gunnar Heiðarsson, 27.2.2010 kl. 19:51

4 Smámynd: Jón Baldur Lorange

Er ekki tími til kominn fyrir Bændasamtökin að skipta um skoðun og horfa með víðsýni á ESB-málið, í stað þess að mála sig út í horn með þessum hætti. Er eitthvað að marka slík samtök?

Ég held að þessi orð segi allt sem segja þarf um afstöðu aðildarsinna að ESB. Ef menn eru ekki á sömu skoðun og þið, þ.e. að Ísland eigi að gerast hluti af ESB, þá kallið þið það fólk einangrunarsinna. En ekki nóg með það þá ,,krefjist" þið þess að allir gangi í takt og ,,skipti um skoðun"! Það kallið þið víðsýni! Væri það ekki til marks um víðsýni af ykkar hálfu að virða skoðanir þeirra sem hafa kynnt sér ESB mál ofan í kjölinn, eins og þú viðurkennir í pistli þínum, sem hafi þá eindregnu skoðun að það þjóni ekki hagsmunum íslensks landbúnaðar að Íslands gerist aðili að ESB? Eða er það bara ein skoðun sem er viðurkennt og ber vott um víðsýni?

Annars kemur þetta svo sem ekki á óvart að aðildarsinnar að ESB vilji ekki viðurkenna rétt fólks né þjóða til að segja NEI.

Jón Baldur Lorange, 27.2.2010 kl. 21:16

5 Smámynd: Theódór Norðkvist

Bændasamtökin eru vanhæf til að fjalla um aðildarviðræður við ESB, enda  hafna þau inngöngu aðeins vegna þess að þau telja sig missa spón úr aski sínum við inngöngu.

Samtökin eru á móti ESB aðild á þeim forsendum að landsmenn missa eitthvað fullveldi. Samt telur þetta lið sjálfsagt að skikka skattgreiðendur gegn sínum vilja til að láta blóðmjólka sig svo þeirra skjólstæðingar geti stundað sinn taprekstur.

Hvar er fullveldisást bændasamtakanna til handa íslenskum skattgreiðendum sem halda þeim uppi nauðugir viljugir?

Theódór Norðkvist, 28.2.2010 kl. 00:23

6 identicon

úff.. hvað ég er orðin þreytt á þessum bláa fána sem ætlar og vill alla og allt gleypa...

Fríríkið Ísland - Já Takk :)

Björg F (IP-tala skráð) 28.2.2010 kl. 03:13

7 Smámynd: Evrópusamtökin, www.evropa.is

Jón Baldur og fleiri: Bændasamtökin telja sig vita hvernig allt er í ESB og meta það mest út frá því að tala við finnska bændur og norska (sem eru jú ekki í ESB!). Það er t.d. lítið talað um sænska bændur, sem hafa "plummað" sig vel innan ESB og kvarta ekki. Nánast ekki orð um það! Nú getur maður lesiðum að búið sé að bjóða fulltrúum bænda til Brussel. Til hver ætla þeir að fara og kynna sér fyrirbæri sem þeir neita að ræða á lýðræðislegum vettvangi? Tilvitnun:,,Helgi Haukur (form. Samtaka ungra bænda, innsk.bloggari) segir það vissulega ágætt að íslenskum fulltrúum hagsmunasamtaka og fyrirtækja sé boðið út til Brussel til kynningar á sambandinu. „Það þarf hins vegar enginn að ganga að því gruflandi að Evrópusambandið vill sýna okkur jákvæðu hliðarnar. Það verður væntanlega lögð minni áhersla á það sem yrðu okkur síður til hagsbóta, til að mynda afleiðingar aðildar á íslenskan landbúnað. Ég er þess fullviss að aðild að Evrópusambandinu myndi hafa mjög alvarleg áhrif á íslenskan landbúnað, svo alvarleg að heilar búgreinar myndu leggjast af og því er ég sannfærður um að okkur sé betur borgið utan þess. Ég hef verið mjög andsnúinn Evrópusambandsaðild og ég tel engar líkur á því að þessi kynningarferð til Brussel breyti því.“

Til hvers er Haukur yfirleitt að fara til Brussel? 

Evrópusamtökin, www.evropa.is, 28.2.2010 kl. 10:27

8 Smámynd: Jón Baldur Lorange

Ég held að Bændasamtökin hafi aldrei gefið það út að þau ,,viti hvernig allt er í ESB" frekar en Evrópusamtökin. Hins vegar hafa þau lagt sig fram við að afla sér þekkingar um hina sameiginlegu landbúnaðarstefnu ESB og hvaða hugsanlegu afleiðingar hún hefði ef henni yrði fylgt hér á landi. Það er aldrei rétt að láta óskhyggjuna ráða för í svo mikilvægu máli en því miður hefur það einkennt umræðuna hjá mörgum aðildarsinnum. Þeir hafa neitað að horfast í augu við gallana en hafa misst sig í umræðunni um kostina.

Þau rök sem Bændasamtökin hafa lagt á borðið hafa ekki verið hrakin mér vitandi með trúverðugum hætti. Enda sagði einn af helstu aðildarsinnum ESB aðildar Benedikt Jóhannesson á fundi í Borgarnesi fyrir ári síðan að hann ætlaði sér ekki að blekkja bændur með því að halda því fram að íslenskur landbúnaður kæmi vel út við aðild Íslands að ESB. Þetta væri m.a. fórnarkostnaðurinn sem yrði að meta á vogarskál kosta og galla aðildar.

Við skulum vona að Helgi Haukur nýti ferðina til að afla sér ,,upplýsandi" þekkingar í Brussel með gagnrýnum hugarfari. Þannig hafa Bændasamtökin nálgast þessi mál.

Jón Baldur Lorange, 28.2.2010 kl. 11:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband