Leita í fréttum mbl.is

Svona lagað gerist ekki í Evrópusambandinu...

Eldgos í HeimaeyEins og kunnugt er, hefur Halldór Gunnarsson, skopteiknari fært sig yfir á Fréttablaðið, frá Mogga. Moggi auglýsti eftir nýjum teiknara. Á Silfri Egils er skemmtileg mynd, sem tengist þessu...og Evrópusambandinu. Smellið á þessa krækju.

Svo er það bara spurningin, ef við göngum í ESB, mun ESB taka af okkur eldfjöllin?

(Mynd: Sigurgeir Jónasson)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnlaugur I.

Nei ESB munu ekki reyna að taka af okkur eldfjöllin.

En þeir munu hinns vegar af sinni ólæknandi sérfræðinga oftrú og "vér einir vitum" syndromi" gefa út fullt af alls konar gagnslausum og arfavitlausum tilskipunum um hvernig eigi að umgangast þau og eftir hvernig stöðlum eigi að vinna við rýmingar og öryggisgæslu.

Mér sýndist nú bara Rangægingum með sinn ágæta og röggsma sýslumann hafa farnast þetta starf mjög vel án nokkurra tilskipana frá Brussel.

Guð forði okkur frá þessu allt um vefjandi ESB forræði, öllu saman ! 

Gunnlaugur I., 10.4.2010 kl. 12:37

2 Smámynd: Lárus Baldursson

Hvað varð um alla gömlu góðu íslensku eftirlitstofnanirnar sem voru við lýði fyrir inngöngu íslands í EES nú er landið galopið fyrir allskonar glæpavarningi og glæpafyrirtækjum sem starfa hér á landi eftirlitslaust.

Lárus Baldursson, 10.4.2010 kl. 12:45

3 identicon

Af hverju halda menn að ESB muni breyta öllu á Íslandi? 

Auðvitað er það ekki svo að allt í einu verða íslenskt lagaverk verða úrelt og ESB lagaverk koma í staðinn.

Af hverju halda menn svona vitleysu?

Það lýsir alveg ótrúlegri minnimáttarkennd þeirra sem eru á móti ESB aðild.

Hefur ESB eitthvað með Vesúvíus að gera?  Eru ESB tilskipanir um það hvernig þar er unnið?

Maður verður bráðum þreyttur á þessari ESB hræðslu.

En teikningin var góð og fyndin.  Segir okkur svolítið hvernig áróður margra ESB sinna gengur út í öfgar.

Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 10.4.2010 kl. 13:05

4 Smámynd: Gunnlaugur I.

Stefán minn.

Teikningin er létt grín og mín háðska ádeila hér að framan er líka að mestu leyti grín en í henni leynist þó talsverður sannleikur.

Þú mátt alveg vera þreyttur á þessu sem þú kallar "ESB hræðsla" sem er reyndar ekkert annað en gagnrýnin umræða um ESB og nær eingöngu sett fram af okkur sem erum mjög gagnrýnir eða algerlega á móti aðild. Bendi þér enn og aftur á að samkvæmt öllum skoðanakönnunum er þessi ESB umsókn algerlega fallinn um sjálft sig.

Meira að segja ISG leggur til að umsóknin verði dreginn til baka, hún sér sem er að það er enginn stuðningur við ESB aðild.

Andstæðingar ESB aðildar eru í miklum meirihluta og andstaðan hefur aldrei verið öflugri.

Þið ESB sinnar eruð sem betur fer fyrir land okkar og þjóð orðnir mjög einangraður og áhrifalítill minnihlutahópur.

Gunnlaugur I., 10.4.2010 kl. 14:01

5 identicon

Gunnlaugur minn.

Lastu síðustu setninguna mína?

Það er ágætt að vera í góðum minnihluta.  Ég minnist orða Ólafs Pá þegar hann kom til Írlands.

Annars skil ég ykkur ekki  andstæðinga ESB.  Þið hafið augljóslega alls enga hugmynd út á hvað ESB gengur.  Því miður verð ég að taka svona sterkt til orða.  Margir þessara fáu ESB sinna á Íslandi hafa heldur enga hugmynd út á hvað ESB gengur.  Þess vegna ætla ég ekki að fara að rökræða við þig um ESB hvort það er paradís eða helvíti.  

Ekki hefur enn farið fram málefnanleg umræða um einstök málefni ESB.  Ég hlakka til þeirrar umræðu.

Ég tek ekki mikið mark á konu sem lét okkur sigla hægt og rólega inn í mesta efnahagshrun Íslandssögunnar!!  Ég vona að þú gerir það ekki heldur.  

Annað í lokin.  Það þurfa ekki allir ESB sinnar að vera Samfylkingarmenn;)

Ég endurtek svo aftur, mér fannst teikningin góð og hittir í mark.

Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 10.4.2010 kl. 14:11

6 Smámynd: Gunnlaugur I.

Sæll aftur Stefán.

Nei það á líka við um mig eins og þig að ég tek ekkert mark á ESB sinnanum og hrunkerlingunni ISG.

Þjóðin stæði örugglega skár að vígi ef hennar hroka-stjórnsýslu og meðvirkni í hruninu hefði ekki notið við.

En oft ratast kjöftugum satt orð á munn sérstaklega þegar hún getur nú talað án nokkurrar ábyrgðar.

ÞAð er líka rétt hjá þér að ESB sinnar geta leynst í öðrum flokkum en Samfylkingunni og maður á ekki að alhæfa um slíkt.

Eins leiðist mér þegar hörðustu ESB sinnarnir kalla okkur ESB andstæðinga annaðhvort, einhverjar ótýndar LÍÚ málpípur eða aftanossa Davíðs Oddsonar, nema hvort tveggja sé. En alhæfingin gengur útá að öðruvísi geti þetta varla verið. 

Staðreyndin er sú að ESB andstaðan hefur nú umtalsvert meirhluta fylgi í öllum stjórnmálaflokkunum nema Samfylkingunni og líka meðal þeirra fjölmörgu sem engan stjórnmálaflokk styðja.  Meirihluti gegn aðild er líka meðal beggja kynjahópanna og í öllum aldurshópum og meðal allra helstu þjóðfélagshópa, ja nema kanski þröngt skilgreindra Evrópusérfræðinga sem flestir eru á styrk frá ESB.

Það hefur heilmikil málefnaleg umræða farið fram um kosti og galla ESB aðildar landsins og við það hefur andstaðan aðeins harðnað.

Þannig að ég hlakka til meiri og víðtækari ESB umræðu því það mun einungis styrkja andstöðuna. 

Því betur sem ég kynnist ESB því meiri hroll fæ ég fyrir þessu ofstjórnar apparati og því vænna þykir mér um föðurlandið mitt, með öllum sínum kostum og göllum.

Gunnlaugur I., 10.4.2010 kl. 14:58

7 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Lárus.. eg mundi segja frekar hvað varð um gömlu íslensku eftiliststofnirnar.... ekki gömlu góðu.

síðan við fórum í EES þá hefur eftirlitskerfið batnað. Það má frekar rekja hrunið í að við Íslendingar fylgdum ekki nóg fast eftir reglum frá Evrópu.

Ef þú skoðar hlutafélagalög og lög um fjármálafyritæki þá hafa flestar stærri breytingar verið vegna EES.

Fyirr tíma EES þá var til alskonar fyrirbæri einsog "grái" markaðurinn. Sem var með öllu eftirlitslaus og er rótinn af DeCode ruglinu þar sem hálf þjóðin var basicly rænd. 

Sleggjan og Hvellurinn, 10.4.2010 kl. 15:22

8 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Við erum á leið inn í framtíð en ekki fortíð, um það getum við öll verið sammála. Á síðustu öld hefur orðið meiri samþjöppun í heiminum en nokkurn tíman áður. Við höfum á ógnar hraða kynnst veröldinni í kringum okkur sem mér finnst jákvætt. Þessi kynning mun halda áfram og æ erfiðara verður að standa utan við umheiminn með hverju árinu. Þess vegna meðal annars er okkur afar mikilvægt að ganga til liðs við umheiminn á okkar forsendum og semja um þá hluti við nágranna okkar. Ég hef þá trú að bandalög þjóða munu stækka og samvinna aukast enn frekar. Það er líka eina færa leiðin til að við getum lifað saman í sátt og samlyndi á jörðinni okkar. 

Hólmfríður Bjarnadóttir, 10.4.2010 kl. 22:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband