Leita í fréttum mbl.is

ESB-fréttir ekki í forgangi hjá Morgunblaðinu...!!

Evrópa-myndÁ netsíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is er að finna ESB-síðu, sem sett var upp í ritstjórnartíð Ólafs Þ. Stephensen. sem kunnugt er tóku Davíð Oddsson og Haraldur Johannessen við af honum.

Það hefur hinsvegar vakið athygli þessa síðuritara að síðan sú virðist ekki vera í forgangi hjá ritstjórum blaðsins. Síðast var sett inn frétt þarna 19.3, eða næstum því fyrir mánuði síðan!

En mikið hefur gerst í henni Evrópu síðan þá! Og til þess að ritstjórarnir gleymi ekki alveg hvernig Evrópa lítur út, birtist hér mynd af henni með þessari frétt!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnlaugur I.

Já eiga bara ekki öll heimili landsins að hafa stórt kort af ESB ríkjunum uppá vegg hjá sér, til þess að gleyma þeim ekki.

Kanski þar ættu líka að vera myndir af öllum helstu Commísörum þessa Yfirríkjabandalags líka. 

Trúarbrögð hvað ?

Nei þessi þráhyggja ykkar er gjörtapað mál fyrir ykkur ESB innlimunarsinna.

Því fyrr sem þið gerið ykkur grein fyrir því, því betra fyrir ykkur sjálfa og þjóð okkar líka.

Því þá verður kanski hægt að sameina þjóðina að nýju eftir alla sundrungina sem þessi ESB vitleysa öll hefur valdið þjóðinni.

Gunnlaugur I., 15.4.2010 kl. 08:15

2 identicon

Hvað er þetta ESB?

Grefillinn Sjálfur - Koma svo! (IP-tala skráð) 15.4.2010 kl. 18:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband