Leita í fréttum mbl.is

Verðbólgudraugurinn, búúúúúú!

Verðbólgudraugurinn?Verðbólgudraugurinn er helsti draugur okkar Íslendinga. Morgunblaðið birtir í dag frétt í dag sem byrjar svona: ,,Ísland sker sig úr varðandi verðbólgu samkvæmt nýbirtum tölum um samræmda vísitölu neysluverðs í ríkjum á evrópska efnahagssvæðinu. Samkvæmt henni er verðbólgan á Íslandi 11,1% mæld á tólf mánaða tímabili í apríl." Öll frétt MBL er hér.

Bendum einnig á þetta pdf-skjal um verðbólgu, sem fylgir fréttinni.

Í ritinu The Republic, sem Seðlabanki Íslands gaf út árið 1996 kom fram að frá stofnun lýðveldisins var um 20% verðbólga að meðaltali. T.d. var hún 70% frá 1983 - 1984, en þáfór hún hvað hæst

Verðbólga í ESB-löndunum er nú um 1,5% að meðaltali. Hér er því sjö sinnum meiri verðbólga en í ESB-ríkjunum. Í BNA var 2,3% verðbólga í mars.

Niðurstaða: Íslendingum gengur afar illa að glíma við verbólgu. Verðbólga er miklu lægri í ESB-löndunum og BNA.

Hvað er verðbólga?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnlaugur I.

Þegar rök ykkar ESB innlimunarsinna eru flest fokinn útí veður og vind og ekki stendur lengur steinn yfir steini af áróðri ykkar fyrir ESB aðild.

Eins og t.d. stóra lygin ykkar sem nú hefur verið afhjúpuð um

"Þetta hefði aldrei gerst hefðum við verið í ESB" 

Í örvæntingu ykkar yfir afleitri málefnastöðunni og fylgisleysinu. Þá breytið þið nú um taktík og grípið þið nú til enn verri og óvandaðra meðala.

Því hjá ESB- trúboðiu helgar tilgangurinn einn meðalið.

Nú snýst áróður og málflutningur ESB trúboðsins og úrtöluliðsins þar á bæ mest um það að tala niður land okkar og þjóð og að gera eins lítið úr Íslandi og sjálfstæði þjóðarinnar sem þið frekast getið, er þar öllu tjaldað til og hvert hálmstrá tekið.

Ávallt er reynt að finna allt sem slæmt getur talist til þess að tala niður íslenskt sjálfstæði og hagsmuni þjóðarinnar og hversu vonlaus og vitlaus við séum sem fullvalda og sjálfstæð þjóð. 

Á hinn bóginn er passað vel uppá það að minnst á það sem vel gengur og er þjóðinni í hag.  Það til dæmis beinlínis hlakkar í ykkur að hér skuli nú hafa komið verðbólguskot.

Ömurlegur málflutningur ykkar er ykkur svo sannarlega til skammar.

Síðan á móti talið þið um ESB dýrðarríkið ykkar óskeikula og verjið þar alla eymdina, spillinguna, atvinnuleysið og ráðaleysið alveg fram í rauðan dauðann !

Þetta mun ekki verða til þess að auka fylgið við ykkur, nema síður sé, heldur aðeins mun þetta herða flótta ESB trúboðsins, sem við ESB andstæðingar rekum nú sem aldrei fyrr .

Gunnlaugur I., 18.5.2010 kl. 12:36

2 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Við einbeitum okkur ekki að einu máli í einu.

Heldur eru þetta fjölmörg mál og fjölbreytt þar sem hagsmunum okkar er miklu betur borgið innan um ESB.

Sleggjan og Hvellurinn, 18.5.2010 kl. 16:14

3 Smámynd: Gunnlaugur I.

Þið eruð svo sanntrúaðir og vissir um yfirburði og óskeikuulleka ESB elítunnar að þrátt fyrir allar hrakfarir ESB apparatsins og Evrunar og þrátt fyrir allar afhjúpanirnar um siðspillinguna og gengdarlausa sóunina, óstjórn fjármuna almennigs og ólýðræðislegu vinnubrögðin.

Þá skiptir Það bara engu máli fyrir ykkur það hrekkur ekkert á sanntrúuðum ESB innlimunarsinnum og tilgangurinn einn helgar meðalið.

Þið hafið fyrir löngu gert þennan barnalega átrúnað að ófrávíkjanlegum og heilögum trúarbrögðum ykkar og á þau bíta enginn rök eða staðreyndir. 

Fyrir ykkur eru þessar svokölluðu samningaviðræður og aðlögunin aðeins formsatriði. Gott ef að það eigi svo ekki bara að sleppa þjóðaratkvæaðgreiðslunni.

Það væri svo sannarlega í anda hinns svokallaða ESB skrifræðis lýðræðis þar sem Elítan ein kyrjar "vér einir vitum" 

Ykkur er í raun vorkunn !

Gunnlaugur I., 18.5.2010 kl. 17:03

4 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Veit ekki hvaða hrakfallir þú ert að tala um.

Ef það er Grikkland sem þú ert að meina þá hefur það sannað sig að með því að Grikkland var í ESB þá hefur Grikkland fengið skjól í faðmi ESB sem veitir þeim lán og miklu betri kjörum en almennt bjóðast mörkuðum í dag.

Ef það væri ekki fyrir ESB þá væri Grikkland gjaldþrota.

Og Evran stendur ágætlega. Hún hefur lækkað um 10% miðað við krónuna frá áramótum. Hún hefur ekki hrunið um helming einsog íslenska krónan sem þarf gjaldeyrishöft til þess að lifa áfram.

Sleggjan og Hvellurinn, 18.5.2010 kl. 18:40

5 Smámynd: Gunnlaugur I.

Ekki finnst öskureiðum almenningi í Grikklandi hafa verið mikið skjól í kæfandi náðarfaðmi ESB valdsins. Þvert á móti þá brenna þeir nú blá gulstjörnufána þessa yfirráðabandalags í blóðugum óeirðum á götum úti.

Þá hefur EVRAN átt stærsta þáttinn í að eyðileggja og sprengja upp efnahag Grikklands og kæfandi faðmlag ESB gerir ekkert raunverulegt gagn fyrir Grísku þjóðina.

Þessi neyðar lánaveisla sem kom því miður allt of seint og er fyrst og fremst til þess að Stóru Ríkin í ESB sem þar öllu ráða geti haldið andlitinu um stundarsakir og unnið sér tíma til að vandi Grikkja hrynji ekki yfir þau nú alveg strax . Vandi Grikkja mun bara aukast með aukinni skuldabyrði og botnlausum niðurskurði og frekari minkunn landsframleiðslu. 

Síðan standa öll hin svokölluðu PIGS ríki ESB frammi fyrir sömu og svipuðum vandamálum. Gjaldmiðillinn EVRAN passar ekki fyrir efnahagskerfi þeirra og nú hríðlækkar EVRAN og hrun er í kauphöllum Evrópu heldur áfram.

Það er greinilega mat markaðarins að þessar aðgerðir dugi lítið eða ekkert og mat flestra efnahags sérfræðinga að ESB og myntsamstarfið sé nú í bráðri hættu.

En þið hér á síðunni stingið bara hausnum í sandinn þegar þið heyrið um vandræði og vandamál í ESB.

En öskrið upp af fögnuði yfir minnstu vandamálum íslensks efnahags eða gjaldmiðils okkar.

Slíkt ber merki um að þið og sértrúarsöfnuður ykkar séuð illa haldinn af ESB veirunni og þar af leiðandi haldnir óstöðvandi sjálfseyðingarhvöt gagnvart þjóð ykkar og öllu því sem íslenskt er. 

En blindaðir af ESB trúarhita viljið þið nú sama hvað, keyra íslensku þjóðina inní ESB apparatið, þetta sökkvandi fley !

Gunnlaugur I., 19.5.2010 kl. 09:35

6 Smámynd: Evrópusamtökin, www.evropa.is

Gunnlaugur: Það er innantómt bull hjá þér að hér sé stungið höfðinu í sandinn. Hér hefur verið sagt frá vandamálum Grikkja, en á það lögð áhersla að þau séu að stærstum hluta heimatilbúin. Þetta er margslungið mál og flókið, ESB blandast að sjálfsögðu inn í það.

Eitt atriði sem t.d. ekkert hefur verið nefnt í sambandi við Grikkland er hið ótrúlega lífeyriskerfi þeirra, þar sem m.a. börn ríkisstarfsmanna fengu að erfa lífeyrisrétt látinna forerldra sinna, sem unnu hjá hinu opinera. 

Þú ert svo reiður að það kæfir hið málefnalega í skrifum þínum. Ert sífellt að endurtaka einhverja sovét-líkingu, sem á sér enga stoð í veruleikanum.

Evrópusamtökin, www.evropa.is, 19.5.2010 kl. 21:46

7 Smámynd: Jón Frímann Jónsson

Gunnlaugur I, hvernig er í ESB ríkinu Spáni ?

Jón Frímann Jónsson, 21.5.2010 kl. 17:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband