29.5.2010 | 15:39
Svanborg Sigmarsdóttir: Að detta niður í bullið
"Auglýsingagjörningur" ungra bænda hefur vakið athygli og spurningar. Svanborg Sigmarsdóttir, stingur niður penna á Sterkara Ísland og skrifar um þetta mál.Hún segir m.a:
"Ungir bændur, dyggilega studdir af formanni Heimssýnar, ákváðu í dag að reyna sitt besta til að koma umræðu um Evrópusambandið niður í dýpsta forarpytt. Þegar ekki er hægt að halda uppi umræðu sem byggir á rökum er illt í efni. Þegar fallið er í gryfju bulls og hræðsluáróðurs í stað raka veltir maður því fyrir sér hvort eigi yfir höfuð að taka þátt í slíkri dellu. En lygarnar gera það að verkum að einhverju verður að svara.
Ungir bændur vilja ekki í ESB, því þeir óttast að Evrópusambandið taki upp herskyldu sem skyldi Íslendinga í Evrópuherinn. Þessa hugmynd fá þeir með því að afbaka hugmyndir um þróun sameiginlegu varnarstefnu bandalagsins, en þar má finna hugmyndina um sameiginlegt hraðlið eða Rapid Response Force.
Það fyrsta í bullinu er auðvitað að það sé einhver hugmynd uppi um herskyldu allra Evrópuþjóða. Allar Evrópuþjóðir, utan Íslands, hafa her, en hver þjóð er sjálfvalda um það hvort hún hafi herskyldu og það er jafn líklegt og að Ísland verði stórútflytjandi á bönunum og að þær samþykki allar að taka upp herskyldu, hvað þá sameiginlega herskyldu. Flestir hermenn esb-ríkjanna eru atvinnuhermenn, en hafa ekki verið skyldaðir til þátttöku."
Eldri færslur
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Evrópusamtökin-heimasíða Heimasíða Evrópusamtakanna
- Aðildarviðræður við ESB
- Já-Ísland
- Evrópustofa Upplýsingar um ESB og Evrópumál
- Evrópusambandið-ESB
- Utanríkisráðuneytið
- Sendiráð ESB á Íslandi Sendiráð ESB á Íslandi
- Meirihlutaálit Utanríkismálanefndar Alþingis
- Skýrsla Evrópunefndar
- RÚV:ESB-vefur
- Uppl. fyrir blaðamenn
- Sterkara Ísland
- FRBL-Umræða-Leiðarar
- European Daily Fréttir frá Evrópu
- BBC-Evrópa
- EU-Observer
- EUtube ESB á you tube
- Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg.
- Evrópuskrifstofan
- EurActiv-Fréttir um ESB
- Euranet (Útvarp)
- Euronews
- Evrópusíða UTN Evrópusíða utanríkisráðuneytisins
- Ungt fólk og ESB Ungt fólk og ESB
- ESB-umfjöllun MBL
Fréttabréfið
Fréttabréf Evrópusamtakanna
Bloggvinir
- Arna Lára Jónsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Daði Einarsson
- Dofri Hermannsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Fararstjórinn
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðlaugur Kristmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Hinrik Már Ásgeirsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreinn Hreinsson
- Jón Gunnar Bjarkan
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Júlía Margrét Einarsdóttir
- Loopman
- Magnús Már Guðmundsson
- Marta B Helgadóttir
- Sveinn Arnarsson
- Tómas Þóroddsson
- Vefritid
- gudni.is
- Ágúst Hjörtur
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Rúnar Þorvaldsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Arnar Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Barði Bárðarson
- Björn Halldórsson
- Brattur
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- ESB
- Eva Benjamínsdóttir
- Eva G. S.
- Eyjólfur Sturlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðlaugur Hermannsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Heiðar Lind Hansson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Sigurðsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kama Sutra
- Kjartan Jónsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- Natan Kolbeinsson
- Óðinn Kári Karlsson
- Óskar Þorkelsson
- Ragnar G
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sema Erla Serdar
- Sigurður M Grétarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Sumarliði Einar Daðason
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Ungir evrópusinnar
- Þarfagreinir
Athugasemdir
Okkar framlag til öryggismála er fyrst og fremst Landhelgisgæsla Íslands, sem kostar að öllum líkindum ekki minna á hvern Íslending en herir annarra þjóða kosta þær á hvern mann.
Evrópusambandið er og verður samtök fullvalda ríkja. Bretum þætti nú einkennilegt ef Bretland væri ekki fullvalda ríki og þeir myndu aldrei samþykkja að Bretland yrði það ekki.
"Alþjóðastofnun eða alþjóðasamtök eru samtök fullvalda ríkja sem hafa ákveðin markmið og reglur sem aðilar að þeim þurfa að fullnægja og fylgja eftir. Sem dæmi má nefna Evrópusambandið, Rauða krossinn og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn."
Samtök fullvalda ríkja - Wikipedia
Og enda þótt Ísland hafi ekki eigin her hefur landið sjaldan verið herlaust síðastliðna sjö áratugi, frá því í seinni heimsstyrjöldinni. Og það hefur heldur ekki verið herlaust frá því að Bandaríkjaher fór af Miðnesheiði fyrir þremur árum."
Saga Bandaríkjahers á Miðnesheiði
"The CFSP [Common Foreign and Security Policy of the European Union] sees the NATO responsible for the territorial defence of Europe and "peace-making" while since 1999 the European Union is responsible for implementation missions, such as peace-keeping and policing of treaties etc."
Common Foreign and Security Policy of the European Union
Þorsteinn Briem, 29.5.2010 kl. 16:06
Ungir bændur eru engir lygarar.
Þeir velta aðeins upp þessum möguelika um að hugsanlega verði komið á fót sérstökum ESB herafla. Það er staðreynd að þetta hefur verið rætt meðal margra ráðamenna ESB og allt á það að markmið að hraða á "Evrópusamrunanum" eins og það heitir hjá Elítunni.
Svanborg viðurkennir þó að mögulega muni ESB koma sér upp svona einhverskonar herafla en fullyrðir að þar yrði einungis um atvinnuherafla að ræða og því sé enginn möguleiki að um herskyldu yrði að ræða hjá Sambandinu.
Ef hinns vegar kæmi til hernaðarátaka þar sem ESB teldi sér eða hagsmunum sínum ógnað þá yrði ekkert spurt um það því þá yrði bara gefin út allsherjar ESB tilskipun á öllu ESB svæðinu um allsherjar herútboð á öllu svæðinu.
Eins og elítan vill með öllum ráðum hraða á "Evrópusamrunanum" sínum þá er aldrei að vita annað en það sé ekki langt í það að ESB verði komið með öflugan herafla innan skamms og þegar leiðtogi Þjóðverja talar fyrir þessu, þá er mjög líklegt að það sé styttra en flesta grunar. Þjóðverjar ásamt helstu fylgiríkjum hefur haft tögl og hagldir í þessu Bandalagi og yfirleitt hefur flest gengið fram sem þeir hafa viljað.
Ungir bændur eiga þakkir skyldar fyrir að vekja athygli á þessu og þetta er mjög málefnalega og sterkt sett fram hjá þeim með líkingarmynd úr hernaði.
Ég held að Svanborgu væri nær að horfa í eigin barm þegar kemur að lygum og blekkingu. ESB trúboðið með slagorðinu: "Þetta hefði aldrei gerst hefðum við verið í ESB og með Evru"
Öll sú lyga- og blekkingarþvæla um undur og stórmerki ESB aðildar hefur nú rækilega verið afhjúpuð sem einhverjar mestu lygar og blekkingar gjörvallrar Íslandssögunnar.
Svanborg og ESB innlimunar samtök hennar ættu frekar að reyna að svara fyrir það allt saman þó þau geti það reyndar ekki.
En ættu að hætta fjargviðrast útí "Unga bændur" sem hugsa um framtíð barna okkar og vilja verja sjálfstæði og fullveldi þjóðarinnar án hervæðingar og án ESB innlimunar.
Gunnlaugur I., 29.5.2010 kl. 16:17
Gunnlaugur fyrsti.
Ég var í mörg ár blaðamaður á Morgunblaðinu og þar höfðum við engan tíma til að hlusta á eða lesa endalaust rugl eftir karla eins og þig sem færa engin haldbær rök fyrir máli sínu.
Ég skrifaði þar fréttir um alls kyns málefni og gaf vikulega út við annan mann sérblað um sjávarútvegsmál, Úr verinu.
Það var Morgunblaðið lesið af tvö hundruð þúsund manns á dag og tveir þriðju hlutar þjóðarinnar hefðu nú fljótt orðið þreyttir á að lesa fréttir og fréttaskýringar eftir mig ef ég hefði þar einungis hampað því sem mér sjálfum FYNDIST um hitt og þetta.
Og ég var aldrei beðinn um að leiðrétta eitthvað sem birtist eftir mig í Morgunblaðinu.
Þorsteinn Briem, 29.5.2010 kl. 16:41
ÞÁ var Morgunblaðið lesið af tvö hundruð þúsund manns á dag, átti þetta nú að vera, en rúmlega fimmtíu þúsund manns keyptu blaðið.
Ég gæti trúað að lesendurnir séu um helmingi færri núna en ekki vegna þess að ÉG hætti á blaðinu til að fara í háskólanám í hagfræði og lögfræði.
Þorsteinn Briem, 29.5.2010 kl. 16:49
Skil nú ekki alveg þetta síðasta comment hjá þér Steini Briem
Þú ert nú svo heitur og heilaþveginn ESB- innlimunarsinni að það skiptir engu máli á þig hníga enginn rök. Þú getur alveg í ESB hroka þínum og sjálfsupphafningu yfir því að hafa verið blaðamaður á mbl og skrifað um sjávarútvegsmál kallað mig karl sem bara ruglar, það bætir ekkert vondan og ónýtan málstað ykkar ESB innlimunarsinna.
Rök gegn ESB aðild Íslands eru fjölda mörg og höfum ég og fleiri oft sett þau fram bæði skýrt og greinilega.
Nú er svo illa komið fyrir ykkur að við ESB andstæðingar þurfum lítið að tala um þessi rök okkar því það er orðið nóg að höfða til heilbrigðrar skynsemi og vísa til ófaranna og helfarar ESB apparatsins og PIIGS ríkjanna sem þrátt fyrir ESB aðild og Evru berjast nú flest hver við miklu verri og erfiðari hluti heldur en íslendingar.
Þannig sér venjulegt fólk að það er ekkert annað en hið versta feigðarflan fyrir Ísland að ætla að gefa frá sér fullveldið og sjálfstæðið að stórum hluta til þess að ganga þessu vonlausa yfirráðabandalgi á hönd.
Gunnlaugur I., 29.5.2010 kl. 16:59
Mér er alveg nákvæmlega sama hvað þér FINNST, Gunnlaugur fyrsti.
Þorsteinn Briem, 29.5.2010 kl. 17:29
Ég veit það herra Briem, en vil minna þig á að skoðanir mínar eða þinar hafa ekkert með presónu mína eða þína að gera.
Mér finnst þú að mörgu leyti málefnalegur og áhugavert að lesa það sem þú segir.
Alveg öfugt við þig ;)
Vona að þú eigir gott kosninga- og Eurovision kvöld á landinu okkar bláa !
Gunnlaugur I., 29.5.2010 kl. 18:00
Ég persónulega er bara nokkuð sáttur við þessa auglýsingu. Hún afhjúpar NEI-liðið.
Ég þekki nokkra sem hafa skipt um skoðun og stutt ESB eftir að þeir sáu þessa auglýsingu.
Þannig að ungbændur eru að hjálpa okkar málstað.
Sleggjan og Hvellurinn, 29.5.2010 kl. 18:02
Spurning til Gunnlaugs I:
Eigum við að ganga úr NATO?
Svavar Bjarnason, 29.5.2010 kl. 18:30
Gunnlaugur I, Samtök Ungra Bænda voru kannski ekki lygarar hérna í eina tíð. Í dag er hinsvegar staðan sú að Samtök Ungra Bænda eru rotnir lygarar inn að beini og sýktir sem slíkir.
Það sem meira er. Þú ert búinn að gera sjálfan þig að lygara og ómerkingi með því að taka undir þetta bull hjá Samtökum Ungra Bænda. Þér greinilega finnst það allt í lagi.
Ég þarf ekki að svara innihaldslausum frasasvörum frá þér Gunnar I. Sérstaklega þegar sem þú kemur ekki með neitt nema útúrsnúninga og blekkingar eins og þú gerir hérna.
P.s: Það er engin þjóð innlimuð í ESB. Það veistu fullvel, þar sem þú býrð á Spáni.
Jón Frímann Jónsson, 29.5.2010 kl. 20:19
Falleg og skynsöm er hún Svanborg og mér þykir líklegt að hún kunni English Style Foxtrot.
Standard Figures
Gunnlaugur fyrsti.
Undirritaður á fjögur þúsund vini á Snjáldru (Facebook), um helmingur þeirra býr í löndum Evrópusambandsins og enginn þeirra hefur kvartað yfir því við mig.
Þar að auki hef ég búið í tveimur löndum Evrópusambandsins, Svíþjóð og Eistlandi, er á engan hátt öfgasinnaður og því til sönnunar hef ég sofið hjá kvenfólki í öllum íslenskum stjórnmálaflokkum.
Gera verður fleira en gott þykir.
Þorsteinn Briem, 30.5.2010 kl. 05:11
Núna er Björn Bjarnarsson fyrrverandi Dómsmálaráðherra búinn að leggja blessun sína yfir þetta bull. Sjá hérna.
Þessi vefur er nátengdur Davíð og hans hirð.
Jón Frímann Jónsson, 30.5.2010 kl. 12:49
Bíbí vinur minn hefur sér það til dundurs í ellinni að ljúga að sjálfum sér og þjóðinni.
Landhelgisgæslan er okkar her og hún fær trúlega jafn mikið fé frá okkur Íslendingum á mann og herir annarra þjóða.
Og í sumar fáum við nýtt varðskip, mun stærra og fullkomnara en þau sem við eigum nú.
Flugsveit frá þýska flughernum sinnir hér loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins 7.-25. júní næstkomandi.
Sveitin verður hér í boði íslenskra stjórnvalda og starfar í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland.
Þorsteinn Briem, 30.5.2010 kl. 15:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.