27.6.2010 | 10:02
Viðbrögð byrja að seitla fram
Nú eru farin að koma fram viðbrögð við þeim fleyg sem rekinn var í gegnum Sjálfstæðisflokkinn á landsfundinum í gær, þegar Nei-sinnar læddu því inn á síðustu stundu inn í lokaályktun flokksins að draga bæri umsóknina að ESB til baka.
Fólk er þegar farið að segja sig úr flokknum, lesið t.d. þessa harðorðu bloggfærslu.
Jórunn Frímannsdóttir, áhrifamanneskja úr borgarstjórnmálunum í Reykjavík og fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, skrifar á sínu bloggi:
"Í stórum flokki (eins og Sjálfstæðiflokkurinn var og á að vera), þurfa mismunandi sjónarmið að rúmast. Ég vil ekki og ætla ekki að trúa því að Sjálfstæðisflokkurinn geti ekki rúmað sjónarmið Sjálfstæðra Evrópusinna. Það var sorglegt að ekki skyldi nást samstaða um málamiðlun í ESB málum á landsfundinum. Hvað hræðast menn svo mjög við það að skoða það hvaða samningum við getum náð? Þjóðin mun kjósa um samningana á endanum og fella þá ef þeir verða okkur ekki þóknanlegir. Við verðum að halda áfram í samvinnu annarra þjóða, í vestrænni samvinnu. Evrópusambandið er ekki Grýla eins og margir vilja vera láta, heldur samband og samvinna fjölmargra þjóða."
Og síðar segir hún: "Ég var ósátt við niðurstöðu landsfundar og velti því fyrir mér hvort flokkurinn minn rúmi ekki lengur ólík sjónarmið og ætli sér að hrekja burt alla þá fjölmörgu Sjálfstæðismenn sem eru því fylgjandi að við skoðum það hvaða samningum við getum náð í samstarfi evrópuþjóða áður en við leitum annað. Ætlum við að senda þau skilaboð til Evrópusambandsríkjanna að við viljum ekki vita hvaða samningum við getum náð?"
Eldri færslur
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Evrópusamtökin-heimasíða Heimasíða Evrópusamtakanna
- Aðildarviðræður við ESB
- Já-Ísland
- Evrópustofa Upplýsingar um ESB og Evrópumál
- Evrópusambandið-ESB
- Utanríkisráðuneytið
- Sendiráð ESB á Íslandi Sendiráð ESB á Íslandi
- Meirihlutaálit Utanríkismálanefndar Alþingis
- Skýrsla Evrópunefndar
- RÚV:ESB-vefur
- Uppl. fyrir blaðamenn
- Sterkara Ísland
- FRBL-Umræða-Leiðarar
- European Daily Fréttir frá Evrópu
- BBC-Evrópa
- EU-Observer
- EUtube ESB á you tube
- Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg.
- Evrópuskrifstofan
- EurActiv-Fréttir um ESB
- Euranet (Útvarp)
- Euronews
- Evrópusíða UTN Evrópusíða utanríkisráðuneytisins
- Ungt fólk og ESB Ungt fólk og ESB
- ESB-umfjöllun MBL
Fréttabréfið
Fréttabréf Evrópusamtakanna
Bloggvinir
- Arna Lára Jónsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Daði Einarsson
- Dofri Hermannsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Fararstjórinn
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðlaugur Kristmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Hinrik Már Ásgeirsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreinn Hreinsson
- Jón Gunnar Bjarkan
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Júlía Margrét Einarsdóttir
- Loopman
- Magnús Már Guðmundsson
- Marta B Helgadóttir
- Sveinn Arnarsson
- Tómas Þóroddsson
- Vefritid
- gudni.is
- Ágúst Hjörtur
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Rúnar Þorvaldsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Arnar Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Barði Bárðarson
- Björn Halldórsson
- Brattur
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- ESB
- Eva Benjamínsdóttir
- Eva G. S.
- Eyjólfur Sturlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðlaugur Hermannsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Heiðar Lind Hansson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Sigurðsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kama Sutra
- Kjartan Jónsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- Natan Kolbeinsson
- Óðinn Kári Karlsson
- Óskar Þorkelsson
- Ragnar G
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sema Erla Serdar
- Sigurður M Grétarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Sumarliði Einar Daðason
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Ungir evrópusinnar
- Þarfagreinir
Athugasemdir
Jórun Frímannsdóttir hittir naglan á höfuðið þegar hún lýsir því hver er höfudrifkraftur andstæðinga þess að við ljúkum aðildarviðræðunum við ESB. Það er óttin við það sem þá kann að koma í ljós; að við náum svo hagstæðum samningum með svo litlum fórnum að aðild okkar að ESB er auljós miklum meirhluta landsmanna!
Sigurður Grétar Guðmundsson, 27.6.2010 kl. 11:27
Það er vissulega komin upp nýr flötur á þessu stóra máli, eða öllu heldur hvað fylgendur aðildarviðræðna eru í raun margir. Auðvitað á að fá fram okkar möguleika og ég hef allan tímann verið þeirrar skoðunar og við eigum mjög góða möguleika.
Hólmfríður Bjarnadóttir, 27.6.2010 kl. 11:34
Það er óhætt að óska Sjálfstæðismönnum til hamingju að taka einarða og skýra stefnu upp gegn ESB aðild Íslands.
Slík stefna á aðeins eftir að efla og styrkja flokkinn á ný.
Það verða ekki margir sem yfirgefa flokkinn vegna þessa, auk þess sem þeir munu líka fá nýtt fólk inn sem treystir flokknum til að standa sig í að standa vörð um sjálfstæði- og fullveldi þjóðarinnar án ESB- helsis.
Lýðræðisins vegna þurfa kjósendu að hafa hreinar línur í þessu stóra máli.
Annars gætum við bara haft einn stjórnmálflokk sem héti t.d. Samfylkingin og væri samansafn allskyns ólíkra skoðanahópa, allt í nafni umburðarlyndis.
Það reyndist nú ekki vel í Sovéttinu og lítið fór þar fyrir umburðarlyndinu.
Auðvitað eru örfáir stuðningsmenn ESB aðildar enn til í öllum flokkum og líka meðal þeirra sem engan flokk styðja en þeir eru orðnir mjög fáir og eru þar sem betur fer fyrir lland og þjóð, algerlega áhrifalausir.
Með símynnkandi fylgi við ESB aðild meðal þjóðarinnar þá er stuðningslið ESB aðildar nú tætingslið og algerlega orðið einangrað í einum flokki þ.e. í Samfylkingunni, sem samt sem áður virðist stöðugt vera að minnka fylgi sitt.
Upptendraða ESB öfugmælakonan Hólmfríður Bjarnadóttir segir hér að ofan:
"að nú sé komin upp nýr flötur á þessu stóra máli, eða öllu heldur hvað við fylgjendur aðildarviðræðna erum í raun margir".
Haltu bara áfram að telja Hólmfríður !
Hún heldur alltaf eins og fyrri daginn að ESB trúboðið sé í þvílíkri stórsókn og aðeins sé tímaspursmál hvenær ESB sinnar vinni sína stórkostlegu lokasigra.
Hún má alveg lifa í þesum upphöfnu ranghugmyndum sínum en staðreyndirnar blasa við, ESB trúboðið er á alls staðar á hröðu undanhaldi málefnalega og nýtur síminnkandi fylgis.
Nú er svo komið að meira en 70% landsmanna vilja ekkert með ESB umsóknina hafa að gera.
Þið getið auðvitað áfram haldið að túlka stöðugt undanhald ykkar sem hvern stórsigurinn á fætur öðrum.
En þjóðin okkar veit betur og sér í gegnum ykkur í þessu sem öðru.
Gunnlaugur I., 27.6.2010 kl. 12:46
Við vitum hvað innganga í Evrópusambandið þýddi nú þegar. Eins og Olli Rehn, þáverandi stækkunarmálaráðherra sambandsins, sagði fyrir ekki alls löngu þá eru öll spil þess á borðinu, sáttmálarnir og regluverkið er öllum aðgengilegt. Þetta er ekkert flókið.
Hjörtur J. Guðmundsson, 27.6.2010 kl. 14:10
Hjörtur J, innganga í ESB mundi aðeins þýða betri kjör fyrir almenning, lægri vexti á endanum og betri lífsskilyrði.
Annars reikna ég með því að þú flytjir fljótlega til Bandaríkjana, í stíl við þá hægri hugmyndafræði sem þú aðhyllist.
Gunnlaugur I, andstæðingar ESB á Íslandi voru að sýna hvað raunverulega býr að baki þeim, og vegna þess voru þeir að tapa baráttunni. Áður en hún hófst raunverulega.
Jón Frímann Jónsson, 27.6.2010 kl. 14:56
Við ESB andstæðingar þurfum ekki að óttast neitt. Við sem viljum verja sjálfstæði og fullveldi þjóðarinnar án ESB helsis, þurfum ekkert að óttast.
En þið ESB innlimunargengið þurfið að fara að horafast í augu við raunveruleikann og óumflyjanlegt og sárt tapið og það með húð og hári það er þinglýst eign ykkar þessa hávæara minnihlutahóps.
Jón Frímann, búðu þig bara undir það drengur minn, það verður eilítið skárra fyrir þig að lifa með það því fyrr sem þú viðurkennir algeran ósigur ESB trúboðsins þíns sem þú tilbiður og berst fyrir.
Gunnlaugur I., 27.6.2010 kl. 16:21
Það er greinilegt að ESB andstæðingar treysta því ekki að það verði meirihluti til að fella aðildarsamning þegar þar að kemur. Ég er eiginlega sammála þeim.
Gísli Ingvarsson, 27.6.2010 kl. 17:06
Aðildarsamningur við morknað og gjörspillt ESB stjórnar-ráðsðisapparatið verður kolfelldur hvar og hvenær sem er hér á Íslandi Gísli Ingvarsson.
Það þarf enginn að veltast neitt í vafa um það lengur, eða óttast neitt um það ja nema þið þessir örfáu ESB aftaníossar !
Gunnlaugur I., 27.6.2010 kl. 17:27
Gunnlaugur I, Afhverju kýstu að búa í svona spilltu apparati ? Spánn er í ESB og hefur verið það síðan 1986 (þá EEC). Þú hefur aldrei svarað þessari spurningu almennilega. Þess í stað ferðu á handahlaupum og ferð að tala um eitthvað annað.
Það er ennfremur greinilegt að andstæðingar ESB á Íslandi eru hræddir, annars mundi þeir ekki leggja svona mikið á sig til þess að stoppa aðildarferlið og samningsferlið eins og raun ber vitni.
Ástæðan er líklega það eftirlit sem mun koma með aðildarferlinu, og sérstaklega ef íslendingar samþykkja aðildarsamning Íslands við ESB. Þá verður þetta eftirlit ESB til staðar og andstæðingar ESB á Íslandi, sem margir hverjir þrífast á spillingu geta ekkert gert til þess að hafa áhrif á það eftirlit. Á Íslandi nefnilega hefur þetta fólk haft stjórn á hlutunum, og þaggað niður í öllu sem heitir eftirlit.
Enda yrði bara hlegið að þeim og þeir kærðir.
Jón Frímann Jónsson, 27.6.2010 kl. 23:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.