28.7.2010 | 20:25
Framkvæmdastjóri NEI-sinna: Kallar Össur lygara
Það er ljóst að NEI-sinnar Íslands eru tjúllaðir vegna þess að samningaferli Íslands og ESB er formlega hafið. Menn missa sig algerlega og AMX-vefnum, mest hægri af öllu hægri hér á landi, ofbýður.
Dæmi: Framkvæmdastjóri NEI-samtakanna, bloggarinn Páll Vilhjálmsson, kallar Össur Skarphéðinsson,utanríkisráðherra landsins, lygara:
"Lygi til heimabrúks, um að Ísland væri á leið í könnunarviðræður, og lygi á erlendum vettvangi, t.d. að þjóðin standi að baki umsókn Samfylkingar, er starfsaðferð Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra. Hér heima hefur Össuri orðið ágengt og á sæti í ríkisstjórn."
Morgunblaðið vitnar núorðið oft í PV. En meira að segja AMX-vefnum ofbýður orðfæri framkvæmdastjórans og þar segir um tilvitnunina hér að ofan:
"Þó smáfuglarnir hefðu valið mildari orð en Páll verður ekki undan því vikist að viðurkenna að Páll hefur rétt fyrir sér. Össur sagði viðræðurnar við ESB vera könnunarviðræður en nú er orðið ljóst það sem bent var á að þær eru fátt annað en fullgildar aðildarviðræður þar sem Ísland lagar sig að ESB - en ekki öfugt."
AMX-menn geta ekki á sér setið og taka undir þetta, kalla þar með Össur einnig lygara.
ÞAÐ ER MEÐ ÓLÍKINDUM HVAÐ LAGST ER LÁGT!
Eldri færslur
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Evrópusamtökin-heimasíða Heimasíða Evrópusamtakanna
- Aðildarviðræður við ESB
- Já-Ísland
- Evrópustofa Upplýsingar um ESB og Evrópumál
- Evrópusambandið-ESB
- Utanríkisráðuneytið
- Sendiráð ESB á Íslandi Sendiráð ESB á Íslandi
- Meirihlutaálit Utanríkismálanefndar Alþingis
- Skýrsla Evrópunefndar
- RÚV:ESB-vefur
- Uppl. fyrir blaðamenn
- Sterkara Ísland
- FRBL-Umræða-Leiðarar
- European Daily Fréttir frá Evrópu
- BBC-Evrópa
- EU-Observer
- EUtube ESB á you tube
- Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg.
- Evrópuskrifstofan
- EurActiv-Fréttir um ESB
- Euranet (Útvarp)
- Euronews
- Evrópusíða UTN Evrópusíða utanríkisráðuneytisins
- Ungt fólk og ESB Ungt fólk og ESB
- ESB-umfjöllun MBL
Fréttabréfið
Fréttabréf Evrópusamtakanna
Bloggvinir
- Arna Lára Jónsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Daði Einarsson
- Dofri Hermannsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Fararstjórinn
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðlaugur Kristmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Hinrik Már Ásgeirsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreinn Hreinsson
- Jón Gunnar Bjarkan
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Júlía Margrét Einarsdóttir
- Loopman
- Magnús Már Guðmundsson
- Marta B Helgadóttir
- Sveinn Arnarsson
- Tómas Þóroddsson
- Vefritid
- gudni.is
- Ágúst Hjörtur
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Rúnar Þorvaldsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Arnar Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Barði Bárðarson
- Björn Halldórsson
- Brattur
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- ESB
- Eva Benjamínsdóttir
- Eva G. S.
- Eyjólfur Sturlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðlaugur Hermannsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Heiðar Lind Hansson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Sigurðsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kama Sutra
- Kjartan Jónsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- Natan Kolbeinsson
- Óðinn Kári Karlsson
- Óskar Þorkelsson
- Ragnar G
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sema Erla Serdar
- Sigurður M Grétarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Sumarliði Einar Daðason
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Ungir evrópusinnar
- Þarfagreinir
Athugasemdir
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að leggja inn umsókn um aðild Íslands að ESB og að loknum viðræðum við sambandið verði haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um væntanlegan aðildarsamning. Við undirbúning viðræðna og skipulag þeirra skal ríkisstjórnin fylgja þeim sjónarmiðum um verklag og meginhagsmuni sem fram koma í áliti meiri hluta utanríkismálanefndar."
Nefndarálit meirihluta utanríkismálanefndar
Þingmenn í Samfylkingunni, Vinstri grænum, Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum, ítem Þráinn Bertelsson, greiddu atkvæði með umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu.
Samþykkt á Alþingi 16. júlí í fyrra: 33 þingmenn sögðu já en 28 nei og 2 greiddu ekki atkvæði. (Gunnar Bragi Sveinsson sagði nei.)
Þingsályktun um aðildarumsókn að Evrópusambandinu
Þorsteinn Briem, 28.7.2010 kl. 20:54
Þingmenn framsóknarmanna sem greiddu atkvæði með þingsályktun um aðildarumsókn að Evrópusambandinu:
Birkir Jón Jónsson, Guðmundur Steingrímsson og Siv Friðleifsdóttir.
Þingmenn vinstri grænna sem greiddu atkvæði með aðildarumsókninni:
Álfheiður Ingadóttir, Árni Þór Sigurðsson, Bjarkey Gunnarsdóttir (varamaður Björns Vals Gíslasonar), Katrín Jakobsdóttir, Lilja Mósesdóttir, Steingrímur J. Sigfússon, Svandís Svavarsdóttir og Ögmundur Jónasson.
Einnig greiddu atkvæði með aðildarumsókninni, auk allra þingmanna Samfylkingarinnar, sjálfstæðismaðurinn Ragnheiður Ríkharðsdóttir og Þráinn Bertelsson, utan þingflokka.
Sátu hjá:
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Og Sjálfstæðisflokkurinn tapaði NÍU þingmönnum í alþingiskosningunum í fyrra.
Þorsteinn Briem, 28.7.2010 kl. 20:56
SKOÐANAKANNANIR.
"24. October 2005
Least corruption in Iceland
Iceland ranks #1 of 159 countries included in the Transparency International Corruption Perceptions Index 2005. Iceland's CPI 2005 score of 9.7 and CPI 2004 score of 9.5 is the top score overall."
News - Least corruption in Iceland
Þorsteinn Briem, 28.7.2010 kl. 21:31
PV er náttúrlega bara svolítið galin útgáfa af íslendingi og ég held að fáir taki raunverulega mark á því sem hann segir. Ég horfi alla vegana í hina áttina þegar ég sé einhver öfgaskrif frá honum.
Hólmfríður Bjarnadóttir, 28.7.2010 kl. 22:15
Ég er hins vegar afar stolt af Össurir vini mínum og félaga þessa dagana. Hann og ríkisstjórnin okkar er að feta með okkar laskaða þjóðfélag inn á þann veg sem ég tel að komi okkur aftur á réttan kjöl
Hólmfríður Bjarnadóttir, 28.7.2010 kl. 22:17
SKOÐANAKANNANIR OG KOSNINGAR.
Fylgi flokkanna samkvæmt skoðanakönnun Capacent Gallup vikuna 25.-31. mars 2009, einungis 24-30 dögum fyrir alþingiskosningarnar 25. apríl 2009:
Samfylkingin 29,4% en fékk 29,8% í alþingiskosningunum,
Vinstrihreyfingin - grænt framboð 27,7% en fékk 21,7% í alþingiskosningunum,
Sjálfstæðisflokkurinn 25,4 en fékk 23,7% í alþingiskosningunum,
Framsóknarflokkurinn 10,7% en fékk 14,8% í alþingiskosningunum,
Borgarahreyfingin 3% en fékk 7,2% í alþingiskosningunum,
Frjálslyndi flokkurinn 1,4% en fékk 2,2% í alþingiskosningunum.
Kosningar til Alþingis 25.4.2009
Capacent Gallup 8.4.2009: Lítil breyting á fylgi flokkanna í mars
Þorsteinn Briem, 28.7.2010 kl. 22:55
"Evrópureglur eru hlutlausar gagnvart eignarhaldi á orkufyrirtækjum, viðkomandi ríki getur sjálft skipað þeim málum, að sögn Elviru Méndez Pinedo, sérfræðings í Evrópurétti."
Aðildarríki Evrópusambandsins ráða sjálf eignarhaldi á orkufyrirtækjum
Þorsteinn Briem, 28.7.2010 kl. 23:52
Í alþingiskosningunum 25. apríl í fyrra fengu Vinstri grænir um 20% færri atkvæði í kosningunum en skoðanakönnun Capacent Gallup á fylgi flokkanna sýndi í sama mánuði og kosningarnar voru haldnar.
Framsóknarflokkurinn fékk hins vegar um 40% fleiri atkvæði í kosningunum og Borgarahreyfingin um 140% fleiri atkvæði en skoðanakönnunin sýndi.
Þar af leiðandi er ÚTILOKAÐ að einhver geti núna FULLYRT hvort samningur um aðild Íslands að Evrópusambandinu verður samþykktur hér í þjóðaratkvæðagreiðslu EFTIR TVÖ ÁR.
Kosningar til Alþingis 25.4.2009
Capacent Gallup 8.4.2009: Lítil breyting á fylgi flokkanna í mars
Þorsteinn Briem, 29.7.2010 kl. 04:06
Palli Vill blaðamaður segir að Össur Skarp sé "lygari" og það sér hver maður sem kynnir sér málflutning hans og hégómlegt flaður hans í ESB málinu.
Auðvitað stendur þjóðin ekkert að baki þessari ESB umsókn.
Þjóðin er í sárum og illa sundruð vegna þessarar bannsettu ESB umsóknar og mikill meirihluti þjóðarinnar vill ekkert með þessa ESB umsókn hafa að gera.
Össur er ekki þjóðin og verður sem betur fer aldrei !
Þjóðin mun bæði hafna gjörspilltu ESB valdaapparatinu og einnig skaðræðisgripnum Össuri næst þegar hún fær tækifæri til !
Gunnlaugur I., 29.7.2010 kl. 17:09
Gunnlaugur. Þú ert ekki þjóðin. Þú veist ekkert hvað þjóðin mun gera. Ef þú værir svona snjall, þá gætum við bara sparað okkur bæði kosningar og þjóðaratkvæðisgreiðslur. Staðreyndin er að Össur var kosinn á þing. Það er staðreynd að Samfylking og VG mynduðu ríkisstjórn. Það er staðreynd að þessi flokkar samþykktu að ganga til viðræðna við ESB og að niðurstöður þeirra viðræðna skyldu lagðar fyrir þjóðina. Það er staðreynd að slík tillaga var samþykkt með sannfærandi meirihluta á alþingi. Það er staðreynd að þessar aðildarviðræður eru hafnar. Það er hins vegar óskhyggja hjá þér að samningi verði hafnað. Eins og er veist þú ekkert um það. Skoðunarkannanir hafa EKKERT formlegt stjórnsýslulegt gildi, þannig að við verðum bara að sjá hvað verður. En í guðana bænum - hættu að tala fyrir því hvað þjóðin mun gera. Þú getur haldið áfram að lýsa þínum óskhyggjum, en þú veist ekki frekar en ég hvað þjóðin mun gera að nokkrum árum liðnum.
ps: Ert þú enn með kosningarrétt hér á Íslandi? Eða ertu bara að rembast við að halda Íslandi í skítnum svo þú fáir sem mest fyrir evrur þínar þegar þú kemur hingað í heimsókn?
Einar Solheim, 29.7.2010 kl. 17:35
Alveg rétt hjá ykkur strákar ég er ekki þjóðin, ekki frekar en þið.
Ekki frekar en vindhaninn Össur Skarphéðinsson, er sem betur fer ekki þjóðin og verður aldrei !
En þjóðin okkar mun samt verða svo gæfusöm að hún mun bæði hafna honum og ESB helsinu.
Gunnlaugur I., 30.7.2010 kl. 13:13
Össur fer a.m.k. með formlegt embætti í þágu þjóðarinnar. Hann er fulltrúi hennar í ákveðnum málaflokkum hvort sem þér líkar betur eða verr. Honum var falið það vald af kjósendum.
Hef takmarkaða trú á því að ÞJÓÐIN muni hafna ESB þegar kostir og gallar liggja fyrir. Það er einhver óskhyggja hjá þér og ekki veit ég á hverju hún grundvallast.
Einar Solheim, 30.7.2010 kl. 13:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.