Leita í fréttum mbl.is

Stefán Benediktsson um evruna og eilífðina

Stefán BenediktssonStefán Benediktsson, skrifar áhugaverða greiningu á Evru-málinu á Eyjubloggið: Stefán segir:

,,Víða ræða menn um að evran sé að hrynja eða falla, að þjóðverjar muni hætta með evruna eða að Evrópu verði skipt í þróuð og vanþróuð lönd.

Umræðan mótast af umhverfin sem hún fer fram í. Þekking manna á Þýskalandi eða Evrópu er, þökk sé fjölmiðlum, afar takmörkuð eða í besta falli harla lítil."

Hann skiptir pistlinum í "vondar" og "góðar" fréttir. Byrjum á þeim vondu:

,,Í evrulöndum eru meðalskuldir af landsframleiðslu um 85%. Belgar, Ítalir og Grikkir eru yfir þessu marki en þrettán lönd, þ.e. flest evrulönd, undir.

Fimm evrulönd eru rekin með halla á bilinu 5-15% og halli Íra er 32%. Tveir þriðju af því eru vegna bankaábyrgðanna.

Stór lán falla í gjalddaga hjá Portúgölum, Spánverjum og Ítölum 2011, hjá Grikkjum 2011 og 2015 og hjá Írum 2020.

ESB hefur stofnað björgunarsjóð upp á 750 milljarða evra en af því eru 60% ábyrgðir. Það eru allar líkur á að þessi sjóður mun ekki duga.

Íbúar munu greiða lán sem tekin verða vegna ríkissjóðsvanda en lán til að halda bönkunum gangandi verða endurgreidd af þeim bönkum sem lifa af.

Stjórnvöld evrulanda geta ekki lækkað laun og hækkað verð með gengisfellingu. Þau geta ekki velt kostnaðinum yfir á skattgreiðendur með verðbólgu. Þau verða að hagræða og skera. Flest eru reyndar byrjuð á því af krafti."

Og þær góðu: ,,Vandi banka og ríkja í evrulöndum er í evrum. Tekjur og skuldir eru í evrum. Evrurnar sem þú þénar eru jafn mikils virði og evrurnar sem þú skuldar.

Lánsfjárframboð í Evrópu er mikið, bara á mismunandi kjörum. Írar leituðu til hjálparsjóðs ESB af því að hann bauð betri vexti en bankarnir, ekki vegna þess að það vildi enginn lána þeim peninga.

Evrulönd flytja meira út en inn, tekjur eru meiri en útgjöld og stærstur hluti í evrum. Það þýðir að þau geta greitt af lánum.

Stærsti vandinn er á næsta ári. Eins og klisjan segir „næsta ár verður mjög erfitt“, en eina landið með skuldir yfir landsframleiðslu eru Grikkir og staða annarra landa langt frá því ógnvænleg. Árið verður erfitt en vandinn ekki varandi.

Evrulönd eru enn mest aðlaðandi fjárfestingavettvangur í veröldinni í dag, vegna þess að þau eru lengra komin en aðrir í viðbrögðum við kreppunni.

Japan og BNA eru ekki eins langt komin og því ekki eins freistandi, né Asíulönd sem hvort eð er eiga ekki myntir á frjálsum markaði. Evrópa, eða betur sagt: evruheimurinn virkar.

Hjálparsjóðurinn verður stækkaður, einfaldlega vegna þess að það er skynsamlegt, alveg eins og það var skynsamlegt að stofna evruna. Evran er í raun fjölþjóðleg yfirlýsing um að „skynsemin ræður“.

Evrópu verður ekki skipt í fyrsta og annars flokks þjóðir og engin evrulönd hverfa til fyrri þjóðmynta. Þeir sem halda það, gera sér augljóslega ekki grein fyrir forsendum ESB og fórnarkostnaðinum af því að halda úti smámyntum í heimi stórra mynta, sem er stórskrýtið, því það ættu einmitt allir íslendingar að vita eftir sextíu ára verðbólgu."


Blogg Stefáns 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

19.8.2010:

"Grikkir hafa nú uppfyllt öll skilyrði til að fá aðra útborgun af 110 milljarða evra lánapakka frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum eftir að hafa náð miklum árangri í endurgerð fjárhagsáætlunar landsins, segir í tilkynningu frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins."

Grikkir uppfylla skilyrði Evrópusambandsins og Alþjóða gjaldeyrissjóðsins

Þorsteinn Briem, 3.12.2010 kl. 22:22

7 Smámynd: Þorsteinn Briem

Þorsteinn Briem, 3.12.2010 kl. 22:32

8 Smámynd: Þorsteinn Briem

EISTLAND TEKUR UPP EVRU NÚ UM ÁRAMÓTIN.

"The Estonian kroon has been pegged first to the Deutsche Mark and later to the euro during the entire circulation period.

Due to the fixed exchange rate and the peg to the euro, we are almost members of the euro area, except that our banknotes are different.

Thus, the changeover from the kroon to the euro will not bring along any major economic changes, whereas transaction costs will decrease and the possible risks endangering the kroon as a small currency with fixed exchange rate will disappear.

Estonia's accession to the Economic and Monetary Union is the best and most reliable way of ensuring the stability and low inflation level of the currency in circulation.

In addition:

     - it will be easier to compare prices across euro area countries;

     - risks related to the exchange rate will be minimized;

     - the risk of sudden increases in interest rates will be smaller;

     - transaction costs will decrease."

Estonia will change over to the euro

Þorsteinn Briem, 3.12.2010 kl. 22:37

9 Smámynd: Jón Gunnar Bjarkan

Já þú ert ekki ónýt upplýsiingaveita Steini.

Jón Gunnar Bjarkan, 3.12.2010 kl. 23:27

10 Smámynd: Jón Frímann Jónsson

Það væri nú samt þægilegra ef Steini safnaði þessu nú saman í eins fáa pósta og hann getur. Þar sem það er frekar pirrandi að lesa yfir 10 innlegg með eingöngu svona upplýsingum.

Jón Frímann Jónsson, 3.12.2010 kl. 23:43

11 Smámynd: Þorsteinn Briem

Jón Frímann Jónsson,

Hér birti ég STAÐREYNDIR eins og mér sýnist og það er NAUÐSYNLEGT fyrir ÞIG OG AÐRA hér að hafa þær í huga ÁÐUR EN þið birtið hér alls kyns ÞVÆLU, elsku kallinn minn!!!

Þorsteinn Briem, 4.12.2010 kl. 00:15

12 Smámynd: Gunnlaugur I.

Ja hérna eru þeir nú komnir í hár saman Æðstu prestar ESB trúboðsins á Íslandi þeir Steini Briem og Jón Frímann.

Það er ágætt að þeir berjist innbyrðis það sýnir að það er kominn pirringur og þreyta í þetta lið að berjast fyrir vonlausum málstað ESB trúboðsins.

En Steini þú segir allar tölur sýna að Grikkir séu að ná frábærum árangri. En ég spyr á móti eru þessar tölur bara ekki allar meira og minna falsaðar eins og hér áður fyrr þegar þeir lugu sig inná Evruna, sem varð þeim svo að falli.

Alveg eins og var í gamla SOVÉTT þá er það mjög algengt að tölulegar upplýsingar og skýrslur sem sendar eru til ESB apparatsins séu langt frá sannleikanum og beinlínis falsaðar og nánast allir vita það nema sjálf skrifræðis Elítan í Brussel.

Þetta er gert til þess að ná út meiri fjármunum eða til þess að þurfa að greiða minna til þessa apparats, eða til að gæta annarra hagsmuna.

Svona fjarlæg forréttinda og miðstýringarapparöt eins og ESB bera því ávallt dauðan og feigðina með sér ! 

Gunnlaugur I., 4.12.2010 kl. 10:36

13 Smámynd: Gunnlaugur I.

Þetta er alveg nýtt hjá ykkur að setja svona semi-ritskoðun á þetta hjá ykkur.

Verður það til þess að aðeins útvaldir ESB rétttrúnaðarsinnar fá að tjá sig hér á síðunni hjá ykkur og mér og öðrum úthýst.

Það verður ekki til þess að hafa opinskár og hreinskiptar umræður um ESB málin.

Ég bíð spenntur eftir því hvort að þið munið leyfa því sem ég skrifaði hér á undan að standa, eða ekki.

Gunnlaugur I., 4.12.2010 kl. 10:40

14 Smámynd: Guðmundur Júlíusson

Þetta er vissulega rétt hjá Gunnlaugi, eru EB sinnar  að gugna á skoðun sinni?

Guðmundur Júlíusson, 5.12.2010 kl. 01:36

15 Smámynd: Jón Frímann Jónsson

Gunnlaugur I, Hættu þessu kjaftæði. Enda er þetta kjaftæði vegna þess að þú getur ekki stutt þessar fullyrðingar þínar með neinum staðreyndum. Enda ferðu undan á flótta í hvert skipti sem þú ert rukkaður um staðreyndinar fyrir þeim fullyrðingum sem þú setur fram hérna.

Steini Briem, Það er ekkert minna en lygi hjá þér að halda því fram að ég setji fram tóma þvælu. Sérstaklega í ljósi þess ég reyni alltaf að hafa mínar upplýsingar eins réttar og eins nýlegar og ég mögulega get.

Þú setur hérna fram upplýsingar sem er gott og blessað. Hinsvegar ættir þú að huga að framsetningu þessar upplýsinga. Vegna þess að fólk gefst fljótlega upp á því að lesa athugsemdir ef að 80% innleggja eru svör frá þér sem hægt væri að setja saman í eitt eða tvö innlegg um viðkomandi mál. Í stað 20 til 30 innleggja, eins og verður stundum raunin hjá þér.

Þú verður að sætta þig við þessa gagnrýni. Hún er réttmæt og ég er búinn að færa rök fyrir henni.

Jón Frímann Jónsson, 5.12.2010 kl. 02:05

16 Smámynd: Þorsteinn Briem

Jón Frímann Jónsson,

Þessi FULLYRÐING þín er til að mynda TÓM ÞVÆLA:

"Ef að Skotland verður sjálfstætt ríki. Þá verða þeir að sækja um aðild að nýju að ESB. Það kemur til vegna þess hvernig breska sambandsveldið virkar í raun. Þetta á í raun við um fleiri svæði í Evrópu sem berjast núna fyrir sjálfstæði sínu og gætu fengið á næstu árum."

Bretland
er EKKI "sambandsveldi" og Skotland er HLUTI AF konungdæminu Bretlandi.

Færeyjar og Grænland
eru HLUTI AF danska konungsríkinu en EKKI í Evrópusambandinu, eins og Danmörk.

Fjöldi fólks
hefur einmitt lesið þetta blogg VEGNA ÞESS að ég skrifa hér athugasemdir og hefur þakkað mér fyrir það MARGOFT, bæði hér á blogginu og annars staðar.

Lestur blogga þar sem ég hef skrifað athugasemdir hefur ALLTAF AUKIST og  lestur á þessu bloggi mun MINNKA ef ég hætti að skrifa hér!!!

Það er
STAÐREYND!!!

Þorsteinn Briem, 5.12.2010 kl. 21:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband