Leita í fréttum mbl.is

Punktar úr viðtali FRBL við Graham Avery

Graham AveryEins og fram hefur komið birti Fréttablaðið ítarlegt viðtal við Graham Avery, um helgina. Hann hefur gríðarlega reynslu og þekkingu á Evrópumálum. Það eru áhugaverðir hlutir í því, kíkjum á nokkra:

,,Þetta er afar mikilvægt val sem þið standið frammi fyrir og snýst ekki bara um þetta tæknilega sem er rætt um í aðildarviðræðum. Það er mikilvægt að hafa umræðuna víðtæka og vel upplýsta, það er til dæmis miklu meira sem felst í aðild en sjávarútvegshagsmunir. Stækkun ESB, úr sex ríkjum og í 27 er ekki afleiðing einhverrar heimsvaldastefnu, heldur afleiðing aðdráttarafls Evrópusambandsins. Ef ég má vera heiðarlegur þá var enginn sendur frá Brussel til að biðja Ísland, eða nokkurt annað ríki, um að sækja um aðild. Við eigum í nógum vandræðum með núverandi aðildarríki! [Hlær.] Hugmyndin um að fólk í Brussel vilji ná yfirráðum á Íslandi er einfaldlega ósönn. Það ákveður þetta enginn nema þið. Enginn gengur í Evrópusambandið nema það sé honum í hag og enginn ætti að halda áfram innan þess nema það sé honum í hag. Því ættuð þið að greina hagsmuni ykkar, pólitíska og efnahagslega. " 

,,En ef þið Íslendingar gangið í sambandið, stolt þjóð sem er annt um sjálfstæði sitt, þá er það stórt skref og mikilvægt. Ég hef verið spurður hvort Ísland, þjóð í öllum þessum vandræðum, geti átt framtíð sem sjálfstætt ríki og ég segi já. Það er dagljóst að ESB er kerfi sjálfstæðra þjóðríkja, sem eru viðurkennd og virt.  "

,,Það yrði betur komið fram við Íslendinga en nokkra aðra þjóð í sambandinu því þið yrðuð fámennasta þjóðin. Einn Íslendingur hefði fimmtán sinnum meira vægi á Evrópuþinginu en þýskur borgari. Hvers vegna gerir ESB þetta? Undirstöðuregla kerfisins er einskonar öfugt hlutfallsviðmið, þannig að hinir smáu hafa hlutfallslega meira vald en þeir stóru. "

,,Þið eigið ákveðin gildi sameiginleg með Evrópusambandslöndum. Þið eigið eflaust fleiri sameiginlega hagsmuni með ESB en öðrum ríkjum líka. Þið Íslendingar eruð ekki undanþegnir alþjóðavæðingunni og þurfið að takast á við hana á 21. öldinni. " 

,,Í EES takið þið við ákvörðunum en takið þær ekki sjálf. Og hér verður umræðan um fullveldi mikilvæg: Að mínu viti þýðir fullveldi að stjórnvöld hafi áhrif á ákvarðanir sem varða þjóð sína. Aðild að ESB þýðir að þið hefðuð meiri áhrif en þið hafið núna. Sjálfstæði og fullveldi er ekki sami hluturinn. Það er hægt að deila og auka fullveldið um leið og haldið er í sjálfstæðið og það held ég er það sem ESB veitir litlum ríkjum."  

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Þetta mál er ekki hvort betra sé eða verra í ESB sambandinu. Það er sjálfstæði okkar sem 1200 ára gamalt ríki. Afhverju heldur þú að Grænland og Færeyjar  já og Noregur vilji ekki gangast undir ESB og sagt er að Danir sjálfir standi fyrir þessu. Við erum ekki á meginlandi Evrópu og tilheyrum engan vegin þessari samsteypu. Hvaða neinloka hefir hlauðið í ykkur ESB sinna ég spyr bara. Setur þú húsið þitt á sölu ef þú ætlar ekki að selja það.???

Valdimar Samúelsson, 5.12.2010 kl. 23:43

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

    Hr. Graham,þú mátt vera heiðarlegur mín vegna,ef þú átt í vandræðum með núverandi aðildarríki,þá vekur það ekki samúð mína. Takk fyrir, við vitum að við erum ekki undanþegin alþjóðavæðingunni,datt þér í hug að við vissum það ekki? Við sækjumst ekki eftir x-sinnum meira vægi en Þjóðverjar. Er verið að spila á hvatirnar,sem urðu okkur að falli? Sem betur fer eru örfáir haldnir þeim,en sem stendur eru þeir við stjórnvölinn,það er vandamál sem við þurfum að leysa hið snarasta. Þakka samt ég held þú meinir vel.

Helga Kristjánsdóttir, 6.12.2010 kl. 03:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband