11.12.2010 | 21:44
Skoðanir bænda: Allir á sömu línu og forystan?
Ritari þarf bensín á bílinn, rétt eins og aðrir Íslendingar. Við síðustu áfyllingu kippti ritari með sér Bændablaðinu, enda einlægur aðdáandi blaðsins.
Bændablaðið er t.d. eina blaðið á Íslandi sem er með ljóðadálk, þar er oft margt mjög skemmtilegt.
Mikið hefur verið rætt um afstöðu bænda gagnvart ESB, en hin "opinbera lína" er að þeir séu á móti. Lesa má margar færslur um þetta hér á þessu bloggi.
Það sem vekur hinsvegar athygli ritara er umfjöllunin um ESB-málið í Bændablaðinu sem kom út núna 2.des. Þar er heil opna um málið.
Margir bændur, rétt eins og allir aðrir Íslendingar, eru skuldugir. Það er bændum greinilega ofarlega í huga. Ekkert óeðlilegt við það.
En það eru vangaveltur bænda um ESB-málið, sem vekja athygli ritara. T.d. segir í blaðinu að Sigurgeir Hreinsson, bóndi á Hríshóli í Eyjafarðarsveit ...,,hafi nefnt hvort varasamt væri fyrir Bændasamtökin að standa á hliðarlínunni og fylgjast með yfirstandandi samningaviðræðum."
Á öðrum fundi er sagt frá Jóhanni Nikulássyni, bónda í Stóru-Hildisey II. Samkvæmt honum vill stærstur hluti bænda ekki fara inn en ...,,óhjákvæmilegt væri að taka þátt í umræðunni. Hann taldi að íslenskir bændur þyrftu að búa sig undir samkeppni frá útlöndum í meiri mæli."
Þetta er áhugavert. Það er kannski svo að meðal bænda eru skoðanir sem ekki eru í samræmi við skoðanir forystunnar. Sem er eðlilegt.
Punktur Jóhanns er einnig mjög áhugaverður, þ.e.s.a. bændur munu ganga í gegnum ýmsar breytingar á komandi árum, með eða án aðildar að ESB.
Kannski er lykilatriðið þetta: Hvernig verða rekstrarskilyrði bænda? Bændur eru jú í raun aðilar sem eru háðir gengismálum, vöxtum, verðbólgu og almennum skilyrðum efnahagslífsins. Vilja bændur umhverfi óstöðugleika eða stöðugleika?
Þetta skiptir bændur máli og ekki síst þá sem kaupa afurðir þeirra, íslenska neytendur!
Eldri færslur
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Evrópusamtökin-heimasíða Heimasíða Evrópusamtakanna
- Aðildarviðræður við ESB
- Já-Ísland
- Evrópustofa Upplýsingar um ESB og Evrópumál
- Evrópusambandið-ESB
- Utanríkisráðuneytið
- Sendiráð ESB á Íslandi Sendiráð ESB á Íslandi
- Meirihlutaálit Utanríkismálanefndar Alþingis
- Skýrsla Evrópunefndar
- RÚV:ESB-vefur
- Uppl. fyrir blaðamenn
- Sterkara Ísland
- FRBL-Umræða-Leiðarar
- European Daily Fréttir frá Evrópu
- BBC-Evrópa
- EU-Observer
- EUtube ESB á you tube
- Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg.
- Evrópuskrifstofan
- EurActiv-Fréttir um ESB
- Euranet (Útvarp)
- Euronews
- Evrópusíða UTN Evrópusíða utanríkisráðuneytisins
- Ungt fólk og ESB Ungt fólk og ESB
- ESB-umfjöllun MBL
Fréttabréfið
Fréttabréf Evrópusamtakanna
Bloggvinir
- Arna Lára Jónsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Daði Einarsson
- Dofri Hermannsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Fararstjórinn
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðlaugur Kristmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Hinrik Már Ásgeirsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreinn Hreinsson
- Jón Gunnar Bjarkan
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Júlía Margrét Einarsdóttir
- Loopman
- Magnús Már Guðmundsson
- Marta B Helgadóttir
- Sveinn Arnarsson
- Tómas Þóroddsson
- Vefritid
- gudni.is
- Ágúst Hjörtur
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Rúnar Þorvaldsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Arnar Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Barði Bárðarson
- Björn Halldórsson
- Brattur
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- ESB
- Eva Benjamínsdóttir
- Eva G. S.
- Eyjólfur Sturlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðlaugur Hermannsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Heiðar Lind Hansson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Sigurðsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kama Sutra
- Kjartan Jónsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- Natan Kolbeinsson
- Óðinn Kári Karlsson
- Óskar Þorkelsson
- Ragnar G
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sema Erla Serdar
- Sigurður M Grétarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Sumarliði Einar Daðason
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Ungir evrópusinnar
- Þarfagreinir
Athugasemdir
Það væri nú ágætt fyrir ,,ritara" að velta fyrir sér tilganginum með bændafundum sem forysta bænda heldur um allt land. Tilgangur er, og hefur alltaf verið, að hlusta á hvað bændur og búalið hefur að segja. En auðvitað er ritara vorkunn að gera sér ekki grein fyrir því hvernig lýðræðinu er ætlað að virka í raun - hafandi bara reynslu af íslenskum stjórnmálamönnum og starfsemi Evrópusambandsins. Þar er það elítan sem talar og ákveður en grasrótin þegir og stendur eins og henni er sagt. Þetta sáum við t.d. á flokksráðsfundi VG um daginn.
En svona vinna bara ekki bændur, eða bændaforystan. Þetta leyfi ég mér að fullyrða eftir að hafa verið starfsmaður á plani í Bændahöllinni í 20 ár.
Jón Baldur Lorange, 11.12.2010 kl. 23:21
@JBL: Bara svona til að upplýsa; ritari er dreifbýlismaður, úr sjávarplássi, ekki hluti af neinni elítu og verður aldrei! Veit fullkomlega hvað lýðræði er og hvernig það virkar! Hvaða viðkvæmnistónn er þetta?
Evrópusamtökin, www.evropa.is, 11.12.2010 kl. 23:34
Það kemur að því fyrr eða síðar að langflestir Íslendingar vakna upp og fara að hugsa aðeins út fyrir sinn túngarð. Það er bara eðlilegt að efasemdir aukist jafnt og þétt um þá einangrunarstefnu að vera utan ESB. Við eru svo háð alþjóðaviðskiptum og samningum að flest hugsandi fólk sér rökin fyrir aðild með því að skoða sína framtíð og stöðu.
Hólmfríður Bjarnadóttir, 11.12.2010 kl. 23:53
Aðeins að benda vinkonu minni henni Hólmfríði á það að Íslendingar hafa einmitt verið að vakna og efasemdir þeirra og bein andstaða við ESB aðild hefur sífellt verið að vaxa.
Flest hugsandi fólk sér einmitt að ESB aðild hefur ekkert gott að bjóða okkar þjóð.
Fólk sér líka að rökin fyrir ESB aðild og Evru hafa fallið eitt af öðru.
Allt tal um traustan gjaldmiðil og stöðugleika eru að engu orðinn.
Þú meinar kannski stöðugleika í svona 20% atvinnuleysi eins og er hér í ESB ríkinu Spáni þar sem ég bý nú um stundir.
Það er einmitt búið að vera nokkuð stöðugt hér eða um og yfir 20% og er frekar að aukast, því yfir 250.000 manns bættust á atvinnuleysisskránna hér á 3ja ársfjórðungi.
Hér eru allt að 40% ungs fólks atvinnulaust á landsvísu í þessu 45 milljóna ESB ríki.
Það væri þokkalegt ástand ef atvinnuástandið væri svona í þinni heimabyggð, eða í landinu þínu.
Það er björt framtíð eða hitt þó heldur fyrir þessa kynslóð ungs fólks hér í ESB ríkinu Spáni.
Það væri nær að kalla það einangrunarstefnu að ganga inní ESB því þar yrðum við einangruð og nánast áhrifalaus. Allir okkar sjálfstæðu viðskiptasamningar við önnur ríki utan ESB yrðu felldir niður. Meira að segja mjög hagstæður fríverslunarsamningur okkar við vini okkar og frændur Færeyinga yrði umsvifalaust felldur úr gildi.
Framkvæmdastjórn ESB myndi skammta okkur makríl kvóta úr hnefa.
Því er það að aðeins 19% þjóðarinnar telja að hagur landsins muni vænkast við að ganga í ESB.
Er það þessi ESB sinnaði minnihluti sem er að vakna frú Hólmfríður ?
Þú ert ábyggilega ágætlega gefinn og vel meinandi manneskja Hólmfríður, en ég verð að segja að nánast barnaleg ofurtrú þín mikilfengleik ESB er algerlega byggð á sandi.
Augu fólks hafa einmitt verið að opnast fyrir því að ESB keisarinn þinn staulast um sviðið klæðalaus, meðan þú og örfáir aðrir klappið enn yfir mikilfengleik hans og dásamið fötin hans.
Gunnlaugur I., 12.12.2010 kl. 09:47
bændasamtökin minna talsvert á ASI.. svona halelújasamkomur um landið þar sem almúginn fær að tjásig en í raun er ekkert hlustað á svoleiðis raus af forystunni.. stefnan kemur að ofan en ekki að neðan hjá bændasamtökunum líkt og hjá ASI
Óskar Þorkelsson, 12.12.2010 kl. 10:12
@Gunnlaugur: Er atvinnuleysi á Spáni ESB að kenna? Stýrir ESB reglum um vinnumarkað í aðildarlöndunum? Svarið er nei. Það hefur nokkuð verið rætt um ósveigjanlegan vinnumarkað á Spáni í sambandi við þetta (vissulega). Gæti það verið skýringin.
Ritari þekkir þetta frá öðru ESB landi, þar sem hann bjó lengi. ESB var ekkert með puttana í atvinnumálum þess lands. Það voru viðkomandi stjórnvöld, verkalýðshreyfing, atvinnurekendur ekki síst!
Ekki vera með hræðsluáróður, það sést í gegnum hann!
Að lokum: Þörf Íslands fyrir alvöru gjaldmiðil, er óbreytt! Haftakróna er ávísun á stöðnun og jafnvel afturþróun.
Vilja Íslendingar það?
Evrópusamtökin, www.evropa.is, 12.12.2010 kl. 17:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.