Leita í fréttum mbl.is

The Economist um Írland og Ísland: Tími fyrir Íra að vera hörkutól?

iceland_a2004028_1355_1km_704895.jpgEyjan birtir frétt um grein í hinu virta tímariti The Economist, þar sem Ísland og Írland eru borin saman.

Þar er m.a. sagt að Ísland sé að standa sig betur en Írland í að glíma við kreppuna, m.a. vegna þess að bankarnir fóru á hausinn, vegna þess að þar var ekki um neitt  val að ræða.

Þá er einnig sagt að Íslendingar séu nauðbeygðir til að hafa krónuna vegna gjaldeyrishafta og það verði "flókið" (ens: tricky) að losna við þau (enginn veit í raun hvað gerist, innskot ES-blogg).

Nú eru rúm tvö ár liðin frá því að Ísland fór á hliðina, fékk á sig hrikalegan brotsjó, sem næstum sökkti landinu.

Í framhaldinu verður áhugavert að sjá hvernig ástandið verður á Írlandi að tveimur árum liðnum, en eins og menn vita fengu Írar "björgunarpakka" frá ESB og AGS, eftir að hafa farið illa að ráði sínu í fjármálum og fjárfestingum (hljómar þetta ekki kunnuglega?).

The Economist bendir á að skuldir á Íslandi séu gífurlegar og að mikil "eignabruni" hafi átt sér stað. Þá telur blaðið að framtíðarhorfur Írlands varðandi útflutning, séu jákvæðari en Íslands:

"Four-fifths of exports are either fish or metals, such as aluminium, whose production relies on Iceland’s cheap energy. Both industries are constrained by capacity: fishing by quotas and metals by lumpy investments in smelters and power plants. Ireland’s export prospects are better."

Írland-eyjan grænaÍ lokin segir svo "Even so, that Iceland’s economy has done little worse than Ireland’s is still a triumph. It has been tough with its creditors and disregarded some international norms—and recovered. Ireland has stood by its banks to the benefit of the wider European banking system. Its reward has been “rescue” loans at an interest rate that makes it hard to fix its finances. The next Irish government may look at Iceland and decide to play hardball with Europe."

Að hlutirnir haf ekki gengið verr en á Írlandi er talinn sigur, segir blaðið og stingur svo upp á því hvort það sé ekki reynandi fyrir Íra að vera hörkutól, eins og Íslendingar hegðuðu sér gagnvart erlendum kröfuhöfum.

En þá er það spurningin: Hvernig kemur það niður á trúnaðartrausti erlendra aðila hvaða "aðferð" við beittum?

Hvernig er minni þeirra? Er það t.d. lengra heldur minni kjósenda, sem menn segja að stundum sé stutt?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnlaugur I.

"Hljómar þetta ekki kunnuglega"

Segið þið sigri hrósandi.

En einmitt þetta sem gerst hefur á Írlandi er mun verra en það sem gerðist á Íslandi og það sem gerðist á Íslandi sögðuð þið fullum hálsi í áróðri ykkar að:

Myndi aldrei geta gerst ef Ísland hefði verið í ESB og með Evru.

Öll ykkar rök hafa reynst hin verstu falsrök og eitt mesta bull og þvæla sem sagt hefur verið í íslenskri þjóðmálaumræðu í áratugi, en þau voru einmitt rökstudd með eftirfarandi:

1. Þetta gæti einfaldlega ekki gerst ef ríki væru meðlimir að ESB og hvað þá ef þau væru líka með "undra" myntina Evru !  ALLT LYGI !

2. ESB og þeirra óskeikulu ráð og nefndir eingfaldlega hefðu aldrei leyft þessa óabyrgu hegðun stjórnkerfisins og fjármálalifsins !  LÍKA ALLT LYGI !

3. Seðlabanki ESB, eða ECB væri svo ógnarsterkur og óskeikull bakhjarl og passaði uppá allt heila systemið og væri svo til þrautavara. ALLT MEIRA OG MINNA LYGI LÍKA !

Þessir 3 punktar voru uppistaðan í lygi og blekkingum ykkar ESB aftaníossa.

En hvað er svo nú, því að nú sitja Írar í enn verri súpu en við  ísendingar og ECB bankinn og AGS hengja nú drápsklyfjar á okurvöxtum 5,8% á Írskan almenning til þess að borga helstu stórbraskara bönkum stóru ESB ríkjanna til baka og svo líka auðvitað himinháar skuldir til ECB banka Evrópusambandsins.

Skuldatryggingarálag Írlands er nú nær helmingi hærra en Íslands.

Atvinnuleysi á Írlandi er u.þ.b. helmmingi meira.

Fólksflóittinn þaðan er ógnvekjandi meðan nú er farið að fjölga á Íslandi á ný og fólksflóttinn varð reyndar aldrei annað en smámunir miðað við hvað hann er nú þegar orðinn á Írlandi og ekkert sér fyrir endan á.

Þið ESB sinnar ættuð að skammast ykkar og þið ættuð að biðja alla íslensku þjóðina afsökunar á allri ykkar lygi og blekkingaráróðri, sem svo rækilega hefur verið afhjúpaður og það með hreinum staðreyndum sjálfrar mannkynnssögunnar ! 

Gunnlaugur I., 21.12.2010 kl. 18:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband