24.1.2011 | 11:10
Íslendingar vilja EKKI hætta aðildarviðræðum við ESB - könnun FRBL. Stuðningur við viðræður eykst í öllum flokkum.
Íslendingar vilja EKKI hætta aðildarviðræðum við ESB.
Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag. Næstum tvöfalt fleiri vilja halda þeim áfram frekar en að draga til baka.
Í fréttinni segir: "Tæplega tveir af hverjum þremur sem tóku afstöðu í skoðanakönnun Fréttablaðsins á miðvikudag vilja ljúka aðildarviðræðum við Evrópusambandið og halda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarsamninginn. Um þriðjungur vill draga aðildarumsóknina til baka. Alls vilja 65,4 prósent halda viðræðum áfram, sem er örlítið hærra hlutfall en í könnun Fréttablaðsins 23. september síðastliðinn. Þá vildu 64,2 prósent halda áfram. Um 34,6 prósent vilja draga umsóknina til baka, örlítið færri en í september.
Í sambærilegri könnun sem MMR gerði fyrir vefsíðuna Andríki 8. til 10. júní í fyrra vildu 57,6 prósent draga aðildarumsóknina til baka. Mikill munur er á afstöðu fólks eftir því hvaða flokk það myndi kjósa ef gengið yrði til kosninga nú. Stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins skiptast í tvo jafna hópa. Alls vilja 50,9 prósent slíta aðildarviðræðunum, en 49,1 prósent halda viðræðunum áfram.
Færri sjálfstæðismenn vilja draga umsóknina til baka nú en í september í fyrra. Þá vildu 53,6 prósent draga umsóknina til baka, en 50,9 prósent eru þeirrar skoðunar í dag.
Hlutfallið er svipað meðal stuðningsmanna Framsóknarflokksins. Þar vilja 51,3 prósent halda viðræðunum áfram en 48,7 prósent slíta þeim. Fækkað hefur í hópi framsóknarmanna sem vilja slíta viðræðum, en 52,2 prósent voru þeirrar skoðunar í september.
Meirihluti stuðningsmanna Vinstri grænna vill halda aðildarviðræðunum áfram. Alls segjast 67,2 prósent vilja halda viðræðunum áfram en 32,8 prósent vilja slíta aðildarviðræðunum og draga aðildarumsókn Íslands til baka.
Í september vildu 36,4 prósent draga umsóknina til baka, og hefur því stuðningur við að ljúka viðræðum við ESB aukist meðal stuðningsmanna Vinstri grænna."
Þetta síðasta er mjög athyglisvert í ljós "ógönguyfirlýsinganna" sem dynja á okkur frá leiðtoga Nei-sinna, Ásmundi Einari.
Greinilegt er að Íslendingar vilja sjá aðildarsamning og hvað í honum felst. Til þess síðan að kjósa um hann í lýðræðislegri þjóðaratkvæðagreiðslu!
Enda bara óvit að hætta við verk sem er löngu hafið, eða hvernig hljómar máltækið: ,,Hálfnað verk, þá hafið er."
Eldri færslur
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Evrópusamtökin-heimasíða Heimasíða Evrópusamtakanna
- Aðildarviðræður við ESB
- Já-Ísland
- Evrópustofa Upplýsingar um ESB og Evrópumál
- Evrópusambandið-ESB
- Utanríkisráðuneytið
- Sendiráð ESB á Íslandi Sendiráð ESB á Íslandi
- Meirihlutaálit Utanríkismálanefndar Alþingis
- Skýrsla Evrópunefndar
- RÚV:ESB-vefur
- Uppl. fyrir blaðamenn
- Sterkara Ísland
- FRBL-Umræða-Leiðarar
- European Daily Fréttir frá Evrópu
- BBC-Evrópa
- EU-Observer
- EUtube ESB á you tube
- Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg.
- Evrópuskrifstofan
- EurActiv-Fréttir um ESB
- Euranet (Útvarp)
- Euronews
- Evrópusíða UTN Evrópusíða utanríkisráðuneytisins
- Ungt fólk og ESB Ungt fólk og ESB
- ESB-umfjöllun MBL
Fréttabréfið
Fréttabréf Evrópusamtakanna
Bloggvinir
- Arna Lára Jónsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Daði Einarsson
- Dofri Hermannsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Fararstjórinn
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðlaugur Kristmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Hinrik Már Ásgeirsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreinn Hreinsson
- Jón Gunnar Bjarkan
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Júlía Margrét Einarsdóttir
- Loopman
- Magnús Már Guðmundsson
- Marta B Helgadóttir
- Sveinn Arnarsson
- Tómas Þóroddsson
- Vefritid
- gudni.is
- Ágúst Hjörtur
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Rúnar Þorvaldsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Arnar Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Barði Bárðarson
- Björn Halldórsson
- Brattur
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- ESB
- Eva Benjamínsdóttir
- Eva G. S.
- Eyjólfur Sturlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðlaugur Hermannsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Heiðar Lind Hansson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Sigurðsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kama Sutra
- Kjartan Jónsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- Natan Kolbeinsson
- Óðinn Kári Karlsson
- Óskar Þorkelsson
- Ragnar G
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sema Erla Serdar
- Sigurður M Grétarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Sumarliði Einar Daðason
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Ungir evrópusinnar
- Þarfagreinir
Athugasemdir
Þessi skoðanakönnun og hvernig hún er sett fram er mjög villandi og niðurstöðurnar eftir því og þess vegna alls ekki hægt að draga stórar ályktanir af henni eins og þið og Baugstíðindin vilja gera.
Allar skoöanakannanir sem gerðar hafa verið undanfarna 16 mánuði sýna sáralítinn stuðning við ESB aðild og gríðarlega andstöðu við ESB aðild.
En þið segið alltaf að það sé ekkert að marka það af því að "spurningin sé ekki rétt" og "ekki sett fram á réttum tímapunkti". Samt hefur yfirgnæfandi meirihluti tekið afgerandi afstöðu í þessum skoðanakönnunum.
Norðmenn sem tvívegis hafa í þjóðaratkvæðagreiðslum fellt að gerast aðildarríki ESB, nú síðast fyrir u.þ.b. 17 árum.
Þeir gera samt alltaf reglulega skoðanakannanir um það hvort þjóðin vilji ganga í ESB eða ekki.
Um langt árabil hefur andstaðan við aðild verið yfirgnæfandi og reyndar aldrei meira afgerandi en nú þegar um 2/3 hlutar þjóðarinnar eru andvígir ESB aðild.
Þeir eru samt alls ekki í neinum samninga- eða aðildarviðræðum við ESB.
Samt getur fólk þar alveg tekið upplýsta og afgerandi afstöðu með eða á móti og langflestir á móti. Sárafáir Norðmenn eru hlutlausir eða telja sig ekki geta tekið afstöðu.
Samkvæmt ykkar kokkabókum væri þetta "röng spurning" og ekki sett fram á "réttum tímapunkti" og Norðmenn ættu því alls ekki að getað svrað henni. En þeir gera það samt aftur og aftur og aftur og alveg afgerandi gegn ESB aðild.
Það liggur nefnilega allt fyrir um ESB apparatið, s.s. stofnsáttmálar og yfirþjóðlegir grunnsklilmálar eins og Lissabon sáttmálin.
Allur stjórnunarstrúktúr og valdauppbygging sambandsins liggur ljós fyrir. Reynsla annarra þjóðpa af fiskveiði- og landbúnaðar stjórn commísarana í Brussel og svo mætti lengi telja áfram.
Einnig liggur fyrir að engar varanlegar undanþágur fást frá regluverki Sambandsins, aðeins tímabundnar undanþágur.
Því er þetta aðlögunarferli bara leikþáttur ESB elítunnar og skrifræðisins, þar sem við ráðum engu um framvinduna en erum bara leiksoppar þessa kerfis þeirra þar sem við verðum bara að bugta okkur og beigja eins og þeirra reglur segja til um.
Þeir ráða bæði tíma og ferð og þeir og þeirra legátar eins og þið hér bíða eftir þessum eina "rétta tímapunkti" þar sem kannski yrði möguleiki á að áróðurinn væri farinn að hafa þau áhrif að þjóðin segði kannski akkúrat á þessum eina tímapunkti "já" við ESB aðild.
Síðan yrði reyndar aldrei kosið aftur.
Tyrkir eru víst búnir að vera ein 16 ár í svona einhverskonar ESB aðildar- og aðlögunarferli.
Eigum við að hafa þennan leikþátt hangandi yfir þjóðinni í mörg ár, jafnvel áratugi. Nei takk !
Það hefði í fyrsta lagi átt að kjósa um það strax í upphafi hvort leyfa ætti stjórnvöldum að sækja um ESB aðild þjóðarinnar, eða ekki !
En vegna þess að það var ekki gert, þá ætti þjóðin að fá að kjósa um þetta mál sem allra fyrst.
Það þarf ekki allt þetta langa aðlögunarferli og rýnivinnu og enginn veit hvenær þessi ósköp enda og hvað þau muni kosta.
Síðan er algerlega ólíðandi að á sama tíma og allt þetta langa og stranga ferli stendur yfir þá skuli þessu erlenda Ríkjasambandi ESB líðast að dæla hér inní landið gríðarlegum fjármunum til þess að vera með áróður og hafa áhrif á frjálsar skoðanir almennings í þessu mikla hitamáli.
Þrátt fyrir það þá óttast ég ekki niðurstöðuna, þá loksins þjóðinni verður leyft að taka beina og milliliðalausa afstöðu í þessu stóra máli.
Íslenska þjóðin mun hafna ESB aðild afgerandi og með yfirgnæfandi hætti svo eftir verður tekið !
Gunnlaugur I., 24.1.2011 kl. 12:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.