Leita í fréttum mbl.is

Evrópa: Framsókn snýr við blaðinu - en vill samt aðildarviðræður!

FramsóknÁ flokksþingi Framsóknarflokksins í dag komst flokkurinn að þeirri niðurstöðu að hagsmunum Íslands væri best borgið utan ESB. Þetta er kúvending í málinu miðað við fyrri stefnu og hlýtur að kæta Nei-sinna til hægri og vinstri.

En flokkurinn komst einnig að þeirri niðurstöðu að halda skyldi aðildarviðræðum við ESB áfram og var sú tillaga felld.

Í fréttum RÚV sagði Guðmundur Steingrímsson, þingmaður flokksins að Framsóknarflokkurinn væri nú ekki lengur frjálslyndur miðjuflokkur, eftir að hafa tekið þessa afstöðu og telur afstöðuna einkennast af forsjárhyggju.

Athyglisvert er að formaðurinn lætur ekkert uppi um sínar eigin skoðanir á Evrópumálum, enda talar hann nánast ekkert um Evrópumál. Hann lætur því flokksmennina tala.

Hann situr öruggur á stóli sínum enda berst hugurinn til gömlu Sovétríkjanna þegar tölurnar um kosningu hans til formanns eru skoðaðar, en Sigmundur Davíð fékk um 95% atkvæða.

Þetta er niðurstaðan um Evrópumálin:

"Ályktun um Evrópusambandið

Ísland skal áfram leita eftir samstarfi við þjóðir innan og utan Evrópusambandsins á grundvelli frjálsra og sanngjarnra samninga og samvinnu sem byggir á jöfnuði og ábata allra aðila. Með slíkum samskiptum geta íslensk stjórnvöld tryggt hagsmuni Íslands best á hverjum tíma. Framsóknarflokkurinn telur hag lands og þjóðar best borgið utan Evrópusambandsins. Nú sem fyrr standa auðlindir þjóðarinnar undir velferð hennar og fullt og óskorað forræði á þeim er forsenda farsældar til framtíðar. Framsóknarflokkurinn telur að þjóðin skuli ætíð eiga beina aðkomu með þjóðaratkvæðagreiðslu að ákvörðunum um stórmál eins og aðild að Evrópusambandinu og mun berjast fyrir þeim rétti."

Umgjörð flokkþingsins hefur vakið athygli og þykir sumum að andar þjóðernishyggju og afturhvarfs hafið svifið yfir vötnum.

Í "kommenti" á Eyjunni segir Hallur Magnússon, fyrrum félagi í flokknum: "Stefna Framsóknarflokksins er því - halda áfram aðildarviðræðum, Ísland standi utan ESB og þjóðin taki ekki upplýsta ákvörðun."
 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heiriði nú, kauðar ... ef Ísland segir NEI við IceSAVE málinu.  Hvern andskotan eiga þeir þá með að fara inn í Evrópusambandið?  Ég geri nú ekki ráð fyrir að almenningur á Íslandi sé svo alvarlega vangefinn, að þeir segi NEI við IceSAVE bara til að segja JÁ við ESB, og þar með einnig JÁ við IceSAVE bara á bak við tjöldin.  Því ef Ísland gengur í ESB, samþykkja þeir þær áliktanir sem lúta að bankamálum, og þar með einnig ábyrgðir á inneignum á við IceSAVE.

Andskotinn hafi það, að menn séu orðnir svona alvarlega illa gefnir, að þeir séu að skoða aðild að ESB eftir ítrekaðar neitanir við IceSAVE málinu?!?!?!?!

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 10.4.2011 kl. 10:37

2 Smámynd: The Critic

Bjarne: Þetta eru tvö aðskild mál þó að ESB andstæðingar vilji reyna að tengja þau saman.

The Critic, 11.4.2011 kl. 12:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband