17.5.2011 | 17:50
Grein í Bændablaðinu - ESB hafsjór af tækifærum fyrir íslenska bændur?
Í nýjasta Bændablaðinu er áhugaverð grein eftir hagfræðing Bændasamtakanna, Ernu Bjarnadóttur, en í henni er fjallað um dreifbýlisaðstoð landbúnaðarstefnu ESB. Tónninn í greininni er óvenju jákvæður, enda finnur Bændablaðið (les: Bændasamtökin) ESB flest til foráttu. En kíkjum á greinina.
Í henni er m.a. sagt frá því að Finnska ríkið í samvinnu við ESB eyðir umtalsverðum fjármunum í nýliðun í landbúnaði, þ.e. reynir að fá ungt fólk til að starfa við landbúnað. Fram kemur að hámarks stuðningur getur numið um 40.000 Evrum, eða um 6.5 milljónum íslenskra króna.
Þá ræðir Erna ýmis önnur mál er t.d. varða umhverfismál og velferð búfjár og dýra og þar kemur fram að sérstakar greiðslur eru í boði til bænda sem eru með kýr og svín, til þess að stuðla að bættri velferð dýranna.
Þá nefnir Erna verkefni sem snúa að verndun votlendis, nýræktunar á skógi, verndun menningararfs, úrvinnslu málma, endurvinnslu plasts, framleiðslu á lífeldsneyti, nýtingu bíómassa, notkunar á endurnýjanlegum orkugjöfum, útbreiðslu internets og upplýsingatækni í sveitum, sem og stuðningi við fólk sem vill taka upp nýja starfsemi.
Þetta er allt að finna í grein Ernu, en þetta eru væntanlega allt hlutir sem myndu "rústa íslenskum landbúnaði" eins og vanalega er viðkvæðið úr Bændahöllinni, þegar rætt er um ESB.
Í lok greinarinnar segir Erna: "Hér er aðeins tæpt á örfáum atriðum úr skýrslunni en aftast í henni er að finna töflur sem gefa yfirlit um verkefni og fjármögnun þeirra."
Er ESB kannski hafsjór af tækifærum fyrir íslenskan landbúnað? Þá vaknar spurningin hvort forysta bænda loki augunum?
Lesa meira hér (Það vantar á krækjuna í Bændablaðinu!)
Eldri færslur
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Evrópusamtökin-heimasíða Heimasíða Evrópusamtakanna
- Aðildarviðræður við ESB
- Já-Ísland
- Evrópustofa Upplýsingar um ESB og Evrópumál
- Evrópusambandið-ESB
- Utanríkisráðuneytið
- Sendiráð ESB á Íslandi Sendiráð ESB á Íslandi
- Meirihlutaálit Utanríkismálanefndar Alþingis
- Skýrsla Evrópunefndar
- RÚV:ESB-vefur
- Uppl. fyrir blaðamenn
- Sterkara Ísland
- FRBL-Umræða-Leiðarar
- European Daily Fréttir frá Evrópu
- BBC-Evrópa
- EU-Observer
- EUtube ESB á you tube
- Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg.
- Evrópuskrifstofan
- EurActiv-Fréttir um ESB
- Euranet (Útvarp)
- Euronews
- Evrópusíða UTN Evrópusíða utanríkisráðuneytisins
- Ungt fólk og ESB Ungt fólk og ESB
- ESB-umfjöllun MBL
Fréttabréfið
Fréttabréf Evrópusamtakanna
Bloggvinir
- Arna Lára Jónsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Daði Einarsson
- Dofri Hermannsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Fararstjórinn
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðlaugur Kristmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Hinrik Már Ásgeirsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreinn Hreinsson
- Jón Gunnar Bjarkan
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Júlía Margrét Einarsdóttir
- Loopman
- Magnús Már Guðmundsson
- Marta B Helgadóttir
- Sveinn Arnarsson
- Tómas Þóroddsson
- Vefritid
- gudni.is
- Ágúst Hjörtur
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Rúnar Þorvaldsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Arnar Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Barði Bárðarson
- Björn Halldórsson
- Brattur
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- ESB
- Eva Benjamínsdóttir
- Eva G. S.
- Eyjólfur Sturlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðlaugur Hermannsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Heiðar Lind Hansson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Sigurðsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kama Sutra
- Kjartan Jónsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- Natan Kolbeinsson
- Óðinn Kári Karlsson
- Óskar Þorkelsson
- Ragnar G
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sema Erla Serdar
- Sigurður M Grétarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Sumarliði Einar Daðason
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Ungir evrópusinnar
- Þarfagreinir
Athugasemdir
Sá "hafsjór tækifæra" sem þið sjáið í grein Ernu fjalla um þau plön sem Finnar hafa gert um umsókn til ESB á árunum 2007 til 2013.
Það sem einkennir þó þessa "styrki" sem um er rætt er að Finnland þarf sjálft að greiða meir en helming þeirra úr eigin ríkiskassa. Allir styrkirnir frá ESB eru skilyrtir því að mótframlag Finna sé að lágmarki 55% og þaðan af meira.
Að bera saman finnskan landbúnað við þann íslenska er svipað og bera saman epli og appelsínur. Svo ólíkur er landbúnaður þessara landa. Til dæmis er meðalbú í Finnlandi um helmingi minna en hér á Íslandi. Jarðrækt spilar mun stærri hlut í finnskum landbúnaði og svo mætti lengi telja.
Þá er rétt að benda á þá staðreynd að finnskir bændur, sem voru lægt settir tekjulega fyrir inngöngu í ESB hafa lækkað um helming í launum eftir inngöngu, á uppreiknuðu verðlagi. Þar að auki hefur þeim fækkað um meira en helming og útlit fyrir að sú fækkun eigi eftir að verða mun meiri. Þetta er óhugnanleg staðreynd sem ekki verður horft framhjá.
Vissulega býður ESB upp á ýmsa styrki, skárra væri nú miðað við það framlag sem við eigum að leggja þangað. En þeim styrkjum er stjórnað frá Brussel, þar er ákveðið hvort og í hvað þeir skulu notaðir og enginn styrkur fæst til landbúnaðar nema viðkomandi ríki leggi að minnsta kosti jafn mikið fram, eða meira!
Styrkjakerfi ESB er búið til fyrir allt annað umhverfi en við búum við. T.d. eru þeir í flestum tilfellum miðaðir við landstærð, það segir að búskussar sem eiga stórar jarðir geta tutlað út úr þessu kerfi miklar fjárhæðir, jafnvel þó enginn búskapur sé stundaður að viti, en velbúandi bóndi sem á einungis land fyrir sig og sitt bú fær ekkert.
Í reynd hefur þetta þó virkað þannig í Evrópu að þeir sem eiga peninga fá styrki en þeim sem minna eiga af fé og því í meiri þörf fyrir styrki, er haldið utan þeirra. Þannig virkar styrkjakerfi landbúnaðar ESB í raun!!
Gunnar Heiðarsson, 17.5.2011 kl. 22:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.