26.7.2011 | 12:36
Inga Sigrún Atladóttir í FRBL: Höfum mikið að bjóða!
Inga Sigrún Atladóttir, bæjarfulltrúi í Vogum, skrifar grein um ESB-málið í dag, en það er alltaf ánægjulegt þegar konur tjá sig um þetta mál, enda mikil "kallaslagsíða" á því. Inga Sigrún segir:
"Ég tel aftur á móti að Ísland hafi mikið að bjóða grönnum sínum í Evrópu og ég tel að við höfum skyldur til að miðla þeim verðmætum sem við höfum. Þá er ég ekki að tala um orku, fisk eða landbúnaðarvörur heldur lýðræðishefð og friðarboðskap sem Íslendingar hafa varðveitt í margar kynslóðir, ekki bara í orði heldur líka í framkvæmd.
Markmið Evrópusambandsins er að jafna og bæta kjör í aðildarríkjunum. Evrópusambandið byggir á þeirri sýn að friður á milli sjálfstæðra ríkja verði best tryggður með samskiptum og samvinnu, gagnkvæmum skilningi og jafnræði í réttindum og lífskjörum.
Íslendingar hafa staðið sig mjög vel í að móta reglur um réttindi fólks á vinnumarkaði og miðlað þannig áherslum íslensks vinnumarkaðar um velferð og réttindi inn í samevrópskar reglur. Aðild ASÍ að Evrópusambandi stéttarfélaga hefur gefið sambandinu tækifæri til að standa þá vakt með miklum sóma. Á sama hátt getum við nýtt sérþekkingu okkar og reynslu til að hafa áhrif í friðar- og lýðræðismálum innan Evrópusambandsins."
Eldri færslur
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Evrópusamtökin-heimasíða Heimasíða Evrópusamtakanna
- Aðildarviðræður við ESB
- Já-Ísland
- Evrópustofa Upplýsingar um ESB og Evrópumál
- Evrópusambandið-ESB
- Utanríkisráðuneytið
- Sendiráð ESB á Íslandi Sendiráð ESB á Íslandi
- Meirihlutaálit Utanríkismálanefndar Alþingis
- Skýrsla Evrópunefndar
- RÚV:ESB-vefur
- Uppl. fyrir blaðamenn
- Sterkara Ísland
- FRBL-Umræða-Leiðarar
- European Daily Fréttir frá Evrópu
- BBC-Evrópa
- EU-Observer
- EUtube ESB á you tube
- Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg.
- Evrópuskrifstofan
- EurActiv-Fréttir um ESB
- Euranet (Útvarp)
- Euronews
- Evrópusíða UTN Evrópusíða utanríkisráðuneytisins
- Ungt fólk og ESB Ungt fólk og ESB
- ESB-umfjöllun MBL
Fréttabréfið
Fréttabréf Evrópusamtakanna
Bloggvinir
- Arna Lára Jónsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Daði Einarsson
- Dofri Hermannsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Fararstjórinn
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðlaugur Kristmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Hinrik Már Ásgeirsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreinn Hreinsson
- Jón Gunnar Bjarkan
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Júlía Margrét Einarsdóttir
- Loopman
- Magnús Már Guðmundsson
- Marta B Helgadóttir
- Sveinn Arnarsson
- Tómas Þóroddsson
- Vefritid
- gudni.is
- Ágúst Hjörtur
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Rúnar Þorvaldsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Arnar Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Barði Bárðarson
- Björn Halldórsson
- Brattur
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- ESB
- Eva Benjamínsdóttir
- Eva G. S.
- Eyjólfur Sturlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðlaugur Hermannsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Heiðar Lind Hansson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Sigurðsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kama Sutra
- Kjartan Jónsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- Natan Kolbeinsson
- Óðinn Kári Karlsson
- Óskar Þorkelsson
- Ragnar G
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sema Erla Serdar
- Sigurður M Grétarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Sumarliði Einar Daðason
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Ungir evrópusinnar
- Þarfagreinir
Athugasemdir
Friðarboðskap í staðin fyrir vinnu? Staðreyndin er einfaldlega sú að innganga í tilvonandi sambandsríki kallar á atvinnuleysi, sérstaklega á meðal ungs fólks, enda er ekki hægt að kalla fram "stöguleika" nema með launalækkunum og atvinnuleysi þegar sveigjanleiki gjaldmiðilsins er horfin.
Ég held að langflestir Íslendingar taki atvinnu fram yfir hugsanlega friðarboðskap-áhrif enda er atvinnuleysi mesta böl sem hægt er að leggja á fólk.
Það sem þessi þjóð þarf a að halda er alvöru stjórnmálamenn sem hafa getu og nennu til að gera það sem þarf í hagstjórninni enda er að koma í ljós að það er síður en svo skjól í tilvonandi sambandsríkinu og Evrunni.
Eggert Sigurbergsson, 26.7.2011 kl. 16:12
Eggert Sigurbergsson,
Evrópska efnahagssvæðið er SAMEIGINLEGUR VINNUMARKAÐUR og EKKERT breytist í þeim efnum með aðild Íslands að Evrópusambandinu.
"Evrópska efnahagssvæðið (EES) er sameiginlegt markaðssvæði 30 ríkja í Evrópu sem komið var á með EES-samningnum og tók formlega gildi 1. janúar 1994.
Aðild að EES eiga öll 27 aðildarríki Evrópusambandsins, sambandið sjálft og 3 aðildarríki Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA)."
"Fjórfrelsið svokallaða gildir á öllu svæðinu en það felur í sér frjáls vöru- og þjónustuviðskipti, frjálsa fjármagnsflutninga OG SAMEIGINLEGAN VINNUMARKAÐ.
Að auki kveður EES-samningurinn á um samvinnu EES-ríkjanna á sviði félagsmála, jafnréttismála, neytendamála, umhverfismála, menntamála, vísinda- og tæknimála o.fl."
Evrópska efnahagssvæðið
Þorsteinn Briem, 26.7.2011 kl. 16:36
Steini,
Við inngöngu munum við taka upp Evru enda er það skylirði að hálfu tilvonadi sambandsríkis.
Upptaka Evru MUN VALDA AUKNU ATVINNULEYSI ENDA ER ÞAÐ STÖÐUGLEIKINN!
Sveigjanleiki hagkerfisins sem eigin gjaldmiðill veldur þegar "gróðærið" reynist innistæðulaust kallar fram miklar hækkanir á innflutum vörum en mun vægari á innlendum vörum framleiddum innanlands með innlendu vinnuafli sem eykur samkeppnishæfni innlends vinnuafls og kemur í veg fyrir gríðarlegt atvinnuleysi. Ég man þá tíð að t.d husgagnabólstrun var stór iðngrein hér á landi og skapaði vinnu við að viðhalda og enndurvinna verðmæti.
Einu stjórntækið í Evrulandi eru beinar launalækkanir, sem leggjast ekki jafnt á alla, og aukið atvinnuleysi sérstaklega hjá ungu fólki. Þessi Evrulands stjórntæki hlífir alveg þeim sem lifa á fjármagni öfugt við það sem gerist á Íslandi þegar eigendur fjármagns þurfa að taka þátt í aðlöguninni sem er óhjákvæmleg eftir langvarandi gróðærissukk.
Evrulandsframtíðin ræðst af því hvort komið verði á sameiginlegu Fjármálaráðuneyti, til að byrja með, þar sem ákveðið verður í hvað og hve miklu verði varið til samfélagsmála sem mun valda hnignun og visnun útkjálkasvæða og annarra jaðarsvæða sem eru annað hvort dýr í rekstri eða hafa ekki hátæknivætt hagkerfi til að standa undir uppbyggingunni á kjarnasvæðum meginlandsins.
Öll vandamál er varða vexti, verðtryggingu, viðskiptahalla eða stýrivaxtaákarðanir sem valda "carry trade" áhrifum eru heimatilbúin vandamál getulítilla stjórnmálamanna sem þó eru óþreitandi, sumir hverjir, til að koma með og predika patent lausnir sem síðan reynast innihaldslausar og byggjast fremur á pólitískum draumsýnum en nokkru öðru. Má þar nefna óhefta frjálshyggju, forræðishyggju ríkisins og smíði stórvelda þar sem lýðræði er fjarlægt hugtak. Ekkert af þessu mun koma fólkinu til góða heldur fámennum hópum "rétttrúaðra"
Eggert Sigurbergsson, 26.7.2011 kl. 19:23
Eggert Sigurbergsson,
Með upptöku evru EYKST HÉR ATVINNA.
VEXTIR munu LÆKKA og VERÐBÓLGA MINNKA.
Þar af leiðandi eiga íslensk fyrirtæki miklu auðveldara með að fjármagna framkvæmdir, gera langtímaáætlanir og greiða afborganir og vexti af lánum á réttum tíma en áður, bæði fyrir og eftir bankahrunið hér haustið 2008.
Og það á að sjálfsögðu einnig við um einstaklinga hér.
Erlend fyrirtæki munu fjárfesta hér mun meira en áður. Hér koma að öllum líkindum erlendar matvöruverslanir og erlendir bankar stofna hér útibú, líkt og í Eistlandi þegar eistneska krónan var bundin gengi evrunnar.
Og evran var tekin upp í Eistlandi nú um áramótin.
Evrópska efnahagssvæðið er sameiginlegur vinnumarkaður.
Þúsundir útlendinga eru og hafa verið í láglauna- og hálaunavinnu hérlendis, til dæmis fiskvinnslu, byggingavinnu, ræstingum, afgreiðslustörfum og Netleikjum CCP.
Útlendingar, aðallega Pólverjar, halda fiskvinnslunni hér gangandi um allt land.
Og þúsundir Íslendinga eru í hálauna- og láglaunavinnu erlendis, til að mynda læknar, hjúkrunarfræðingar, byggingaverkamenn og ræstingafólk.
Nú eru stýrivextir Seðlabanka Íslands 4,25% en Seðlabanki Evrópu ákveður stýrivexti á öllu evrusvæðinu og þeir eru nú 1,5%.
Og bankastjóri Seðlabanka Íslands telur meiri líkur en minni á að bankinn HÆKKI stýrivexti á næstunni vegna aukinnar verðbólgu.
Árið 2010 voru fluttar hér út vörur fyrir 561 milljarð króna en inn fyrir 441 milljarð króna.
Mest viðskipti voru við Evrópska efnahagssvæðið, 82% af vöruútflutningi og 61% af vöruinnflutningi.
Frá áramótum hefur gengi evru gagnvart íslensku krónunni HÆKKAÐ um 7,9% og gengi evrunnar hefur HÆKKAÐ GRÍÐARLEGA gagnvart íslensku krónunni undanfarin ár, 122% frá ársbyrjun 2006.
VERÐ á matvælum og öðrum vörum frá Evrópulöndum hefur því HÆKKAÐ hér verulega.
EINNIG AÐFÖNGUM frá öðrum Evrópulöndum, til dæmis alls kyns landbúnaðartækjum, tilbúnum áburði, kjarnfóðri og olíu.
Og að sjálfsögðu einnig á vörum og aðföngum frá öðrum löndum en á evrusvæðinu, þar sem búa 332 milljónir manna.
En frá því evruseðlar voru settir í umferð í ársbyrjun 2002 hefur gengi evru gagnvart Bandaríkjadal HÆKKAÐ um 61%. Og við kaupum til að mynda olíu í Bandaríkjadollurum.
Verð á íslenskum landbúnaðarafurðum hefur því HÆKKAÐ mikið í verslunum hér undanfarin ár, sem veldur HÆKKUN á vísitölu neysluverðs og þar af leiðandi HÆKKUN á verðtryggðum lánum, til dæmis bænda vegna íbúðarhúsnæðis og útihúsa.
En með aðild Íslands að Evrópusambandinu og upptöku evru FÉLLI VERÐTRYGGING HÉR NIÐUR.
Þorsteinn Briem, 26.7.2011 kl. 20:58
ERLENDIR BANKAR Í EISTLANDI.
"The biggest financial service providers are commercial banks. There were six commercial banks and eleven branches of foreign banks in Estonia at the end of 2008."
Þar af voru sænsku bankarnir Skandinaviska Enskilda Banken (SEB) og Swedbank með samtals 70% markaðshlutdeild.
Statistical Yearbook of Estonia 2009
Þorsteinn Briem, 26.7.2011 kl. 21:02
Gjaldmiðlar Danmerkur, Litháens og Lettlands eru bundnir gengi evrunnar, sem er gjaldmiðill 332ja milljóna manna.
EISTLAND tók upp evru nú um áramótin og þar JÓKST IÐNFRAMLEIÐSLA UM ÞRIÐJUNG Á EINU ÁRI, frá apríl í fyrra.
Eurostat - Industrial production:
"In April 2011 compared with April 2010, production of capital goods grew by 9.7% in the euro area and by 9.5% in the EU27.
Intermediate goods increased by 5.7% and 5.5% respectively.
Durable consumer goods rose by 5.2% in the euro area and by 2.8% in the EU27.
Non-durable consumer goods gained 3.1% and 3.4% respectively."
"Among the Member States for which data are available, industrial production rose in eighteen and fell in five.
The highest increases were registered in Estonia (+31.8%), Latvia (+13.7%), Sweden (+10.5%) and Germany (+9.9%)."
Þorsteinn Briem, 26.7.2011 kl. 21:07
Við, þjóðin, ætlum ekkert að bjóða þessu evrópska brauðfótastórveldi.
Það getur bara átt sig.
Ekki okkur!
Jón Valur Jensson, 27.7.2011 kl. 01:18
Mjög góð og málefnaleg grein hjá Ingu Sigrúnu.
Sagt er hér að ofan í athugasemdum að: ""Fjórfrelsið svokallaða gildir á öllu svæðinu en það felur í sér frjáls vöru- og þjónustuviðskipti, frjálsa fjármagnsflutninga OG SAMEIGINLEGAN VINNUMARKAÐ."
Hið rétta er að fjórfrelsið ætti að gilda á öllu svæðinu en gerir það ekki. Ísland hefur nýtt sér heimild til þess að skerða frjálsa för fólks og fjármagns.
Það er rangt að benda ekki á þetta vegna þess að þessi skerðing á fjórfrelsinu er ein helsta ástæða þess að þeir sem aðhyllast kosti fjórfrelsisins telja EES gagnlaust og vilja ganga í ESB.
Fjórfrelsið er betur skilgreint og útskýrt með þessum hætti:
Fjórfrelsið er hugtak sem vísar til frelsis til flutninga
1) fólks,2) varnings, 3) þjónustu og 4) fjármagns
innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES), innri markaðar Evrópusambandsins (ESB) og Íslands, Liechtenstein og Noregs fyrir ríkisborgara Evrópu eða þessara ríkja.
Lúðvík Júlíusson, 27.7.2011 kl. 09:24
Aðal kostur evrunnar umfram krónuna er að evran er stöðugri.
Það er ekki bara efnahagslegur ávinningur af evrunni fyrir okkur Íslendinga heldur líka samfélagslegur.
Lítill sveiflukenndur gjaldmiðill færir eignir og kaupmátt á milli fólks, byggðarlaga og fyrirtækja óháð raunverulegum árangri eða framlagi þeirra til samfélagsins. Hún bæði verðlaunar og refsar af handahófi.
Fræðilega séð þá er sveiflukennd króna góð fyrir efnahagslífið en bak við þetta fræðilega stendur samfélag sem fer allt á annann endann.
Stuðningsmenn krónunnar verða að útskýra hvers vegna ferðaþjónustuaðili eða fiskverkandi úti á landi verði að sætta sig við 25% lægri tekjur, og jafnvel fara í þrot, vegna styrkingar krónunnar til að kæla fasteignabólu í 101 RVK.
Lúðvík Júlíusson, 27.7.2011 kl. 10:42
“Aðild ASÍ að Evrópusambandi stéttarfélaga hefur gefið sambandinu tækifæri til að standa þá vakt með miklum sóma,„ segir í greininni eftir Ingu.
ASÍ hefur staðið sig eins og bleyður á vaktinni fyrir Íslendinga. Gylfi Arnbjörnsson, taglhnýtingur Samfylkingarinnar og vel haldinn yfirstéttar Göltur, hefur staðið sig eins og hetja fyrir hvítflibbana á Íslandi en svikið verkalýðinn. Guð hjálpi ESB ef hann verður þar innsti koppur í búri.
Þetta er ekki blaðagrein sem kemur til með að hjálpa málstað ESB sinna.
dreki (IP-tala skráð) 27.7.2011 kl. 13:42
"Samstarf á vettvangi Norðurlandanna var lengi vel þungamiðjan í alþjóðastarfi ASÍ."
Á undanförnum árum hefur hins vegar samstarf á Evrópuvettvangi vaxið mjög, einkum eftir að Ísland gerðist aðili að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið (EES).
Auk samstarfs á vettvangi alþjóðlegrar verkalýðshreyfingar á ASÍ aðild að samstarfi aðila vinnumarkaðarins í EFTA-ríkjunum og Efnahags- og félagsmálanefndar Evrópusambandsins.
"Þá er ASÍ virkur þátttakandi í starfi Alþjóðavinnumálastofnunarinnar, ILO, sem fulltrúi íslensks launafólks."
Alþýðusamband Íslands (ASÍ)
Þorsteinn Briem, 27.7.2011 kl. 18:05
Evran er alveg laus við að vera "stöðug", Lúðvík, ég hélt þú vissir það nú orðið.
Jón Valur Jensson, 27.7.2011 kl. 23:12
Jón Valur, "stöðugri"
Lúðvík Júlíusson, 27.7.2011 kl. 23:21
Það er nú tímaspursmál, hve stöðug hún verður - eða "stöðugri".
Er stöðugleiki annars dygð eða ágæti? Hreyfanleiki er góður, sveigjanleiki líka. Nú pínast Grikkir og Írar vegna ósveigjanleika ... evrunnar, miðað við þann sveigjanleika sem þeir þyrftu á að halda!
Jón Valur Jensson, 28.7.2011 kl. 02:20
Jón Valur, skuldsett ríki pínast rétt eins og skuldsettar og skattpíndar fjölskyldur hér á landi í kjölfar gengishrunsins.
Fjölskyldur og fyrirtæki í Grikklandi og Írlandi geta haldið áfram að gera langtíma áætlanir og viðskipti á meðan íslenskar fjölskyldur og fyrirtæki hafa ekki hugmynd um hvað aðföng og afurðir þeirra munu kosta í næstu viku. Ísland er ekki í öfundsverðri stöðu.
Finnst þér í lagi að vel rekin fyrirtæki séu sett á hausinn og fjölskyldur reknar úr húsnæði sínu vegna gengisflökkts og handstýringar til að redda hagstjórnarmistökum stjórnvalda? Kallast það dyggð?
Lúðvík Júlíusson, 28.7.2011 kl. 09:48
Þú talar um gengisflökt, sem þó hefur verið óverulegt (dollar verið um 115 kr., evran um 165 kr. og pundið nál. 188 kr. um mánaða skeið) og fullyrðir: "íslenskar fjölskyldur og fyrirtæki hafa ekki hugmynd um hvað aðföng og afurðir þeirra munu kosta í næstu viku," en þetta er augljóslega stórfelldar ýkjur. Hins vegar ruku stýrivextir í Grikklandi upp úr 10% nýlega þrátt fyrir að það er á evrusvæðinu, sem þínir líkar hafa haldið fram að myndi keyra niður alla vexti hér!
Jón Valur Jensson, 28.7.2011 kl. 12:13
Jón, meðaltöl blekkja. Hérna geturðu séð gengissig íslensku krónunnar.
Innlend fyrirtæki sem reiða sig á innflutt hráefni hafa þurft að borga sífellt meira fyrir þær. Annað hvort greiða þau lægra kaup, hækka verð eða leggja niður starfsemina. Miðað við verðbólguna þá er verðið hækkað og neytendum sendur reikningurinn.
Gengið hefur lækkað um ca 6% frá áramótum og um 0,6% síðasta mánuð. Það þýðir að kaupmáttur hefur færst frá almenningi til útflutningsfyrirtækja. Hvað hefur gerst sem réttlætir þennan tilflutning? Ekkert, þessir aðilar hafa ekkert til þess unnið.
Grikkland er einmitt dæmi um að ríki sem eru aðilar að ESB missa ekki fullveldið, sjálfstæðið eða hagstjórnarvald. Þau geta og mega klúðra sínum málum. Hér hefðu vextir rokið upp úr öllu valdi ef stjórnvöld hefðu ekki bannað nær öll önnur sparnaðarform en innistæður og ríkisskuldabréf. Nú er munurinn sá að Grikkir vita að þeir eru í vandræðum og eru að vinna við að leysa hann en Íslendingar halda margir að hér sé allt í himna lagi.
Lúðvík Júlíusson, 28.7.2011 kl. 12:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.