23.11.2011 | 19:08
Harmageddon um verðtrygginguna: Afborgun af íbúðarláni árið 2047 = 670.000 krónur!
X-IÐUmræðan um gjaldmiðilsmál og vertryggingu verpur oft ansi hressileg og sítt sýnist hverjum. Þeir Máni og Frosti á X-inu ræða oftar en ekki Evrópumál og ræddu þeir verðtrygginguna í gær. Þeir eru sko heldur ekkiert að skafa af því! Á Pressunni segir:
"Útvarpsmaðurinn Frosti Logason þarf að borga 140 milljónir króna fyrir 17 milljóna króna lán sem hann tók árið 2006 vegna íbúðakaupa. Hann fékk þau svör frá bankanum sínum að bankinn færi á hausinn fengi hann ekki allar 140 milljónirnar.
Frosti stýrir útvarpsþættinum vinsæla Harmageddon á X-inu 977 ásamt Mána Péturssyni. Í þættinum í gær gerði hann verðtryggð íbúðalán að umræðuefni, en fyrr um morguninn hafði hann gert sér ferð í bankann til að kanna stöðuna á íbúðarláninu sínu.
Lánið, 17 milljónir króna, tók hann árið 2006. Það stendur í tæpum 25 milljónum króna í dag, en hann greiddi sjálfur út 4,5 milljónir króna sem hann segir tapað fé í dag. Frosti sagðist ekki passa inn í 110 prósent leiðina sem þýðir að hann þarf að borga lánið í topp, en hann hefur alla tíð staðið í skilum. Samræðurnar við fulltrúa bankans voru á þessa leið:"
Eldri færslur
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Evrópusamtökin-heimasíða Heimasíða Evrópusamtakanna
- Aðildarviðræður við ESB
- Já-Ísland
- Evrópustofa Upplýsingar um ESB og Evrópumál
- Evrópusambandið-ESB
- Utanríkisráðuneytið
- Sendiráð ESB á Íslandi Sendiráð ESB á Íslandi
- Meirihlutaálit Utanríkismálanefndar Alþingis
- Skýrsla Evrópunefndar
- RÚV:ESB-vefur
- Uppl. fyrir blaðamenn
- Sterkara Ísland
- FRBL-Umræða-Leiðarar
- European Daily Fréttir frá Evrópu
- BBC-Evrópa
- EU-Observer
- EUtube ESB á you tube
- Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg.
- Evrópuskrifstofan
- EurActiv-Fréttir um ESB
- Euranet (Útvarp)
- Euronews
- Evrópusíða UTN Evrópusíða utanríkisráðuneytisins
- Ungt fólk og ESB Ungt fólk og ESB
- ESB-umfjöllun MBL
Fréttabréfið
Fréttabréf Evrópusamtakanna
Bloggvinir
- Arna Lára Jónsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Daði Einarsson
- Dofri Hermannsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Fararstjórinn
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðlaugur Kristmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Hinrik Már Ásgeirsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreinn Hreinsson
- Jón Gunnar Bjarkan
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Júlía Margrét Einarsdóttir
- Loopman
- Magnús Már Guðmundsson
- Marta B Helgadóttir
- Sveinn Arnarsson
- Tómas Þóroddsson
- Vefritid
- gudni.is
- Ágúst Hjörtur
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Rúnar Þorvaldsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Arnar Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Barði Bárðarson
- Björn Halldórsson
- Brattur
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- ESB
- Eva Benjamínsdóttir
- Eva G. S.
- Eyjólfur Sturlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðlaugur Hermannsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Heiðar Lind Hansson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Sigurðsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kama Sutra
- Kjartan Jónsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- Natan Kolbeinsson
- Óðinn Kári Karlsson
- Óskar Þorkelsson
- Ragnar G
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sema Erla Serdar
- Sigurður M Grétarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Sumarliði Einar Daðason
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Ungir evrópusinnar
- Þarfagreinir
Athugasemdir
LÁNTAKA HÉR Á ÍSLANDI.
Frá maí 2006 til maí 2010 hækkaði vísitala neysluverðs hér um 41%, úr 258,9 í 365,3.
"Árið 1995 voru sett lög um vísitölu neysluverðs, nr. 12/1995 og leysti hún vísitölu framfærslukostnaðar af hólmi. Þá var jafnframt ákveðið með lögum um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001 að nota vísitölu neysluverðs eina til verðtryggingar."
Þorsteinn Briem, 23.11.2011 kl. 19:38
KAUPMÁTTUR HÉR Á ÍSLANDI.
Frá maí 2006 til maí 2010 LÆKKAÐI hér vísitala kaupmáttar launa um 9%, úr 113,9 í 103,9.
En á sama tíma HÆKKAÐI hér vísitala neysluverðs um 41%. (Sjá athugasemd hér að ofan.)
Hagstofa íslands - Vísitala kaupmáttar launa 1989-2010
Hagstofa Íslands - Vísitala neysluverðs 1988-2010
Þorsteinn Briem, 23.11.2011 kl. 19:39
VERÐTRYGGT 20 milljóna króna jafngreiðslulán tekið hjá Íbúðalánasjóði til 20 ára með 5% vöxtum, miðað við 5% verðbólgu á lánstímanum og mánaðarlegum afborgunum:
ÚTBORGUÐ FJÁRHÆÐ:
Lánsupphæð 20 milljónir króna.
Lántökugjald 200 þúsund krónur.
Útborgað hjá Íbúðalánasjóði 19,8 milljónir króna.
Opinber gjöld 301 þúsund krónur.
Útborguð fjárhæð 19,5 milljónir króna.
HEILDARENDURGREIÐSLA:
Afborgun 20 milljónir króna.
Vextir 11,7 milljónir króna.
VERÐBÆTUR 22,1 MILLJÓN KRÓNA.
Greiðslugjald 18 þúsund krónur.
SAMTALS GREITT 53,8 MILLJÓNIR KRÓNA.
Meðalgreiðslubyrði á mánuði allan lánstímann 224 þúsund krónur.
Eftirstöðvar byrja að lækka eftir 72. greiðslu, eða sex ár.
Þorsteinn Briem, 23.11.2011 kl. 19:41
Sjálfstæðisflokkurinn VILL ÁFRAM íslenska krónu og VERÐTRYGGINGU:
"Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að hann hafi lengi verið þeirrar skoðunar að erfitt sé að vera með lítinn gjaldmiðil líkt og krónuna en hann er enn þeirrar skoðunar að Íslandi sé betur borgið utan Evrópusambandsins."
Þorsteinn Briem, 23.11.2011 kl. 19:43
Frá október 1989 til október 2011 hefur kaupmáttur launa AUKIST um 32% UMFRAM VERÐBÓLGU!
Verðbólgan er EKKI vandamálið.
Krónan er ekki vandamálið.
Háir raunvextir þ.e vextir UMFRAM VERÐBÓLGU eru vandamál. Fasteignabólur uppblásnar af gróða og græðgissjónarmiðum er ekki vandamál bara hér heldur ALLSTAÐAR!
Hver er ástæðan fyrir háum raunvöxtum?
1. Há raunávöxtunarkrafa lífeyrissjáóða sem er núna samkvæmt lögum 3,5% UMFRAM VERÐBÓLGU.
2. Bankar og aðrir lánabraskarar APA eftir þessa háu raunávöxtunarkröfu lífeyrissjóðanna!
Það er tími til komin að þeir sem bera á borð svona kjánalega útreikninga, eins og vesalingarnir hjá X-IÐ, reikni samhliða út hver laun viðkomandi yrðu að samningstíma liðnum og eins hvert virði húsnæði viðkomandi yrði.
Þeir sem bera svona á borð fyrir fólk hljóta annaðhvort að vera kjánar sjálfir eða halda að fólk upp til hópa séu kjánar.
Kjánalegast af öllu er að ESB-sinnar halda að þetta séu rök MEÐ inngöngu í ESB!
Eggert Sigurbergsson, 24.11.2011 kl. 08:25
Gaman að fá svona link til þess að útskýra verðtrygginguna og kosti ESB á mannamáli.
Það höfðar til yngra fólksins sem mun taka afstöðu til verðtryggingarinnar þegar samningurinn lyggur fyrir.
Sleggjan og Hvellurinn, 24.11.2011 kl. 12:20
Erlendir ferðamenn koma EKKI til Íslands vegna þess að ódýrara sé að ferðast hingað en til Evrópusambandslandanna eða á milli þeirra.
Erlendum ferðamönnum fjölgaði mest hérlendis á síðasta áratug þegar íslenska krónan var hátt skráð, á árunum 2006 og 2007.
Ferðaþjónusta á Íslandi í tölum - Febrúar 2010, sjá bls. 9
Árið 2006 var verðlag hérlendis 61% HÆRRA en að meðaltali í Evrópusambandslöndunum, borið saman Í EVRUM.
Hagstofa Íslands - Evrópskur verðsamanburður á mat, drykkjarvöru og tóbaki
Við Íslendingar kaupum hins vegar matvörur og aðrar vörur hér í íslenskum krónum en EKKI í evrum og árið 2009 komu 65% af innflutningi hér frá Evrópska efnahagssvæðinu en 84% af útflutningi héðan fóru þangað.
Gengi evrunnar gagnvart íslensku krónunni hefur HÆKKAÐ um 114% frá ársbyrjun 2006.
KOSTNAÐUR ferðaþjónustunnar hérlendis, til dæmis vegna bifreiða, bensín- og olíukaupa, hefur því AUKIST GRÍÐARLEGA frá árunum 2006 og 2007.
Og það á að sjálfsögðu einnig við um önnur íslensk fyrirtæki, þannig að þau hafa síður efni á að fjárfesta og ráða nýtt starfsfólk VEGNA ÞESS að gjaldmiðill okkar Íslendinga er íslensk króna en ekki evra.
Frá því evruseðlar voru settir í umferð í ársbyrjun 2002 hefur gengi evrunnar gagnvart Bandaríkjadal HÆKKAÐ um 50% og við Íslendingar kaupum til að mynda olíu í Bandaríkjadollurum.
"Sauðfjárbændur hafa tekið á sig verulegar aðfangahækkanir undanfarin ár.
Áburðarverð hefur þrefaldast, olía rÍflega tvöfaldast og rekstrarkostnaður í heild hækkað um rúm 170% frá 2005."
16.7.2011: Sauðfjárbændur svara Gylfa Arnbjörnssyni
Þorsteinn Briem, 24.11.2011 kl. 12:24
Það væri nú harla einkennilegt ef GRÍÐARLEG LÆKKUN á gengi íslensku krónunnar undanfarin ár hefði EKKI valdið mikilli verðbólgu hérlendis.
FLEST aðföng og vörur hér eru INNFLUTTAR og þegar gengi íslensku krónunnar LÆKKAR, til að mynda gagnvart evrunni, þarf að sjálfsögðu að greiða fleiri krónur fyrir hverja evru.
Þar af leiðandi HÆKKAR verð á vörum frá evrusvæðinu í verslunum hérlendis, svo og verð á vörum framleiddum með aðföngum frá evrusvæðinu, verðbólgan hér EYKST því og VERÐTRYGGÐ LÁN HÆKKA.
Frá ársbyrjun 2006 hefur gengi evru gagnvart íslensku krónunni HÆKKAÐ um 114%.
Og hlutfall evrusvæðisins í útflutningsvog Seðlabanka Íslands árið 2010, byggðri á vöru- OG þjónustuviðskiptum árið 2009, var 52% en vöruviðskiptum 60%.
Þorsteinn Briem, 24.11.2011 kl. 12:28
Eggert.
Er ekki betra að hlusta á hljóðbrotið áður en þú byrjar að gagnrýna það. Þeir eru að tala um að launin hjá þeim þurfa að vera 2 milljónir á X-inu.
Sleggjan og Hvellurinn, 24.11.2011 kl. 12:45
21.11.2011 (síðastliðinn mánudag):
"Verðbólgan hér á Íslandi er 5,3 prósent um þessar mundir, sem er nokkuð umfram 2,5 prósent markmið Seðlabanka Íslands.
Ekkert land sem notar evruna er með meiri verðbólgu en evrulandið sem glímir við mesta verðbólgu er Belgía með 3,6 prósent. Á evrusvæðinu í heild nemur hún 3 prósentum.
Tvö Evrópuríki sem ekki notast við evruna eru hins vegar með verri verðbólgutölur en það eru Rússland og Tyrkland, sem eru með 7 til 8 prósent verðbólgu.
Verðbólgan hér á Íslandi er mikil á heimsmælikvarða
Þorsteinn Briem, 24.11.2011 kl. 12:53
Síðastliðið ár, frá 24. nóvember í fyrra, hefur gengi evrunnar gagnvart íslensku krónunni HÆKKAÐ um 4%.
Hér á Íslandi eru hins vegar GJALDEYRISHÖFT.
Þorsteinn Briem, 24.11.2011 kl. 13:52
Það er rétt sem Eggert segir þegar hann bendir á að kaupmáttur hafi aukist umfram verðbólgu og að þess vegna sé óþarfi að óttast hækkun lána til lengri tíma. Raunbreytingar eru það sem skiptir máli og hlutfallslegar breytingar á milli skulda og tekna.
Það fær mig samt ekki til að finnast krónan eitthvað betri.
Óstöðug mynt sem erfitt er að treysta á að haldi verðgildi sínu eykur áhættu. Þessi aukna áhætta ýtir undir áhættusækni, mikla spákaupmennsku og aukna óvissu fyrir almenning, sem stendur varnarlaus vegna þess að hann skortir almennt sérþekkingu til að vita hvað er að gerast.
Þess vegna er evran betri og eftirsóknarverð þrátt fyrir allt.
Lúðvík Júlíusson, 25.11.2011 kl. 06:07
VERÐHÆKKANIR Á LANDBÚNAÐARVÖRUM HÉRLENDIS.
Samkvæmt Hagstofu Íslands hækkaði hér verð á eftirtöldum vörum miðað við verðlag á öllu landinu á 18 mánaða tímabili, frá ágúst 2008 til febrúar 2010:
Nýmjólk um 19%, úr 91 krónu í 108 krónur lítrinn,
súrmjólk um 28%, úr 125 krónum í 160 krónur lítrinn,
skyr um 13%, úr 260 krónum í 295 krónur kílóið,
smjör um 19%, úr 471 krónu í 560 krónur kílóið,
mjólkurostur (26% brauðostur) um 13%, úr 1.105 krónum í 1.253 krónur kílóið,
egg um 19%, úr 463 krónum í 549 krónur kílóið,
heill frosinn kjúklingur um 19%, úr 463 krónum í 552 krónur kílóið,
súpukjöt (dilkakjöt) um 18%, úr 542 krónum í 640 krónur kílóið,
vínarpylsur um 14%, úr 1.008 krónum í 1.153 krónur kílóið,
lifrarkæfa um 7%, úr 1.242 krónum í 1.327 krónur kílóið,
gúllas (nautakjöt) um 2%, úr 1.816 krónum í 1.846 krónur kílóið,
skinka um 10%, úr 2.254 krónum í 2.479 krónur kílóið,
hangikjötsálegg um 6%, úr 3.562 krónum í 3.785 krónur kílóið.
Þorsteinn Briem, 25.11.2011 kl. 14:08
Áríð 2006 var hér EFTIRSPURNARVERÐBÓLGA, um 8%, þar sem gengi íslensku krónunnar var þá MJÖG HÁTT og Íslendingar keyptu nánast allt sem þá langaði til að kaupa, sama hvað það kostaði.
Stýrivextir Seðlabanka Íslands voru því GRÍÐARLEGA HÁIR, 14,25%, til að REYNA að fá Íslendinga til að leggja fyrir og minnka hér kaup- og byggingaæðið, viðskiptahallann við útlönd og eftirspurnarverðbólguna.
Og útlendingar keyptu JÖKLABRÉF fyrir nokkur hundruð milljarða króna, sem HÆKKAÐI gengi íslensku krónunnar enn frekar.
Nú sitjum við uppi með þau og GJALDEYRISHÖFT.
Jöklabréf
En eftir GJALDÞROT íslensku bankanna OG Seðlabanka Íslands haustið 2008 var hér MJÖG MIKIL verðbólga VEGNA GENGISHRUNS íslensku krónunnar, þar sem mun fleiri krónur þurfti nú til að kaupa erlendar vörur og aðföng en árið 2006.
Stýrivextir Seðlabanka Íslands hafa verið MUN HÆRRI en stýrivextir Seðlabanka Evrópu, sem ákveður stýrivexti á öllu evrusvæðinu.
Stýrivextir hérlendis og á evrusvæðinu 2002-2007
Verðbólgan hér í janúar 2009 var 18,6% og stýrivextir Seðlabanka Íslands 18%, þegar Davíð Oddsson var ennþá seðlabankastjóri.
Stýrivextir Seðlabanka Íslands
Seðlabanki Íslands - Peningamál í nóvember 2006
Þorsteinn Briem, 25.11.2011 kl. 14:48
Sjálfstæðisflokkurinn - TRAUST efnahagsstjórn, stærsta velferðarmálið!
Framsóknarflokkurinn - ÁRANGUR ÁFRAM, ekkert stopp!
Þorsteinn Briem, 25.11.2011 kl. 14:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.