Leita í fréttum mbl.is

Verbólgudraugurinn lifir góðu lífi á Íslandi! Krónan fallið um 1,4% frá áramótum!

Prósent"Gleðifréttir" berast landsmönnum:

Verðbólgan er komin í 6.5%! Jibbý!! Á www.visir.is stendur: "Ársverðbólgan mælist nú 6,5% og hefur hækkað verulega frá því í desember þegar hún mældist 5,3%. Þessi hækkun er umfram spár sérfræðinga sem gerðu yfirleitt ráð fyrir að hún yrði 6,3%. Aukin verðbólga er einkum keyrð áfram af hækkunum á opinberum gjöldum.

Fjallað er um málið á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í janúar sé 387,1 stig og hækkaði um 0,28% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 365,9 stig og hækkaði um 0,05% frá desember."

Á myndinni hér með má sjá verðbólgu á Evru-svæðinu árið 2011, sem fer ekki yfir 3%!

Inflation2011

Svo fer þetta allt inn í lánin með verðtryggingunni!

Sjá einnig frétt Viðskiptablaðsins tengda þessu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Örn Ægir Reynisson

Hér er leppstjórn ESB við völd henni þarf að sparka með hraði! Meðan það gerist ekki verður allt á niðurleið nema andúðin á Evrópusambandinu hún mun bara aukast!

Stjórnar­maður í VR: Er ESB-daður forystumanna ASÍ að skaða verkalýðshreyfinguna og hag launþega?

27. janúar 2012 klukkan 15:43

Ragnar Þór Ingólfsson, stjórnarmaður í Verslunarmannafélagi Reykjavíkur, veltir fyrir sér á vefsíðu sinni 27. janúar 2012 hvort aðgerðaleysi forystu Alþýðusambands Íslands (ASÍ) gagnvart skuldavanda heimilinna og stuðningur við verðtrygginguna sé „meðvituð leið“ Gylfa Arnbjörnssonar, forseta ASÍ, „leið til að auka fylgi umbjóðenda sinna við ESB aðild“.

Ragnar Þór spyr hvort „vítavert sinnuleysið gagnvart raunkjaraskerðingu og eignaupptöku vegna forsendubrests með ráðum gert til að ýta undir loforð þeirra um betra líf og bætt kjör með inngöngu í pólitískt himnaríki stofnanafíkla og skriffinskupúka“ en með þeim orðum lýsir hann Evrópusambandinu.

Hann bendir á að Magnús Norðdahl, lögfræðingur ASÍ, hafi nýlega tekið sæti á alþingi til að verja ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur sem hljóti að vekja spurningar um fyrir hverja hann og aðrir í forystu ASÍ raunverulega vinni þótt vitað sé hvaðan laun þeirra komi.

Þá spyr Ragnar hvort raunveruleg ástæða þess að Gylfi Arnbjörnsson hafi komið í veg fyrir frystingu vísitölu eftir bankahrunið hafi verið vilji hans til „að reka skuldara með byssusting í bakinu til kosninga um aðild að Evrópusambandinu og nota svo verðtrygginguna sem skiptimynt fyrir atkvæði með aðild“.

Innan Alþýðusambandsins ríki skoðanakúgun. Þeir sem ekki séu fylgjandi ofsatrú á evru og ESB séu lýðskrumarar og populistar af verstu sort að mati forystu ASÍ.

Ragnar Þór segist ekki hafa gert upp hug sinn um aðild, hann skorti til þess upplýsingar. Pistli sínum lýkur hann á þessum orðum:

„Eitt er víst að meðan innviðir samfélagsins eru í ljósum logum leita Evrópusinnaðir stjórnmálamenn og verkalýðskrumarar að þægilegum og upphituðum hægindastólum innan völundarhúsa ESB þar sem metnaðurinn liggur fyrst og fremst innávið. Ekki eru eldarnir minni fyrir utan fílabeinsturnana í Brussel svo mikið er víst.

Forgangsröðunin er einfaldlega galin.

Hafa pólitísk tengsl og Evrópudraumar forystumanna ASÍ skaðað hreyfinguna?“

Örn Ægir Reynisson, 27.1.2012 kl. 19:23

2 Smámynd: Evrópusamtökin, www.evropa.is

Leppstjórn ESB!! 

Evrópusamtökin, www.evropa.is, 27.1.2012 kl. 19:28

3 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Það er þægilegt að kenna krónunni um en eins og fram hefur komið í fréttum, og kemur raunar fram í frétt Vísis hér að ofan, má einkum rekja hærri verðbólgu til síhækkandi opinberra gjalda.

Hjörtur J. Guðmundsson, 27.1.2012 kl. 21:51

4 Smámynd: Þorsteinn Briem

VERÐBÓLGAN HÉR Á ÍSLANDI FYRIR HÆKKANIR Á OPINBERUM GJÖLDUM UM ÁRAMÓTIN:

15.12.2011:


"Ísland býr við mestu verðbólguna af öllum ríkjum í Evrópu. Þetta kemur fram í nýju yfirliti frá Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins.

Verðbólgan á Íslandi í nóvember mældist 5,1%. Til samanburðar var verðbólgan að meðaltali 3,4% meðal ríkja Evrópusambandsins og 3% að meðaltali á evrusvæðinu í nóvember.


Sviss býr við verðhjöðnun upp á 0,8% en minnsta verðbólgan að öðru leyti er í Svíþjóð eða 1,1% og Noregi eða 1,2%.

Mesta verðbólgan, fyrir utan Ísland, er í Bretlandi og Slóvakíu en hún mælist 4,8% í báðum þessum ríkjum."

Ísland býr við mestu verðbólgu í Evrópu

Þorsteinn Briem, 27.1.2012 kl. 22:56

5 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Verðbólgudraugurinn lifir góðu lífi hjá ESB ríkisstjórn Íslands.Það eru orð að sönnu,og ratast Evrópusamtökunum þar satt orð á munn.ESB ríkisstjórn Íslands hefur hvorki áhuga né getu til að stjórna efnahagsmálum á Íslandi né annarsstaðar.Það eina sem þessi vesæla ESB ríkisstjórn getur er að níða niður landið og reyna að koma auðlindum þess í hendur gamalla nýlenduvelda sem eru að þrotum komin og kallast Evrúpusambandið.En það er hárrétt, þessari vesælu ESB ríkisstjórn Íslands er að takast að fara með allt til fjandans,þrátt fyrir met fjölda ferðamanna, met makrílveiði og hátt verð á áli lengst af.Burt með ESB ríkisstjórn Íslands og það sem hún er að magna upp.verðbólgudrauginn og burt með áróðursklíku ESB frá Íslandi.Nei við ESB.

Sigurgeir Jónsson, 27.1.2012 kl. 23:26

6 Smámynd: Þorsteinn Briem

Þegar gengi íslensku krónunnar fellur, til að mynda gagnvart evrunni, HÆKKAR hér verð á vörum, aðföngum og þjónustu frá evrusvæðinu OG VERÐBÓLGAN HÉR EYKST.

Frá áramótum
hefur gengi evrunnar gagnvart íslensku krónunni HÆKKAÐ um 1,76% og gagnvart Bandaríkjadollar um 1,3%.

Og frá því evruseðlar voru settir í umferð í ársbyrjun 2002 hefur gengi evrunnar gagnvart Bandaríkjadal HÆKKAÐ um 45,65% og breska sterlingspundinu um 33,98%.

Í fyrra, árið 2011, HÆKKAÐI gengi evrunnar gagnvart íslensku krónunni um 3,38% og frá ársbyrjun 2006 hefur gengi evrunnar gagnvart íslensku krónunni HÆKKAÐ um 116,36%.

Og hér á Íslandi eru GJALDEYRISHÖFT.

Áttatíu prósent Íra ánægð með evruna

Þorsteinn Briem, 27.1.2012 kl. 23:46

7 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Hátt gengi evru gagnvart dollar og jeni er gott fyrir Ísland sem selur þangað mest af sínum afurðum.En er of hátt gengi evru gott fyrir ESB.Einhverra hluta vegna virðist "elsku kallinn" telja að svo sé.Vandræði evruríkjanna stafa fyrst og fremst af því að það blasir við efnahagshrun innan evruríkjanna ef hætt verður að dæla fé inn í evrurikin til að halda evrunni hárri.En að sjálfsögðu springur bólan.En "elskukallinn" er ekki einn um að trúa þessari þvælu um gullsígildi evrunnar.ESBríkisstjórn Íslands og aftaníossar hennar í hagfræðingastétt eru sama sinnis.Nei við ESB.

Sigurgeir Jónsson, 28.1.2012 kl. 00:07

8 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Á að vera" selur mest af sínum afurðum til ESB".Nei við ESB.

Sigurgeir Jónsson, 28.1.2012 kl. 00:10

9 Smámynd: Þorsteinn Briem

"Í reglum Evrópusambandsins er tiltekið að velta sambandsins megi ekki vera meiri en 1,27% af þjóðarframleiðslu aðildarríkjanna en hún er nú rúmlega 1%.

Evrópusambandið fer með samanlagt 2,5% af opinberu fé aðildarríkjanna og ríkin sjálf þar af leiðandi 97,5%."

Þorsteinn Briem, 28.1.2012 kl. 01:02

10 Smámynd: Þorsteinn Briem

Þorsteinn Briem, 28.1.2012 kl. 01:05

11 Smámynd: Þorsteinn Briem

Frá ársbyrjun 2011 hefur gengi Bandaríkjadollars gagnvart íslensku krónunni HÆKKAÐ um 6,53%.

Og hér á Íslandi eru GJALDEYRISHÖFT.

15.6.2011:


Kanada hvetur Bandaríkin til að forðast greiðsluþrot

Þorsteinn Briem, 28.1.2012 kl. 01:16

12 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Þetta er sorgleg staðreynd. Verðbólga er mikill skaðvaldur. Hún hækkar lán hemilana um mörghundruð milljarða á hverju ári. Þetta er gríðarleg eigartilfærsla.

Ef við verðum svo heppin að ganga í ESB þá munum við geta kveðið niður verðbólgudrauginn með betri hætti.

Það nægir að líta á verðbólgu á Evrusvæðinu og svo Íslandi seinustu ár.

Sleggjan og Hvellurinn, 29.1.2012 kl. 13:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband