31.1.2012 | 17:15
Samkomulag í Brussel um aukinn aga - allir með nema Tékkar og Bretar
Alls lögðu 25 af 27 aðildarrríkjum ESB (öll nema Tékkland og Bretland) blessun sína yfir samkomulag um aukinn aga í ríkisfjármálum í Brussel í gærkvöldi.
Tékkar eru enn með forseta, Vaclav Klaus, sem er hægri-sinnaður þjóðernissinni og heitur andstæðingur ESB (stundum kallaður "Margret Thatcher"-mið Evrópu). En forsætirsráðherra Tékka, segir að í framtíðinni ætli Tékkar að vera með. Afstaða Breta hefur verið þekkt í nokkrar vikur og þeir vilja ekki vera með.
Nýi forsætisráðherra Dana, Helle Thorning-Schmidt, er ánægð með samkomulagið. Danska stjórnin hefur náð í gegn öllum kröfum sínum varðandi þátttöku sína í nýjum evrusáttmála. Thorning-Schmidt segir að enn eigi eftir að ganga frá nokkrum formsatriðum, en á því sé enginn vafi að Danmörk sé með.
Hún segir Dani með þessu sýna að þeir séu ekki veiki hlekkurinn í keðjunni og geri strangar kröfur til eigin fjárlagagerðar. Danir náðu þeirri kröfu sinni í gegn að hugsanlegar sektir vegna brota á sáttmálanum renna í sameiginlegan sjóð ESB en ekki í björgunarsjóð evruríkjanna. Danir gegna einmitt forystu í ESB fram á mitt þetta ár.
Hér fær því eitt minnsta ríki ESB kröfu sína í gegn. Svo segja andstæðingar að smáríki í ESB hafi engin áhrif innan ESB.!
Sem sagt; Danir telja það mikilvægt að vera með í "Evru-pakkanum". Hvaða ályktanir getum við Íslendingar dregið af því?
Eldri færslur
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Evrópusamtökin-heimasíða Heimasíða Evrópusamtakanna
- Aðildarviðræður við ESB
- Já-Ísland
- Evrópustofa Upplýsingar um ESB og Evrópumál
- Evrópusambandið-ESB
- Utanríkisráðuneytið
- Sendiráð ESB á Íslandi Sendiráð ESB á Íslandi
- Meirihlutaálit Utanríkismálanefndar Alþingis
- Skýrsla Evrópunefndar
- RÚV:ESB-vefur
- Uppl. fyrir blaðamenn
- Sterkara Ísland
- FRBL-Umræða-Leiðarar
- European Daily Fréttir frá Evrópu
- BBC-Evrópa
- EU-Observer
- EUtube ESB á you tube
- Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg.
- Evrópuskrifstofan
- EurActiv-Fréttir um ESB
- Euranet (Útvarp)
- Euronews
- Evrópusíða UTN Evrópusíða utanríkisráðuneytisins
- Ungt fólk og ESB Ungt fólk og ESB
- ESB-umfjöllun MBL
Fréttabréfið
Fréttabréf Evrópusamtakanna
Bloggvinir
- Arna Lára Jónsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Daði Einarsson
- Dofri Hermannsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Fararstjórinn
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðlaugur Kristmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Hinrik Már Ásgeirsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreinn Hreinsson
- Jón Gunnar Bjarkan
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Júlía Margrét Einarsdóttir
- Loopman
- Magnús Már Guðmundsson
- Marta B Helgadóttir
- Sveinn Arnarsson
- Tómas Þóroddsson
- Vefritid
- gudni.is
- Ágúst Hjörtur
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Rúnar Þorvaldsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Arnar Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Barði Bárðarson
- Björn Halldórsson
- Brattur
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- ESB
- Eva Benjamínsdóttir
- Eva G. S.
- Eyjólfur Sturlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðlaugur Hermannsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Heiðar Lind Hansson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Sigurðsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kama Sutra
- Kjartan Jónsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- Natan Kolbeinsson
- Óðinn Kári Karlsson
- Óskar Þorkelsson
- Ragnar G
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sema Erla Serdar
- Sigurður M Grétarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Sumarliði Einar Daðason
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Ungir evrópusinnar
- Þarfagreinir
Athugasemdir
Útkjálki Þýskalands.
Sigurgeir Jónsson, 31.1.2012 kl. 18:16
Sigurgeir Jónsson,
Í Evrópusambandinu býr HÁLFUR MILLJARÐUR manna en hér á Íslandi búa um 318 þúsund manns.
Seðlabanki Evrópu færi létt með að kaupa upp allar íslenskar krónur strax í fyrramálið og steypa úr þeim klump, sem hlunkað yrði niður sem minnisvarða um heimsku Framsóknarflokksins við innkeyrsluna í Sandgerði.
Economy of the European Union - The largest economy in the world
Þorsteinn Briem, 31.1.2012 kl. 19:00
Viljið þið ESB sinnar vera í bandalagi við þjóðverja sem eru með sömu stefnu og Hitler var með???
Vilhjálmur Stefánsson, 31.1.2012 kl. 20:58
ST.br."elskukall" er eitthvað að geðvonskast út í Framsóknarflokkinn sem hann hefur áður gortað sig af að forfeður hans hafi stofnað, en segir nú að hafi verið heimskir."Elsku kallinum" til fróðleiks þá hefur Framsóknarflokkurinn ekki komið að meirihluta í stjórn Sandgerðisbæjar í 22 ár, þótt hann hafi átt þar ýmist 1 eða 2 bæjarfulltrúa.Nei við ESB.
Sigurgeir Jónsson, 31.1.2012 kl. 21:03
Sigurgeir Jónsson,
Ég minntist hér ekkert á þessar fáu hræður sem kosið hafa Framsóknarflokkinn í Sandgerði.
Langafi minn, Ólafur Briem á Álfgeirsvöllum í Skagafirði, fyrsti formaður Framsóknarflokksins og formaður Sambands íslenskra samvinnufélaga (SÍS), var MAÐUR EN EKKI MÚS, eins og núverandi formaður flokksins.
Þegar Ólafur reiddist fór hann upp í fjall og ruddi þar niður stórgrýti, í stað þess að brjóta öll húsgögnin heima við.
Og sonur hans, formaður Bændaflokksins, var einnig FRJÁLSLYNDUR OG VÍÐSÝNN maður. Ein af dætrum hans, Halldóra Briem (Dódó) var fyrsta íslenska konan til að útskrifast sem arkitekt og bók um hana kom út árið 1994.
Þorsteinn Briem, 31.1.2012 kl. 21:48
,,Viljið þið ESB sinnar vera í bandalagi við þjóðverja sem eru með sömu stefnu og Hitler var með???"
Trúir þú þessu? Já, þeir hafa bara alveg sömu tefnu og Hitler! Sé það núna.
Svo er almenningur hérna látinn styrkja Andsinna í bak og fyrir, skattpíndir til þess að styrkja einhver áróður Andsinna. Og þetta er afraksturinn.
Ómar Bjarki Kristjánsson, 31.1.2012 kl. 22:22
Ómar..ESB sinnar eru gjösamlega blindir á hvað þjóðverjum er efst í huga og þeir eru svo viðhvæmir ef þeir heira sannleikann að þeir grípa í örvæntingu til þess ráðs að atirða saklaust fólk.Nákvæmlega eins og Nasistar gerðu forðum.það kemur ekkert málefnalegt frá þeim.Ættjarðar ást eiga þeir ekki til.það er þeim efst í huga að lúta stjórn þjóðverja.
Vilhjálmur Stefánsson, 31.1.2012 kl. 23:11
"95. gr. Hver sem opinberlega smánar erlenda þjóð eða erlent ríki [...] skal sæta sektum eða fangelsi allt að 2 árum.
Nú eru sakir miklar og varðar brot þá fangelsi allt að 6 árum."
Almenn hegningarlög nr. 19/1940
Þorsteinn Briem, 31.1.2012 kl. 23:20
Ekki er annað sjáanlegt en að st.litli "elskukall "br. sé að upplýsa um gen sín sem tengjast Nazistaríkinu og eftir það þarf enginn að undrast stuðning hans við ESB.Nei við Nazistaáróðri og ESB.
Sigurgeir Jónsson, 31.1.2012 kl. 23:54
Fyrst segir "elskukallinn" að Framsóknarmenn séu heimskir og síðan gortar hann sig af því að vera kominn af þeim, og jafnvel því að einhver þeirra hafi verið svo tæpur á geði að hann hafi reynt að velta fjöllum.Og líkur svo þvælunni með að upplýsa hvernig á Þýskalandsdekri og ESB þjónkun hans stendur.Nei við ESB.
Sigurgeir Jónsson, 1.2.2012 kl. 00:02
þeir eru ekki margir sem vilja ganga í ESB klíkuna og nær væri fyrir þá að flytja til Brussels fyrst það er svona gott að vera í návist þjóðverja.það lýður ekki á löngu þar til Evropa logar í ílldeilum. Veistu Steini hvað orðið Evropa þíðir? Evropa þíðir Skækja-sama og hóra..Asseríumenn nefndu hórur Evropu þaðan er nafnið Evropa komið..Svo það er til mikils að sækja fyrir ykkur ESB sinna..
Vilhjálmur Stefánsson, 1.2.2012 kl. 00:13
þetta með 95.gr. Almennra Hegningalaga, að þá er hún umhugsunarverð í þessu sambandi.
Ómar Bjarki Kristjánsson, 1.2.2012 kl. 00:19
http://ekstrabladet.dk/nationen/article1700330.ece
Danskurinn í uppreisn :)
Anna Grétarsdóttir, 1.2.2012 kl. 00:54
Vilhjálmur Stefánsson,
Ísland er eitt af ríkjum Evrópu en það veist þú náttúrlega ekki.
"Í grískri goðafræði var Evrópa AFBURÐA FÖGUR fönikísk PRINSESSA. Seifur brá sér í nautslíki og nam hana á brott til Krítar, þar sem hún fæddi Mínos en hann var að hluta maður og að hluta naut.
Í huga Hómers var Evrópa (Gríska: Ευρωπη) hin goðsagnalega DROTTNING KRÍTAR en ekki landfræðilegt hugtak. Seinna stóð Evrópa fyrir meginland Grikklands og um árið 500 f.Kr. var merking orðsins orðin víðari og átti nú einnig við um landsvæðið fyrir norðan.
Gríska hugtakið Evrópa er komið úr grísku orðunum eurys (breiður) og ops (andlit), þar sem "breiður" er líking við MÓÐUR JÖRÐ í hinum endurreistu forn-indóevrópsku trúarbrögðum.
Sumir telja hins vegar að merking hugtaksins hafi afmyndast á þann hátt að það hafi komið úr semitísku orði eins og hinu akkadíska erebu sem þýðir "SÓLARLAG".
Frá Mið-Austurlöndum séð sest sólin yfir Evrópu, í vestri. Eins telja margir að orðið Asía hafi öðlast merkingu sína úr semitísku orði eins og hinu akkadíska asu, sem þýðir sólarupprás, en Asía er einmitt í austri frá Mið-Austurlöndum."
Evrópa
Þorsteinn Briem, 1.2.2012 kl. 01:40
Ekki er annað sjáanlegt en að ESB og Evrópusamtökin séu stolt af málpípu sinni st."elskukalli" br.og málflutningi hans fyrir ESB. Það segir margt um ESB.Nei við ESB.
Sigurgeir Jónsson, 1.2.2012 kl. 08:09
Þýskaland Nazismans rak þann áróður að sum nágrannalandsvæði Þýskalands til heyrðu í raun Þýskalandi og væru hluti af því, þótt þau væru í öðrum ríkjum.Nú rekur st."elskukall"br. þetta gamla áróðursbull NAZIZTANNA og heimfærir það upp á Ísland, sem sé hluti Evrópu og eigi þessvegna að liggja hundflatt undir ESB hinu nýja Evrópuríki.Þetta er auðvitað ekkert annað en áróðursbull í takt við bull gömlu nasistanna í Þýskalandi.Ísland er á skilum Evrasíu flekans og Ameríkuflekans eins og hægt ér að sjá með eigin augum hér á Reykjanesi.Engu er líkara en að "elskukallinn" st.br.. sé að verða eins og forfaðir hans, sem að sögn "elskukallsins "æddi upp á fjöll og reyndi að velta þeim.Nei við nazistaáróðri og ESB.
Sigurgeir Jónsson, 1.2.2012 kl. 08:24
Það er ótrúlega skemmtilegt að sjá Steina B jarða hverja þvælu á eftir öðru hér á blogginu.
Það er ekki skrítið að NEI sinnar eru pirraðir.
Sleggjan og Hvellurinn, 1.2.2012 kl. 10:15
Pistilshöfundur reynir hér að ófrægja forseta Tékklands, Vaclav Klaus, sem hafði þá glöggskyggni og framsýni til að bera að sjá að óvarlegt væri að taka upp evruna. Hann beitti sér líka gegn samþykkt Lissabon-sáttmálans (endurgerðra stjórnarskrártillögu, sem EKKI skyldi leyft að fólkið fengi að kjósa um), en hefði betur áttað sig á því strax, að "Esb-aðild", þegar komið er fram á 21. öld, snýst um hrikalegt fullveldisframsal ekki síður en efnahagsmál.
Jón Valur Jensson, 1.2.2012 kl. 12:01
... endurgerða ...
Jón Valur Jensson, 1.2.2012 kl. 12:03
Jón Valur
Varðandi þetta svokallaða "fullveldisframsal" er til þess fallið til að slá ryki í augun á fólki.
Er þetta vondar reglur sem við höfum innleytt gegnum EES? Tökum t.d neytendaverndina sem dæmi.
Svo er það bara í eðli fríverslunarsamninga að við þurfum að samhæfa rekstrarumhverfið einosg það gerist í ESB. Það styrkir samkeppnina og öll fyrirtæki spila þá eftir sömu reglum.
Þú getur litið á þetta sem "fullveldisframsal" en það er bara eðlilegt að fyrirtæki á sama markaði spila eftir sömu reglum. Árið er ekki lengur 1874 (þó að þér langar að fara aftur í þá tíma) heldur 2012. Alþjóðarvæðingin kallar á breytta tíma.
Sleggjan og Hvellurinn, 1.2.2012 kl. 13:20
Sigurgeir Jónsson,
Heimska þín á sér engin takmörk, aumingja kallinn.
Heldur því nú fram að Ísland sé ekki Evrópuríki.
Það sé eingöngu "nasistaáróður".
Þorsteinn Briem, 1.2.2012 kl. 13:32
Jón Valur Jensson,
Nefndarálit meirihluta utanríkismálanefndar Alþingis um aðildarumsókn að Evrópusambandinu:
Gjaldmiðilsmál.
"Það er álit meiri hlutans að komi til aðildarviðræðna beri að leggja kapp á að viðræður um gjaldmiðilsmál verði forgangsverkefni í viðræðuferlinu og í því eigi að leita eftir samkomulagi við Evrópusambandið og ECB [European Central Bank - Seðlabanka Evrópu] um STUÐNING VIÐ KRÓNUNA.
Aðildarríkjum Evrópusambandsins BER AÐ TAKA UPP EVRUNA, með örfáum undantekningum, en til að svo megi verða þarf aðildarríki að eiga aðild að Efnahags- og myntbandalagi Evrópu (Economic and Monetary Union, EMU)."
Þorsteinn Briem, 1.2.2012 kl. 13:42
"73. gr. Allir eru frjálsir skoðana sinna og sannfæringar.
Hver maður á rétt á að láta í ljós hugsanir sínar en ábyrgjast verður hann þær fyrir dómi. Ritskoðun og aðrar sambærilegar tálmanir á tjáningarfrelsi má aldrei í lög leiða."
Stjórnarskrá Íslands
Þorsteinn Briem, 1.2.2012 kl. 13:47
Mín vegna geta allir sem vilja, haldið því fram að Ísland sé ríki í heimsálfunni Evrópu.Það breytir því ekki að þetta eru aðeins hugtök."Evrópa" er aðeins útkjálki Asíu eins og allir sjá á landakorti.ESB sinnar hafa veifað því óspart í áróðri sínum að Ísland eigi einhverja samleið með ESB vegna þess að Ísland sé Evrópuríki og menning Íslands og ESB landanna sé sú sama.Þetta er vitanlega ekkert annað en áróðursbull því það sama er hægt að segja um Ástraliu, Kanada, Nýja Sjáland,Bandaríkin og Rússland.Þú hefur sagt st."elskukall br."að FRAMSÓKNARMENN séu heimskir og hefur samhliða því gortað þig af því að forfeður þínir hafi verið í þeim hópi.Ef einhver er heimskur st."elskukall"br. þá legg ég til að þú lesir þín eigin skrif þá er kanski einhver von til að þú sjáir heimsku þína þótt ég efi það, og ég er ekki frá því að þú hafir hugsanlega fengið heimskuna í arf ásamt öðru..Þú segist hafa fengið uppeldið af einstaklingi sem lifði í þriðja ríki Hitlers.Er ekki hugsanlegt að ESB dekur þitt sé komið þaðan.
Sigurgeir Jónsson, 1.2.2012 kl. 15:47
Á flestum mælikvörðum erum víð líkast Norðurlöndum. Þau eru öll í Evrópu og öll í ESB nema eitt.
Ekki satt?
Sleggjan og Hvellurinn, 1.2.2012 kl. 16:47
Sigurgeir Jónsson,
Ég fullyrti ekkert um að allir Framsóknarmenn hafi verið heimskir og vísaði hér að ofan til alls kyns heimsku Framsóknarflokksins undanfarna áratugi:
"Seðlabanki Evrópu færi létt með að kaupa upp allar íslenskar krónur strax í fyrramálið og steypa úr þeim klump, sem hlunkað yrði niður SEM MINNISVARÐA UM HEIMSKU FRAMSÓKNARFLOKKSINS við innkeyrsluna í Sandgerði."
Ísland á aðild að Evrópska efnahagssvæðinu og á LANGMEST viðskipti við Evrópusambandið.
Grænland, sem LANDFRÆÐILEGA er í Ameríku, á einnig mun meiri viðskipti við Evrópu en Ameríku.
"Though physiographically a part of the continent of North America, Greenland has been politically and culturally associated with Europe (specifically Norway and later Denmark) for more than a millenium."
Greenland
Grænland og Færeyjar eru HLUTI AF konungsríkinu Danmörku en eru hins vegar EKKI í Evrópusambandinu, enda þótt Grænland hafi verið í Efnahagsbandalagi Evrópu til ársins 1985.
Færeyjar og Grænland fá aftur á móti gríðarlegan fjárstuðning frá Danmörku og mynt þeirra allra er BUNDIN GENGI EVRUNNAR.
Kýpur, sem LANDFRÆÐILEGA er í Asíu, á hins vegar aðild að Evrópusambandinu.
"Because of sociopolitical and cultural differences, there are various descriptions of Europe's boundary.
For example, Cyprus is approximate to Anatolia (or Asia Minor), but is often considered part of Europe and currently is a member state of the EU.
In addition, Malta was considered an island of Africa for centuries."
Europe
Ísland varð SJÁLFSTÆTT og fullvalda ríki 1. desember 1918, var þá í Evrópu og er þar enn.
En Framsóknarflokkurinn og búrtíkur hans halda náttúrlega að Sandgerði sé í Kanada eða Bandaríkjunum.
Og þær gelta þegar þeim er sigað.
Þorsteinn Briem, 1.2.2012 kl. 17:14
Sæll Steini minn,
ætli fari ekki best á því að þú leggir ættfræðina frá þér um stundarsakir - sérstaklega ef þú ætlar að segja Framsóknarflokknum til syndanna. Breytir þar engu hvort nútíminn hafi gefið af sér mýs eða önnur dýrlíki til forystu í þeim flokki.
Þó svo að Ísland tilheyri Evrópu (jarðfræðilega tilheyrir Ísland einnig N-Ameríku) þá erum við misjafnlega tengd meginlandinu allt eftir smekk hvers og eins. Annars er það fráleit aðferðafræði að líkja ESB við Evrópu, líkt og það ríkjasamband hafi sérstakt tilkall til þeirrar nafngiftar. E.t.v. lýsir það stærilæti Brusselvaldsins og þeirra áhangenda að vilja eigna sér þetta hugtak á svo mörgum sviðum.
Ólafur Als, 1.2.2012 kl. 17:14
Er einhver sem trúir því að aukinn ESB-agi skóli til eða bitni á þeim, sem bestu kjörin og ítökin í spillingarkerfinu hafa? Hjálpi allar góðar vættir þeim sem því trúa í blindni!
Þeim verst stöddu verður bara útjaskað enn meir en nú, sem þrælum bankanna/lífeyrissjóðanna, og beittir enn meiri mannréttinda-brotum en fyrr.
Reynslan af þessu EES-ESB hefur í reynd kennt okkur hvernig þróunin er. Þeir menntuðu og best settu í spilltu bankaklíku-flokka-klúbbakerfinu háskólastýrða, hækka í launum/fríðindum/ábyrðarleysi, og hinir stritandi þrælar fara enn lengra niður í mannréttinda-stiganum.
Það þýðir enn meiri gjörspillt stéttarskipting, í boði gjörspillts og stjórnlauss/stefnulauss EES-ESB-klúðurs Evrópu!
Nærtækasta dæmið um þetta spillingarferli á eyjunni bláu (Íslandi), er kjarabarátta bankastjóranna siðblindu. Og ekki má gleyma hugsjóna-skynvillu-siðblinda Gylfa Arnbjörnssyni "verkalýðsleiðtoga" ESB-klúbbsins spillta á Íslandi. Hann lætur stjórnast af herlegheita-stjórnleysis-seðlabankamafíu ESB-"himnaríkisins". Í samfloti með Gylfa (í sömu ESB-lúxusbifreiðinni) í þeirri baráttu, er Már Guðmundsson Seðló-kjarabaráttu-leiðtogi mútuþeganna!
"Ferfalt húrra fyrir svona dyggðardrengjum", sem berjast af fullum krafti fyrir ESB-Íslandi og kjarabaráttu "almennings"? Eða hvað?
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 1.2.2012 kl. 22:49
Ólafur Als,
Ég var hér að ræða um löngu látna ættingja mína.
Þeir höfðu ekkert með Framsóknarflokkinn að gera síðastliðna áratugi.
Þorsteinn Briem, 1.2.2012 kl. 22:58
Anna.
Það er meiri stéttaskipting í t.d Brazil.
Það þarf ekki ESB til.
Að kenna ESB um stéttaskipti er besta falli mjög langsótt.
Sleggjan og Hvellurinn, 1.2.2012 kl. 23:34
Ísland fékk aðild að Evrópska efnahagssvæðinu í ársbyrjun 1994.
Formaður Vinnuveitendasambands Íslands í árslok 1997:
"SÍÐUSTU þrjú árin hafa lífskjör landsmanna batnað til muna og kaupmáttur launa farið ört vaxandi.
Skattframtöl fyrir árið 1996 sýna að kaupmáttur atvinnutekna í heild hafi aukist um rúm 6% og verður að fara áratug aftur í tímann til að finna sambærilega hækkun.
Nýjustu upplýsingar Kjararannsóknarnefndar benda til þess að kaupmáttaraukinn verði enn meiri á þessu ári.
Á þremur árum hefur því kaupmáttur tekna landverkafólks hækkað um 15-20%.
Þetta eru miklu meiri breytingar launa og kaupmáttar en í öðrum Evrópuríkjum. Þar eru tekjubreytingar um þessar mundir 3,5-4% að jafnaði og árleg kaupmáttaraukning um 2%.
Kaupmáttaraukningin er mun meiri en búist var við fyrirfram.
Laun hafa hækkað nokkuð umfram samninga en miklar kostnaðarhækkanir hafa ekki leitt til samsvarandi hækkunar á verði vöru og þjónustu.
Verðbólgan hefur með öðrum orðum verið mun minni en vænta mátti.
Skýringin liggur í aukinni framleiðni sem orsakast meðal annars af harðri samkeppni, svo og miklu betri nýtingu afkastagetu í atvinnurekstri samfara mikilli veltuaukningu.
Fyrirtækin hafa þannig brugðist við af mikilli snerpu og staðið undir miklu meiri vexti en vænst var."
Evrópska efnahagssvæðið
Þorsteinn Briem, 2.2.2012 kl. 00:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.