Leita í fréttum mbl.is

Frjálshyggja á myntmarkaði?

Karl-MarxKarl Marx (mynd) var mikill hugsuður og einn af þeim áhrifameiri í sögunni. Ein af hugmyndum Marx var sú að menn ættu í raun að geta unnið þau störf, sem þeim datt í hug, þegar þeim datt það í hug! Læknir í dag, flugstjóri á morgun o.s.frv.

Þessi hugmynd gekk að sjálfsögðu ekki upp, því sérhæfing er nokkuð sem einkennir líf mannanna. Læknir verður góður læknir því lengur sem hann vinnur sem slíkur, hann safnar upp reynslu, sem hann byggir sífellt ofan á. Sama má segja um húsasmið.

Nú hefur einn helsti forsprakki Nei-hreyfingarinnar stungið upp á að gera Ísland að "fjölmyntasvæði" þar sem hinir ýmsu gjaldmiðlar yrðu notaðir, í ýmsum tilgangi. Ein rökin eru þau að þar með fengi krónan samkeppni! Og að opna fyrir hingaðkomu erlendra banka!

Er um stefnubreytingu að ræða hjá Nei-sinnum, sem hingað til hafa ekki mátt heyra á minnstan þann möguleika að hafa einverja aðra gjaldmiðla en blessuðu (verðtryggðu) (sveiflu) krónuna? Og hvað með Evruna? Fær hún að vera með, annar helsti alþjóðlegi gjaldmiðill heims?

Nú á sem sagt bara allt í einu að opna allt upp á gátt og koma hér á óheftri samkeppni milli hinna ýmsu gjaldmiðla!

Heitir það ekki frjálshyggja? Og hvernig myndi krónan klára sig í þessu umhverfi? Hverjar yrðu lífslíkur hennar í þessu umhverfi?

Eða eru Nei-sinnar bara með þá og þá stefnu sem hentar hverju sinni, rétt eins þegar Marx hélt að menn gætu bara unnið það sem þeim datt í hug, þegar þeim datt það í hug?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: K.H.S.

Áttu ekki forrit sem lagar stafsettningar og ritvillurnar hjá þér.  Hvílík hörmung. Að vera í forsvari fyrir samtökum eins og hér, hlítur að kalla á einhverja málþekkingu.

K.H.S., 2.2.2012 kl. 06:22

2 Smámynd: K.H.S.

Er þetta eftilvill þýtt úr Evrópsku með Google. Stafsettning, merking orða, fyrir nú utan hugsanaruglinginn. Allt niðrum þig.

K.H.S., 2.2.2012 kl. 06:28

3 Smámynd: K.H.S.

hlýtur

K.H.S., 2.2.2012 kl. 06:34

4 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Í hugum NEI sinna er allt betri en evran.

Öllu er tjaldað til.

Sleggjan og Hvellurinn, 2.2.2012 kl. 09:20

5 Smámynd: Evrópusamtökin, www.evropa.is

Kári: Stafsettning? Hlítur? Ef til vill í einu orði? Maður, líttu þér nær! Þetta heitir að kasta steinum úr glerhúsi!

Evrópusamtökin, www.evropa.is, 2.2.2012 kl. 09:47

6 Smámynd: Lúðvík Júlíusson

Þetta er góð hugmynd hjá Nei sinnum því þetta er fljótlegasta leiðin, þó ekki sú besta, til að henda krónunni og taka upp evru.

Lúðvík Júlíusson, 2.2.2012 kl. 17:35

7 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Evrópusamtökin segja að Nei sinnar, við aðild Ísland að ESB hafni, öðrum gjaldmiðlum á Íslandi en krónunni.Ágætt  væri að Evrópusamtökin kæmu með eitthvert dæmi um slíkan málflutning.Ég hef hvergi séð að Heimssýn, eða önnur samtök Nei sinna hafi sent slíkt frá sér.Hitt liggur fyrir að Íslendingar eiga ekki kost á evru á næstu árum, þannig að í huga undirritaðs er vitlegast að horfast í augu við þá staðreynd, og kanna möguleika á upptöku annars gjaldmiðils.Það liggur líka fyrir að ESB sinnar eru að ljúga, þegar þeir gefa í skyn að hægt sé að skipta krónunni út fyrir evru um leið og Ísland er komið í ESB, með tilheyrandi fullveldisafsali Íslands og með því að afsala sér náttúruauðlindum.Nei við ESB.Já við skoðun á upptöku annars gjaldmiðils en evru vegna þess að Ísland á ekki kost á að fá evru á næstu árum.

Sigurgeir Jónsson, 2.2.2012 kl. 17:40

8 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Sú hagfræði sem ESB notar við björgun evrunnar, gæti ekki verið verri, þótt Karl Marx væri höfundur hennar.Nei við ESB.

Sigurgeir Jónsson, 2.2.2012 kl. 17:45

9 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Karl Marx var þýskur, og væri trúlega stuðningsmaður ESB og evrunnar væri hann uppi í dag.Kanski félagi í Evrópusamtökunum.

Sigurgeir Jónsson, 2.2.2012 kl. 17:48

10 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Sigurgeir þú hefur ekki hugmynd um hvað Marx væri að gera í dag.. ekkert frekar en ég.

Þó að við þurfum að bíða í nokkur ár eftir Evrunni þá er það í lagi.

Maður á ekki að hætta við allt sem maður getur ekki fengið strax... er það ekki frekar svona 2007 hugsun?

Sleggjan og Hvellurinn, 2.2.2012 kl. 18:02

11 Smámynd: Þorsteinn Briem

Sigurgeir Jónsson,

Í Evrópusambandinu býr HÁLFUR MILLJARÐUR manna en hér á Íslandi búa um 318 þúsund manns.

Seðlabanki Evrópu
færi létt með að kaupa upp allar íslenskar krónur strax í fyrramálið og steypa úr þeim klump, sem hlunkað yrði niður sem minnisvarða um heimsku Framsóknarflokksins við innkeyrsluna í Sandgerði.

Economy of the European Union - The largest economy in the world

Þorsteinn Briem, 2.2.2012 kl. 18:42

12 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Sumir afkomendur heimskra Framsóknarmanna hafa getað fengið heimsku þeirra  í arf ef. um heimsku þeirra hefur verið að ræða..st"elsku kall"br. segir að langafi sinn hafi verið fyrsti formaður Framsóknarflokksins.Fyrsti formaður Framsóknarflokksins sat  ekki lengi.Nei við ESB.

Sigurgeir Jónsson, 2.2.2012 kl. 21:03

13 Smámynd: Þorsteinn Briem

Sigurgeir Jónsson,

Ég ræddi hér áður um löngu látna ættingja mína.

Þeir höfðu ekkert með heimsku Framsóknarflokksins að gera síðastliðna áratugi.

Þorskurinn er þinn jafningi. Hugsaðu um hann.

En þér finnst greinilega gott að láta flengja þig hér, karluglan.

Þorsteinn Briem, 2.2.2012 kl. 21:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband