Leita í fréttum mbl.is

Magnús Orri um lýðræðishallann í EES

Magnús Orri SchramMagnús Orri Schram, þingmaður Samfylkingarinnar, skrifar grein um EES-samninginn í Fréttablaðið í dag. EES-samningurinn er tvítugur um þessar mundir. Magnús segir:

"EES-samningurinn er 20 ára um þessar mundir og af því tilefni tóku Norðmenn nýlega saman ítarlega skýrslu um reynslu sína af EES-samstarfinu. Niðurstöður skýrslunnar má að miklu leyti yfirfæra á íslenskan veruleika enda þjóðirnar tvær í sömu stöðu innan EES.

Skýrsluhöfundar segja ávinning Norðmanna af EES mikinn. Samningurinn hafi styrkt atvinnulíf Norðmanna, aukið viðskipti og bætt lífsgæði. Þá dregur skýrslan fram að einn þriðja af norskum lögum megi rekja til samstarfsins við ESB og að yfir 7.000 reglugerðir, tilskipanir o.fl. hafi verið teknar upp í Noregi vegna samningsins. Þá er dregið fram að Norðmenn hafa mjög lítil áhrif á þessi lög og reglugerðir sem taka þarf upp eftir óskum frá Brussel. Þessi staða veikir óneitanlega undirstöður lýðræðisins í Noregi, því þjóðkjörnir fulltrúar á norska þinginu koma lítið sem ekkert að þriðjungi þeirra laga sem samin eru í Brussel og svo stimpluð í Noregi."

Síðan bendir Magnús á að Noregur hafi tekið upp um 70% af öllum gerðum ESB og það sé meira heldur en margir fullgildir aðilar hafi gert. Því sé talað um "Evrópuvæðingu" Noregs. Síðan lýkur Magnús grein sinni með þessum orðum:

"Andstæðingar aðildar Íslands að ESB hafa í málflutningi sínum lagt áherslu á að sjálfstæði þjóðarinnar sé hætta búin við inngöngu í sambandið og því sé samstarf innan EES betri kostur. Í ljósi norsku skýrslunnar er sú röksemd fallin um sjálfa sig. Norska skýrslan dregur það skýrt fram að lög þjóðarinnar eru að þriðjungi ættuð frá ESB án þess að kjörnir fulltrúar hafi mikið um þau að segja. Væri landið á hinn bóginn aðili að ESB hefðu þingmenn miklu betri aðkomu að öllum þeim lögum sem í landinu gilda. Þannig má segja að sjálfstæði þjóðarinnar myndi standa miklu styrkari fótum væri landið hluti af ESB frekar en í núverandi stöðu innan EES-samstarfsins."


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Það sem stendur upp úr eftir útkomu skýrslunnar ,er að Norðmenn hafa aldrei verið eins harðákveðnir í því að ganga ekki í ESB eins og eftir lestur hennar og telja nú, að nóg sé komið af ESB þjónkun.Bragð er að þá barnið finnur.Það sama er uppi á teningnum hér á landi.Nei við ESB

Sigurgeir Jónsson, 14.2.2012 kl. 22:46

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

Sigurgeir Jónsson,

Norðmenn ætla EKKI að segja upp aðild Noregs að Evrópska efnahagssvæðinu og Schengen-samstarfinu.

Og hvaða íslenskir stjórnmálaflokkar hafa lagt til síðastliðin ár að aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu og Schengen-samstarfinu verði sagt upp?!

Ísland og Noregur eru 70% í Evrópusambandinu, ÁN ÞESS AÐ HAFA ÞAR NOKKUR ÁHRIF.

Noregur er hins vegar OLÍURÍKI með sterkan gjaldmiðil en íslenska krónan er ENGAN VEGINN sterkur gjaldmiðill, enda eru hér GJALDEYRISHÖFT.

Þorsteinn Briem, 15.2.2012 kl. 00:13

3 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Þetta er alveg rétt.

Styrkjum sjálfstæði Íslands.

Segjum JÁ við ESB.

Sleggjan og Hvellurinn, 15.2.2012 kl. 08:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband