6.4.2012 | 10:10
Grein Benedikts Jóhannessonar um gjaldmiðilsmál í Fréttatímanum
Hér má lesa grein Benedikts Jóhannessonar um gjaldmiðilsmál, sem birtist í Fréttatímanum fyrir páska.
Margir velta því fyrir sér þessa dagana hvaða gjaldmiðill henti Íslendingum. Afdrifaríkt verður að kasta krónunni á glæ. Því er afar mikilvægt að hugsa vel sitt ráð. Þjóðin hefur áður gert grundvallarbreytingar í gjaldeyrismálum, breytingar sem höfðu varanleg áhrif á daglegt líf Íslendinga um langt árabil.
Ísland var með alþjóðlega mynt
Í upphafi 20. aldar voru Íslendingar í myntbandalagi með öðrum Norðurlandaþjóðum. Sama gengi og svipað verðlag gilti á svæðinu. Meirihluti utanríkisviðskipta var við Norðurlöndin. Því fundu landsmenn ekki mikið fyrir því þótt þessi sameiginlega króna breytti um gengi gagnvart öðrum myntum. Í fyrri heimsstyrjöldinni riðlaðist bandalagið. Þó hefur gengi norsku, dönsku og sænsku krónanna fylgst þokkalega að þau tæplega 100 ár sem liðin eru frá því að leiðir greindust. Ein af gömlu bandalagsþjóðunum fór þó aðra leið. Íslenski hundraðkallinn frá 1918 er ekki dansks fimmeyrings virði í dag.
Ný mynt, verðtryggð króna
Eftir sextíu ára basl með sjálfstæða krónu var verðbólga hér orðin slík að krónanrýrnaði um nær helming á hverju ári. Enginn vildi spara. Íslendingar fundu þá upp nýja einingu, verðtryggða krónu. Verðtrygging er vissulega til annars staðar, en hvergi er hún jafnútbreidd og á Íslandi. Ástæðan er sú að krónan sjálf er ónýt. Enginn vill lána öðrum til áratuga í venjulegum krónum. Með verðtryggðri krónu er tryggt að Íslendingar skulda alltaf jafnmikið að raunvirði, þótt launin rýrni við hverja gengisfellingu.
Peningastefna með hæstu vöxtum
Í upphafi 21. aldar var Seðlabanka Íslands falið að halda verðbólgunni í skefjum með vaxtastefnu. Peningastefna bankans var í samræmi við viðurkenndar hagfræðikenningar. Vextir voru hækkaðir til þess að sporna við verðbólgu. Útlendingar freistuðust af hávaxta krónubréfum. Gengi krónunnar styrktist og innflutningur jókst. Útflutningsfyrirtæki fengu minna en áður fyrir sína vöru. Vaxtahækkanir höfðu þó lítil áhrif á neyslu, því að flestir voru með lán í verðtryggðum krónum eða erlendri mynt sem fóru eftir öðrum lögmálum. Eftir sjö ár hrundi efnahagskerfið, krónan var sett í höft. Hundruð milljarða króna í eigu útlendinga voru læst inni. Til varð tvöfalt gengi: Aflandsgengi og afleitt gengi.
Áhætta við evru
Af þessu má sjá að Íslendingar taka talsverða áhættu með því að ganga í myntbandalag:
- Verðbólgan verður ekki lengur sú mesta Vesturlöndum.
- Vextir verða ekki lengur miklu hærri hér en í nágrannalöndum.
- Vægi verðtryggingar verður lítið og menn eiga auðvelt með að reikna út hvað þeir skulda.
- Ekki verður lengur hægt að lækka laun almennings í einu vetfangi með gengisfellingu.
- Þjóðin verður af sínu helsta tómstundagamni, gjaldeyrisbraski.
Vonandi verður þessi listi til þess að menn hugsa sig mjög vel um, áður en þeir taka upplýsta ákvörðun um að kasta sinni ástsælu krónu. Þar með fórna þeir hagstjórn sem færði Íslendingum svo margt á undangenginni öld sem aðrar þjóðir fóru á mis við.
Eldri færslur
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Evrópusamtökin-heimasíða Heimasíða Evrópusamtakanna
- Aðildarviðræður við ESB
- Já-Ísland
- Evrópustofa Upplýsingar um ESB og Evrópumál
- Evrópusambandið-ESB
- Utanríkisráðuneytið
- Sendiráð ESB á Íslandi Sendiráð ESB á Íslandi
- Meirihlutaálit Utanríkismálanefndar Alþingis
- Skýrsla Evrópunefndar
- RÚV:ESB-vefur
- Uppl. fyrir blaðamenn
- Sterkara Ísland
- FRBL-Umræða-Leiðarar
- European Daily Fréttir frá Evrópu
- BBC-Evrópa
- EU-Observer
- EUtube ESB á you tube
- Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg.
- Evrópuskrifstofan
- EurActiv-Fréttir um ESB
- Euranet (Útvarp)
- Euronews
- Evrópusíða UTN Evrópusíða utanríkisráðuneytisins
- Ungt fólk og ESB Ungt fólk og ESB
- ESB-umfjöllun MBL
Fréttabréfið
Fréttabréf Evrópusamtakanna
Bloggvinir
- Arna Lára Jónsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Daði Einarsson
- Dofri Hermannsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Fararstjórinn
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðlaugur Kristmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Hinrik Már Ásgeirsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreinn Hreinsson
- Jón Gunnar Bjarkan
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Júlía Margrét Einarsdóttir
- Loopman
- Magnús Már Guðmundsson
- Marta B Helgadóttir
- Sveinn Arnarsson
- Tómas Þóroddsson
- Vefritid
- gudni.is
- Ágúst Hjörtur
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Rúnar Þorvaldsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Arnar Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Barði Bárðarson
- Björn Halldórsson
- Brattur
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- ESB
- Eva Benjamínsdóttir
- Eva G. S.
- Eyjólfur Sturlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðlaugur Hermannsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Heiðar Lind Hansson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Sigurðsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kama Sutra
- Kjartan Jónsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- Natan Kolbeinsson
- Óðinn Kári Karlsson
- Óskar Þorkelsson
- Ragnar G
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sema Erla Serdar
- Sigurður M Grétarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Sumarliði Einar Daðason
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Ungir evrópusinnar
- Þarfagreinir
Athugasemdir
Ágæti Benedikt, vantar ekki eitthvað meira með þessari annars góðu grein?
Vantar ekki að nefna þann veikleika þjóðarinnar að eyða um efni fram?
Vantar ekki að nefna það að iðjulega er samið um kauphækkanir sem standast ekki, sé miðað við tekjur þjóðarbúsins?
Verður ekki gjaldmiðilsfall þegar samið er um óraunsæjar kauphækkanir, sem er sama gjörð eins og að eyða meira en er aflað?
Benedikt, er ekki nauðsynlegt að koma með heildarmyndina þegar verið er að greina stór álitamál?
Ef þjóðin væri meðlimur í ESB þá fengi hún enga aðild að gjaldmiðli þjóðanna, sé miðað við hvernig hún fer að ráði sínu í efnahagsmálum, er það ekki rétt hjá mér Benedikt?
Ég er enginn sérfræðingur um efnahagsmál, en ég veit hvenær veskið mitt er tómt og ég get ekki borgað það sem á mér hvílir. Þá dreg ég mig inn í skel og spara og spara eins ég mest má, til að komast í þá stöðu að ég geti borgað mín gjöld og gert skyldu mína.
Er þetta ekki grundvallaratriði í öllum búskap, hvort heldur hann er einstaklinsmiðaður eða þjóðfélagsmiðaður?
Ég endurtek þakkir fyrir þín ágætu skrif og hógværð í málflutningi.
Margir mættu taka þig til fyrirmyndar, en ég bið þig að bæta við ítarlegri útleggingum frá þessum vinkli sem ég hér hef tíunda að nokkru.
Sigurður Alfreð Herlufsen, 6.4.2012 kl. 13:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.