Leita í fréttum mbl.is

Árni Páll í FRBL: EES-samningurinn dugar okkur ekki til fulls - er hálfgildings lausn!

Árni Páll Árnason

Árni Páll Árnason, þingmaður samfylkingar, ritaði grein í FRBL þann 13.september um Evrópumálin og ræddi aðallega EES-samninginn. Niðurstaða hans er í raun sú að þrátt fyrir að sá samningur hafi reynst okkur alveg ágætlega, sé sú staða komin upp að hann dugi ekki til.

" Í þeirri fyrirferðarmiklu umræðu um kosti Íslands í Evrópumálum sem staðið hefur undanfarin misseri hefur farið frekar hljótt um þá staðreynd að við getum ekki í dag uppfyllt ákvæði EES-samningsins og að alls óvíst er hvernig við förum að því þegar fram í sækir. Við höfum reist gjaldeyrishöft sem ekki standast ákvæði samningsins. Í nýútkominni skýrslu Seðlabankans um varúðarreglur eftir höft er gert ráð fyrir að áfram verði unnt að viðhalda ýmsum hömlum á frjálsum fjármagnshreyfingum, eftir að höftum hefur verið aflétt. Þegar nánar er að gáð er óvíst að þær standist allar ákvæði EES-samningsins. Þannig er til dæmis gert ráð fyrir banni við lántöku heimila og fyrirtækja sem ekki hafa erlendar tekjur í erlendri mynt, en Eftirlitsstofnun EFTA hefur gert athugasemdir við Ísland um bann við gengistryggðum lánveitingum og telur það ekki samrýmast ákvæðum EES-samningsins. Við munum, að óbreyttu regluverki, eiga erfitt með að takmarka heimildir íslenskra banka til að sækja á erlenda markaði eftir afnám hafta og innstæðutryggingakerfi hefur ekki verið útfært með trúverðugum hætti fyrir íslenska banka að afléttum höftum. Og jafnvel þótt hægt væri að laga EES-samninginn að slíkum hömlum – höftum undir nýju nafni – fælist að öllum líkindum í þeim ákvörðun um að skapa séríslenskt einangrunarregluverk um íslenskan fjármálamarkað. Slíkt mun hafa í för með sér afleiðingar – þær augljósustu enn hærri fjármögnunarkostnað fyrir íslensk fyrirtæki og heimili. " 

Síðan segir Árni: "Sú öfugsnúna staða er því uppi nú að Ísland – sem varð fyrir miklu höggi vegna skorts á sameiginlegu regluverki um fjármálastöðugleika og bankaeftirlit – getur ekki leitt í lög hér þær úrbætur á því sviði sem Evrópusambandsríkin hafa þegar tekið ákvarðanir um. Við erum því enn sem fyrr bundin af því að hafa í heiðri fullt frelsi til fjármagnsflutninga, en höfum ekki stjórnskipulegar heimildir til að takmarka það frelsi og regla fjármálakerfið með sama hætti og hin löndin á hinu evrópska efnahagssvæði. Samningurinn leyfir okkur líklega ekki heldur séríslenskar haftalausnir, sem eru að öðrum kosti nauðsynlegar fyrir farsæla sambúð fjármagnsfrelsis og fljótandi veikburða gjaldmiðils. Fátt sýnir betur hversu öfugsnúin staða Íslands er orðin innan umgjarðar EES-samningsins.


Af öllu þessu leiðir að EES-samningurinn er okkur umtalsvert vandamál og ekki er einfalt að finna leiðir til að lifa við hann að óbreyttu. Við munum eiga í erfiðleikum við afnám hafta og tæpast hafa það svigrúm til að setja hömlur sem Seðlabankinn telur nauðsynlegt til að reka sjálfstæðan gjaldmiðil í umgjörð frjálsra fjármagnshreyfinga. Við höfum ekki stjórnskipulegar heimildir til að láta fjölþjóðlegar eftirlitsstofnanir fá fullnægjandi valdheimildir til fjármálaeftirlits og varúðar, sem gætu sett fjármagnsfrelsinu alþjóðlega viðurkenndar hömlur. EES-samningurinn býður því að óbreyttu ekki upp á annað en að endurtaka tilraunina um samspil minnsta fljótandi gjaldmiðils í heimi og óhefts fjármagnsflæðis. Hún tókst ekki vel.

Sú hálfgildings lausn sem fólst í EES-samningnum virðist ekki duga okkur til fulls. Þess vegna er okkur brýn nauðsyn að halda áfram með aðildarumsóknina, til að freista þess að finna betri leið fyrir þátttöku Íslands í hinu evrópska viðskiptaumhverfi. Um kosti aðildarinnar og galla fjalla ég í næstu grein." 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Hafa einhverjir andstæðingar aðildar Íslands að Evrópusambandinu safnað undirskriftum nýlega gegn aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu og Schengen-samstarfinu, og ef svo er, hversu margar undirskriftir fengu þeir?!

Þorsteinn Briem, 16.9.2012 kl. 15:05

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

Semsagt, andstæðingar aðildar Íslands að Evrópusambandinu VILJA að Ísland EIGI ÁFRAM aðild að Evrópska efnahagssvæðinu og Schengen-samstarfinu OG HAFI ÞAR ENGIN ÁHRIF, þrátt fyrir að TAKA UPP FLEST LÖG Evrópusambandsins.

Þeir vilja hins vegar EKKI að Ísland fái aðild að Evrópusambandinu og HAFI ÞAR ÁHRIF á löggjöf sambandsins og Schengen-samstarfið.

Þorsteinn Briem, 16.9.2012 kl. 15:07

3 Smámynd: Þorsteinn Briem

"Schengenríki sem ekki eru í Evrópusambandinu (Noregur, Ísland og Sviss) hafa engin formleg völd þegar ákvarðanir eru teknar sem varða samstarfið og hafa í raun aðeins kost á því að taka upp þær reglubreytingar sem því fylgja eða segja sig úr því ella."

Schengen-samstarfið

Þorsteinn Briem, 16.9.2012 kl. 15:13

4 Smámynd: Þorsteinn Briem

"EES samningurinn gerir ráð fyrir því að afleidd löggjöf EB, þ.e. einkum EB reglugerðir og tilskipanir, verði yfirtekin í samninginn.

Það var gert með svonefndum viðaukum við EES samninginn.

EB reglugerðir og tilskipanir ERU SNIÐNAR AÐ ÞÖRFUM EB, ENDA EINGÖNGU SPROTTNAR ÚR ÞEIM JARÐVEGI.
"

"Viðaukar sem fylgja EES samningnum eru alls 22."

Evrópusambandið og Evrópska efnahagsvæðið eftir Stefán Má Stefánsson lagaprófessor, bls. 115.


(Bókin er 1.200 blaðsíður.)

Þorsteinn Briem, 16.9.2012 kl. 15:15

5 Smámynd: Þorsteinn Briem

"EES réttur öðlast ekki bein réttaráhrif með sama hætti og bandalagsréttur.

Hins vegar er SKYLT AÐ TAKA HANN Í LANDSLÖG í þeim mæli sem nægir til þess að hann geti öðlast sambærileg áhrif að þessu leyti og bandalagsréttur."

Evrópusambandið og Evrópska efnahagsvæðið eftir Stefán Má Stefánsson lagaprófessor, bls. 168.

Þorsteinn Briem, 16.9.2012 kl. 15:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband