Leita í fréttum mbl.is

Engar undanþágur, ha?

RÚVÁ RÚV segir: "Öll ríkin sem gengið hafa í Evrópusambandið á síðustu árum hafa fengið undanþágu í landbúnaðar- og sjávarútvegsmálum, segir yfirmaður sendinefndar ESB á Íslandi. Stefna Íslands í þessum málaflokkum samræmist ekki stefnu Evrópusambandsins."

Síðar segir: "Henrik Bendixen, yfirmaður Evrópusviðs hjá sendinefnd ESB á Íslandi kynnti skýrsluna og hann segir að Ísland eigi eftir að setja fram kröfur sínar í þessum málaflokkum. Ef semja þurfi um undanþágur á einhverjum sviðum þá verði það gert. Þetta séu raunverulegar samningaviðræður. Öll 12 aðildarríkin, sem gengið hafa í ESB að undanförnu, hafi fengið undanþágur og það sé að sjálfsögðu opið gagnvart Íslandi líka. Hann geti þó ekki fullyrt um það nú hvaða undaþágur Ísland geti fengið."

Nei-sinnar hamra á því að engar undanþágur séu í boði. Reynslan sýnir þó annað!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: The Critic

Þið hafið ekkert minnst á þetta 16 blaðsíðna blað um hvað ESB væri vont og ömulegt sem fylgdi morgunblaðinu í gær.

The Critic, 13.11.2012 kl. 20:39

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þetta er einfaldlega ekki rétt ef það er rétt sem ég hef heyrt, einu undanþágurnar, varanlegu frá reglum ESB eru um 50 sjómílna landhelgi á Möltu, og yfirráð finna á einum fiskistofni í þeirra lögsögu sem sannanlega er ekki tl að dreyfa annarsstaðar.

Þetta er því einhliða ómerkilegur áróður, ef þetta er rétt.  Gaman væri að einhver sem veit þetta betur geti komi því á framfæri hvort hér er rétt á málum haldið.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.11.2012 kl. 23:57

3 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

þetta er ekki málið í sambandi við sjávarútveginn. Yfirráð yfir einhverjum fiski. það liggur allt fyrir hvernig það er miðað við EU reglur. Hlutfallslegur stöðugleiki og veiðireynsla. Semja verður náttúrulega um deilistofna og við aðild er ´sland í miklu sterkari stöðu varðandi þá samninga eins og þorsteinn Pálsson útskýrði fyrir löngu.

þetta er ekkert málið. Umræðan er alltaf á villigötum hérna uppi. Málið er eftirlit með veiðum og veiðiaðferðum, löndunum, skráningu oþh. það er málið. þar getur LÍÚ ekkert verið með einhverjar sér reglur eða regluleysi fyrir sig.

þetta er álíka og með fjármálastarfsemi og markaði. þar er líka ýmislegt sem Ísland verður að gera. Eins með Landbúnað og styrki ríkis. þar verður allt að vera uppá borðum og gegnsætt.

það eru svona atriði sem eru málið. Eins með fjárfestingar útlendinga í sjávarútvegi. Fráleitt að leyfa það ekki.

Með gjaldmeyrishöft, að þá get eg ekki betur séð í skýrslu en Ísland og EU hafi sett saman hóp um hvernig eigi að aflétta gjaldeyrishöftum. Man ekki eftir að hafa séð það í fjölmiðlum.

þá fer maður að hugsa, að það er eins og núna sé einhver hópur manna að reyna að halda í gjaldeyrishöftin. Og foresti eitthvað bla bla. það megi alls ekki borga útlendingum neitt o.s.frv. Vekur grunsemdir.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 14.11.2012 kl. 00:42

4 Smámynd: Þorsteinn Briem

Skýrsla Evrópunefndar lögð fram af Geir H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, í mars 2007, sjá bls. 77-79:

"VARANLEGAR UNDANÞÁGUR OG SÉRLAUSNIR:"

"Komi upp vandamál vegna ákveðinnar sérstöðu eða sérstakra aðstæðna í umsóknaríki [um aðild að Evrópusambandinu] er reynt að leysa málið með því að SEMJA UM tilteknar afmarkaðar SÉRLAUSNIR.

Eitt þekktasta dæmið um slíka SÉRLAUSN er að finna Í AÐILDARSAMNINGI DANMERKUR árið 1973 en samkvæmt henni mega Danir viðhalda löggjöf sinni um kaup á sumarhúsum í Danmörku.

Í þeirri löggjöf felst meðal annars að aðeins þeir sem búsettir hafa verið í Danmörku í að minnsta kosti fimm ár mega kaupa sumarhús í Danmörku en þó er hægt að sækja um undanþágu frá því skilyrði til dómsmálaráðherra Danmerkur.

MALTA
samdi um svipaða SÉRLAUSN í aðildarsamningi sínum en samkvæmt BÓKUN VIÐ AÐILDARSAMNINGINN má Malta viðhalda löggjöf sinni um kaup á húseignum á Möltu og takmarka heimildir þeirra sem ekki hafa búið á Möltu í að minnsta kosti fimm ár til að eignast fleiri en eina húseign á eyjunni.

Rökin fyrir þessari bókun eru meðal annars að takmarkaður fjöldi húseigna, sem og takmarkað landrými fyrir nýbyggingar sé til staðar á Möltu og því sé nauðsynlegt að tryggja að nægilegt landrými sé til staðar fyrir búsetuþróun núverandi íbúa.

Í þessum tveimur tilvikum er í raun um að ræða FRÁVIK FRÁ 56. GR. STOFNSÁTTMÁLA ESB, sem bannar takmarkanir á frjálsu flæði fjármagns.

Ekki er hins vegar um að ræða undanþágu eða frávik frá banni við mismunum á grundvelli þjóðernis og íbúar annarra aðildarríkja sem uppfylla skilyrði um fimm ára búsetu geta því keypt sumarhús í Danmörku og fleiri en eina húseign á Möltu.

Á sama hátt þurfa Danir einnig að uppfylla búsetuskilyrðin til að geta keypt sumarhús í Danmörku og Möltubúar til að geta keypt fleiri en eina húseign á Möltu.

Finna má ýmis dæmi um SÉRLAUSNIR Í AÐILDARSAMNINGUM sem taka tillit til sérþarfa einstakra ríkja og héraða hvað varðar landbúnaðarmál.

Í AÐILDARSAMNINGI FINNLANDS OG SVÍÞJÓÐAR 1994 VAR FUNDIN SÉRLAUSN
sem felst í því að samið var um að Finnum og Svíum yrði heimilt að veita sérstaka styrki vegna landbúnaðar á norðurslóðum, þ.e. norðan við 62. breiddargráðu.

Sú lausn felur í sér að þeir mega sjálfir styrkja landbúnað sinn
sem nemur 35% umfram önnur aðildarlönd.

Í AÐILDARSAMNINGI FINNLANDS
er einnig ákvæði um að styrkja megi svæði sem eiga í alvarlegum erfiðleikum með aðlögun að hinni sameiginlegu landbúnaðarstefnu ESB og Finnar hafa nýtt það ákvæði til að SEMJA við ESB UM SÉRSTUÐNING fyrir Suður-Finnland.

Stuðningur við harðbýl svæði (Less Favoured Area, LFA) varð til VIÐ INNGÖNGU BRETLANDS OG ÍRLANDS Í ESB en þessi ríki höfðu áhyggjur af hálandalandbúnaði sínum og því var SAMIÐ UM SÉRSTAKAN HARÐBÝLISSTUÐNING til að tryggja að landbúnaðurinn gæti staðið af sér samkeppni við frjósamari svæði Evrópu.

FINNLAND, SVÍÞJÓÐ OG AUSTURRÍKI SÖMDU
einnig sérstaklega um þannig stuðning Í AÐILDARSAMNINGI sínum og sem dæmi má nefna að 85% Finnlands var skilgreint sem harðbýlt svæði."

"Af minni undanþágum eða SÉRLAUSNUM má nefna að SVÍÞJÓÐ fékk heimild til að selja munntóbak (snus) en sala þess er bönnuð í öðrum aðildarríkjum ESB."

"Í AÐILDARSAMNINGI MÖLTU er ákvæði um að Malta verði skilgreint sem harðbýlt svæði, auk þess sem í sérstakri yfirlýsingu er fjallað um eyjuna Gozo og meðal annars tiltekið að hún verði flokkuð SÉRSTAKLEGA með tilliti til styrkja vegna sérstakra aðstæðna á eyjunni.

Þegar GRIKKIR gengu inn í Evrópusambandið var SÉRÁKVÆÐI um bómullarframleiðslu sett inn Í AÐILDARSAMNING þeirra en bómullarrækt var mjög mikilvæg fyrir grískt efnahagslíf.

Þótti ljóst að landbúnaðarstefnan gæti að óbreyttu stefnt þessum mikilvæga atvinnuvegi í hættu og tókst Grikkjum því að fá SÉRSTÖÐU bómullarræktunar viðurkennda Í AÐILDARSAMNINGUM sínum.

HIÐ SAMA GERÐIST ÞEGAR SPÁNVERJAR OG PORTÚGALAR GENGU Í ESB
og þessi ákvæði hafa nú almennt gildi innan landbúnaðarstefnunnar.

Í AÐILDARSAMNINGI FINNLANDS, SVÍÞJÓÐAR OG AUSTURRÍKIS
er viðurkennt að svæði sem hafa átta eða færri íbúa á hvern ferkílómetra skuli njóta hæstu styrkja uppbyggingarsjóða ESB en í þeim flokki eru að öðru leyti svæði sem verg landsframleiðsla á mann er undir 75% af meðaltali ESB.

MALTA OG LETTLAND
sömdu einnig um tilteknar SÉRLAUSNIR í sjávarútvegi Í AÐILDARSAMNINGUM SÍNUM sem fela í sér SÉRSTAKT stjórnunarsvæði fiskveiða á tilteknum svæðum en þær lausnir byggja á verndunarsjónarmiðum og fela ekki í sér undanþágu frá reglunni um jafnan aðgang.

Þá er Í AÐILDARSAMNINGI MÖLTU að finna BÓKUN um að Malta megi viðhalda löggjöf sinni um fóstureyðingar en SAMBÆRILEGT ÁKVÆÐI VARÐANDI ÍRLAND er að finna Í BÓKUN með Maastricht-sáttmálanum 1992.

Einnig gilda SÉRÁKVÆÐI UM ÁLANDSEYJAR sem eru undir stjórn Finnlands."

Þorsteinn Briem, 14.11.2012 kl. 01:03

5 Smámynd: Þorsteinn Briem

Skýrsla Evrópunefndar lögð fram af Geir H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, í mars 2007, sjá bls. 26 og 77-79:

"VARANLEGAR UNDANÞÁGUR OG SÉRLAUSNIR:"

"Hver aðildarsamningur felur í sér breytingu á stofnsáttmálum Evrópusambandsíns."

"Mikilvægt er að hafa í huga að aðildarsamningar að ESB hafa SÖMU STÖÐU og stofnsáttmálar ESB og því er ekki hægt að breyta ákvæðum þeirra, þar á meðal undanþágum eða SÉRÁKVÆÐUM, sem þar er kveðið á um, nema með samþykki allra aðildarríkja."

"Í bókinni Fiskveiðireglur Íslands og Evrópusambandsins eftir Óttar Pálsson og Stefán Má Stefánsson lagaprófessor (2003) segir á bls. 39 að ótvírætt sé að AÐILDARSAMNINGAR nýrra ríkja sambandsins séu JAFNRÉTTHÁIR RÓMARSÁTTMÁLANUM."

"Aðildarsamninganir sjálfir (accession treaties) eru yfirleitt einungis nokkrar almennar greinar en í viðauka við þá eru sett fram skilyrði aðildar og aðlaganir á stofnsáttmálum ESB, sem eru óaðskiljanlegur HLUTI AF aðildarsamningnum.

Samanber til dæmis 2. gr. aðildarsamnings Búlgaríu og Rúmeníu."

Þorsteinn Briem, 14.11.2012 kl. 01:30

6 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Yfirmaður sendinefndar ESB á Íslandi er ekki fyrsti lygarinn, sem þiggur mútur í eigin pyngju, fyrir að þjóna tilvonandi stórveldi.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 14.11.2012 kl. 02:06

7 Smámynd: Þorsteinn Briem

Anna Sigríður Guðmundsdóttir,

FJÖLMARGAR
undanþágur og sérlausnir Evrópusambandsins eru nefndar hér að ofan og hafa þar að auki MARGOFT birst hér í athugasemdum.

En hvorki þú né Ásthildur Cesil Þórðardóttir þykist hafa hugmynd um þær, sem kemur nú ekki á óvart.

Og þú SJÁLF hefur orðið hér uppvís að LYGUM, eins og ég sýndi nýlega fram á varðandi landbúnað í Finnlandi.

En vænir svo aðra um lygar!!!

Þorsteinn Briem, 14.11.2012 kl. 02:45

8 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Blessaðir verið ekki að flagga undanþágum. Málið er þið vitið ekki ykkar rjúkandi ráð,því eftir allan ykkar áróður,alla þessa ofur þolinmæði með hrægammana sem bandamenn,er þjóðin algjörlega mótfallin Esbéinu valda og peningafársjúka. Þjóðin á fleiri sterka einstaklinga í sínu fámenni,fleiri valkosti meiri von,en þeir veslings öreigar í Esb,ánauðinni,sem vilja frekar taka sitt eigið líf heldur en þjónkast þessari brjálsemi.Hverslags ómenni eru að stýra þessu fúaflykki,? Innihaldslausu grautarhausar,sem enginn kaus,sem kippir í kyn þrælahaldara forvera sinna. Ó mín íslenska þjóð,á alla framtíðina fyrir sér,eftir hreinsunareldinn,sem hún gengur í gegnum núna. Hvaða þjóð í heiminum á meiri hamingju í vændum;????Eftir að þið drýfið ykkur þangað sem þið gagnist best.

Helga Kristjánsdóttir, 14.11.2012 kl. 04:52

9 Smámynd: Þorsteinn Briem

Helga Kristjánsdóttir,

Þingkosningar í Evrópusambandsríkjunum eru lýðræðislegar kosningar.

Þingmeirihlutinn styðst því við meirihluta kjósenda.

Þú og þínir líkar stundið hins vegar LÝÐSKRUM.

Hagur okkar Íslendinga batnaði mikið með aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu og hvaða íslenskir stjórnmálaflokkar vilja segja upp þeirri aðild?!

Ísland er 70% í Evrópusambandinu, án þess að taka nokkurn þátt í að semja lög sambandsins.

Þorsteinn Briem, 14.11.2012 kl. 05:13

10 Smámynd: Þorsteinn Briem

ÞÚSUNDIR Íslendinga starfa í Evrópusambandsríkjum, til að mynda Svíþjóð og Danmörku, svo og í Noregi, sem er eins og Ísland á Evrópska efnahagssvæðinu.

Annars væri atvinnuleysi hér á Íslandi MUN MEIRA en það er nú.

Verð á matvælum er MUN HÆRRA hér en í Evrópusambandsríkjunum og þar eru vextir MUN LÆGRI en hér.

Þorsteinn Briem, 14.11.2012 kl. 05:26

11 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Aðild er eitt,tvíhliða viðskiptasamning-ur/ar er annað. Við höfum neitað að taka upp reglugerðir EES,svo ekki er bindingin mikil,þót mælist 70%. Skilgreindu nú einu sinni hvað þú ert að gera hér,ertu launaður evrópusinni,? Áttu von á stöðu, eða ef þú hefur hana nú þegar,þá stöðuhækkun? Ekki svo að skilja að það afsaki landráðatakta þína,en væri gott að vita við hvað er að eiga. Ég veit lítið um litlu utanflokkana,en við skulum sjá hvaða stefna verður ofan á hjá þeim stóru eftir,,,,

Helga Kristjánsdóttir, 14.11.2012 kl. 05:32

12 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Landsfundinn. Góða nótt

Helga Kristjánsdóttir, 14.11.2012 kl. 05:34

13 Smámynd: Þorsteinn Briem

Helga Kristjánsdóttir,

"landráðatakta þína"??!!

Á hverju byggjast þessir "landráðataktar" nákvæmlega?!

Að ég vilji að Ísland fái aðild að Evrópusambandinu, þannig að hér LÆKKI vextir VERULEGA, svo og verð á til dæmis matvælum?!

Það eru nú meiri "landráðin"!!!

Á næsta ári verða 28 LÝÐRÆÐISRÍKI í Evrópusambandinu og þar býr hálfur milljarður manna.

Eru það ekki frekar "landráð" að Ísland taki nú upp meirihlutann af lögum Evrópusambandsins án þess að taka nokkurn þátt í að semja þau?!

Heimska þín og fáráðlingsháttur ríður ekki við einteyming.

Ég veit ekki til þess að nokkur maður fái laun fyrir að skrifa athugasemdir á bloggsíðum og ég er ekki einu sinni í Evrópusamtökunum, eins og hér hefur margoft komið fram.

En ég þakka hólið.

Gefðu svo hér upp kennitöluna þína, þannig að ég geti lögsótt þig við tækifæri.

Þorsteinn Briem, 14.11.2012 kl. 06:20

15 Smámynd: Þorsteinn Briem

14.11.2012 (í dag):

""Lífeyrissjóðirnir eiga erfitt með að veita óverðtryggð lán, nema með breytilegum vöxtum.

Það er bundið í lög að lífeyrissjóðir skuli greiða verðtryggðan lífeyri.

Þar sem verðbólga hefur verið viðvarandi í íslensku samfélagi er óhjákvæmilegt annað en að lán með óverðtryggðum vöxtum beri breytilega vexti.
"

Þetta segir Gunnar Baldvinsson, formaður Landssamtaka lífeyrissjóða."

Verðbólgan er versti óvinur lífeyrissjóðanna

Þorsteinn Briem, 14.11.2012 kl. 06:41

16 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þessi þráður er ekki viðræðuhæfur með þennan ágæta Steina Briem hann yfirkærir allar umræður. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.11.2012 kl. 11:38

17 Smámynd: Þorsteinn Briem

Ásthildur Cesil Þórðardóttir,

Ég birti hér STAÐREYNDIR og greinilega veitir nú ekki af að birta sumar þeirra nokkrum sinnum, eins og dæmin sanna.

Og að sjálfsögðu heldur þú því fram að það sé eðlilegt að þú og aðrir öfgakarlar og -kerlingar getið án athugasemda birt hér daglega alls kyns LYGAÞVÆTTING!!!

Þetta sagðir þú hér að ofan:

"Þetta er því einhliða ómerkilegur áróður, ef þetta er rétt. Gaman væri að einhver sem veit þetta betur geti komi því á framfæri hvort hér er rétt á málum haldið."

Þorsteinn Briem, 14.11.2012 kl. 14:03

18 Smámynd: Þorsteinn Briem

Þorsteinn Briem, 14.11.2012 kl. 14:15

19 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þið eruð nú meiru rugludallarnir Jón Frímann og Co, ESB HEFUR EKKI VEITT NEINAR UNDANÞÁGUR HELDUR ER AÐEINS UM TÍMABIL AÐ RÆÐA Á MEÐAN NÝ AÐILDARRÍKI AÐLAGAST.  En það er bara svo tómur hausinn á ykkur að þið viljið aldrei viðurkenna þetta fremur en annað sem ykkur hefur verið bent á.  Þið berjið bara hausnum í steininn (Sérstaklega Steini Bríem - Copy-paste maðurinn) og haldið fram hverri vitleysunni á fætur annarri........

Jóhann Elíasson, 14.11.2012 kl. 16:15

20 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Já, Henrik Bendixen, yfirmaður Evrópusviðs hjá sendinefnd ESB ,,er vitleysingur". Jóí Elíson said.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 14.11.2012 kl. 17:40

21 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er alveg merkilegt með ykkur INNLIMUNARSINNANA þið getið aldrei svarað neinu á málefnalegan hátt heldur eruð alltaf með einhvern skæting og drullu - það virðist vera það eina sem þið beitið fyrir ykkur og kunnið.........................

Jóhann Elíasson, 14.11.2012 kl. 17:54

22 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

já nei, bíddu við, Henrik Bendixen, yfirmaður Evrópusviðs hjá sendinefnd ESB ,,er rugludallur". Jóí Elíson said.

Og í framhaldi er ,,bara svo tómur hausinn," á Henrik Bendixen, yfirmanni Evrópusviðs hjá sendinefnd ESB. Jói said.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 14.11.2012 kl. 18:32

23 Smámynd: Jón Frímann Jónsson

Jóhann Elíasson, Menn sem fara rangt með. Þegar vitað er að staðreyndinar eru aðrar hafa tilil í þjóðfélaginu. Þeir eru almennt kallaðir lygarar.

Hérna er gott yfirlit yfir sérlausnir og undanþágur frá almennum reglum Evrópusambandsins.

Sérlausnir eru tímabundnar lausnir sem hafa gildistíma. Undanþágur eru varanlegur og í aðildarsáttmálum viðkomandi ríkis eða öðrum sáttmálum Evrópusambandsins.

http://en.wikipedia.org/wiki/Opt-outs_in_the_European_Union

Jón Frímann Jónsson, 14.11.2012 kl. 23:25

24 Smámynd: Jóhann Elíasson

Jón Frímann hversu oft þarf að segja þér að Wikipedia er EKKI áreiðanleg heimild, því þar getur hver sem er skrifað það sem honum sýnist????  Enn einu sinni þarf að segja þér að ESB hefur EKKI VEITT NEINAR VARANLEGAR UNDANÞÁGUR FRÁ REGLUM SÍNUM og hvað fær ykkur INNLIMUNARSINNA til að halda að breyting verði þar á í tilfelli Íslands??????  Annað sem þú skrifar í athugasemdinni hér á undan, er ekki svarvert, svo vitlaust er það.....

Jóhann Elíasson, 14.11.2012 kl. 23:46

25 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Steini. Getur þú sagt frá því, hvaða lygar þú ert að tala um, frá landbúnaði í Finnlandi? Ég bið um rökstuddar staðbundnar staðreyndir, en ekki ómarktækar tölur á pólitísku áróðurs-línuriti.

Þú skalt ekki saka fólk um lygar, nema að koma með raunveruleg rök fyrir þínu máli, og þér er hollast að hætta sjálfur að ljúga.

Það er ykkur ESB-áróðurspennum hollast að líta ykkur nær, þegar kemur að því að ræða lygar!

Það er engu líkara en að þið hafið ekki hugmynd um hvað er að gerast í sundruðu og ófriðlegu ESB-bankaspillingunni! Eruð þið kannski í sama fílabeinsturninum og spillt stjórnvöld?

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 15.11.2012 kl. 02:34

26 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Bann við því að útlendingar fjárfesti í ferðaiðnaiði á Möltu. Bann við því að útlendingar kaupi fleiri en eina fasteign á Möltu án sérstakrar heimildar frá stjórnvödlum. Bann við því að útelndingar kaupi sumarhús i Danmörku. Undanþága til að styrkja heimskautalandbúnað hjá Svíum og Finnum. Undanþáta til að styrkja háfjallalandbúnað hjá Austurríkismönnum.

Allt eru þetta dæmi um varanlegar undanþágur í relgum ESB. Þetta er sett sem hluti af reglunum og eru þetta því undanþágur í reglunum en ekki undanþágur frá reglunum. Það eru því mjög miklar líkur á því að við getum fengið slíkar undanþágur í ESB reglum um fiskveiðar í okkar aðildarviðræðum. Það verða þá varanlegar undanþágur.

Sigurður M Grétarsson, 15.11.2012 kl. 09:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband