8.3.2013 | 16:30
Jörðin er flöt!
Nú er "ritskoðunarsinninn" Vigdís Hauksdóttir alveg að missa sig yfir ESB-málinu og hatur hennar á ESB og öllu sem því tengist virðist næsta takmarkalaust.
Vigdís er ein af þeim sem í alvöru talar um að láta loka Evrópustofu. Vinnubrögð sem þessi tíðkast helst í ríkjum sem einkennast af einhverju allt öðru en lýðræði og opinni umræðu.
Í fyrirspurnartíma á Alþingi gekk Vigdís svo skrefinu lengra og sagði að starfsmenn Evrópustofu færu um landið og reyndu að heilaþvo landsmenn! Um þetta var fjallað í hádegisfréttum RÚV þann 8.3.
Í viðtali á Útvarpi sögu um daginn sagði Vigdís einnig að einn helst hvatinn að ESB-málinu væri embættismannakerfið og þar hefðu menn vonir um að fá feitar stöður í Brussel. Í sama viðtali sagði hún að einkavæðing íslensku bankanna hefði fariðí gangn vegna krafna sem kæmu frá EES-samningum. Sem er að sjálfsögðu kolrangt, hvort tveggja.
Þegar fólk fer um ljósvakann með jafn mikið bull og þetta, veit maður ekki hvort maður á að hlæja eða gráta!
Og það versta er kannski að í kjölfar kosninganna er alvöru hætta á því að umræddur þingmaður verði ráðherra!
Guð blessi Ísland!
Eldri færslur
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Evrópusamtökin-heimasíða Heimasíða Evrópusamtakanna
- Aðildarviðræður við ESB
- Já-Ísland
- Evrópustofa Upplýsingar um ESB og Evrópumál
- Evrópusambandið-ESB
- Utanríkisráðuneytið
- Sendiráð ESB á Íslandi Sendiráð ESB á Íslandi
- Meirihlutaálit Utanríkismálanefndar Alþingis
- Skýrsla Evrópunefndar
- RÚV:ESB-vefur
- Uppl. fyrir blaðamenn
- Sterkara Ísland
- FRBL-Umræða-Leiðarar
- European Daily Fréttir frá Evrópu
- BBC-Evrópa
- EU-Observer
- EUtube ESB á you tube
- Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg.
- Evrópuskrifstofan
- EurActiv-Fréttir um ESB
- Euranet (Útvarp)
- Euronews
- Evrópusíða UTN Evrópusíða utanríkisráðuneytisins
- Ungt fólk og ESB Ungt fólk og ESB
- ESB-umfjöllun MBL
Fréttabréfið
Fréttabréf Evrópusamtakanna
Bloggvinir
- Arna Lára Jónsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Daði Einarsson
- Dofri Hermannsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Fararstjórinn
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðlaugur Kristmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Hinrik Már Ásgeirsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreinn Hreinsson
- Jón Gunnar Bjarkan
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Júlía Margrét Einarsdóttir
- Loopman
- Magnús Már Guðmundsson
- Marta B Helgadóttir
- Sveinn Arnarsson
- Tómas Þóroddsson
- Vefritid
- gudni.is
- Ágúst Hjörtur
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Rúnar Þorvaldsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Arnar Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Barði Bárðarson
- Björn Halldórsson
- Brattur
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- ESB
- Eva Benjamínsdóttir
- Eva G. S.
- Eyjólfur Sturlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðlaugur Hermannsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Heiðar Lind Hansson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Sigurðsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kama Sutra
- Kjartan Jónsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- Natan Kolbeinsson
- Óðinn Kári Karlsson
- Óskar Þorkelsson
- Ragnar G
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sema Erla Serdar
- Sigurður M Grétarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Sumarliði Einar Daðason
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Ungir evrópusinnar
- Þarfagreinir
Athugasemdir
Jörðin er flöt og engin framtíð bíður jarðarbúa sem ekki hnipra sig saman inni í Evrópusambandinu. Fólk sem býr ekki við atvinnuleysi veit ekki af hverju það hefur misst.
Árni Gunnarsson, 8.3.2013 kl. 17:47
Gerir Vigdís sér ekki grein fyrir því að hún er að nýta sér sitt tjáningarfrelsi til að hafta tjáningarfrelsi annara? Það er kannski ekki skrítið að Vigdís og sumir af hennar semferðamönnum á þingi eigi svona erfit með að vinna við nýja stjórnaskrá þar sem jafnrétti; til tjáninga, menntunar og upplýsinga má ekki vera jafn öllum. Gamala tuggann. Allir er jafningar nema þeir sem eru aðeins meira jafnir
Jón Páll Haraldsson, 8.3.2013 kl. 18:27
Hvaðan kemur ykkur sú hugmynd að um hatur sé að ræða?
Ætli einhverjir hefðu ekki vilja láta loka Bandaríkjastofu með dollara hefði hún verið til? Ætli einhverjir hefðu ekki viljað láta loka Sovétstofu með rúblur hefði hún verið til?
Er það rangt að einhverjir hafi vonir um feitar stöður í Brussel?
Af hverju skildi vera hætta á því að Vigdís verði ráðherra?
Hrólfur Þ Hraundal, 8.3.2013 kl. 21:29
Hvaða 'tjáningarfrelsi' er verið að hefta með að banna Brusseláróðursstofu í landinu? Hvað finnst pistilhöfundi og Jóni Páli um að banna Bandaríkjaáróður eða Rússaáróður eða hvaðanæva sem við hin kysum, um yfirtöku landsins með peningamútum í öllum skúmaskotum? Já, jörðin er flöt og hárrétt hjá Vigdísi. Vigdís skilur það sem þið ekki skiljið.
Hvaða heimtingu eigið þið, mikluminnihlutinn, eiginlega á að hafa hina rangnefndu ' Evrópu'stofu og eða á e-m 'samningi' við Brusselveldið?
Elle_, 9.3.2013 kl. 00:52
Og Jón Páll, eitt enn: Þjóðin bað aldrei ALDREI um nýja stjórnarskrá. Það er stolið vald.
Elle_, 9.3.2013 kl. 01:03
Það er ekkert venjulegt bullið sem kemur frá þessum armi INNLIMUNARSINNA. Þetta er grátbroslegt bull eins og svo oft kemur frá þeim félögum, stundum getur maður ekki annað en vorkennt svona þröngsýnum hálfvitum..
Jóhann Elíasson, 9.3.2013 kl. 09:42
Hrólfur: Vigdís er sú manneskja hér á landi sem mest talar um að ESB sé að hrynja. Ekkert bólar hinsvegar á því.
Evrópusamtökin, www.evropa.is, 9.3.2013 kl. 11:10
Hversu flöt sem jörð vegvilltra nú er, ætti það að vera forgangsmál okkar hinna, með hjálp Vigdísar, að loka hinni rangnefndu 'Evrópu'stofu og koma þessu erlenda Brusselveldi nokkurra heimsvelda úr aðstöðu fyrir lygaáróðri um landið okkar. Það kemur ekkert hatri við.
Þau mega ekki fá að fara um landið og halda ræður eins og þau væru forsetinn.
Elle_, 9.3.2013 kl. 12:40
Hrólfur: Bandaríkjastofa með sína dollara var til og Sovétstofa með rúblur sömuleiðis. Ég man vel eftir upplýsingastofu Bandaríkjanna sem var fyrst til húsa í Hótel Sögu en seinna við Neshaga. MIR var sömuleiðis með mikla upplýsinga- eða áróðursstarfsemi eftir því sem á er litið. Ég veit ekki til að nokkur maður hafi lagt til að þessum skrifstofum yrði lokað. Verðum við ekki að loka Norræna húsinu líka? Þar fer fram gegndarlaus áróður fyrir norrænu samstarfi og yfirleitt er þar minnt á tilvist Norðurlanda og menningu þeirra og samfélag. Sannir Íslendingar hljóta að mótmæla hástöfum.
Sæmundur G. Halldórsson , 10.3.2013 kl. 04:08
Fyrirspurn til Evrópusamtakanna:
Þið fullyrðið m.a. eftirfarandi í þesum pistli:
"Í sama viðtali sagði hún að einkavæðing íslensku bankanna hefði fariðí gangn vegna krafna sem kæmu frá EES-samningum. Sem er að sjálfsögðu kolrangt, hvort tveggja."
Þið vænið síðan Vigdísi Hauksdóttur um "mikið bull", en á hverju byggið þið þegar þið segið að það sem eftir henni er haft sé "kolrangt"?
Hvað eigið þið við þegar þið tjáið ykkur um það að í kjölfar væntanlegra kosninga sé "alvöru hætta" á að þjóðin kjósi á einn eða annan veg? Meinið þið að íslenskri þjóð sé hætta búin af lýðræðislegum kosningum?
Kristinn Snævar Jónsson, 10.3.2013 kl. 13:52
KSJ: Mælum með að þú lesir pistilinn aftur. Þjóðinni stendur ekki hætta af lýðræðislegum kosningum, heldur fólki sem vill stunda ritskoðun og loka lýðræðislegum stofnunum.
Evrópusamtökin, www.evropa.is, 10.3.2013 kl. 14:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.