Leita í fréttum mbl.is

Vilja láta loka fyrir Euróvisjón - telja keppnina hættulega ungu fólki - djók 1. apríl!!

malmoFjöldi smáframboða og smáflokka mun slá öll met í komandi kosningum. Samkvæmt heimildum sem Evrópusamtökin telja áreiðanlegar hefur nýr flokkur verið stofnaður sem ber heitið Ættjörðin- flokkur sannra Íslendinga.

Samkvæmt heimildarmanni Evrópusamtakanna fer nú  fram málefnavinna og hafa Evrópusamtökin komist yfir vinnuskjal frá flokknum. Þar kemur m.a. fram að loka beri fyrir útsendingar RÚV á Söngavakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva(Euróvisjón), sem fram fer í Malmö, Svíþjóð, nú í lok maí.

Samkvæmt skjalinu sem Evrópusamtökin hafa komist yfir segir í áliti menningarnefndar flokksins að útsendingar á keppninni séu ...,,hættulegar þjóðarsál Íslendinga og keppnin sé tákn um siðferðilega hnignun Evrópu." Íslendingar eigi að ...,,njóta hámenningar en ekki lágkúru frá Evrópu.“ Þá er keppnin talin ýta undir óheilbrigt peningabrask og óæskilega starfsemi veðbanka, samkvæmt málefnaskjalinu sem Evrópusamtökin hafa undir höndum.

Standa beri vörð um siðferðilega yfirburði Íslendinga og sé það ekki gert sé ...,,hætta á að Íslendingar sökkvi í pytt lágmenningar og yfirborðsmennsku, sem sé eitt helsta aðalsmerki keppninnar að mati nefndarinnar.“ Þá segir í álitinu að keppnin sé sérstaklega hættuleg ungu kynslóðinni og ómótuðum einstaklingum.

Í álitinu kemur fram að fulltrúar á vegum menningarnefndarinnar munu reyna að hitta útvarpsstjóra á næstu vikum, til þess að reyna að fá hann til að taka keppnina af dagskrá RÚV og ...,,sýna þjóðlegt og uppbyggilegt efni í staðinn, með áherslum á gömul og góð gildi, sjálfstæðisbaráttuna og þjóðlega sveitarómantík.“

Takist það ekki hefur nefndin velt fyrir sér þeim möguleika að leigja búnað frá Evrópu, til þess að trufla útsendingarnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

 

Þessi er betri: ESB mun lifa af.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 1.4.2013 kl. 09:46

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Allar líkur benda til, að þetta sé annaðhvort gamansemi viðkomandi hóps eða ykkar sjálfra. En á engan hátt snertir þetta baráttuna fyrir sjálfstæðu Íslandi, GEGN ásælni og áróðri Evrópusambandsins og taglhnýtinga þess hér á landi.

Jón Valur Jensson, 1.4.2013 kl. 14:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband