9.7.2008 | 09:38
Davíð Oddsson árið 2001 um ,,tímbundið" vandamál krónunnar
Björn Ingi Hrafnsson, fréttastjóri Fréttablaðsins rifjaði upp skýrslu Hnattvæðingarnefndar frá árinu 2002 í gein í síðustu viku. Þessi nefnd starfaði árin 2001 og 2002 í umboði þáverandi utanríkisráðherra Halldórs Ásgrímssonar. Í skýrslunni segir meðal annars:
Meginkosturinn við að hafa sjálfstæðan gjaldmiðil er að breytingar á gengi hans geta auðveldað aðlögun að breyttum ytri aðstæðum. Meginókosturinn er á hinn bóginn að gengisfellingarmöguleikinn getur dregið úr aga við hagstjórnina. Í löndum þar sem gengisfall vofir sífellt yfir er óhjákvæmilegt að innlendir vextir verði ævinlega hærri en erlendir vextir og að vaxtamunurinn verði þeim mun meiri sem markaðsaðilar telji líkurnar á gengislækkun meiri. Á tímum frjálsra fjármagnsflutninga er ólíklegt að margfalt stærri gjaldeyrisforði en Seðlabankinn ræður nú yfir megnaði að sefa ótta manna við gengisfellingu og draga þar með úr vaxtamun
En hvað sagði hinn oddviti ríkisstjórnarinnar á þessum tíma?
Davíð Oddson þáverandi forsætisráðherra í ræðu hjá bresk-íslenska verslunarfélaginu 6. nóvember 2001:
Góðir fundarmenn.
Á undanförnum mánuðum hefur verið nokkuð flökt á íslensku krónunni á gjaldeyrismarkaði og gengi hennar hefur lækkað. Þessi órói hefur fengið suma þá sem kvikastir eru til að boða að nauðsynlegt sé fyrir Íslendinga að ganga nú þegar í Evrópusambandið og taka upp evru. Íslenska myntin sé bersýnilega of smá til þess að hún geti þjónað tilgangi sínum sem trúverðugur gjaldmiðill. Óvissa um gengisþróun komi í veg fyrir erlendar fjárfestingar og skaði íslenskt atvinnulíf. Vissulega er óvissa í gengismálum óheppileg fyrir atvinnulífið og þjóðfélagið allt. Lækkun á gengi krónunnar nú á rætur sínar fyrst og fremst að rekja til viðbragða hagkerfisins við þeirri þenslu sem hefur látið á sér kræla á undanförnum misserum. Síðustu sjö árin áður en þessa óróa fór að gæta var íslenska krónan ein stöðugasta myntin í okkar heimshluta og stóð vel af sér mikið hrun evrunnar. Var myntin hvorki stærri eða smærri á þeim tíma en nú. Allt bendir til að núverandi vandamál sé tímabundið og leysist um leið og hagkerfið hefur aðlagast nýjum aðstæðum. Einnig er rétt að benda á að lögum um Seðlabanka Íslands var breytt síðastliðið vor. Þá var ákveðið að gengi krónunnar skyldi ekki lengur haldið innan ákveðinna vikmarka en bankanum gert að fylgja framvegis ákveðnum verðbólgumarkmiðum sem ríkisstjórnin ákvað. Til þess var honum veitt aukið sjálfstæði og fullt forræði yfir vaxtaákvörðunum. Það er eðlilegt að það taki markaðinn nokkurn tíma að aðlagast þessari breytingu og þeirri staðreynd að gengi krónunnar getur nú sveiflast töluvert án þess að Seðlabankinn sjái ástæðu til inngripa.
Úps....eru 7 ár tímabundinn vandi?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Eldri færslur
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Evrópusamtökin-heimasíða Heimasíða Evrópusamtakanna
- Aðildarviðræður við ESB
- Já-Ísland
- Evrópustofa Upplýsingar um ESB og Evrópumál
- Evrópusambandið-ESB
- Utanríkisráðuneytið
- Sendiráð ESB á Íslandi Sendiráð ESB á Íslandi
- Meirihlutaálit Utanríkismálanefndar Alþingis
- Skýrsla Evrópunefndar
- RÚV:ESB-vefur
- Uppl. fyrir blaðamenn
- Sterkara Ísland
- FRBL-Umræða-Leiðarar
- European Daily Fréttir frá Evrópu
- BBC-Evrópa
- EU-Observer
- EUtube ESB á you tube
- Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg.
- Evrópuskrifstofan
- EurActiv-Fréttir um ESB
- Euranet (Útvarp)
- Euronews
- Evrópusíða UTN Evrópusíða utanríkisráðuneytisins
- Ungt fólk og ESB Ungt fólk og ESB
- ESB-umfjöllun MBL
Fréttabréfið
Fréttabréf Evrópusamtakanna
Bloggvinir
- Arna Lára Jónsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Daði Einarsson
- Dofri Hermannsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Fararstjórinn
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðlaugur Kristmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Hinrik Már Ásgeirsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreinn Hreinsson
- Jón Gunnar Bjarkan
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Júlía Margrét Einarsdóttir
- Loopman
- Magnús Már Guðmundsson
- Marta B Helgadóttir
- Sveinn Arnarsson
- Tómas Þóroddsson
- Vefritid
- gudni.is
- Ágúst Hjörtur
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Rúnar Þorvaldsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Arnar Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Barði Bárðarson
- Björn Halldórsson
- Brattur
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- ESB
- Eva Benjamínsdóttir
- Eva G. S.
- Eyjólfur Sturlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðlaugur Hermannsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Heiðar Lind Hansson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Sigurðsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kama Sutra
- Kjartan Jónsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- Natan Kolbeinsson
- Óðinn Kári Karlsson
- Óskar Þorkelsson
- Ragnar G
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sema Erla Serdar
- Sigurður M Grétarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Sumarliði Einar Daðason
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Ungir evrópusinnar
- Þarfagreinir
Athugasemdir
Forsendur fyrir þessari spá um gengi krónunar breyttust algjörlega vegna glórulausra útlána íslenskra banka sem eru núna að valda gjaldþrotum margra heimila og fyrirtækja.
Einnig hefur kreppan sem upprunin er í USA orðið til þessarar þróunar á krónunni. Kreppan er nú komin til landa ESB og hefur þegar valdið töluverðum usla í Danmörku, og í Bretlandi er allt á niðurleið. Þessi tvö lönd eru þó meðal best settu þjóða ESB, ekki er útlitið bjart fyrir ESB risaeðluna og eins gott að við íslendingar höldum okkur í hæfilegri fjarlægð frá henni!
Guðrún Sæmundsdóttir, 14.7.2008 kl. 13:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.