Leita í fréttum mbl.is

Nei-sinnar og ESB(!)-miðlar

Nei-sinnar Íslands kvarta og kveina yfir fjölmiðlum landsins í ESB-umræðunni. Sérstaklega er áhugavert að fylgjast með vefnum AMX að þessu leyti. Þar eru nánast allir helstu fjölmiðlar flokkaðir og skilgreindir sem ESB-miðlar: Dæmi: ESB-Moggi, ESB-RÚV o.s.frv. AMX-mönnum finnst s.s. sem allir fjölmiðlar séu hlutdrægir, að ESB-sinnar fái alltof mikla umfjöllun o.s.frv. Frosti Sigurjónsson, einn helsti Nei-sinni landsins og mögulegur ,,krónprins" í kjölfar Ragnars Arnalds, skrifar pistil á AMX, þar sem hann gerir þetta að umtalsefni sínu. Er honum ,,hlutleysi" RÚV t.d. umhugað, svona sem dæmi.

Hann kemur með "áhugaverða" tillögu í lokin: ,,Núna er rétti tíminn til að láta hlutlausan aðila gera úttekt á því hvort fyllsta hlutleysis hafi örugglega verið gætt í fréttaflutningi og umfjöllun um ESB og ICESAVE málin og birta þjóðinni niðurstöðuna."

Bloggari spyr: Hver á þessi hlutlausi aðili að vera? Hver á að skipa hann? Hvernig? Hver á að borga?

Bloggari veit ekki betur en að ein helstu rök Nei-sinna gegn aðild séu að nú þurfi að eyða peningunum í eitthvað annað en aðildarviðræður. Vilja Nei-sinnar eyða peningunum í þetta í staðinn? Það þyrfti væntanlega að fara í gegnum allt fjölmiðlaefni sem tengist málunum og það tekur jú tíma. Og þá þarf væntanlega að borga einhverjum tímakaup, ekki satt?

Frosti kynnir sig sem framkvæmdastjóra Dohop, fyrirtækis sem þróar flugleitarvélina Dohop. Kannski hann geti fundið upp ,,hlutleysisleitarvél" líka?

Sérkennilegir snúningar ESB-málsins! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Ásgeir Gunnarsson

Mbl og Fréttablaðið eru yfirlýstir ESB sinnar. Fréttatúlkunin á RUV er fráleitt

Eini af þessum stóru miðlum sem hefur sinnt ESB andstæðingum er Moggabloggið en þar hafa andstæðingar verið mjög duglegir að skrifa og fengið heitar umræður

Núna fer gang mikill umræða og er mér mest umhugað um RÚV. Ég vona að sá miðil standi sig en það hefur hann alls ekki gert

Það verða fjölmiðlarnir sem ráða úrslitunum i þessu máli

Ég vil leggja til að RÚV setji á laggirnar 7 manna nefnd 3 andstæðingar aðildar 3 aðildarsinnar og einn sem þessar fylkingar kom sér saman um sem oddamaður. nefndin sjái til þess að umræðan í þessu mikilvægasta máli lýðveldisins frá upphafi verð eðlileg og sanngjörn

Silfur Egils hefur verið eini stjórnmála umræðuþátturinn en þar hefur hallað verulega á hlut andstæðinga

Hvernig væri að fá Frosta Sigurjónsson til að stýra öðrum þætti og velja viðmælendur 

Gunnar Ásgeir Gunnarsson, 30.7.2009 kl. 23:24

2 Smámynd: Jón Gunnar Bjarkan

Þessi oddamður sem þú nefnir Gunnar yrði þá að hafa eitthvað hundsvit á ESB. Það er gjörsamlega óþolandi þegar það er verið að ræða ESB í fjölmiðlum, til dæmis Kastljósi, en ennþá verra til dæmis á útvarpi sögu og ÍNN þegar andstæðingar ESB drulla bara einhverju helvítis rugli yfir þjóðina án þess að fá neina leiðréttingu frá þáttastjórnenda.

Og nánast undantekningalaust, þá eru andstæðingar ESB í drottningarviðtölum á útvarpi sögu og ÍNN.

Varðandi moggabloggið, það er nóg að líta yfir forsíðu moggabloggsins að það er einhver undarlegar hvatir að baki þeirra sem stýra því hverjir fá pláss á forsíðunni hjá moggablogginu, nánast eingöngu andstæðingar ESB, sumir hverjir hreinir talíbanar sem bulla bara eitthvað út í loftið og skrifa hreinar og beinar lygar um ESB.

Jón Gunnar Bjarkan, 31.7.2009 kl. 00:41

3 Smámynd: Sigurður Þórðarson

ÍNN og Útvarp Saga er í raun mun áreiðanlegri miðlar en Rúv.

Maður fer aldei í grafgötur með skoðanir ÍNN manna en svæsnasti áróður RÚV er venjulegast kallaður "fræðsluefni" og spunameistararnir eru kallaðir "hlutlausir fræðimenn".

Sigurður Þórðarson, 31.7.2009 kl. 06:13

4 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Það hefur auðvitað aldrei verið mikilvægara en að fjölmiðlar gæti sanngirni í umfjöllunum sínum um Evrópumál og einmitt núna fyrst opnað hefur verið á umsóknarferli að Evrópusambandinu. Það hljóta allir að geta verið sammála um. En ef Evrópusambandssinnum vex í augum hugsanlegur kostnaður vegna úttektar í þessu sambandi er til einföld lausn á því. Hætta við umsóknina ;)

Hjörtur J. Guðmundsson, 31.7.2009 kl. 10:50

5 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Og Jón Gunnar, það er ekki málefnalegri umræðu um þessi mál til framdráttar að uppnefna pólitíska andstæðinga og saka þá um bull og lygar án einu sinni tilraunar til rökstuðnings.

Hjörtur J. Guðmundsson, 31.7.2009 kl. 10:53

6 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Þeir eru fáir sem taka amx alvarlega.

Reyndar er sá málflutningr andsinna um að umfjöllun fjölmiðla sé hliðholl esb bara í takt við málflutning þeirra heilt yfir.  Öllu snúið á haus og lesið afturábak,

Ómar Bjarki Kristjánsson, 31.7.2009 kl. 11:12

7 Smámynd: Haraldur Hansson

Aðild að ESB er ekki smámál. Þar er ekki tjaldað til einnar nætur. Innganga myndi hafa varanleg áhrif á samfélagið til framtíðar.

Þess vegna hlýtur það er vera öllum í hag, hvort sem menn eru með eða á móti, að umfjöllun um þetta stóra mál sé fagleg, málefnaleg og hlutlaus. Að allir geti myndað sér ómengaða skoðun og tekið upplýsta ákvörðun, hver fyrir sig.

RUV hefur dýpri skyldum að gegna en aðrir fjölmiðlar. Ef vafi leikur á að fulls hlutleysis sé gætt þarf að eyða þeim vafa, á hvora hliðina sem hallar. Það ætti að vera eðlilegur þáttur í gæðastjórnun RUV að fara reglulega í eins konar naflaskoðun. Ekki síst þegar stórmál sem ESB eru í gangi. Kostnaður er léttvæg afsökun í því sambandi.


Því miður gengur þessi bloggfærsla meira út á að benda á þann sem talar en fjalla um það sem hann segir. Hann kallaður krónprins og gerður tortryggilegur með því að setja orðið "hlutleysi" innan gæsalappa, auk þess sem fyrirtæki hans er dregið inn í málið.

Ég vona að það sé ekki vísbending um að Frosti hafi of mikið til síns máls og að Evrópusamtökin óttist vandaða, hlutlausa umfjöllun.

Haraldur Hansson, 31.7.2009 kl. 14:10

8 Smámynd: Haukur Nikulásson

"Það er fullveldi að mega afsala sér fullveldi" - segir Eiríkur Bergmann, launaður áróðursmaður ESB.

Evrópusambandið greiðir tugi milljóna á hverju ári til áróðursmeistara til að koma landinu undir erlend yfirráð. Allt undir því yfirskini að hér sé um fræðimennsku að ræða sbr. "Evrópufræðasetur" á Bifröst sem og hina lítt dulbúnu áróðursþætti á RÚV. Hvað skyldi RÚV fá í styrki þaðan?

Okkur Nei-sinnum þykir það heldur óskemmtilegt viðfangsefni að þurfa að fást við Evru-launaða vandræðamenn samhliða erfiðu endurreisnarverkefni.

Haukur Nikulásson, 6.8.2009 kl. 21:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband