11.8.2009 | 14:09
Stuðningur ESB í fjármálakrísunni
Evrópusambandið hefur veitt miklum fjármunum til stuðnings aðildarríkjanna í fjármálakreppunni. Nemur stuðningurinn alls um 33% af heildarþjóðarframleiðslu landanna 27. Árið 2008 var sú upphæð um 18.400 milljarðar dollara. EuObserver greinir frá þessu.
Meðal annars hefur ESB veitt um 313 milljörðum evra í beinan stuðning til bankakerfa ýmissa aðildarríkja frá því í október á síðasta ári.
Þekktir Nei-sinnar hafa hamrað á því að ESB hafi gert lítið sem ekkert til að styðja aðildarríkin, en sú er ekki raunin.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Eldri færslur
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Evrópusamtökin-heimasíða Heimasíða Evrópusamtakanna
- Aðildarviðræður við ESB
- Já-Ísland
- Evrópustofa Upplýsingar um ESB og Evrópumál
- Evrópusambandið-ESB
- Utanríkisráðuneytið
- Sendiráð ESB á Íslandi Sendiráð ESB á Íslandi
- Meirihlutaálit Utanríkismálanefndar Alþingis
- Skýrsla Evrópunefndar
- RÚV:ESB-vefur
- Uppl. fyrir blaðamenn
- Sterkara Ísland
- FRBL-Umræða-Leiðarar
- European Daily Fréttir frá Evrópu
- BBC-Evrópa
- EU-Observer
- EUtube ESB á you tube
- Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg.
- Evrópuskrifstofan
- EurActiv-Fréttir um ESB
- Euranet (Útvarp)
- Euronews
- Evrópusíða UTN Evrópusíða utanríkisráðuneytisins
- Ungt fólk og ESB Ungt fólk og ESB
- ESB-umfjöllun MBL
Fréttabréfið
Fréttabréf Evrópusamtakanna
Bloggvinir
- Arna Lára Jónsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Daði Einarsson
- Dofri Hermannsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Fararstjórinn
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðlaugur Kristmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Hinrik Már Ásgeirsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreinn Hreinsson
- Jón Gunnar Bjarkan
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Júlía Margrét Einarsdóttir
- Loopman
- Magnús Már Guðmundsson
- Marta B Helgadóttir
- Sveinn Arnarsson
- Tómas Þóroddsson
- Vefritid
- gudni.is
- Ágúst Hjörtur
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Rúnar Þorvaldsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Arnar Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Barði Bárðarson
- Björn Halldórsson
- Brattur
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- ESB
- Eva Benjamínsdóttir
- Eva G. S.
- Eyjólfur Sturlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðlaugur Hermannsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Heiðar Lind Hansson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Sigurðsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kama Sutra
- Kjartan Jónsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- Natan Kolbeinsson
- Óðinn Kári Karlsson
- Óskar Þorkelsson
- Ragnar G
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sema Erla Serdar
- Sigurður M Grétarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Sumarliði Einar Daðason
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Ungir evrópusinnar
- Þarfagreinir
Athugasemdir
Hið rétta er að Kreml-Brussel hefur heimilað að ríkissjóðir ríkjanna fái náðarsamlegast leyfi til þess að halda bankakerfi landa sinna á lífi með því að ríkissjóðir viðkomandi landa (ekki ESB!) haldi þeim tímabundið í öndunarvél skattgreiðenda viðkomandi landa. Eruð þið fimm ára?
Evrópusambandið hefur ekki gert neitt. Ekki neitt annað en að setja gúmmístimpil sinn á telefax til ríkjanna þar sem á stendur: "permission to use public funds" er veitt!
Hafið þið kynnt ykkur innkaup ECB á ruslabréfum "investment grade bonds" á evrusvæðinu? Nei, örugglega ekki. Og það er eins gott að Þjóðverjar fái ekki að vita það heldur.
Skyldi herra Barrosso vera kominn úr felum eftir að hafa verið í kjallaranum alla kreppuna? Ekki heyrðist múkk fá þeim pappír á meðan klósettsetan brann undir bankakerfi ESB
Pathetic
Gunnar Rögnvaldsson, 11.8.2009 kl. 14:47
Gunnar, lestu fréttina sem vitnað er í, en þar segir: ..."According to a review published by the European Commission on Monday (10 August), between last October and mid-July 2009, the EU's executive approved guarantee measures designed to boost lenders' confidence worth €2.9 trillion and capital injections for struggling banks which amounted to €313 billion."
Evrópusamtökin, www.evropa.is, 11.8.2009 kl. 16:45
Já einmitt.
Ríkin (aðildarríkin) þurftu að leita samþykkis hjá Kreml-Brussel til að fá að veita ríkisábyrgðir til handa bankakerfum landa sinna. Þetta er tímabundin undanþága sem ríkin hafa fengið til að ausa út EIGIN ríkisjóðum skattgreiðenda sinna. Kreml-Brussel heldur svo utanum þessi "approvements". Heldur bókhald yfir þetta því ríkin urðu að leita samþykkis hjá Kreml-Brussel fyirr þessu (eftirá). Leyfið er tímabundið. Þetta er undanþága, og Kreml-Brussel heldur bókhald utanum magnið.
En verið alveg róleg þið þarna í Evrópusamtökunum sem vitið greinilega ekki eitt né neitt um ESB. Nýja stjórnarskráin mun opna upp fyrir svona sameiginlegum ríkisfjármálum og sköttum eins og stendur þarna í Stundinni-Ykkar-frétt ykkar um þetta mál.
Hélduð þið virkilega að fjárlög ESB væru meira 30% af VLF í ESB? Þau eru 3-6%. Fjárlög sambandsstjórnar Bandaríkja Norður Ameríku eru 28% af VLF í BNA.
Halló! Nicto njét de homa?
Samúðarkveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 11.8.2009 kl. 17:27
Er það Jón Frímann sem ritstýrir ykkur?
Gunnar Rögnvaldsson, 11.8.2009 kl. 17:31
Hvaða staðreyndir eru það elsku Jón minn. Láttu okkur heyra. Þú er vel fær um að bæta miklu gráu ofan á mikið svart hér. En láttu okkur heyra. Ég bíð spenntur.
Gunnar Rögnvaldsson, 11.8.2009 kl. 18:30
Kæri Jón
Þú ert að sýna mér mynd af budget ESB uppá 1.18% of GNI í ESB (gross national income) sem er það sama og VLF plús fjármagnstekjur frá "útlöndum".
Fyrirsögn evrópusamtakanna var þessi:
Stuðningur ESB í fjármálakrísunni
og var textinn þessi:
Nemur stuðningurinn alls um 33% af heildarþjóðarframleiðslu landanna 27
Spurning: Stálu þeir restinni Jón? Ef já. Hvaðan?
Staðreyndin er þessi: ESB suddi ríkin EKKERT í fjármálakreppunni. ÞAÐ ER BANNAÐ! Halló!!!! Bailout er bannað í Maastrict. BANNAÐ!
Það sem gerðist í fjármálakreppunni síðasta haust var þetta:
Rétta nafnið á því ástandi sem ríkti í Evrópusambandinu síðasta haust er ekki nafnið eða hugtakið "samstaða eða samvinna". Réttara er að nota hugtakið "efnahagsleg borgarastyrjöld" eða "efnahagsleg hryðjuverkastarfsemi".
Það er frjálst flæði fjármagns innan ESB og evrusvæðis, en það eru samt til landamæri innan ríkja ESB og evru, þó svo að þau séu ekki virk í eiginlegum skilningi, heldur einungis virk í ríkisfjármála- og skattalegum skilningi.
Hvað var þá að síðasta haust? - hvert var vandamálið í ESB?
Jú þá fossaði fjármagnið þangað sem ríkisstjórnirnar yfirbuðu hverja aðra með betri og meri ríkisábyrgðum á innistæðum og skuldbindingum fjármálastofnana í hinum ýmsu löndum ESB.
Þær ríkisstjórnir sem treystu sér ekki til að útskrifa ótakmarkaðar skattahækkanir til skattgreiðenda í löndum sínum sáu þarna fjármálastofnanir sínar lagðar í rúst vegna þess að auðvitað selur maður hlutabréf sín í þessum fjármálastofnunum í þeim ESB-löndum sem þora ekki að yfirbjóða í þessari samkeppni um mestu, hæstu og bestu ríkisábyrgðina - og kaupir svo nýjan hlut í fjármálastofnunum með betri ríkisábyrgð því þær munu plumma sig best og skila mestum hagnaði og því ekki fara á hausinn.
Hagkerfin á evrusvæði gátu ekkert gert til að hindra efnahagslegt tjón þeirra sem höfðu lélegasta ríkiskassann og lélegasta skattagrundvöllinn.
Ekki var hægt að fella gengið, og ekki var hægt að lækka/hækka sýrivexti eða gera neitt yfirhöfuð til að verja sig. Það eina sem verður hægt að gera er að hækka skattana, hækka atvinnuleysið og keppa á sem allra lægstu launum vinnuafls á næstu árum: => LETTLAND
Þess vegna verður að samhæfa skatta og ríkisvald í eitt ríki og eitt fólk - sbr. nýja stjórnarskráin
Ef einhver skilur ekki hvers vegna nýja stjórnarskráin í ESB er svona mikilvæg, þá ættu þessir atburðir að auka skilning allra á því. Það verður því að samhæfa skatta og ríkisvald í ESB. Evrópusambandið mun aldrei virka nema að það verði eitt ríki, þ.e.United States of Europe. En til að það geti orðið að veruleika þá þarf fyrst að heyja hefðbundna borgarastyrjöld á milli þegnana og menningarsvæða þeirra. Þess vegna er ESB fyrst og fremst alríkissamband sem mun aldrei geta þrifist með 27 sjálfstæðar þjóðir innanborðs.
Draumur áætlunargerðarmanna
Þetta var þá ekki annað en draumur embættismana og áætlunargerðarmanna þegar upp verður staðið. Kreppuferlið í ESB er núna 12-24 mánuðum á eftir ferlinu í Bandaríkjunum. Svo hægt er að ímynda sér hvernig ástandið verður í ESB eftir 12-24 mánuði
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 11.8.2009 kl. 21:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.