Leita í fréttum mbl.is

ESB-umsókn og Icesave aðskild mál

Stefan FüleStefan Füle, stækkunarstjóri ESB, segir Icesave ekkert hafa með aðildarumsókn Íslands að ESB að gera. Þetta kom fram í spurningum Evrópuþingsins til hans í gær. RÚV birti frétt um þetta og þar segir orðrétt:

,,Icesave-deilan er tvíhliða mál milli Íslendinga annars vegar og Breta og Hollendinga hins vegar og hefur ekki áhrif á umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Þetta segir Stefan Füle sem útnefndur hefur verið stækkunarstjóri Evrópusambandsins í stað Ollis Rehns. Füle svaraði í dag spurningum Evrópuþingmanna um stefnumál.

Hann var spurður hvort ákvörðun forseta Íslands að synja Icesave-lögunum staðfestingar og vísa málinu í þjóðaratkvæði hefði áhrif á umsókn Íslands um aðild að ESB. Füle svaraði því til að umsókn yrði metin út frá því hve vel Íslendingum gengi að uppfylla skilyrði ESB fyrir aðild. Icesave deilan væri tvíhliða mál sem hefði ekki áhrif."

Heimild


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fannar frá Rifi

það trúir engin lengur lýginni í ykkur.

Fannar frá Rifi, 13.1.2010 kl. 16:52

2 Smámynd: Evrópusamtökin, www.evropa.is

Fannar: Svona er lygi skrifað: LYGI, ekkert Ý!

Evrópusamtökin, www.evropa.is, 13.1.2010 kl. 23:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband