Leita í fréttum mbl.is

Frábćr Bergur Ebbi

Bergur EbbiTónlistarmađurinn Bergur Ebbi Benediktsson, í Sprengjuhöllinni, skrifar frábćra grein á vefsíđu Sterkara Íslands um Evrópumál. Góđ blanda af húmor og alvöru. Í henni segir hann m.a.:

,,Ţađ hefur tekiđ mig nokkurn tíma ađ átta mig á ţví, en íslenskt samfélag hefur ţegar breyst gríđarlega frá ţví ég fćddist. Um ţađ leyti sem ég fćddist fór fólk ekki oft til útlanda. Margir höfđu aldrei fariđ. Margir Íslendingar höfđu aldrei talađ viđ útlending. Sumir kunnu ekkert annađ mál en íslensku. Á borđum Íslendinga var borinn fram íslenskur matur, sođin ýsa og kartöflur, pasta ţótti framandi, enginn hafđi heyrt um avakadó. Ţetta hljómar kannski ekki merkilegt, en ţegar mađur safnar saman öllum litlu dćmunum kemur í ljós ađ viđ lifđum í allt öđru samfélagi fyrir ţrjátíu árum heldur en viđ gerum nú. Ísland var öđruvísi. Allt öđruvísi. Ekkert endilega verra eđa betra, en allavega öđruvísi. Dagur í lífi venjulegs manns áriđ 1981 er svo frábrugđin degi í lífi venjulegs manns áriđ 2010, ađ ţađ er varla hćgt ađ ná utan um ţađ. Ef einhverjum hefđi veriđ sagt áriđ 1981 ađ ţrjátíu árum síđar myndi hann eyđa stórum parti af degi sínum skokkandi á hlaupabretti međ áhyggjur af gengi japanska jensins, ţá hefđi hann ekki einu sinni vitađ hvađ vćri veriđ ađ segja viđ hann."

Og síđar skrifar Bergur Ebbi:

,,Ég tel íslenskt ţjóđerni mikils virđi. Ég gef lítiđ fyrir barnalega ţjóđerniskennd, en ég tel ađ hćfileg virđing fyrir ţví sem sameinar okkur, tungumálinu, menningararfinum og sögunni, sé ekki ađeins holl, heldur hverjum einstaklingi nauđsynleg á leiđ til ţroska. Ađ eiga ekkert föđurland má jafna viđ ađ eiga ekki fjölskyldu. En ţjóđerniđ breytist og ţroskast rétt eins og sérhver einstaklingur. Ţađ lćrir af samneyti sínu viđ ađra.

Ţannig vil ég nálgast ţessa umrćđu. Getur veriđ ađ Ísland sé stćrra og sterkara sem ţjóđríki innan ríkjasambands heldur en utan ţess? Er ekki sá einstaklingur sterkastur sem hefur öruggt bakland vina og fjölskyldu? Hefur sá ekki meira sjálfstraust sem treystir vinum sínum fyrir leyndarmálum og lífsskođunum heldur en bitri einstćđingurinn sem muldrar ofan í barm sinn?"

Frábćr grein, sem má lesa hér


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ţorsteinn Briem

Súr pungur eđa sćt bolla.

What is it gonna be, girl?

Ţorsteinn Briem, 11.2.2010 kl. 17:34

2 Smámynd: Anna Sigríđur Guđmundsdóttir

Mesti styrkur hvers og eins felst í ţví ađ ţora ađ standa einn og međ sjálfum sér og sinni sannfćringu og ţví sem  er  raunverulega hans. Sá sem hefur misst allt í hverfulum heimi hefur alltaf sinn eigin styrk og sína eigin hćfileika og sannfćringu.

Öllu öđru gćti hver og einn tapađ á örstuttri stundu.

Betra er ađ vera í góđu sambandi viđ ađra ef mađur hefur fulla trú á sinni eigin ríku sannfćringu og getu til ađ leysa málin. Ţađ er allavega mín skođun. M.b.kv. Anna

Anna Sigríđur Guđmundsdóttir, 11.2.2010 kl. 20:46

3 Smámynd: Ţorsteinn Briem

  1. Hrörnar ţöll
    sú er stendur ţorpi á.
    Hlýr-at henni börkur né barr.
    Svo er mađur
    sá er manngi ann.
    Hvađ skal hann lengi lifa?

Ţorsteinn Briem, 11.2.2010 kl. 20:56

4 Smámynd: Kama Sutra

"Súr pungur eđa sćt bolla.

What is it gonna be, girl?"

Hvers vegna velja annađ hvort ţegar hćgt er ađ fá hvort tveggja:  Súran pung í forrétt og sćtu bolluna sem ábćti?

Kama Sutra, 12.2.2010 kl. 12:48

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband