26.6.2010 | 23:10
Mesti and-Evrópuflokkur í Evrópu?
Árni Páll Árnason, félagsmálaraðherra, sagði í viðtali á Stöð 2 að Sjálfstæðisflokkurinn hefði ,,stimplað sig út" sem einangraður öfga-hægriflokkur. Þetta eftir að flokkurinn samþykkti á landsfundi fyrr í dag umsókn að ESB skyldi dregin til baka.
Þetta þýðir að Evrópusinnum innan Sjálfstæðisflokksins, var gefinn ,,einn á lúðurinn," á lokamínútum landsfundarins.
Þetta þýðir líka að þeir eiga enga samleið með þessum flokki lengur. Þetta getur m.a. þýtt að: 1) Að þeir stofni nýjan flokk, 2) Að þeir snúi baki við flokknum og kjósi einhvern annan flokk í næstu kosningum eða 3) Skili auðu eða sitji heima.
Það er alveg ljóst að Sjálfstæðisflokkurinn er ekki lengur hinn breiði flokkur allra skoðana, eins og hann hefur gefið sig út fyrir að vera. Með því að senda Evrópusinnum flokksins þessa blautu tusku með þessari yfirlýsingu mjókkar skoðanalitrófið í flokknum umtalsvert. Sama má segja um umburðarlyndi gagnvart mismunandi skoðunum.
Flokkurinn verður því fyrst og fremst athvarf uppblásinnar þjóðernis og einangrunarhyggju, útlendingafóbíu og ,,þeir-gegn-okkur" hugarfars.
Með því að sleppa þessu í gegn hefur formaðurinn, Bjarni Benediktsson (sem einungis var kosinn með 62% atkvæða!) málað flokkinn út í horn í utanríkis og alþjóðamálum á Íslandi.
Verður hægt að taka mark á Sjálfstæðisflokknum í umræðu um Evrópumál eftir þetta?Það verður að teljast harla ólíklegt
Hann er t.d.orðinn meira ANTI-ESB en flokkur kommúnista í Svíþjóð, sem á sínum tíma hættu við þá kröfu um að landið segði sig úr sambandinu.
Þetta er algerlega á skjön við alla þróun í heimsmálum, sem miðar að meiri samvinnu á öllum sviðum milli ríkja.
En með þessu hefur opnast möguleiki fyrir nýjan hófsaman hægriflokk á Íslandi, þar sem öflug Evrópusamvinnu með aðild að ESB, yrði ein af meginstoðunum. Fyrir flokk sem legði ríka áherslu á verslun og viðskipti, nothæfan gjaldmiðil og ábyrga efnahagsstefnu. Flokk sem myndi skipa Íslandi sess í alþjóðakerfinu, en ekki flokk þar sem innanborðs eru aðilar sem t.d. segja að Ísland "skipti engu máli," sé og verði áhrifalaust o.s.frv.Það lýsir e.t.v. mest þeirra eigin hugarheimi og framtíðarsýn.
Slíkur flokkur gæti tekið sænska hægriflokkinn sér til fyrirmyndar, en eftir kosningarnar árið 2006, ákvað flokkurinn, með Carl Bildt utanríkisráðherra í fararbroddi, að ,,keyra inn í Evrópusamvinnuna."
Það væri líka hægt að taka breska íhaldsflokkinn til skoðunar, en þrátt fyrir neikvæðni til ESB, veit flokkurinn að Bretar hafa áhrif innan ESB og að þeir eiga heima þar.
Þetta er sorgleg niðurstaða fyrir Sjálfstæðisflokkinn, sem kennir sig við frelsi og framfarir og talið sig vera HORNSTEIN í íslenskum utanríkismálum. Sá hornsteinnhefur nú farið fyrir lítið. Og það fyndna er (ef hægt er að taka þannig til orða) að það er EKKERT sagt í staðinn, þ.e.a.s. hvar Ísland eigi að staðsetja í sig í alþjóðapólítísku samhengi. EKKERT!
Á MBL.is má lesa viðbrögð Ragnheiðar Ríkharðsdóttur, en hún er yfirlýstur Evrópusinni í flokknum:
"Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingmaður og stjórnarmaður í samtökunum Sjálfstæðir Evrópumenn, er ósátt með niðurstöðu fundarins. Það gefur auga leið að ég er langt frá því að vera sátt, segir Ragnheiður.
Ég hefði talið að Sjálfstæðisflokkurinn þyrfti á öllu öðru að halda núna en að sundra fólki. Ég er ekki að ætlast til þess að fólk fari frekar á mína skoðun heldur en ég á þeirra, en ég held að minn flokkur þurfi á ýmsu öðru að halda núna heldur en sundrungu, segir Ragnheiður.
Hún segir að niðurstaða fundarins sé langt frá því sem evrópusinnar innan flokksins hafi vonast eftir. Niðurstaðan sé ekki einu sinni málamiðlun. Málamiðlun er málámiðlun, þetta er ekki málamiðlun. Þetta sem samþykkt er í dag, er víðs fjarri skoðunum okkar evrópusinna.
Hver kannast ekki við: ,,Sameinaðir stöndum vér, sundraðir föllum vér?" Er þetta upphafið að sundrun Sjálfstæðisflokksins, eða er kannski hægt að slá því föstu að hann sé í raun sundraður?
Hvernig spilast úr þessar döpru niðurstöðu landsfundar Sjálfstæðisflokksins kemur í ljós á næstu dögum.
Eldri færslur
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Evrópusamtökin-heimasíða Heimasíða Evrópusamtakanna
- Aðildarviðræður við ESB
- Já-Ísland
- Evrópustofa Upplýsingar um ESB og Evrópumál
- Evrópusambandið-ESB
- Utanríkisráðuneytið
- Sendiráð ESB á Íslandi Sendiráð ESB á Íslandi
- Meirihlutaálit Utanríkismálanefndar Alþingis
- Skýrsla Evrópunefndar
- RÚV:ESB-vefur
- Uppl. fyrir blaðamenn
- Sterkara Ísland
- FRBL-Umræða-Leiðarar
- European Daily Fréttir frá Evrópu
- BBC-Evrópa
- EU-Observer
- EUtube ESB á you tube
- Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg.
- Evrópuskrifstofan
- EurActiv-Fréttir um ESB
- Euranet (Útvarp)
- Euronews
- Evrópusíða UTN Evrópusíða utanríkisráðuneytisins
- Ungt fólk og ESB Ungt fólk og ESB
- ESB-umfjöllun MBL
Fréttabréfið
Fréttabréf Evrópusamtakanna
Bloggvinir
- Arna Lára Jónsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Daði Einarsson
- Dofri Hermannsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Fararstjórinn
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðlaugur Kristmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Hinrik Már Ásgeirsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreinn Hreinsson
- Jón Gunnar Bjarkan
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Júlía Margrét Einarsdóttir
- Loopman
- Magnús Már Guðmundsson
- Marta B Helgadóttir
- Sveinn Arnarsson
- Tómas Þóroddsson
- Vefritid
- gudni.is
- Ágúst Hjörtur
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Rúnar Þorvaldsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Arnar Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Barði Bárðarson
- Björn Halldórsson
- Brattur
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- ESB
- Eva Benjamínsdóttir
- Eva G. S.
- Eyjólfur Sturlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðlaugur Hermannsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Heiðar Lind Hansson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Sigurðsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kama Sutra
- Kjartan Jónsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- Natan Kolbeinsson
- Óðinn Kári Karlsson
- Óskar Þorkelsson
- Ragnar G
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sema Erla Serdar
- Sigurður M Grétarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Sumarliði Einar Daðason
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Ungir evrópusinnar
- Þarfagreinir
Athugasemdir
Mesti And-Evrópuflokkur í Evrópu? Óþarfi að gleyma Norðmönnum en þakka samt hrósið.
Sjálfstæðismaður.
Guðmundur Ingi Kristinsson, 27.6.2010 kl. 00:47
Umhyggja þín fyrir Sjálfstæðisflokknum er dulin hræðsla,því hann er og verður stærsti stjórnmálaflokkurinn. Nú flykkjast menn í flokkinn,sem voru týndir,því Sjálfstæðisflokknum er hægt að treysta fyrir sjálfstæði Íslands.
Helga Kristjánsdóttir, 27.6.2010 kl. 02:41
Samfylkingin vs 70% þjóðarinnar
Nú eru erfiðir tímar framundan hjá Samfylkingunni enda hefur flokkurinn nú einangrast algerlega í Evrópumálum en þeir telja aðild vera brýnasta málið fyrir heimili og fyrirtæki í landinu og brýnasta hagsmunamál þjóðarinnar.
Því miður eru um 70% þjóðarinnar ekki sammála þessu, eru raunar á móti aðild. Vilja ekki þessar þreifingar og vilja sjá lausnir í mjög aðkallandi málum sem ekki verða leyst með aðild að Evrópusambandinu.
Það verður því að teljast að Samfylkingarmenn hafi fjarlægst snertingu við þjóðarpúlsinn allsvakalega, menn hafi fengið vitranir þar á bæ og sjái nú hluti í nýju ljósi.
Það er þó ekki nóg að flokkurinn sjái ljósið ef þjóðin hristir bara höfuðið.
Aðildarferlið, sem ætti reyndar bara að vera viðræðuferli, kostar allt of mikið fé. Hvað er það sem að ráðamenn skilja ekki við þá skoðun fólks?
Flokkur sem að volar undan dómi Hæstaréttar og vill láta almenning borga skuldir vina sinna í bankaelítunni, segir síðan ESB vera; brýnasta hagsmunamál þjóðarinnar.
Það fólk ætti að fara í frí. Langt frí.
sandkassi (IP-tala skráð) 27.6.2010 kl. 04:02
mjog god faersla... serstaklega "Flokkurinn verður því fyrst og fremst athvarf uppblásinnar þjóðernis og einangrunarhyggju, útlendingafóbíu og ,,þeir-gegn-okkur" hugarfars." tvi tad er nakvaemlega tetta sem Sjalfstaedisflokkurinn stendur fyrir nuna... tad vardur stofnadur hofsamur haegri flokkur einsog tid nefnid og XD verdur einangradur a kanntinum.
R.I P XD
Sleggjan og Hvellurinn, 27.6.2010 kl. 11:15
And-Evrópubandalags þýðir ekki það sama og and-evrópskur, þannig að fyrirsögnin ykkar með orðinu and-Evrópuflokkur er kolröng. Gerið þið það viljandi að ljúga Evrópuandstöðu upp á menn sem ekki vilja lúta risamiðstýringu Brusselvaldsins? Við erum EKKI andvíg Evrópu og Evrópumönnum þó við viljum ekki miðstýringuna.
Elle_, 27.6.2010 kl. 14:21
Elle, Í dag snýst Evrópa um ESB á stjórnmálasviðunu. Þannig að sjálfstæðisflokkurinn er í raun orðin and-evrópskur. Spurning er hvort að þetta sé orðin pró-bandarískur stjórnmálaflokkur á Íslandi, en sjálfstæðisflokkurinn hefur hallað sér mjög í þá átt undanfarin ár, að frumkvæði Davíðs Oddssonar.
Jón Frímann Jónsson, 28.6.2010 kl. 23:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.