Leita í fréttum mbl.is

Jóhann Hauksson: Ömurleg stjórnmál

Jóhann HaukssonJóhann Hauksson, blaðamaður á DV skrifar harðorðan pistil á DV-bloggið í gær, sem hefst svona:

" Svo er að sjá sem deild þjóðernisofstækismanna í Sjálfstæðisflokknum hafi náð undirtökunum í Heimssýn, samtökum andstæðinga aðildar að Evrópusambandinu.
Frjáslyndir Sjálfstæðismenn láta traðka á sér endalaust meðan Björn Bjarnason, Styrmir Gunnarsson og aðrir þjóðernissinnar pakka í vörn fyrir séreignarhald stórauðvaldsins á auðlindum þjóðarinnar og rækta útlendingahatur. Slík varðstaða er raunar partur af skilgreiningunni á fasisma.
Undan þessu eru flúin og hrakin Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Illugi Gunnarsson og fleira upplýst fólk á hægrivæng stjórnmálanna. Þreyttur en umburðarlyndur situr Benedikt Jóhannesson uppi með samtök sín Sjálfstæða Evrópumenn sem virðist um megn að breyta atburðarásinni. Frændi hans, Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, neyðist til að bera fram tillögu á haustþingi í anda landsfundarsamþykktar um að slíta aðildarviðræðum að ESB.

Þetta eru ömurleg stjórnmál.

Barnalegu fautarnir í þingflokki VG láta sér vel líka þessa þróun í átt til þjóðernisfasisma og rækta hatur sitt í garð Samfylkingarinnar. Þeir eru á móti einu lausninni sem gæti hugsanlega viðhaldið sjálfstæði þjóðarinnar. Undarlegt nokk felst hún í aðild að Evrópusambandinu. Þeir eru á móti upptöku evrunnar sem komið gæti okkur undan drápsklyfjum krónunnar og herkostnaðinum sem henni fylgir. Þeir eru á móti skynsamlegri nýtingu auðlindanna. Þeir eru á móti eðlilegri samkeppni í sjávarútvegi sem felst í róttækri uppstokkun kvótakerfisins.

ÞEIR ERU Á MÓTI!"

Pistillinn í heild sinni


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Meiri háttar grein Jóhann Hauksson

Hólmfríður Bjarnadóttir, 23.7.2010 kl. 02:17

2 identicon

Áhugaverðast við greininga finnst mér eftirfarandi:

Nú eru vextir orðnir neikvæðir á öllum innlánsreikningum bankanna, líka svokölluðum hávaxtareikningum. Þar með er atlagan að sparifjáreigendum hafin. Við þetta eykst þrýstingurinn á enn frekari og langvinnari gjaldeyrishöft svo peningar fari ekki úr landi og samstarf við Evrópuþjóðir verður fjarlægara.

Gjaldeyrishöftin verður að afnema sem fyrst.  Þau eru að eyðileggja landið.  Á meðan að gengið er ekki rétt skráð, þá eru allar hagtölur á Íslandi RANGAR!!!

Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 23.7.2010 kl. 05:15

3 identicon

Ég gleymdi að skrifa:  Samfylkingin getur ekki verið tekinn alvarlega sem flokkur sem vill ganga í ESB ef hann hefur ekki forystu við að afnema gjaldeyrishöftin.  Hingað til hefur hann aðeins skammtað undanþágur frá höftunum til vina og útvaldra eða þá sagt fyrirtækjum hvernig þeir geti keypt orkufyrirtæki með aflandskrónum.

Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 23.7.2010 kl. 05:24

4 Smámynd: Gunnlaugur I.

Þessi grein Jóhanns Haukssonar er uppfull af reiði og hroka fyrst og fremst.

Reiðin er svo mikil vegna þess að ESB innlimunarsinnar eru á nær öllum stöðum búnir að gjörtapa vígstöðu sinni meðal þjóðarinnar.  

Mjög lítið málefnalegt við þessa grein Jóhanns Haukssonar.

Eins og þegar hann segir að undan þessum þjóðernisofstækismönnum og útlendingahöturum sé búið sé að flæma í burtu fólk eins og þau Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur og Illuga Gunnarsson.

Málið er einfaldlega það að þau bæði hröktust af þingi og úr valdastólum vegna spillingarmála og tengingu við vafasama gjörninga inni í bankageiranum.

Síðan reynir hann að úthrópa Heimssýn sem einhverja einhliða deild þessara meintu þjóðernisofstækismanna úr Sjálfstæðisflokknum og í ofanálag reynir hann að koma því að að þessi samtök séu einhverjir varðhundar kvótakerfisins og einokunar á auðlyndum þjóðarinnar.

Þetta er þvílíkt rugl hjá stjörnublaðmanninum að hann fengi nú "SKAMM" fyrir í blaðamannapassann sinn fyrir svona bull- rannsóknarblaðamennsku. 

í fyrsta lagi þá eru Heimssýn algerlega þverpólitísk landssamtök sem hafa á að skipa fólki úr öllum stjórnmálaflokkum og líka fólk sem styður enga flokka. Formaður samtakanna nú er Ásmundur Einar Daðason þingmaður Vinstri grænna.

Heimssýn hefur aldrei skipt sér af átkamálum eins og um fiskveiðistjórnunarkerfið eða verið einhver málpípa einokunar íslenskra náttúruauðlynda. 

Ég fullyrði að innan samtakanna er fólk með mjög mismunandi skoanir á þessum málum og enginn segir neitt við því.

Fólk er fyrst og síðast í Heimssýn til þess að verja fullveldi og sjálfstæði íslensku þjóðarinnar án ESB helsi.

Gunnlaugur I., 23.7.2010 kl. 09:07

5 Smámynd: Elle_

Aumur málflutningur í pistlinum þar sem Evrópu-stórríkis-sinni útmálar ALLA sem vilja halda fullveldi landsins, þjóðernishroka.  Ekki nýr málflutningur af hatursfullum mönnum sem skilja ekki muninn á fullveldi lands og þjóðernisrembu.  Eins og Grímur Atlason nýlega.  Og Evrópusamtökin lyftu honum upp á stall fyrir skítkastið.  Nær væri að þessir menn færu að skilja að það er engin tenging milli fullveldis lands og þjóðernisrembu.  Jóhann Hauksson: ÖMURLEGAR RANGFÆRSLUR.

Elle_, 23.7.2010 kl. 14:29

6 Smámynd: Elle_

Lýsingin mín var of væg að ofan, málflutningurinn er verri en aumur því hann skrifar af miklu hatri og ofstæki um útlendingahatara og þjóðernisofstækismenn.  Ætli hann sé að skrifa um Grím Atlason og sig sjálfan??

Elle_, 23.7.2010 kl. 14:39

7 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Mjög góð grein. Það vita allir að Bjarni Ben var evrópusinni enda skrifuðu hann og Illhugi greinar í blöðin á sínum tíma þar sem þeir hvötti til þess að ganga í ESB.

En síðan tók þjóðernisofstækismenn úr Sjálfstæðisflokknum hann á teppið og skipuðu honum að skipta um gír. Því annars mundi hann ekki fá formanns stólinn.

Sleggjan og Hvellurinn, 23.7.2010 kl. 16:37

8 Smámynd: Jón Frímann Jónsson

Gunnlaugur I, Þú ert gjörsamlega marklaus hérna. Enda kýst þú að búa sjálfur í öryggi evrunnar og ESB. Á sama tíma vilt þú neita samlöndum þínum á Íslandi um það sama öryggi.

Slíkt kallast hræsni, og þú hefur mikið af henni.

Jón Frímann Jónsson, 24.7.2010 kl. 02:18

9 Smámynd: Jón Baldur Lorange

Jóhann Hauksson er ennþá með Sjálfstæðisflokkinn og Samfylkinguna á heilanum þó þar búi misjafnt undir. Hann státar af verðlaunum fyrir hatur sitt á Sjálfstæðisflokknum og góðvild til Samfylkingarinnar. Hann er núna fallinn í sömu gryfju og Jón Frímann samherji hans og sérlegur, og sérstakur, talsmaður Evrópusambandsins á Íslandi. Samræmd ,,lína" virðist vera komin frá Brussel fyrir spunameistarana. Kallið þá fasista sem sjá ekki ljósið við aðild Íslands að ESB! Það svínvirkar alltaf hjá okkur í Strassbourg!

Sjá einnig Össur veit ...

Jón Baldur Lorange, 24.7.2010 kl. 20:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband