Leita í fréttum mbl.is

0.27% stuðningur - bréf frá samtökum Nei-sinna sent á alla þingmenn Evrópuþingsins

Nigel Farage er þjóðernisíhaldssinniÍslenskir Nei-sinnar berjast eins og naut í flagi gegn því að fylgt verði eftir þeirri lýðræðislegu ákvörðun frá því í fyrra að sækja um aðild að ESB. Þeir biðla m.a. til annarra Nei-sinna erlendis um stuðning, þar á meðal tveggja harðsoðinna íhaldsmanna, Daniel Hannan og Nigel Farage (mynd), sem báðir eru þingmenn á Evrópuþinginu (MEP).

Íslenskir Nei-sinnar hafa m.a. sent hinum síðarnefnda bréf, en DV fjallar um þessa sendingu í gær.

Farage er formaður UK Independence Party, sem er pínulítill flokkur lengst, lengst til hægri í breskum stjórnmálum. Þetta er svokallaður "nokkurra-prósenta-flokkur", þ.e. hann hefur nánast ekkert fylgi (fékk 3.5% í síðustu kosningum!)

En Farage stofnaði þennan flokk, eftir að hafa farið í fýlu vegna þess að John Major, þáverandi forsætisráðherra Bretlands, skrifaði undir Maastricht-sáttmála ESB.

Íslenskir Nei-sinnar sækja sér s.s. skjól hjá mönnum sem þessum.

Farage og Hannan eru tveir af 736 þingmönnum Evrópuþingsins og þeir tveir sem berjast gegn aðild Íslands að ESB. Þetta gerir um 0.27% stuðning við það að Ísland gangi ekki í ESB á Evrópuþinginu!

Sýnir fyrst og fremst mikla örvæntingu og hræðslu Nei-sinna við það að aðildarferlið fari í gang og að Ísland fái hagstæðan samning, sérstaklega varðandi sjávarútvegsmál.

Því þá eru yfir 70% fylgjandi aðili, eins og kom ekki fram í könnun sem MBL lét gera fyrir sig um daginn (sjá hér).


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

"Ráðamenn töluðu alltaf um, þegar málið var kynnt sumarið 2009, að um könnunarviðræður væri að ræða, ekki aðildarviðræður."

Heimssýn sendir bréf til útlanda

"Þingsályktun

um aðildarumsókn að Evrópusambandinu.

Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að leggja inn umsókn um aðild Íslands að ESB og að loknum viðræðum við sambandið verði haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um væntanlegan aðildarsamning. Við undirbúning viðræðna og skipulag þeirra skal ríkisstjórnin fylgja þeim sjónarmiðum um verklag og meginhagsmuni sem fram koma í áliti meiri hluta utanríkismálanefndar."

Nefndarálit meirihluta utanríkismálanefndar

Þingmenn í Samfylkingunni, Vinstri grænum og Framsóknarflokknum, ítem Þráinn Bertelsson, greiddu atkvæði með umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu.


Samþykkt á Alþingi 16. júlí í fyrra
: 33 þingmenn sögðu já en 28 nei og 2 greiddu ekki atkvæði. (Gunnar Bragi Sveinsson sagði nei.)


Þingsályktun um aðildarumsókn að Evrópusambandinu

Þorsteinn Briem, 23.7.2010 kl. 03:31

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

"Samfylkingin er einangruð á Alþingi sem eini ESB-flokkurinn."

Heimssýn sendir bréf til útlanda


Ályktun flokksþings framsóknarmanna í fyrra um aðildarviðræður við Evrópusambandið:

"Markmið

Að Ísland hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið á grundvelli samningsumboðs frá Alþingi sem tryggi hagsmuni almennings og atvinnulífs og þá sérstaklega sjávarútvegs og landbúnaðar.

Þá er fullveldi og óskorað forræði Íslendinga yfir auðlindum þjóðarinnar grundvallarkrafa í þeim viðræðum.

Viðræðuferlið á að vera opið og lýðræðislegt og leiði viðræðurnar til samnings skal íslenska þjóðin taka afstöðu til aðildarsamnings í þjóðaratkvæðagreiðslu í kjölfar upplýstrar umræðu.

Skilyrði


• Skýr og einhliða úrsagnarréttur, sem er þegar viðurkenndur í aðalsáttmála ESB, verði hluti aðildarsamnings.

• Staðfest verði að Íslendingar einir hafi veiðirétt innan íslenskrar fiskveiðilögsögu og að fiskveiðistjórnun verði áfram innanríkismál Íslendinga, enda styðjist hún við reglur ESB um stöðug hlutföll, nálægðarreglu og Lúxemborgarsamkomulagið. Ísland verði sjálfstæður aðili að samningum um flökkustofna.

• Fæðuöryggi þjóðarinnar verði tryggt og viðurkennd nauðsyn á sérstökum ákvæðum vegna fámennis þjóðarinnar.

• Viðurkennt verði að íslenskur landbúnaður sé heimskautalandbúnaður.

• Framleiðsla og úrvinnsla íslenskra búfjárstofna verði tryggð ásamt sérstöðu og hreinleika íslenskra búfjárstofna.

• Staðfest verði að vegna aðstæðna á Íslandi og fámennis þjóðarinnar hafi Íslendingar varanlegan rétt til að setja lög um forgangsrétt manna með lögheimili og fasta búsetu á Íslandi til að eiga ráðandi hlut í jarðeignum, lóðum, fasteignum og atvinnufyrirtækjum, enda styðjast slík ákvæði við núgildandi reglur á Álandseyjum, Möltu, Azoreyjum og víðar innan ESB.

• Í upphafi viðræðna verði gerður stöðugleikasamningur við Evrópska seðlabankann sem tryggi stöðugt gengi íslensku krónunnar þar til Íslendingar taka upp evru.

• Tekið verði tillit til stöðu íslensks efnahagslífs við umbreytingu peninga- og gjaldeyrismála á Íslandi.

• Ákvæði verði um varðstöðu um íslenska þjóðmenningu, þjóðtungu og þjóðhætti á Íslandi. Íslenska verði viðurkennt sem eitt hinna opinberu tungumála ESB."

Ályktun flokksþings Framsóknarflokksins um aðildarviðræður við Evrópusambandið

Þorsteinn Briem, 23.7.2010 kl. 03:45

3 Smámynd: Þorsteinn Briem

"Samkvæmt skoðanakönnunum er meirihluti Íslendinga mótfallinn inngöngu Íslands í ESB."

Heimssýn sendir bréf til útlanda


RÚV 1.7.2010:


"Nokkuð athyglisvert er að innan við helmingur svarenda telur sig þekkja vel kosti og galla ESB-aðildar og viðurkennir fjórðungur mikið þekkingarleysi.

Þá kemur fram að fólk treystir innlendum fjölmiðlum fremur illa til að fræða sig um kosti og galla aðildar. Aukinn meirihluti þjóðarinnar segist þó helst vilja fá upplýsingar um þá kosti og galla í umræðu- og heimildaþáttum í útvarpi og sjónvarpi."

Fyrir þremur árum voru Íslendingar hamingjusamasta þjóð í heimi og þá var hér ENGIN spilling, samkvæmt skoðanakönnunum.

Þorsteinn Briem, 23.7.2010 kl. 03:58

4 Smámynd: Þorsteinn Briem

Þingmenn framsóknarmanna sem greiddu atkvæði með þingsályktun um aðildarumsókn að Evrópusambandinu:

Birkir Jón Jónsson, Guðmundur Steingrímsson og Siv Friðleifsdóttir.

Þingmenn vinstri grænna sem greiddu atkvæði með aðildarumsókninni:


Álfheiður Ingadóttir, Árni Þór Sigurðsson, Bjarkey Gunnarsdóttir (varamaður Björns Vals Gíslasonar), Katrín Jakobsdóttir, Lilja Mósesdóttir, Steingrímur J. Sigfússon, Svandís Svavarsdóttir og Ögmundur Jónasson.

Einnig greiddu atkvæði með aðildarumsókninni, auk allra þingmanna Samfylkingarinnar, sjálfstæðismaðurinn Ragnheiður Ríkharðsdóttir og Þráinn Bertelsson, utan þingflokka.

Sátu hjá:


Guðfríður Lilja Grétarsdóttir
og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.

Óli Björn Kárason
situr nú á Alþingi sem varamaður Þorgerðar Katrínar og enda þótt Óli Björn, Lilja Mósesdóttir og Ögmundur Jónasson greiddu öll atkvæði með þingsályktunartillögu um að draga til baka umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu, félli tillagan væntanlega á jöfnum fjölda atkvæða, 31 gegn 31.

Þar að auki hefði Ögmundur Jónasson tæpast áhuga á að fella ríkisstjórn, sem hann hefur sjálfur setið í, með því að greiða atkvæði með tillögunni og reyna þannig að koma í veg fyrir lýðræðislegar kosningar, þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarsamninginn.

Samþykkt á Alþingi 16. júlí í fyrra: 33 þingmenn sögðu já en 28 nei og 2 greiddu ekki atkvæði. (Gunnar Bragi Sveinsson sagði nei.)

Og Sjálfstæðisflokkurinn tapaði NÍU þingmönnum í alþingiskosningunum í fyrra.

Þorsteinn Briem, 23.7.2010 kl. 06:59

5 Smámynd: Þorsteinn Briem

"Samfylkingin [...] beið afhroð í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum þann 29. maí síðastliðinn, sem og VG [Vinstri grænir]."

Heimssýn sendir bréf til útlanda


Sjálfstæðisflokkurinn tapaði NÍU þingmönnum í alþingiskosningunum í fyrra og Framsóknarflokkurinn tapaði fimm þingmönnum í alþingiskosningunum 2007.

Þorsteinn Briem, 23.7.2010 kl. 07:32

6 Smámynd: Elle_

Lýðræðislegt hvað?  Það var ekki neitt lýðræðislegt við umsóknina eins og pistillinn lýsir.  Samfylkingarófétið beitti pólitísku ofbeldi eins og vanalega og af þeirra völdum var tillaga um að þjóðin hefði fyrsta og síðasta orðið felld.  Lygar og rangfærslur já-sinna.  

Elle_, 23.7.2010 kl. 15:51

7 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Lýðræðiskjörnir alþingismenn samþykktu frumvarpið. Það er lýðræði.

Jújú það voru sumir VG menn sem eru á móti ESB en voru fylgjandi því að láta þjóðina kjósa um samninginn.

Þetta er lýðræði.

Sleggjan og Hvellurinn, 23.7.2010 kl. 16:23

8 Smámynd: Elle_

Voru þvingaðir með hótunum Jóhönnu um stjórnarslit og það er ekki lýðræði.

Elle_, 23.7.2010 kl. 17:53

9 Smámynd: Elle_

Kannski ætti ég ekki að nota orðið þvingaðir þarna.  Þeim var hótað, það er enginn vafi og það er ólýðræðislegt.  Hinsvegar voru VG-líðar sjálfir sekir um að hlýða hótununum eins og rakkar.

Elle_, 23.7.2010 kl. 17:56

10 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Það verður kosið um samninginn í þjóðaratkvæðisgreiðslu. Er það ekki lýðræði?

Sleggjan og Hvellurinn, 23.7.2010 kl. 19:11

11 Smámynd: Elle_

Nei, því umsóknin komst í gegn með hótunum.  Og þjóðin átti að hafa fyrsta orðið um hvort sótt yrði um eða ekki og var rænd þessu.  Núna vill 70% þjóðarinnar að umsóknin verði dregin til baka og það þarf.  Samfylkingin batt líka þannig um hnútana að lokaniðurstaðan yrði ekki bindandi.  Það er ekki lýðræði.

Elle_, 23.7.2010 kl. 19:27

12 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

60% þjóðarinnar er á móti ekki 70%.

Það er eðlilegt að kjósa um samning í staðinn fyrir að kjósa um kjaftasögur.

Sleggjan og Hvellurinn, 23.7.2010 kl. 20:21

13 Smámynd: Elle_

Hélt það væru 70%  En það er ekkert eðlilegt við fullveldisafsal lands og það er það sem það yrði og ekki heldur eðlilegt þó 51% vildi það.  Ætti að mínum dómi að vera 70-75% í svo alvarlegu máli.  Við værum að gefa upp fullveldið, því bandalagið er ekkert nema stækkandi stórríki og fer með æðsta vald yfir aðildarlöndunum og lögum þeirra.

Elle_, 23.7.2010 kl. 21:07

14 Smámynd: Jón Frímann Jónsson

Elle, Sá skilningur sem þú leggur í fullveldi varð úreltur strax á 19 öldinni.

Jón Frímann Jónsson, 24.7.2010 kl. 02:16

15 Smámynd: Elle_

Jón Frímann, allur skilningur þinn um fullveldi varð úreltur fyrir Krist.

Elle_, 24.7.2010 kl. 14:08

16 Smámynd: Jón Frímann Jónsson

Elle, Sjáum hvort að þú skilur þetta hérna.

Ákvörðunarvald ESB á sér alltaf grundvöll í fullveldi og sjálfstæði aðildarríkjanna sjálfra. Ásamt þeim takmörkunum sem ákvörðunarvaldi ESB eru settar í sáttmálum ESB, sem eru æðstu lög Evrópusambandsins.

Náðiru þessu ?

Jón Frímann Jónsson, 24.7.2010 kl. 14:51

17 Smámynd: Elle_

Æðsta vald er æðsta vald, Jón Frímann.  Og hættu að tala niður til manns eða hættu að svara.

Elle_, 24.7.2010 kl. 15:02

18 Smámynd: Jón Frímann Jónsson

Elle, Æðsta vald innan ESB er vald ríkjanna sjálfra. Hærra verður ekki komist, og er þetta vald rétthærra en vald Framkvæmdastjórnar ESB. Þeir sem fara með þetta vald eru Forsætisráðherrar aðildarríkjanna og engir aðrir.

Þannig að fullyrðingar þínar um meint valdleysi er tóm della.

Jón Frímann Jónsson, 25.7.2010 kl. 03:41

19 Smámynd: Elle_

Endalaus og tóm della í öllum sem vilja ekki sættast á ofríkið og æðsta valdið í stórríkisbákninu??  Nei, þeir munu hafa ÆÐSTA VALD og skiptir engu hvað þú þrætir oft. 

Elle_, 25.7.2010 kl. 12:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband