Leita í fréttum mbl.is

ESB er líka menntun og fræðsla

etwinning_vefhaus.jpgNú eru skólar að hefjast um allt land, eftir frábært sumar. Við sem erum að fjalla um Evrópumái einbeitum okkur mikið að efnhags og stjórnmálum, krónum og Evrum og slíku.

ESB er hinsvegar miklu meira heldur en það. ESB kemur mjög mikið að menntun og fræðslu í gegnum allskyns verkefni og áætlanir (sjá hér)

Þessi verkefni snúast um allt möguleg, endurmenntun, menntunartækni, upplýsingatækni o.s.frv.

Undanfarin ár hefur Ísland tekið þátt í um 200 verkefnum sem snúa að menntamálum. Og hver kannast t.d. ekki við orðið ERASMUS?

Önnur síða er www.etwinning.is, sem er t.d. síða um rafrænt skólastarf.

Þar er m.a. þetta að gerast:

Landskeppni eTwinning 2010-2011: Landskeppni eTwinning verður haldin í fimmta sinn skólaárið 2010-2011 og veitt vegleg verðlaun við hátíðlega athöfn að vori eða hausti á komandi ári.

5 ára afmælishátíð eTwinning verður haldin nú í haust – verða m.a. veitt verðlaun fyrir verkefni sem starfrækt voru á síðasta skólaári.

eTwinning-vikur: Í október verða haldnar eTwinning-vikur og ýmislegt gert til hátíðabrigða bæði hér á landi og vítt og breitt um Evrópu – nánari upplýsingar þegar nær dregur. 

Comenius er svo hér

Hvetjum alla sem hafa áhuga á þessu að kynna sér málið!

Til gamans: Listi yfir 100 bestu háskólar í Evrópu

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

"Velkomin á heimsíðuna Evrópusamvinna.is. Hún er ekki ætluð sem áfangastaður heldur skiptistöð: hér eru aðeins veittar grunnupplýsingar um hverja áætlun, en vefslóðir og netföng vísa veginn áfram á landskrifstofur og upplýsinga- og þjónustuskrifstofur sem veita allar nánari upplýsingar og aðstoð.

Evrópusamvinna.is er vettvangur til að kynnast tækifærum og styrkjum í Evrópusamstarfi. Þar er að finna upplýsingar um allar áætlanir sem Ísland er þátttakandi í innan Evrópusambandsins.

Evrópusamvinna.is veitir upplýsingar um eftirfarandi samstarfsáætlanir:

  • 7. rannsóknaáætlun ESB
  • Almannavarnaáætlun
  • Daphne III - gegn ofbeldi á konum og börnum
  • Enterprise Europe Network
  • Evrópa unga fólksins
  • eTwinning - rafrænt skólasamstarf
  • Progress - jafnréttis- og vinnumálaáætlun
  • MEDIA Kvikmynda-, sjónvarps- og margmiðlunaráætlun ESB
  • Menningaráætlun
  • Menntaáætlun ESB
  • Norðurslóðaáætlun
  • Samkeppnis- og nýsköpunaráætlunin - CIP
  • Norrænt samstarf og styrkir

Evrópusamvinna.is er með Facebooksíðu: Facebook|Evrópusamvinna.is

Þorsteinn Briem, 26.8.2010 kl. 21:23

5 Smámynd: Sverrir Þór Magnússon

Þetta er eins og "Overkill" eða reyna að þreyta okkur með staðreyndum sem virka ekki á okkur.

Það er ekkert sem fær mig af því að ESB er ekki rétta stefnan fyrir svona litla þjóð, með svona hagsmuni eins og ESB hefur í sinni heildarstefnu, við verðum að hugsa á þeirra stærðargráðu ekki okkar.

Og ef þú vilt fara dýpra í þessa vitleysu sem hefur verið gerð hérna á síðustu árum, þá er það Schengen bullið, við höfum engin landamæri sem þetta samkomulag tekur til, og það sem við höfðum var ekki fullkomið, var þó betra en Schengen.

Sverrir Þór Magnússon, 26.8.2010 kl. 22:03

6 Smámynd: Gunnlaugur I.

Sverrir Þór.

Ég er alveg sammála þér eins og stór meirihluti þjóðarinnar.

En athugaðu og skoðaðu betur hér marga mánuði aftur í tímann að sennilega er Steini Briem bara í vinnunni sinni fyrir ESB apparatið.

Nú er hann á fullu hér eins og sést að auglýsa ESB styrkina þeirra og múturnar !

Gunnlaugur I., 26.8.2010 kl. 22:11

7 Smámynd: Gunnlaugur I.

Já ég er sammála þér Sverrir Þór.  

Þetta hjá Steina Briem er svona "Overkill" og virkar alveg þveröfugt á flesta !

Enda sýnir nýjasta skoðanakönnun sjálfs EUROBAROMETER sem birt var í dag að stuðningur við ESB aðild íslendinga er jafn vel enn minni en áður hefur mælst eða aðeins 19% þjóðarinnar, sem telja að þjóðin sé betur kominn í ESB en utan þess.

Hlýtur að vera algert kjaftshögg fyrir ESB elítuna og ESB túboðið á Íslandi. 

Fólk lætur ekki stjórnast af svona einlitum og skefjalausum áróðri !

Gunnlaugur I., 26.8.2010 kl. 22:20

8 Smámynd: Þorsteinn Briem

Sverrir Þór Magnússon,

Ísland undirritaði samning um aðild að Schengen-samstarfinu ásamt öðrum Norðurlandaþjóðum 19. desember 1996 þegar Davíð Oddsson var forsætisráðherra.


Rúmlega
80% af íbúum Norðurlandanna eru nú í Evrópusambandinu.

Og aðild að Schengen-samstarfinu var samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu í Sviss.

Þeir sem eru á móti Evrópusambandinu eru nær útdauð tegund og geta því trúlega fengið styrk frá sambandinu sem slíkir.

Schengen
-samstarfið - Wikipedia

Þorsteinn Briem, 26.8.2010 kl. 22:36

9 Smámynd: Sverrir Þór Magnússon

Einhverloforð sem Össur heldur ( sem er þingvalla-fiski-fræðingur ) að standi, því hann sagði það: við höldum okkar öllu og getum jafnvel sagt hinum ESB-þjóðunum hvað skal gera með okkar 200 mílna lögsögu.

Hversu veruleikafirrt er þetta lið, ESB miðar allt við höfðatölu, sama hvað þer er, Höfðatala = Þingsæti, og við fáum innan við 1%, þetta yrði okkar vægi.

Saman ber: hversu öflugur yrði kriplaður Þráinn Bertilsson, okkur á ESB þingi ?

Sverrir Þór Magnússon, 26.8.2010 kl. 22:38

10 Smámynd: Þorsteinn Briem

Davíð Oddsson var einnig forsætisráðherra þegar Ísland undirritaði samning um aðild að Evrópska efnahagssvæðinu (EES) 2. maí 1992.

Þorsteinn Briem, 26.8.2010 kl. 22:44

11 Smámynd: Þorsteinn Briem

"EES samningurinn gerir ráð fyrir því að afleidd löggjöf EB, þ.e. einkum EB reglugerðir og tilskipanir, verði yfirtekin í samninginn.

Það var gert með svonefndum viðaukum við EES samninginn.

EB reglugerðir og tilskipanir ERU SNIÐNAR AÐ ÞÖRFUM EB, ENDA EINGÖNGU SPROTTNAR ÚR ÞEIM JARÐVEGI.
"

"Viðaukar sem fylgja EES samningnum eru alls 22."

Evrópusambandið og Evrópska efnahagsvæðið eftir Stefán Má Stefánsson lagaprófessor, bls. 115.


(Bókin er 1.200 blaðsíður.)

Þorsteinn Briem, 26.8.2010 kl. 22:46

12 Smámynd: Sverrir Þór Magnússon

Steini: þú ert ekki að verja þetta, þú ert bara að  benda á hlekki, og því um líkt: ef þú getur ekki betur, hættu þessu og farðu aftur að lesa, Njálu.

Sverrir Þór Magnússon, 26.8.2010 kl. 22:50

13 Smámynd: Þorsteinn Briem

Sverrir Þór Magnússon,

Ég er búinn að benda þér á STAÐREYNDIRNAR.


Og mér er nákvæmlega sama hvað þér FINNST um þær.

Það er
EKKI meirihluti á Alþingi fyrir því að segja upp aðild Íslands að samningunum um Evrópska efnahagssvæðið og Schengen-samstarfið.

Hins vegar er MEIRIHLUTI á Alþingi fyrir því að Ísland sæki um aðild að Evrópusambandinu og hér verði greidd atkvæði um aðildarsamninginn Í
ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLU.

Með aðild að Evrópusambandinu tökum við Íslendingar SJÁLFIR þátt í að semja löggjöf Evrópusambandsins og aðildarsamningi okkar verður EKKI breytt nema með samþykki okkar Íslendinga.

"EB reglugerðir og tilskipanir ERU SNIÐNAR AÐ ÞÖRFUM EB, ENDA EINGÖNGU SPROTTNAR ÚR ÞEIM JARÐVEGI."

Evrópusambandið og Evrópska efnahagsvæðið eftir Stefán Má Stefánsson lagaprófessor, bls. 115.

Þorsteinn Briem, 26.8.2010 kl. 23:12

14 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Góð ábending um menntun og ESB. Hún vill oft gleymast. ERASMUS hefur gefið fjölda Íslendinga tækifæri á að mennta sig í evrópu á meðan háskólanám stendur. Kinnast nýjum menningarheimum og læra erlendis. Þetta veldur því að við Íslendingar verðum ekki allir steiptir í eitt mót. Fólk verður víðsýnna og koma með nýjar hugmyndir við heimkomuna.

Það eykur hagsæld þjóðarinnar.

Sleggjan og Hvellurinn, 27.8.2010 kl. 13:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband