27.8.2010 | 23:11
Menn með fullu viti?
Eyjan birti þessa frétt í dag: Jón Baldvin: "ESB- umsókn að skrípaleik. Svona tala menn ekki með fullu viti"
Fréttin er svona: "Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, segir það orðhengilshátt hjá Jóni Bjarnasyni landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra að tala um aðlögunarviðræður í stað aðildarviðræðna við ESB. Hann efast um að ráðherrann viti sjálfur hvað hann sé að fara.
Jón Bjarnason telur að aðlögunarferli sé hafið að Evrópusambandinu. Því hafa þrír ráðherrar í ríkisstjórninni mótmælt og sagt að Jón misskilji ferlið.
Í viðtali á Útvarpi Sögu sagði Jón Baldvin að orðaleikur ráðherrans væri merkingarlaust þras. Hann sagði þessi ummæli ráðherrans og einnig þá skoðun þingflokks Sjálfstæðisflokksins að draga umsóknina til baka vera tilraun til að gera aðildarviðræðurnar að skrípaleik og að svona tali ekki stjórnmálamenn með fullu viti. Jón Baldvin sagði að Vinstri grænir væru vissulega á móti aðild að ESB en að þeir hefðu samþykkt að íslensk stjórnvöld sæktu um aðild og um leið að fara í aðildarviðræður og leyfa svo þjóðinni að skera úr um málið. Við þetta eigi menn að standa, annað sé ótrúverðugt.
Jón Baldvin hefur lengi verið þeirrar skoðunar að hagsmunum Íslands sé betur borgið innan Evrópusambandsins en utan."
Eldri færslur
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Evrópusamtökin-heimasíða Heimasíða Evrópusamtakanna
- Aðildarviðræður við ESB
- Já-Ísland
- Evrópustofa Upplýsingar um ESB og Evrópumál
- Evrópusambandið-ESB
- Utanríkisráðuneytið
- Sendiráð ESB á Íslandi Sendiráð ESB á Íslandi
- Meirihlutaálit Utanríkismálanefndar Alþingis
- Skýrsla Evrópunefndar
- RÚV:ESB-vefur
- Uppl. fyrir blaðamenn
- Sterkara Ísland
- FRBL-Umræða-Leiðarar
- European Daily Fréttir frá Evrópu
- BBC-Evrópa
- EU-Observer
- EUtube ESB á you tube
- Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg.
- Evrópuskrifstofan
- EurActiv-Fréttir um ESB
- Euranet (Útvarp)
- Euronews
- Evrópusíða UTN Evrópusíða utanríkisráðuneytisins
- Ungt fólk og ESB Ungt fólk og ESB
- ESB-umfjöllun MBL
Fréttabréfið
Fréttabréf Evrópusamtakanna
Bloggvinir
- Arna Lára Jónsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Daði Einarsson
- Dofri Hermannsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Fararstjórinn
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðlaugur Kristmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Hinrik Már Ásgeirsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreinn Hreinsson
- Jón Gunnar Bjarkan
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Júlía Margrét Einarsdóttir
- Loopman
- Magnús Már Guðmundsson
- Marta B Helgadóttir
- Sveinn Arnarsson
- Tómas Þóroddsson
- Vefritid
- gudni.is
- Ágúst Hjörtur
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Rúnar Þorvaldsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Arnar Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Barði Bárðarson
- Björn Halldórsson
- Brattur
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- ESB
- Eva Benjamínsdóttir
- Eva G. S.
- Eyjólfur Sturlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðlaugur Hermannsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Heiðar Lind Hansson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Sigurðsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kama Sutra
- Kjartan Jónsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- Natan Kolbeinsson
- Óðinn Kári Karlsson
- Óskar Þorkelsson
- Ragnar G
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sema Erla Serdar
- Sigurður M Grétarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Sumarliði Einar Daðason
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Ungir evrópusinnar
- Þarfagreinir
Athugasemdir
Orð Jóns Bjarnasonar eru algerlega rökrétt, logið var að okkur af flokki Jóhönnu Sigurðardóttur. Jón Hannibalsson fer með brenglanir og falsanir. Hann hefur líka logið í opinberu útvarpi og farið með rangfærslur í fjölmiðlum um Icesave. Og í Icesave-málinu hefur hinn hálærði Sigurður Líndal tekist á við rangfærslur hans. Það hefur skýrt komið fram að engar varanlegar undanþágur á nokkrum sköpuðum hlut fást í Evrópuríkinu. Og fyrir utan það að heilsteyptur maður selur ekki fullveldi lands síns fyrir neitt í heiminum.
Massive interference and deception by the EU Commission in Ireland's Lisbon referendum re-run
Mon, 28/09/2009 - 00:26 — admin-bby John Anthony Coughlan, Dublin, Sunday 27th September 2009
There has been massive interference by the European Commission in Ireland’s Lisbon referendum re-run over the past month, as never happened before in the country’s EU referendums. The re-run referendum takes place on Friday next.
This culminated in a 16-page propaganda Supplement on the EU being inserted in every Irish Sunday newspaper today. This must have cost several million euros - using European and Irish taxpayers’ money to influence Irish voters to ratify the Lisbon Treaty and in the process expand the power and functions of the Brussels Commission itself.
The European Commission is acting unlawfully under European law, as the Commission has no function whatever in relation to the ratification of new Treaties. These are exclusively a matter for the EU Member States, which are called upon to ratify new Treaties “in accordance with their own constitutional procedures”. The EU Commission’s functions relate only to Treaties that have been already ratified.
Elle_, 28.8.2010 kl. 00:52
27.8.2010 (í dag):
Mesta hagvaxtaraukning í Bretlandi frá árinu 2001
Þorsteinn Briem, 28.8.2010 kl. 00:54
27.8.2010 (í dag):
Seðlabankastjóri Bandaríkjanna reynir að blása lífi í bandarískt efnahagslíf
Þorsteinn Briem, 28.8.2010 kl. 00:59
Hér er ÞINGRÆÐI og eftir alþingiskosningarnar í fyrra, þar sem Sjálfstæðisflokkurinn TAPAÐI NÍU ÞINGMÖNNUM, var ríkisstjórninni FALIÐ af þingmönnum úr ÖLLUM flokkum að SÆKJA UM AÐILD að Evrópusambandinu.
Og meirihluti Alþingis ákvað jafnframt að greidd yrðu atkvæði um AÐILDARSAMNINGINN í ÞJÓÐARATKVÆÐAREIÐSLU.
Þorsteinn Briem, 28.8.2010 kl. 02:43
Það hefir líklega einhvað brenglast heilinn í Jóni Baldvini Hannibalssyni á Togaraárunum hans hér fyrrum. Maður komin af vestfirsku aðalskyni sem vill gefa sjálfstæði land síns Íslands er ekki með öllu mjalla. Það að bera hag af einhverju á við hag okkar innanlands en ekki ölmusu frá ESB eins og sumir eru að þiggja og hver veit að Jón sé á spena ESB
Valdimar Samúelsson, 28.8.2010 kl. 08:37
Það þekkja allir landsmenn hug Jóns Baldvins Hannibalssonar til ESB. Því kemur ekki á óvart þó hann taki sér penna í hönd og riti niður smá meðmælabréf.
Jón Baldvin sagði fyrir um það bil ári síðan að best væri að fresta umsóknarferlinu um tíma og vinna málinu frekara fylgi hér heima. Mjög skynsamlega mælt, enda er Jón Baldvin ekki heimskur.
Nú sér hann að flokksfélagi sinn, Jóhanna Sigurðardóttir, ætlar ekki að þiggja þetta ráð og því finnst honum skylda sín að leggja málinu lið.
Því miður fyrir aðildasinna er hjálp frá einlægum aðildarsinna ekki til þess fallin að auka fylgið eða snúa þeim óákveðnu.
Jón Baldvin hefur mikla þekkingu á utanríkismálum, ekki síst evrópumálum, því á hann auðveldara með að sigta út það sem gott er frá því sem verra er fyrir okkur. Við megum því búast við mörgum og löngum greinum eftir hann í fjölmiðlum næstu misseri, þar sem hann dásamar ESB og telur upp allt það góða við aðild sem hugsast getur. Hann mun hins vegar sleppa að nefna það slæma fyrir okkur.
Þetta mun hugsanlega hafa áhrif á einhverja en flestir sjá þó í gegn um slíkan málflutning.
Gunnar Heiðarsson, 28.8.2010 kl. 09:23
Í Eyjum stóri aftur hvellur,
Árni í sömu gryfju fellur,
feykilegar furðu dellur,
fyrir neðan allar hellur.
Þorsteinn Briem, 28.8.2010 kl. 12:27
Auðvitað er þetta rétt hjá Baldvin.
Það lítur þannig út að sjallar sumir séu ekkert með fullu vti.
Þarf nú ekkert að deila um það varðandi suma andsinna.
Ómar Bjarki Kristjánsson, 28.8.2010 kl. 12:40
Ég ætla að leiðrétta nokkra NEI-sinna.
Ísland missir ekki sjálfstæðið við inngöngu í ESB.
Sleggjan og Hvellurinn, 28.8.2010 kl. 12:45
Valdimar Samúelsson,
Í þínum sporum myndi ég nú ekki totta mikið spena Sjálfstæðisflokksins, flokks með mikla júgurbólgu.
Þorsteinn Briem, 28.8.2010 kl. 13:04
Ég tel það hið besta mál fyrir €vrópusinna að Heimssýnarmenn og aðrir heimóttahneigðir eigi sem flesta talsmenn af sauðahúsi Jóns Bjarnasonar.
Brjánn Guðjónsson, 28.8.2010 kl. 14:46
"Mér heyrðist svartur ullarlagður detta!"
Þorsteinn Briem, 28.8.2010 kl. 14:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.