Leita í fréttum mbl.is

Örvæntingarfullur Ásmundur Einar

Ásmundur Einar DaðasonNei-sinni númer eitt á Íslandi, Ásmundur Einar Daðason,  neitar að horfast í augu við staðreyndir: Flokksráð hans eigin flokks felldi tillögu um að hætta við umsóknar og viðræðuferlið sem hafið er við ESB. Þetta sést best í fréttum Stöðvar tvö í kvöld, en textafrétt má sjá hér. Svo virðist sem Ásmundur geti ekki sætt sig við lýðræðið inna hans eigin flokks.

Spurning er hvort öldurnar lægi innan VG?

VG vill ekki með neinu móti stuðla að því að fyrsta "norræna velferðarstjórnin" falli. Sem er skiljanlegt. Slíkt myndi hafa hörmulegar afleiðingar í för með sér fyrir flokk eins og VG. VG myndi "falla á prófinu."

En í hverju er velferðin fólgin? Lækkun vaxta, þverrandi verðbólga (sem hvortveggja helst!), nothæfur gjaldmiðill, sem stuðlar að fjárfestingum og alþjóðaviðskiptum, aukin samkeppni og lægra vöruverð, eru sennilega mestu velferðarmál þessarar þjóðar.

Þetta fæst með samtvinnun íslensks samfélags í samfélag þjóðanna. Evrópa liggur þar næst, enda um 70-80% allra viðskipta okkar við Evrópu.

Einangrunarsinnar berja hinsvegar höfðinu í steininn, varðhundar hins óbreytta ástands gelta sem aldrei fyrr. 

Fólk sem aðhyllist skynsemishyggju sér í gegnum málflutning þeirra. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnlaugur I.

Þið segið að svo virðist sem Ásmundur Einar Daðason geti ekki sætt sig við lýðræðið innan síns eigin flokks, þetta er alrangt hjá ykkur.

Frekar að Ásmundur Einar geti ekki sætt sig við ofríkið og flokksræðið sem meirihluti stuðningsmanna flokksins er beittur af flokksforystunni í þessum ESB hrunadansi þeirra með Samfylkingunni. Þetta skýrist m.a. af því að:

1. Í fyrsta lagi hefur Landsfundur Flokksins sem er æðsta vald hans marg lýst yfir eindreginni andstöðu við ESB aðild og ályktað um að hagsmunum Íslands sé best borgið sem sjálfstæðu og fullvalda ríkis utan ESB.  Þannig ályktaði reyndar þessi Flokksráðsfundur líka.

Þetta "Fokksráðs" apparat er alls ekki hægt að kalla neina sérlega lýðræðislega stofnun sem endurómi vilja hinns almenna kjósenda VG eða grasrótarinnar. Þetta er miklu frekar þannig að þarna getur flokksforystan og helsta elítan þeirra enn frekar hert tök sín á völdunum og þeirri stefnu sem þeir vilja fara.

Flokksráðið er nánast handvalið elítu-lið og ekkert lýðræðislegt við þesa 60 til 70 manna ráðstefnu.

Í þessu svokallaða Flokksráði sitja sjálfkrafa: Þriggja manna stjórn flokksins ásamt framkvæmdastjóra og helsta starfsliði flokksins. Síðan sitja þarna líka sjálfkjörnir allir 15 þingmenn flokksins og jú líka a.m.k. jafnmargir varaþingmenn. Þá eru ótaldir örfáir af fyrrverandi þingmönnum flokksins sem fyrir kurteysis sakir fá að sitja þessa samkomu.

Svo koma sérvaldir og einstaka kjörinn fulltrúi frá helstu flokksfélögum og kjördæmisráðum. Yfirleitt eru þetta sjálfkjörnir aðilar þ.e. formenn einstakra flokksfélaga eða Kjördæmisráða.

Ég veit að Ásmundur og félagar munu hafa fullan sigur þegar næsti Landsfundur VG verður kallaður saman. Það er hinn eini raunverulegi lýðræðis vetvangur flokksins. Þá mun frekari aðildar og aðlögunarferli verða hafnað með öllu og þessu vísað til þjóðarinnar í beina og milliliðalausa þjóðaratkvæðagreiðslu.

Samfylkingin mun þá geta sprengt þessa stjórn ef þeir þora það og ef hún verður enn lifandi þá. En þeir vita sem er að þeir sitja einangraðir og berangri um ESB innlimunina og enginn mun vilja styðja þá eða vinna með þeim að áframhaldandi ESB vegferð.

Því þeir hafa orðið illilega viðskila við þjóð sína !

Gunnlaugur I., 21.11.2010 kl. 12:06

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

Þorsteinn Briem, 21.11.2010 kl. 16:37

3 Smámynd: Þorsteinn Briem

"Samfylkingin er einangruð á Alþingi sem eini ESB-flokkurinn."

Heimssýn sendir bréf til útlanda


Ályktun flokksþings framsóknarmanna í fyrra um aðildarviðræður við Evrópusambandið:

"Markmið

Að Ísland hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið á grundvelli samningsumboðs frá Alþingi sem tryggi hagsmuni almennings og atvinnulífs og þá sérstaklega sjávarútvegs og landbúnaðar.

Þá er fullveldi og óskorað forræði Íslendinga yfir auðlindum þjóðarinnar grundvallarkrafa í þeim viðræðum.

Viðræðuferlið á að vera opið og lýðræðislegt og leiði viðræðurnar til samnings skal íslenska þjóðin taka afstöðu til aðildarsamnings í þjóðaratkvæðagreiðslu í kjölfar upplýstrar umræðu.

Skilyrði


• Skýr og einhliða úrsagnarréttur, sem er þegar viðurkenndur í aðalsáttmála ESB, verði hluti aðildarsamnings.

• Staðfest verði að Íslendingar einir hafi veiðirétt innan íslenskrar fiskveiðilögsögu og að fiskveiðistjórnun verði áfram innanríkismál Íslendinga, enda styðjist hún við reglur ESB um stöðug hlutföll, nálægðarreglu og Lúxemborgarsamkomulagið. Ísland verði sjálfstæður aðili að samningum um flökkustofna.

• Fæðuöryggi þjóðarinnar verði tryggt og viðurkennd nauðsyn á sérstökum ákvæðum vegna fámennis þjóðarinnar.

• Viðurkennt verði að íslenskur landbúnaður sé heimskautalandbúnaður.

• Framleiðsla og úrvinnsla íslenskra búfjárstofna verði tryggð ásamt sérstöðu og hreinleika íslenskra búfjárstofna.

• Staðfest verði að vegna aðstæðna á Íslandi og fámennis þjóðarinnar hafi Íslendingar varanlegan rétt til að setja lög um forgangsrétt manna með lögheimili og fasta búsetu á Íslandi til að eiga ráðandi hlut í jarðeignum, lóðum, fasteignum og atvinnufyrirtækjum, enda styðjast slík ákvæði við núgildandi reglur á Álandseyjum, Möltu, Azoreyjum og víðar innan ESB.

• Í upphafi viðræðna verði gerður stöðugleikasamningur við Evrópska seðlabankann sem tryggi stöðugt gengi íslensku krónunnar þar til Íslendingar taka upp evru.

• Tekið verði tillit til stöðu íslensks efnahagslífs við umbreytingu peninga- og gjaldeyrismála á Íslandi.

• Ákvæði verði um varðstöðu um íslenska þjóðmenningu, þjóðtungu og þjóðhætti á Íslandi. Íslenska verði viðurkennt sem eitt hinna opinberu tungumála ESB."

Ályktun flokksþings Framsóknarflokksins um aðildarviðræður við Evrópusambandið

Þorsteinn Briem, 21.11.2010 kl. 16:41

4 Smámynd: Þorsteinn Briem

Þingmenn framsóknarmanna sem greiddu atkvæði með þingsályktun um aðildarumsókn að Evrópusambandinu:

Birkir Jón Jónsson, Guðmundur Steingrímsson og Siv Friðleifsdóttir.

Þingmenn vinstri grænna sem greiddu atkvæði með aðildarumsókninni:


Álfheiður Ingadóttir, Árni Þór Sigurðsson, Bjarkey Gunnarsdóttir (varamaður Björns Vals Gíslasonar), Katrín Jakobsdóttir, Lilja Mósesdóttir, Steingrímur J. Sigfússon, Svandís Svavarsdóttir og Ögmundur Jónasson.

Einnig greiddu atkvæði með aðildarumsókninni, auk allra þingmanna Samfylkingarinnar, sjálfstæðismaðurinn Ragnheiður Ríkharðsdóttir og Þráinn Bertelsson, utan þingflokka.

Sátu hjá:


Guðfríður Lilja Grétarsdóttir
og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.

Þorsteinn Briem, 21.11.2010 kl. 16:47

5 Smámynd: Þorsteinn Briem

"Samfylkingin [...] beið afhroð í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum þann 29. maí síðastliðinn, sem og VG [Vinstri grænir]."

Heimssýn sendir bréf til útlanda


Sjálfstæðisflokkurinn tapaði NÍU þingmönnum í alþingiskosningunum í fyrra og Framsóknarflokkurinn tapaði fimm þingmönnum í alþingiskosningunum 2007.

Þorsteinn Briem, 21.11.2010 kl. 16:49

6 Smámynd: Þorsteinn Briem

ÍSLAND OG VERÐTRYGGING.

"Verðtrygging er algengust í löndum sem styðjast við veikan gjaldmiðil og þar sem mikil ÓVISSA er talin um þróun verðlags. Við þau skilyrði er ólíklegt að mikill áhugi sé á að gera langtímasamninga í viðkomandi mynt án verðtryggingar.

Í löndum sem styðjast við sterka gjaldmiðla og hafa langa sögu um nokkuð góðan árangur í baráttu við verðbólgu er hins vegar algengt að gerðir séu langtímasamningar í viðkomandi mynt, jafnvel með föstum vöxtum."

Gylfi Magnússon um verðtryggingu lána

Þorsteinn Briem, 21.11.2010 kl. 17:07

7 Smámynd: Þorsteinn Briem

HÚSNÆÐISLÁN Í SVÍÞJÓÐ:

Handelsbanken - Aktuella boräntor

Þorsteinn Briem, 21.11.2010 kl. 17:09

8 Smámynd: Þorsteinn Briem

VERÐTRYGGT 20 MILLJÓNA KRÓNA JAFNGREIÐSLULÁN TEKIÐ HJÁ ÍBÚÐALÁNASJÓÐI TIL 20 ÁRA MEÐ 5% VÖXTUM, MIÐAÐ VIÐ 5% VERÐBÓLGU Á LÁNSTÍMANUM OG MÁNAÐARLEGUM AFBORGUNUM:

ÚTBORGUÐ FJÁRHÆÐ:

Lánsupphæð 20 milljónir króna.


Lántökugjald 200 þúsund krónur.

Útborgað hjá Íbúðalánasjóði 19,8 milljónir króna.

Opinber gjöld 301 þúsund krónur.

Útborguð fjárhæð 19,5 milljónir króna.


HEILDARENDURGREIÐSLA:

Afborgun 20 milljónir króna.

Vextir 11,7 milljónir króna.

VERÐBÆTUR 22,1 MILLJÓN KRÓNA.

Greiðslugjald 18 þúsund krónur.


SAMTALS GREITT 53,8 MILLJÓNIR KRÓNA.

Meðalgreiðslubyrði Á MÁNUÐI allan lánstímann 224 þúsund krónur.

EFTIRSTÖÐVAR BYRJA AÐ LÆKKA EFTIR 72. greiðslu, eða SEX ÁR.

Þorsteinn Briem, 21.11.2010 kl. 17:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband