Leita í fréttum mbl.is

Umhverfismál á dagskrá - opinn fundur í Iðnó - í beinni á www.jaisland.is

Minnum aftur á þetta! 

Opinn fundur um umhverfismál verður haldinn á morgun laugardag ávegum samtakannaJá Ísland.

Í kjölfarið af ábendingum frá fólki af landsbyggðinni sem lýsti miklum áhuga á fundinum hefur verið ákveðið að sýna fundinn í beinni útsendingu hér á vefnum www.jaisland.is


Fundurinn fer fram sem fyrr segir í Iðnó kl 11 – 13 og ber fyrirsögnina -  Loftið, sólin, sjórinn og fjöllin – hvað gerir ESB fyrir umhverfismálin? 

Á fundinum tala Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra, Árni Finnsson formaður Náttúruverndasamtaka Íslands, Páll Ásgeir Ásgeirsson leiðsögumaður og Þórunn Sveinbjarnardóttir fyrrverandi umhverfisráðherra. Fundastjóri er Björg Eva Erlendsdóttir framkvæmdastjóri Norðurlandasamstarfs Vinstri – Grænna flokka.

 Dagskrá fundarins:

Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra:

Umhverfismál, Evrópusambandið og EES samningurinn

 Árni Finnsson, formaður Náttúruverndasamtaka Íslands:
Hvaða erindi á Ísland í ESB?

 Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi umhverfisráðherra
 um umhverfisstefnu Evrópusambandsins

 Páll Ásgeir Ásgeirsson, rithöfundur og leiðsögumaður:
 Enga merkimiða takk

 Fundastjóri
 Björg Eva Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri Norðurlandasamstarfs Vinstri – Grænna flokka.

Allir velkomnir


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Er allt þetta vinstra fólk ESB-innlimunarsinnar? (já, ég spyr í alvöru, þótt Svandís sé þarna með, enda hygg ég Svavar föður hennar í þeim hópi, rétt eins og Árna Þór Sigurðsson.)

Jón Valur Jensson, 10.9.2011 kl. 14:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband