11.12.2011 | 21:08
Af lífeyrisskatti og byggðamálum
Fram hefur komið í fréttum að ríkistjórnin hyggst leggja á skatt á hreinar eignir lífeyrissjóðanna, til að greiða niður hjá öðrum, eða eins og segir á RÚV: "Nýr skattur á lífeyrissjóði verður til þess að lífeyrisinneign þeirra sem hafa ekki efni á eigin húsnæði rennur til að greiða niður vexti þeirra sem lent hafa í vandræðum við húsnæðiskaup."
Þetta er aðeins ein birtingarmynd af því skuggalega vaxtaumhverfi sem til staðar er hér á landi, en eins og komið hefur fram í fréttum eru vextir husnæðiseigenda hér á landi um tvöfalt hærri en í Evrópu. Þetta myndi t.d. lagast með upptöku alvöru gjaldmiðils, en eins og allir vita keyrir krónan upp vaxtastigið hér á landi.
Einnig hefur komið fram í fréttum að nánast engar framkvæmdir verða á sviði jarðgangagerðar næstu þrjú árin! Allt sett á salt.
Byggðaáætlanir ESB gera ráð fyrir að hægt sé að styrkja framkvæmdir sem þessar í formi mótframlags hjá viðkomandi aðildarríki (t.d. Brenner-járnbrautagöngin í Austrurríki, 55 km. löng).
Enda eru t.d. menn á Vestfjörðum byrjaðir að hugsa sem svo: "Það er kannski bara best að ræða beint við Brussel i sambandi við byggðamál." Því það er viðurkennd staðreynd að hér á landi er nánast engin byggðastefna rekin, aðeins "vísir" að slíkri stefnu. T.d. er viðurkennt að ENGIN stefna sér til fyrir tiltekin svæði! Sjá frétt um þetta hér.
Byggðastefna ESB felur í sér margskonar möguleika til uppbyggingar hér landi.
Eldri færslur
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Evrópusamtökin-heimasíða Heimasíða Evrópusamtakanna
- Aðildarviðræður við ESB
- Já-Ísland
- Evrópustofa Upplýsingar um ESB og Evrópumál
- Evrópusambandið-ESB
- Utanríkisráðuneytið
- Sendiráð ESB á Íslandi Sendiráð ESB á Íslandi
- Meirihlutaálit Utanríkismálanefndar Alþingis
- Skýrsla Evrópunefndar
- RÚV:ESB-vefur
- Uppl. fyrir blaðamenn
- Sterkara Ísland
- FRBL-Umræða-Leiðarar
- European Daily Fréttir frá Evrópu
- BBC-Evrópa
- EU-Observer
- EUtube ESB á you tube
- Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg.
- Evrópuskrifstofan
- EurActiv-Fréttir um ESB
- Euranet (Útvarp)
- Euronews
- Evrópusíða UTN Evrópusíða utanríkisráðuneytisins
- Ungt fólk og ESB Ungt fólk og ESB
- ESB-umfjöllun MBL
Fréttabréfið
Fréttabréf Evrópusamtakanna
Bloggvinir
- Arna Lára Jónsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Daði Einarsson
- Dofri Hermannsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Fararstjórinn
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðlaugur Kristmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Hinrik Már Ásgeirsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreinn Hreinsson
- Jón Gunnar Bjarkan
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Júlía Margrét Einarsdóttir
- Loopman
- Magnús Már Guðmundsson
- Marta B Helgadóttir
- Sveinn Arnarsson
- Tómas Þóroddsson
- Vefritid
- gudni.is
- Ágúst Hjörtur
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Rúnar Þorvaldsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Arnar Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Barði Bárðarson
- Björn Halldórsson
- Brattur
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- ESB
- Eva Benjamínsdóttir
- Eva G. S.
- Eyjólfur Sturlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðlaugur Hermannsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Heiðar Lind Hansson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Sigurðsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kama Sutra
- Kjartan Jónsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- Natan Kolbeinsson
- Óðinn Kári Karlsson
- Óskar Þorkelsson
- Ragnar G
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sema Erla Serdar
- Sigurður M Grétarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Sumarliði Einar Daðason
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Ungir evrópusinnar
- Þarfagreinir
Athugasemdir
Nefndarálit meirihluta utanríkismálanefndar Alþingis um aðild Íslands að Evrópusambandinu:
Byggðamál:
"Er einboðið að sveitarfélögin gegni lykilhlutverki í viðræðum um byggðamál, enda verða hagsmunir sveitarfélaga og byggða ekki aðgreindir. Að mati meiri hlutans þarf að tryggja byggða-, umhverfis-, atvinnu-, og nýsköpunarstuðning til dreifðra byggða.
Allt frá því að stækkunarferli Evrópusambandsins hófst í byrjun sjöunda áratugar síðustu aldar hefur sambandið haft í forgrunni efnahagslega uppbyggingu á þeim svæðum aðildarríkjanna sem lakast standa efnahagslega.
Nú er gert ráð fyrir að á tímabilinu 2007 til 2013 verði varið alls 350 milljörðum evra til málaflokksins.
Stærsti hluti þess fjár rennur til nýrra ríkja Evrópusambandsins í Austur-Evrópu sem lakast standa efnahagslega, auk Spánar, Portúgals, Grikklands og Möltu.
Auk þess eru verulegir fjármunir til ráðstöfunar í öðrum aðildarríkjum Evrópusambandsins á tilteknum forsendum sem meðal annars mundu ná til Íslands að óbreyttum reglum.
Meiri hlutinn bendir á að Ísland hefur lagt sitt af mörkum í þessu efni allt frá gildistöku EES-samningsins með fjárframlögum í þróunarsjóð EFTA sem veitt hefur fjármagn til þessara sömu ríkja og svæða innan Evrópusambandsins.
Hins vegar hafa svæði á Íslandi í sambærilegri stöðu ekki notið aðgangs að slíku fjármagni með sama hætti."
Þorsteinn Briem, 12.12.2011 kl. 00:14
ÍSLENSK SVEITARFÉLÖG Í EVRÓPUSAMBANDINU.
RÚMLEGA ÞRIÐJUNGI af fjárlögum Evrópusambandsins, um 347 milljörðum evra, verður varið til BYGGÐAMÁLA á tímabilinu 2007-2013.
Byggðaþróunarsjóður.
Sjóðnum er ætlað að jafna stöðu einstakra svæða. Áhersla er til dæmis lögð á nýsköpun í þekkingariðnaði og rannsóknum, umhverfismál og samgöngur en sérstök áhersla er lögð á dreifbyggð svæði og erfið.
Samstöðusjóður.
Sjóðnum er ætlað að styrkja ríki sem verða fyrir verulegu tjóni af völdum náttúruhamfara, til dæmis veðurs.
Aðlögunarsjóður.
Sjóðnum er ætlað að styrkja væntanleg aðildarríki og veita þeim aðstoð við að undirbúa og uppfylla ýmis nauðsynleg skilyrði fyrir inngöngu í Evrópusambandið.
Félagsmálasjóður.
Sjóðnum er ætlað að jafna félags- og fjárhagslega stöðu íbúa í álfunni. Áhersla er lögð á ýmiss konar menntun og að styrkja stöðu hópa sem eiga undir högg að sækja, til dæmis innflytjenda, fatlaðra, ungs og gamals fólks á vinnumarkaði.
Landbúnaðarsjóður.
Sjóðurinn skiptist í tvennt, annars vegar er um að ræða styrki til bænda og hins vegar styrki til dreifðra byggða.
Styrkir til sjávarbyggða.
Evrópusambandið veitir styrki til sjávarbyggða úr sjóði sem heitir European Fisheries Fund og stuðningurinn byggir á fjórum stoðum:
• Aðlögun flotans.
• Fiskeldi, vistvænar veiðar, vöruþróun og markaðssetning.
• Veiðistjórnun og öryggismál.
• Stuðningur við byggðir sem eru að verulegu leyti háðar fiskveiðum og til að stuðla þar að fjölbreyttari atvinnuvegum.
Íslensk sveitarfélög í Evrópusambandinu
Þorsteinn Briem, 12.12.2011 kl. 00:16
Aukin áhrif íslenskra sveitarfélaga í Evrópusambandinu - Mastersritgerð 2009
Þorsteinn Briem, 12.12.2011 kl. 00:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.