Leita í fréttum mbl.is

Danskir atvinnurekendur styðja upptöku Evrunnar

KaupmannahöfnFrétt á www.visir.is hefst svona: "Samtök atvinnulífsins í Danmörku (Dansk Industri) eru enn þeirrar skoðunar að upptaka evrunnar væri í þágu hagsmuna dansks efnahagslífs, þrátt fyrir umrótið á evrusvæðinu. Þetta segir Karsten Dybvad, framkvæmdastjóri samtakanna.

„Við höfum ekki skipt um skoðun,“ svaraði Dybvad þegar Fréttablaðið spurði hann hvort Dansk Industri talaði enn fyrir upptöku evru. „Í skoðanakönnunum sjáum við að forystumönnum fyrirtækja sem vilja taka upp evru hefur fækkað frá því sem var, en um leið sjáum við aukinn stuðning við tengingu dönsku krónunnar við evruna.“

Dybvad segist telja að mikil andstaða við upptöku evrunnar í Danmörku samkvæmt skoðanakönnunum sé vegna þeirrar óvissu, sem ríki á evrusvæðinu. „Ef maður styngi upp á því að hafa þjóðaratkvæðagreiðslu um evruna á morgun, myndi fólk sennilega segja manni að bíða hægur og sjá hvernig mál þróast. En við styðjum áfram upptöku evru.“"

Öll fréttin


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Danmörk er útkjálki Þýskalands og hefur verið lengi.Nei við ESB.

Sigurgeir Jónsson, 16.1.2012 kl. 21:44

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

"Denmark: the Danish kroner joined ERM II on 1 January 1999, and observes a central rate of 7.46038 to the euro with a narrow fluctuation band of ±2.25%."

Þorsteinn Briem, 16.1.2012 kl. 22:53

3 Smámynd: Þorsteinn Briem

"FÆREYSKA KRÓNAN" ER BUNDIN GENGI EVRUNNAR.

"Færeyska krónan er jafngild dönsku krónunni.

Gengisbinding dönsku krónunnar við evruna nær því einnig til Færeyja - og Grænlands.
"

Þorsteinn Briem, 16.1.2012 kl. 22:55

4 Smámynd: G. Tómas Gunnarsson

Ekki að það skipti höfuðmáli, en mig minnir einhvern veginn að Dansk Industri, séu eins og nafnið bendir til séu Samtök Iðnaðarins og séu meðlimir í heildarsamtökum atvinnurekenda eða atvinnuliífsins í Danmörku.  Mig minnir að það séu rúmlega 10 önnur samtök í þeim heildarsamtökum.  En hérna er sökin liklega Vísis, en það liggur mörgum á að boða fagnaðareriendið þar.

G. Tómas Gunnarsson, 17.1.2012 kl. 00:25

5 Smámynd: Þorsteinn Briem

Samtök atvinnulífsins (SA), ársskýrsla 2010-2011, bls. 27:

"Um áratuga skeið hafa Samtök atvinnulífsins átt mikið og gott samstarf við systursamtök á Norðurlöndum.

Þau eru Dansk arbejdsgiverforening (DA), Dansk Industri (DI), Elinkeinoelämän keskusliitto (EK), Næringslivets Hovedorganisasjon (NHO) og Svenskt Näringsliv (SN)."

DI - Organisation for erhvervslivet:


"Currently 10,000 companies have chosen to join forces within DI."

"DI is a trade organisation and an employers' association."

"DI also has more than 100 member associations, as well as multi-trade communities.

These cover e.g. the food industry; IT, telecommunication, electronics and communication; the building material industry; the energy industry; the service industry; the automotive industry; the Danish Management Board; the wood and furniture industry and the machinery and metal industry. "

Þorsteinn Briem, 17.1.2012 kl. 03:29

6 Smámynd: G. Tómas Gunnarsson

Ég fletti þessu ekki upp í gær, en gerði það nú.  Ég get ekki séð að það sé neinn vafi á því að DI er meðlimur í DA.  DI, enda með u.þ.b. 10.000 meðlimi, en DA sem heildarsamtök með yfir 25.000.  Afskaplega erfitt að réttlæta að þýða Dansk Industri sem Samtök atvinnulífsins, þegar Dansk Arbejdsgiverforening er til staðar.   Ekki frekar en að kalla Samtök iðnaðarins, Samtök atvinnulífsins.

G. Tómas Gunnarsson, 17.1.2012 kl. 14:29

7 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Verðum við íslendingar ekki skynyrðislaust að gera allt eins og Danir, sama hvort eitthvað  mæli sérstaklega með því fyrir íslenskar aðstæður?

Það er á sumum að heyra, að réttlætanleg rök fyrir málunum sé óþarfa aukaatriði, á eyjunni spilltu norður í hafi. Eyjunni, sem skal umfram allt halda dauðahaldi í rótgróna spillinguna á Íslandi, og hundsa rannsóknarskýrslu alþingis og það nauðsynlega uppgjör sem verður að fara fram.

Ísland á greinilega að vera mafíustýrð þrælaeyja áfram, í boði Samfylkingar og Vinstri Grænna, með laumu-stuðning frá gömlum Sjálfstæðis og Framasóknar-"gæðingum" út um víða veröld. Þetta er staðreynd.

Það er eins gott að ekki komi hnökrar á ESB-leiktjöldin, hvað þá að þau verði dregin til hliðar. Það yrði nú aldeilis vandræðalegt, svo ekki sé sterkar að orði kveðið.

Það er aumkunarvert að sumir sjá sér ekki aðra leið færa til að sinna "réttlætinu" á Íslandi, en að ljúga og blekkja. Mikið eru sumir langt leiddir í siðblindri spillingunni.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 17.1.2012 kl. 15:08

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Góð Anna Sigríður, hugsaði það sama.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.1.2012 kl. 16:13

9 Smámynd: Þorsteinn Briem

NÚNA SEMJUM VIÐ ÍSLENDINGAR EKKI ÞAU LÖG SEM VIÐ TÖKUM UPP samkvæmt samningnum um Evrópska Efnahagssvæðið.

Í EVRÓPUSAMBANDINU TÖKUM VIÐ HINS VEGAR ÞÁTT Í AÐ SEMJA LÖG SAMBANDSINS.


Og það er
EKKI meirihluti á Alþingi fyrir því að segja upp aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu og Schengen-samstarfinu.

Hins vegar er MEIRIHLUTI á Alþingi fyrir því að Ísland sæki um aðild að Evrópusambandinu og hér verði greidd atkvæði um aðildarsamninginn í þjóðaratkvæðagreiðslu
.

Þorsteinn Briem, 17.1.2012 kl. 16:52

10 Smámynd: Þorsteinn Briem

Semsagt, andstæðingar aðildar Íslands að Evrópusambandinu vilja að Ísland EIGI ÁFRAM aðild að Evrópska efnahagssvæðinu og Schengen-samstarfinu OG HAFI ÞAR ENGIN ÁHRIF, þrátt fyrir að TAKA UPP FLEST LÖG Evrópusambandsins!!!

Þeir vilja hins vegar EKKI að Ísland fái aðild að Evrópusambandinu og HAFI ÞAR ÁHRIF á löggjöf sambandsins og Schengen-samstarfið!!!

Þorsteinn Briem, 17.1.2012 kl. 16:53

11 Smámynd: Þorsteinn Briem

Hafa einhverjir andstæðingar aðildar Íslands að Evrópusambandinu safnað undirskriftum nýlega gegn aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu og ef svo er hversu margar undirskriftir fengu þeir?!

Þorsteinn Briem, 17.1.2012 kl. 16:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband