Leita í fréttum mbl.is

Lífiđ í landi óvissunnar - "geggjađi heimur krónunnar"

Jón KaldalJón Kaldal, ristjóri Fréttatímans fjallar um (hin óstöđugu) gjaldmiđilsmál í leiđara blađsins ţann 17.2 og segir međal annars:

"Jón Sigurđsson forstjóri Össurar vandađi krónunni ekki kveđjurnar á Viđskiptaţingi á miđvikudag, en ţar var hann ađalrćđumađur. Sagđi Jón ađ međ hina tvískiptu krónu sem gjaldmiđil, verđtryggđa og óverđtryggđa, hefđi ţjóđin aldrei fast land undir fótum. Enda sýnir margra áratuga reynsla svo ekki verđur um villst ađ óstöđugleikinn er ţađ eina sem er stöđugt viđ íslensku krónuna.

Benti Jón á ađ besta leiđin til ađ auđgast á Íslandi sé sú ađ vera á réttum stađ ţegar fjármagnsflutningar verđa í ţessu umhverfi. Ţegar Jón lét ţau orđ falla hefur hann vćntanlega ekki gert ráđ fyrir hversu hratt ný og afgerandi sönnun yrđi fćrđ fyrir ţeim. Ađeins liđu nokkrar klukkustundir frá ţví hann lauk máli sínu ţar til Hćstiréttur kvađ upp dóm um lögmćti endurútreikninga gengislána. Dómurinn var skuldurum í hag. Uppi stóđu sem sigurvegarar ţeir sem kusu ađ taka lán í erlendri mynt – og losna ţar međ viđ verđtryggingu og háa vexti krónulána – jafnvel ţó ţeir hefđu ekki tekjur á móti í erlendum gjaldmiđlum og tóku ţví međvitađa og upplýsta áhćttu.

Allt bendir til ţess ađ dómur Hćstaréttar fćri ţessum skuldurum tugmilljarđa ávinning ţar sem áhrif tveggja stafa verđbólga undanfarinna ára á höfuđstól lána ţeirra eru ţurrkuđ út.

Eftir standa hinir varfćrnari, sem tóku lán í íslenskum krónum og sitja uppi međ verđtryggingarbólginn höfuđstól. Ţeir voru ekki á rétta stađnum, sem Jóni rćddi um í rćđu sinni, og njóta ţví ekki ţessarar tröllvöxnu tilfćrslu. Ţegar er hins vegar hafin umrćđa hvort, og ţá hvernig, sé hćgt ađ rétta hlut verđtryggđu skuldaranna.

Ţetta er í hnotskurn geggjađur heimur íslensku krónunnar."

(Leturbreytingar, ES-bloggiđ)


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Ţađ er kominn tími til ađ almenningur standi upp og mótmćla ţessu óréttlćti og ganga í ESB og taka upp EVRU.

Lćgri vextir, stöđugt gengi og engin verđtrygging.

Mikiđ hagsmunamál fyrir heimilin í landinu.

Hefur hruniđ ekki kennt okkur neitt?

Sleggjan og Hvellurinn, 17.2.2012 kl. 14:31

2 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Nú hafa ESBđ samtökin lokađ fyrir ađ hćgt sé ađ svara hirđskáldi samtakanna, st.br. nafnleysingja sem yrkir međ klofinu í hrifningu ESB ađ séđ verđur.Samtökin bera ţví viđ ađ tími athugasemda sé liđinn viđ ţá fćrslu sem skrifuđ var á eftir ţessari og fjallađi um Vigdísi Hauksdóttur.ESB samtökin virđast óttast málfrelsi nema ţeirra sem hugsa međ klofinu og hnođa saman leirburđi.Verđi samtökunum ađ góđu.Nei og aftur nei viđ ESB .

Sigurgeir Jónsson, 18.2.2012 kl. 16:14

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband