Leita í fréttum mbl.is

Hvað kosta spurningar Vigdísar?

Vigdís HauksdóttirVigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokks, er sennilega með spurulustu (forvitnustu?) þingmönnum frá upphafi lýðveldis! Spurningar hennar hafa kostað ríkissjóð = almenning stórar upphæðir. En Vigdís bara bætir við og á RÚV segir:

"Vigdís Hauksdóttir þingmaður Framsóknarflokks hefur lagt fram tíu fyrirspurnir á Alþingi, það er til allra ráðherra í ríkisstjórn, um nefndir, ráð, verkefisstjórnir og starfshópa.
Þingmaðurinn fer fram á skrifleg svör ráðherranna og vill fá upplýsingar um hvaða nefndir, ráð, verkefnisstjóra og starfshópa hafi verið settir á stofn frá kosningum 2009, hvað margir sitji í þeim hópum, hver sé launakostnaður og hve marga starfsmenn hver nefnd hafi. Þá vill Vigdís fá upplýsingar um hvaða einstaklingar hafi verið skipaðir eða tilnefndir til setunnar og hver launakostnaður þeirra sé."

Ef við gefum okkur að hver fyrirspurn kosti á bilinu 500.000 - 1 milljón, er um að ræða kostnað á bilinu 5-10 milljónir! Takk fyrir.

Sami þingmaður hefur kvartað hástöfum yfir kostnaði vegna ESB-umsóknarinnar og að stjórnsýslan leggist alveg á hliðina útaf henni (sem er reyndar ekki rétt).

En okkur er spurn: Hvað er þá þetta? Hver er tilgangurinn með spurningaflóðinu? Og hver er kostnaðurinn?

Eru kannsi líka þarna spurningar um klæðaburð, tónlistarsmekk eða útiveru nefndarmanna í frítíma sínum? Smile

Án gríns, þetta er eiginlega ekki fyndið lengur!

Er ekki helst skylda/hlutverk þingmanna að setja lög?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Þetta er hræsni á hæsta stigi.

Sleggjan og Hvellurinn, 17.2.2012 kl. 14:33

2 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Það er við hæfi að Evrópusamtökin vitni í  fyrirbrigði sem Ögmundur Jónasson dómsmálaráðherra kallaði nýlega í tveim blaðagreinum "lygafréttastofuna".Lygafréttastofan hefur ekki dregið af sér í áróðri fyrir ESB.Sem betur fer sjá velflestir í gegnum lygarnar sem flæða frá "lygafréttastofunni".Þegar hún verður uppiskroppa með bull, lygar og róg, sem ekki kemur oft fyrir, vitnar hún í DV.Og Evrópusamtökin vitna í það sem Ögmundur kallar "lygafréttastofu.

Sigurgeir Jónsson, 17.2.2012 kl. 21:45

3 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

En sem betur fer er Vigdís Hauksdóttir ekki sofandi á Alþingi og hefur lagt fram fleiri fyrirspurnir til ráðherra en rúv vitnar í.En þeir virðast eiga erfitt með að svara.En það stendur ekki á lygunum.Össur Skarphéðinsson laug því að Alþingi og öllum landsmönnum að hægt yrði að kjósa um ESB aðild innan 2-3  ára þegar sótt var um.Helst lítur ní út firir að ríkisstjórnin ætli að reyna að koma í veg fyrir að Íslendingar fái að kjósa um ESB aðild .Haldu áfram að krefja þessa lygastjórn svara Vigdís.Nei við ESB.

Sigurgeir Jónsson, 17.2.2012 kl. 21:55

4 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Þú vilt semsagt fá samninginn á borðið og kjósa um hann á þessu kjörtímabili.

Þar ert þú og aðrir Evrópusinnar sammála.

Sleggjan og Hvellurinn, 17.2.2012 kl. 22:32

5 Smámynd: Þorsteinn Briem

27.12.2011:

"Í mars næstkomandi verða fleiri samningskaflar opnaðir og svo aftur í júní í lok dönsku formennskunnar í ESB.

Framundan er að takast á við erfiða kafla í samningaferlinu, þar á meðal um sjávarútvegsmál, landbúnaðarmál og umhverfismál.
"

Staðan í viðræðunum um aðild Íslands að Evrópusambandinu

Þorsteinn Briem, 18.2.2012 kl. 01:02

6 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal


Það er dularfullt að þið skulið hafa áhyggjur af kostnað við gæluverk Jóhönnu.  Fláræði:  er ein af staðreindunum um Stjórnarhætti  Jóhönnu Sigurðardóttur kattasmala og  átrúnaðargoðs ykkar.


 Fláræð: = Jóhanna og skástífa hennar  hafa farið mjög ótæpilega með rýra sjóði landans.  Fláræði: lagði af stað með ESB umsókn og sundraði þjóðinni með því, og ekki nóg með það hún sat á sínu rassgati og beið þangað til þræll hennar Fláráður kom því máli í þann farveg sem hún sætti sig við.  Á meðan mátti það fólk sem borgar henni kaup bara bíða og atvinnan hvarf.

Svo vælið þið snuðrandi rakkar Jóhönnu þá kona spyr spurninga sem þið kunnið eingin , Jóhönnu þóknanleg svör við.

Þar með þarf Jóhanna að kaupa sér leigulygara og þeir kosta og þið eruð orðnir að eymingjum.    En það skiptir engu hvað það kostar, og þið verðið endur ræstir.  Enda er ESB svo ódýrt,  kostar ekki neitt nema auðæfi þjóðar.

Hrólfur Þ Hraundal, 18.2.2012 kl. 01:29

7 Smámynd: Theódór Norðkvist

Steini, þú mátt koma með fleiri vísur og færri afrita/líma langhunda.

Theódór Norðkvist, 18.2.2012 kl. 06:20

8 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Á að vera" briem".

Sigurgeir Jónsson, 18.2.2012 kl. 08:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband