9.5.2012 | 16:38
Spá umtalsverðri veikingu krónunnar
Eyjan skrifar:"Gengi íslensku krónunnar mun lækka um 5 prósent á ári út árið 2014, samkvæmt nýrri hagspá greiningardeildar Arionbanka. Veikingin stafar fyrst og fremst af því að afborganir af erlendum lánum éta upp viðskiptajöfnuð.
Davíð Stefánsson, sérfræðingur í greiningardeild Arionbanka, hélt erindi um gengisþróun krónunnar á morgunfundi bankans þar sem meginniðurstöður hagspánnar voru kynntar.
Í erindinu kom fram að viðskiptaafgangur hefur verið langtum minni en áður var gert ráð fyrir. Til að mynda munaði 500 milljörðum króna á spá Seðlabankans árið 2011 og í uppfærðri spá frá því fyrr í ár.
Það sem skiptir mestu máli varðandi þróun gengisins er að erlendar skuldir þjóðarbúsins eru mun hærri en erlendar eignir. Þar af leiðandi erum við að borga mun hærri vexti af þessum skuldum heldur en við erum að fá til baka og munar þar mestu um kostnað við gjaldeyrisvaraforðann sem í ár er 30 milljarðar. Sagði Davíð að þessi kostnaður væri að éta upp viðskiptaafganginn."
Krónan er til vandræða.
Eldri færslur
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Evrópusamtökin-heimasíða Heimasíða Evrópusamtakanna
- Aðildarviðræður við ESB
- Já-Ísland
- Evrópustofa Upplýsingar um ESB og Evrópumál
- Evrópusambandið-ESB
- Utanríkisráðuneytið
- Sendiráð ESB á Íslandi Sendiráð ESB á Íslandi
- Meirihlutaálit Utanríkismálanefndar Alþingis
- Skýrsla Evrópunefndar
- RÚV:ESB-vefur
- Uppl. fyrir blaðamenn
- Sterkara Ísland
- FRBL-Umræða-Leiðarar
- European Daily Fréttir frá Evrópu
- BBC-Evrópa
- EU-Observer
- EUtube ESB á you tube
- Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg.
- Evrópuskrifstofan
- EurActiv-Fréttir um ESB
- Euranet (Útvarp)
- Euronews
- Evrópusíða UTN Evrópusíða utanríkisráðuneytisins
- Ungt fólk og ESB Ungt fólk og ESB
- ESB-umfjöllun MBL
Fréttabréfið
Fréttabréf Evrópusamtakanna
Bloggvinir
- Arna Lára Jónsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Daði Einarsson
- Dofri Hermannsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Fararstjórinn
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðlaugur Kristmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Hinrik Már Ásgeirsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreinn Hreinsson
- Jón Gunnar Bjarkan
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Júlía Margrét Einarsdóttir
- Loopman
- Magnús Már Guðmundsson
- Marta B Helgadóttir
- Sveinn Arnarsson
- Tómas Þóroddsson
- Vefritid
- gudni.is
- Ágúst Hjörtur
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Rúnar Þorvaldsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Arnar Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Barði Bárðarson
- Björn Halldórsson
- Brattur
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- ESB
- Eva Benjamínsdóttir
- Eva G. S.
- Eyjólfur Sturlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðlaugur Hermannsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Heiðar Lind Hansson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Sigurðsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kama Sutra
- Kjartan Jónsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- Natan Kolbeinsson
- Óðinn Kári Karlsson
- Óskar Þorkelsson
- Ragnar G
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sema Erla Serdar
- Sigurður M Grétarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Sumarliði Einar Daðason
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Ungir evrópusinnar
- Þarfagreinir
Athugasemdir
Það hlakkar í ykkur við að tala krónuna niður.
Heimir Lárusson Fjeldsted, 9.5.2012 kl. 20:00
Mikil eru völd Evrópusamtakanna ef þau geta talað upp og niður gengi gjaldmiðla, til að mynda íslensku krónunnar og evrunnar.
Þorsteinn Briem, 9.5.2012 kl. 22:19
SB: Við fílum það í botn! Allir helstu markaðir heims dansa líka eftir okkar höfði :)
Evrópusamtökin, www.evropa.is, 9.5.2012 kl. 22:25
OK!
Þorsteinn Briem, 9.5.2012 kl. 22:29
Hér er krónan að standa sig vel enda fellur hún til að mynda afgang af viðskiptajöfnuði sem er notaður til að greiða niður erlend lán og auka samkeppnishæfni landsins.
Ef Ísland tekur upp aðra mynt þá þurfa stjórnvöld að nota önnur hagstjórnartæki til að fá sömu niðurstöðu.
Það væri áhugavert ef Evrópusamtökin myndu skoða hvort hagsmunasamtök launþega og vinnuveitenda ásamt stjórnvöldum séu tilbúin til þess að skipta úr krónuhagstjórn í evruhagstjórn. Opin fundur eða lítil ráðstefna um þetta væri örugglega af hinu góða.
Lúðvík Júlíusson, 10.5.2012 kl. 08:53
Verð á íslenskum sjávarafurðum hefur verið hátt erlendis undanfarin ár og verður það áfram vegna mikillar eftirspurnar.
Íslenskur sjávarútvegur hefur því enga þörf fyrir gengisfellingu íslensku krónunnar, sem hækkar hér verð á aðföngum, til að mynda skipum, varahlutum, olíu, veiðarfærum og kosti.
Og sömu sögu er að segja af öðrum útflutningsgreinum hér, til að mynda iðnaði og ferðaþjónustu, þar sem lækkun á gengi íslensku krónunnar þýðir til dæmis verðhækkun á bifreiðum, tækjum, varahlutum, olíu og bensíni.
Og í landbúnaði hækkar gengisfelling íslensku krónunnar verð á til að mynda dráttarvélum, olíu, varahlutum, tilbúnum áburði og kjarnfóðri.
Þar af leiðandi hækkar hér verð á sjávarafurðum, iðnaðar- og landbúnaðarvörum, svo og innfluttum byggingavörum, verðbólgan eykst því og öll verðtryggð lán hækka.
Sjómenn jafnt sem forstjórar þurfa þar af leiðandi að greiða hér hærra verð en áður fyrir til dæmis matvörur, bifreiðar, bensín, varahluti og íbúðarhúsnæði.
Allir launamenn krefjast því launahækkunar til að vega upp á móti gengisfellingunni.
Og að sjálfsögðu eru Hádegismórarnir og aðrir "Sannir Íslendingar" hrifnir af því.
Þeim finnst gott að pissa í skóinn sinn.
Það er hlýtt og notalegt.
Þorsteinn Briem, 10.5.2012 kl. 10:02
Í framhaldi af því sem ég sagði hér að ofan að þá virkar evran, fyrir evrusvæðið, eins og krónan gerir fyrir Ísland. Hún veikist og styrkist til að viðhalda jöfnuði á viðskiptum við ríki utan myntsvæðisins. Evran kemur ekki á jöfnuði á viðskipti innan evruríkjanna og þar þurfa stjórnvöld að beita ýmsum aðgerðum til að koma á jöfnuði og verja samkeppnisforskot.
Evran er fljótandi mynt eins og krónan þannig að áhrif gengisbreytinga, til hækkunar og lækkunar verðlags hafa sömu eða svipuð áhrif. Þjóðverjar fóru þá leið að hækka ekki laun til að viðhalda samkeppnisstöðu sinni á meðan aðrar þjóðir fóru aðrar leiðir.
Ég tel ávinninginn af ESB aðild Íslands meiri en ef Ísland stendur fyrir utan. En um breytt viðfangsefni hagstjórnar verður að ræða og þann gríðarlega aga sem stjórnvöld verða að sýna til að verja stöðugleikann, bæði innan eigin ríkja, milli evruríkja og á milli myntsvæða.
Lúðvík Júlíusson, 10.5.2012 kl. 10:19
STAÐAN HÉR Á ÍSLANDI VEGNA ÍSLENSKU KRÓNUNNAR:
MESTA verðbólga í Evrópu,
MIKLU hærri stýrivextir en á evrusvæðinu,
MIKIÐ atvinnuleysi,
gjaldeyrisHÖFT,
GRÍÐARLEGAR erlendar skuldir.
Þorsteinn Briem, 10.5.2012 kl. 10:50
Hér eru góð dæmi um það hvernig hagstjórnin mun breytast við upptöku evrunnar. Die Griechenland Luge
Upptaka annarrar myntar leiðir ekki sjálfkrafa til betri skilyrða. Upptaka evru breytir þeim verkfærum sem stjórnmálamenn hafa til hagstjórnar og þeim viðfangsefnum sem þeir þurfa að takast á við.
Lúðvík Júlíusson, 10.5.2012 kl. 11:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.