Leita í fréttum mbl.is

ESB-reglugerð lækkar verð á gsm og sms - notkun

gsm-símiEyjan segir frá: "Síminn mun lækka reikiverð á gagnaflutningi, símtölum og smáskilaboðum, um allt að 50 prósent þann 1. júlí. Tildrög lækkunarinnar má rekja til nýrrar reglugerðar sem Evrópusambandið hefur samþykkt.

Reglugerðin tekur gildi innan ESB þann 1. júlí. Hún tekur hins vegar ekki gildi á Íslandi fyrr en reglugerðin hefur verið samþykkt í sameiginlegu EES-nefndinni og íslensk stjórnvöld hafa innleitt hana. Það ferli tekur allt að 12 mánuði.

Því er staðan sú að engin löggjöf verður í gildi á Íslandi sem skyldar evrópsk símafélög til að bjóða Símanum lægra heildsöluverð og þar af leiðandi ekki til löggjöf sem krefur íslensk fjarskiptafyrirtæki til þess að bjóða þau hagstæðu verð sem hafa verið í gildi á síðustu árum.

Þess vegna hefur Síminn reynt að endursemja við öll evrópsku fjarskiptafélögin sem fyrirtækið er í viðskiptum við og hafa yfir 90 prósent þeirra samþykkt heildsöluverð til Símans samkvæmt nýju reglugerðinni.

Síminn mun því lækka reikiverð til viðskiptavina sinna sem ferðast innan Evrópu og tekur lækkunin gildi 1. júlí."

ESB hugsar um hagsmuni neytenda.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Örn Ægir Reynisson

Það er nú meira hvað þeir hugsa um hagsmuni íbúa evrulandana eða hitt þó heldur þegar horft er til þess að Evran var hönnuð til að knyja fram samruna Evrópu, rústa fjárhag fólksins og neyða það til meiri samruna. Og í sambandi við símkosnaðinn að þá er verra ef hann hækkar hérna innanlands vegna ákvarðana hjá fjandans bjánum í Brussel algjörlega að óþörfu!

Örn Ægir Reynisson, 11.6.2012 kl. 13:24

2 Smámynd: Örn Ægir Reynisson

Þeir sem hafa vaðið mest um netheima og fjölmiðla með bull og vitleisu í langan tíma sem öllum er orðin ljós eru engir aðrir en þið hér hjá Evrópusamtökunum og Já Ísland ásamt ráðamönnum Samfylkingarinnar sem bera út ESB fögnuðin með bundið fyrir bæði augu.

Örn Ægir Reynisson, 11.6.2012 kl. 13:34

3 Smámynd: Örn Ægir Reynisson

Eruð þið í Evrópusamtökunum og aðrir aðildarsinnar hlyntir því að Ísland verði innlimað í verðandi stórríki Evrópu sem erokratar hafa nú viðurkennt að hafi alltaf staðið til að koma á fót með Evruna að vopni?

Eruð þið ESB aðildarsinnar hlyntir því að Ísland með landhelgi sína og auðlindir afsali sjálfstæði sínu og fullveldi til hins verðandi stórríkis Evrulanda og verði hluti af því ríki?

Örn Ægir Reynisson, 11.6.2012 kl. 13:37

4 Smámynd: Evrópusamtökin, www.evropa.is

Örn: Farðu út og fáðu þér frískt loft, göngutúr eða eitthvað álíka!

Evrópusamtökin, www.evropa.is, 11.6.2012 kl. 13:48

5 Smámynd: Örn Ægir Reynisson

Rökþrota menn

Eyði ekki meiri tíma í þessa vitleysu-Evrukreppan- Fjórða ríkið fallið-það fimmta á leiðinni

Örn Ægir Reynisson, 11.6.2012 kl. 14:01

6 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Er þetta ekki íhlutun í okkar fullveldi?

Ég býst við því að NEI sinnar muna mótmæla þessari lækkun kröftuglega.

Sleggjan og Hvellurinn, 11.6.2012 kl. 17:16

7 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

160 fjölskyldur eru reknar út af heimilum sínum á Spáni á dag, til að bankamafían geti grætt. Almenningur þar gerir sér grein fyrir að afborgunarbyrgði venjulegs fólks mun bara hækka með sama áframhaldi. Almenningur þar hefur ekki efni á hærri greiðslubyrgði.

Heilbrigðiskerfið í Grikklandi er um það bil fallið, og fólk þarf að borga fullt verð (pening sem almenningur á ekki til), fyrir lífsnauðsynleg lyf, til að bankamafían og verðbréfa-braskarar geti grætt.

Allt fyrir friðinn og stórveldið sundraða, sem meira að segja Eiríkur Bergmann er búinn að viðurkenna að sé sundrað. Spurningin er einungis í hversu mörg brot sundraða stórveldið er nú brotnað. Allt fyrir verðbréfamarkað-brenglunina og fallið bankaræningja-fjármálakerfi.

Ég finn mikið til með varnarlausum almenningi í ESB-evruríkjunum, sem eiga sér enga bjargarvon.

Hvernig skyldi AGS og ESB hafa verðtryggt auðinn í sinni "ótæmandi" peningapyngju? Gerðu þeir framtíðar-samning við almættið?

Til hvers er ESB?

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 11.6.2012 kl. 19:58

8 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

ESB og Evrulandið Luxemborg er ríkasta land í heimi.

Í ESB og Evrulandinu Austurríki er 4% atvinnuleysi.

Hér er um 7% atvinnuleysi þrátt fyrir okkar elskulegu krónu og gjaldeyrishöft og landfótta.

Sleggjan og Hvellurinn, 11.6.2012 kl. 20:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband