Leita í fréttum mbl.is

Bara tímaspursmál!

EyjanÞetta var í raun aðeins tímaspursmál, en Eyjan segir frá: "Andlit Adolfs Hitlers er teiknað á holdgerving Evrópusambandsins í skopmynd í Morgunblaðinu í dag.

Höfundur myndarinnar er Helgi Sig en myndin birtist í fjögurra dálka plássi á blaðsíðu 8 í blaðinu í dag.

Myndin sýnir Evrópusambandið liggja á sófa í sálfræðiviðtali hjá sálgreini. Evrópusambandið er hauslaust en heldur á höfði Adolfs Hitlers í kjöltu sinni.

Adolf, tákngervingur Evrópusambandsins samkvæmt myndinni, er látinn segja: „Þetta byrjaði sem tollabandalag og þróaðist út í alræði evrunnar. Nú þegar þetta er allt að liðast í sundur er ég meira sorgmæddur en reiður. Myndirðu segja að aukin samþjöppun valds mundi hjálpa.“

Síðan segir á Eyjunni: "Það hefur löngum verið tabú í rökræðum og þjóðfélagsumræðu á Vesturlöndum eftir stríð að grípa til Hitlers-líkinga í málflutningi. Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmálaráðherra, skrifar af öðru tilefni um Hitlers-líkingar á vef Evrópuvaktarinnar í dag og segir: „þegar andstæðingi er líkt við Adolf Hitler brestur grundvöllur málefnalegra umræðna.“"

Evrópu-andúðin ristir djúpt á hinu kvótafjármagnaða Morgunblaði!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elle_

En hví heitir þessi Brussel-samfylkingar-síða ´Evrópublog´?  Og er undir samtökum sem kalla sig ´Evrópusamtökin´?  Vitið þið í alvöru ekki enn að Brussel-báknið er ekki álfan Evrópa?  Það er ekki heiðarlegt af ykkur að nota þetta nafn, eins og mútustofan ´Evrópustofa´ gerir líka.

Elle_, 9.8.2012 kl. 00:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband