19.2.2013 | 10:57
Tvær áhugaverðar greinar
Vert er að vekja athygli á tveimur greinum í Fréttablaðinu í dag. Í þeirri fyrri spyr Ragnar Hall, lögmaður hvort eigi að "hjakka í sama farinu" og á þar við gjaldmiðilsmálin og þörfina á umræðum um þau á komandi landsfundi Sjálfstæðisflokksins:
"Vissulega hafa verið erfiðleikar í ýmsum ríkjum Evrópusambandsins, og ekki er búið að leysa þau mál öll. Halda stjórnmálamenn hér uppi á Íslandi að við getum leitt hjá okkur vandann á helstu markaðssvæðum okkar með því að halda dauðahaldi í krónuna og verja" hana með gjaldeyrishöftum?
Eitt af gullkornum áranna fyrir hrun var staðhæfingin um að galdurinn á bak við íslenska efnahagsundrið væri sveigjanleiki gjaldmiðilsins. Við héldum uppi fáránlega sterkri" krónu með því að bjóða hærri vexti en tíðkuðust nokkurs staðar annars staðar. Afleiðingar af þessu þekkja allir skuldarar vísitölutryggðra húsnæðislána þó sennilega betur en margir aðrir. Í dag liggur styrkur" krónunnar í því að löggjöf um gjaldeyrishöft kemur í veg fyrir rétta skráningu hennar.
Ástæða er til að hvetja landsfundarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins til þess að taka þessi mál til alvarlegri skoðunar en gert hefur verið innan flokksins til þessa. Þegar öllu er á botninn hvolft er ákvörðun um framtíðargjaldmiðil í landinu langmikilvægasta málið á dagskrá íslenskra stjórnmála nú um stundir."
Í þeirri seinni veltir hagfræðingurinn Þröstur Ólafsson meðal annars fyrir sér hlutverkum hjartans og heilans í Evrópumálunum: "Það mun hafa verið Matthías Johannessen sem svaraði spurningu um afstöðu sína til ESB á þann veg að hjartað segði nei en heilinn já. Þetta svar er kjarninn í viðhorfi margra Íslendinga í þessu máli. Hugsunin sér kostina og greinir gallana en hjartað hýsir óvissuna og óttann. Þessi tvíhyggja milli mannsandans og hjartans er það andskot sem mannskepnan verður að rogast með og velja á milli. Þessi átök leiða af sér viðvarandi óttatilfinningu. Við rekjum mörg stórátök mannkynssögunnar til þess að annar hvor helftin fór hamförum."
Síðan segir Þröstur: "Þessi átök milli heilans og hjartans, hugsunar og tilfinninga, geisa nú hér á landi. Tvær átakafylkingar skírskota til andstæðra hughrifa í baráttu um skoðanir landsmanna um aðildina að ESB. Annars vegar eru það þeir sem reyna að beita rökum skynseminnar fyrir því að aukin velferð okkar og velgengni í framtíð sé háð því að við verðum aðilar að ESB. Reynt er að leggja skynsemismat á kosti og vankanta. Nýta sér m.a. reynslu annarra þjóða. Hins vegar eru það þeir sem skírskota með málflutningi sínum til óttans, til hjartans. Í átökunum um uppkastið 1908 var sagt að aðferð andstæðinga þess væri að vekja upp drauga, skapa grýlur, - þyrla upp ryki og reyna á allar lundir að vekja hræðslu og tortryggni ásamt gömlu vopnunum: skrökinu, hártogunum og blekkingum." Í átökunum nú er búin til hrollvekja þar sem flest eftirsóknarverð gæði hérlendis verða færð útlendingum. Þjóðinni er sagt að niðurstaða úr samningaviðræðunum sé fyrir fram ákveðin og hún sé ekki glæsileg; íslenskur landbúnaður leggist af, fiskimiðin afhent útlendingum og þjóðin verði rænd fullveldinu, sjálfu fjöregginu. Slík framtíðarsýn vekur að sjálfsögðu ótta og geðshræringu, eins og að er stefnt. Gagnvart þessari nístandi ógnvekju á tilfinningasnautt skynsemistal undir högg að sækja."
Eldri færslur
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Evrópusamtökin-heimasíða Heimasíða Evrópusamtakanna
- Aðildarviðræður við ESB
- Já-Ísland
- Evrópustofa Upplýsingar um ESB og Evrópumál
- Evrópusambandið-ESB
- Utanríkisráðuneytið
- Sendiráð ESB á Íslandi Sendiráð ESB á Íslandi
- Meirihlutaálit Utanríkismálanefndar Alþingis
- Skýrsla Evrópunefndar
- RÚV:ESB-vefur
- Uppl. fyrir blaðamenn
- Sterkara Ísland
- FRBL-Umræða-Leiðarar
- European Daily Fréttir frá Evrópu
- BBC-Evrópa
- EU-Observer
- EUtube ESB á you tube
- Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg.
- Evrópuskrifstofan
- EurActiv-Fréttir um ESB
- Euranet (Útvarp)
- Euronews
- Evrópusíða UTN Evrópusíða utanríkisráðuneytisins
- Ungt fólk og ESB Ungt fólk og ESB
- ESB-umfjöllun MBL
Fréttabréfið
Fréttabréf Evrópusamtakanna
Bloggvinir
- Arna Lára Jónsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Daði Einarsson
- Dofri Hermannsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Fararstjórinn
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðlaugur Kristmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Hinrik Már Ásgeirsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreinn Hreinsson
- Jón Gunnar Bjarkan
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Júlía Margrét Einarsdóttir
- Loopman
- Magnús Már Guðmundsson
- Marta B Helgadóttir
- Sveinn Arnarsson
- Tómas Þóroddsson
- Vefritid
- gudni.is
- Ágúst Hjörtur
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Rúnar Þorvaldsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Arnar Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Barði Bárðarson
- Björn Halldórsson
- Brattur
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- ESB
- Eva Benjamínsdóttir
- Eva G. S.
- Eyjólfur Sturlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðlaugur Hermannsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Heiðar Lind Hansson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Sigurðsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kama Sutra
- Kjartan Jónsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- Natan Kolbeinsson
- Óðinn Kári Karlsson
- Óskar Þorkelsson
- Ragnar G
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sema Erla Serdar
- Sigurður M Grétarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Sumarliði Einar Daðason
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Ungir evrópusinnar
- Þarfagreinir
Athugasemdir
Þröstur kom að byggingu Hörpu mað þeim Björgólfum.Ríkiskapitalisti á jötu.Nei við ESB.
Sigurgeir Jónsson, 19.2.2013 kl. 21:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.