3.12.2009 | 10:10
Úlfar mættur með greinaröð í Fréttablaðið!
Búast má við miklum umræðum um kosti og galla Evrópusambandsaðildar í kaffi- og matarboðum jólahátíðarinnar. Þá er þeim mun mikilvægara að hafa staðreyndir á hreinu enda verður sjávarútvegurinn sá málaflokkur sem mestu máli skiptir varðandi útkomu í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu.
Það er því mikið fagnaðarefni að Úlfar Hauksson(mynd), doktorsnemi við HÍ og vélstjóri á Sólbak EA, skrifar góða grein um þennan málaflokk í Fréttablaðið í dag. Úlfar skrifar læsilegan texta og er þar að auki einn helsti sérfræðingur Íslendinga um sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins. Þetta er fyrsta grein af þremur. Úlfar segir meðal annars í greininni:
,,Sameiginleg sjávarútvegsstefna innan ESB í einhverri mynd virðist vera besti vettvangurinn til að semja um þessi mál. Það hefur a.m.k. ekki tekist að sýna fram á annað með afgerandi hætti.
Niðurstaðan er því sú að þeir sem kalla eftir því að stjórn fiskveiða í ESB verði alfarið færð til þjóðríkja afhjúpa í senn vanþekkingu sína á fiskveiðum og á landfræðilegum aðstæðum strandríkja við Norðursjó og nálægum hafsvæðum; höfða til þjóðernistilfinninga en ekki heilbrigðrar skynsemi."
Hægt er að lesa greinina í heild sinni á þessari slóð:
http://www.visir.is/article/20091203/SKODANIR03/934637987
Hægt er að lesa fleiri greinar um sjávartúvegsstefnu ESB á heimasíðu Evrópusamtakanna á
http://www.evropa.is/category/sjavarutvegsmal/
Eldri færslur
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Evrópusamtökin-heimasíða Heimasíða Evrópusamtakanna
- Aðildarviðræður við ESB
- Já-Ísland
- Evrópustofa Upplýsingar um ESB og Evrópumál
- Evrópusambandið-ESB
- Utanríkisráðuneytið
- Sendiráð ESB á Íslandi Sendiráð ESB á Íslandi
- Meirihlutaálit Utanríkismálanefndar Alþingis
- Skýrsla Evrópunefndar
- RÚV:ESB-vefur
- Uppl. fyrir blaðamenn
- Sterkara Ísland
- FRBL-Umræða-Leiðarar
- European Daily Fréttir frá Evrópu
- BBC-Evrópa
- EU-Observer
- EUtube ESB á you tube
- Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg.
- Evrópuskrifstofan
- EurActiv-Fréttir um ESB
- Euranet (Útvarp)
- Euronews
- Evrópusíða UTN Evrópusíða utanríkisráðuneytisins
- Ungt fólk og ESB Ungt fólk og ESB
- ESB-umfjöllun MBL
Fréttabréfið
Fréttabréf Evrópusamtakanna
Bloggvinir
- Arna Lára Jónsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Daði Einarsson
- Dofri Hermannsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Fararstjórinn
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðlaugur Kristmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Hinrik Már Ásgeirsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreinn Hreinsson
- Jón Gunnar Bjarkan
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Júlía Margrét Einarsdóttir
- Loopman
- Magnús Már Guðmundsson
- Marta B Helgadóttir
- Sveinn Arnarsson
- Tómas Þóroddsson
- Vefritid
- gudni.is
- Ágúst Hjörtur
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Rúnar Þorvaldsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Arnar Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Barði Bárðarson
- Björn Halldórsson
- Brattur
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- ESB
- Eva Benjamínsdóttir
- Eva G. S.
- Eyjólfur Sturlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðlaugur Hermannsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Heiðar Lind Hansson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Sigurðsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kama Sutra
- Kjartan Jónsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- Natan Kolbeinsson
- Óðinn Kári Karlsson
- Óskar Þorkelsson
- Ragnar G
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sema Erla Serdar
- Sigurður M Grétarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Sumarliði Einar Daðason
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Ungir evrópusinnar
- Þarfagreinir
Athugasemdir
Miðstýrð sjávarútvegsstefna ESB er einn óskapnaður frá upphafi til enda og hefur leitt til nær algjörs hruns í greininni, eyðingu fiskistofna, sóunar verðmæta og spillingar og sjóðasukks. Marg búið er að reyna að lagfæra og stagla eittthvað í þennan óskapnað en allt ber að sama brunni, ásýnd skepnunnar versnar sífellt.
Bretum var sagt að þeir væru svo stórir í sjávarútvegnum og svo fjölmenn þjóð þegar þeir gengu inn þannig að þeir myndu hafa mikil áhryf á stefnu Sambandsins. Slík loforð gengu síður en svo eftir. Engir eru eins brjálaðir útí vitleyisganginn og Breskir sjómenn og útgerðarmenn.
Fyrir skömmu voru hér á Íslandi forsvarsmenn sjómanna og útgerðarmanna bæði frá Skotlandi og Írlandi og þeir vöruðu okkur mjög alvarlega við því að ganga í ESB. Slíkt myndi aðeins leiða til hörmunga og vesældar fyrir þennan höfuðatvinnuveg þjóðarinnar. Reynsla þeirra væri hörmuleg og enginn leið virtist vera fyrir þá að hafa áhryf á miðstýrða skrifræðisapparatið í Brussel.
Ekki er allt fullkomið í íslenskum sjávarútvegi eða stjórnun hans en þar er nú unnið að jákvæðum breytingum og útvegurinn og öll umgjörð íslensks sjávarútvegs er hrein hátíð miðað við þann óskapnað sem yfirstýring ESB tilskipanakerfisins hefur leytt yfir Evrópskan sjávarútveg.
Allar tilraunir til breytinga og lagfæringa taka mjög langan tíma og verða svo útþynntar í málmiðlunar frumskógi skriffinnanna. ESB apparatið og fatlað stjórnkerfi þess er í raun algerlega ófært um að búa þessum atvinnuvegi aðbúnað sem er nokkurn tímann verður sjálfbær eða lagi. Það hefur reynslan ótvírætt sýnt.
Enda bera engir sem við atvinnuveginn vinna innan ESB minnstu virðingu fyrir þessum ráðum og nefndum og því reyna allir sem vettlingi geta valdið að svindla og fara fram hjá heimskunni og vitleysunni sem frá þessum sjálfskipuðu skrifræðis apparötum kemur.
Viljum við virkilega rústa íslenskum sjávarútvegi þá göngum við auðvitað í ESB eins og þið viljið.
Ég og mikill meirihluti þjóðarinnar vill það ekki !
Gunnlaugur I., 3.12.2009 kl. 16:34
Þess má líka geta að Úlfar er fyrrum formaður Evrópusamtakanna :)
Hjörtur J. Guðmundsson, 4.12.2009 kl. 13:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.