Bloggfærslur mánaðarins, september 2009
10.9.2009 | 16:31
Mannasiði og tillitssemi takk!
Umsjónarmaður þessa bloggs, vill beina því til þeirra sem gera athugasemdir við færslur þess að halda sig innan ákveðinna siðferðismarka. Örökstuddar alhæfingar, dylgjur og skítkast er afar illa séð og höfundum slíks til minnkunnar. Þessi vettvangur á að vera málefnalegur og er það metnaðarmál umsjónarmanns. Ef athugasemdakerfið fer úr böndunum, verður því miður að endurmeta notkun þess. Eyðileggjum ekki lýðræðislegan vettvang með sora.
Sýnið tillitssemi og almenna mannasiði hér á blogginu!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
9.9.2009 | 19:15
Rehn: Umsókn hluti endurreisnar
,,Olli Rehn, stækkunarstjóri Evrópusambandsins, segir umsóknarferli Íslands að ESB vera mikilvægan þátt í endurreisn efnahagslífs Íslands. Reynsla Finna er þeir sóttu um aðild að ESB hafi verið sú að umsókn auki traust á efnahagslífnu og aðgerðum stjórnvalda þar sem hún þyki til marks um stöðugleika." Þetta kemur fram í frétt Pressunnar.
MBL birtir einnig frétt um málið.
ESB hefur einnig afhent stjórnvöldum digran spurningalista með spurningum sem lúta m.a. að stjórnkerfi, efnahagsmálum, dómsmálum og fleira. Svörin munu liggja til grundvallar skýrslu til framkvæmdastjórnar um Ísland.
Þessu tengt: Össur lofar að birta svörin (Pressan.is)
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
9.9.2009 | 16:37
Þögn Sigmundar (FRBL)
Stjórnmálafræðingurinn Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar grein í Fréttablaðið í dag, undir fyrirsögninni Þögn Sigmundar, og á þar við Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Framsóknarflokksins. Gunnari finnst þögn hans um Evrópumálin sérkennileg. Í greininni segir m.a.:,,Sé leitað í greinasafni MBL, FBL og á bloggi Sigmundar kemur í ljós að hann hefur hins vegar ekkert skrifað um Evrópumál. Sömu sögu er að segja um heimasíðu flokksins, þar skrifa einhverjir aðrir um Evrópumál, s.s. Siv Friðleifsdóttir og Gestur Guðjónsson.
Þetta hlýtur því að vekja þá spurningu hvort Sigmundur Davíð hafi áhuga á Evrópumálum. Var hin fína ályktun Framsóknar um Evrópumál bara til þess að slá ryki í augu fólks, láta líta út sem flokkurinn væri að endurnýja sig? Hvað skýrir þessa þögn Sigmundar gagnvart Evrópu?"
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.9.2009 | 17:01
Evrusvæðið mun ná sér fyrr
,,Margir myndu segja að sú leið sem Evrusvæðið hefur farið sé félagslega sanngjarnari en nálgun Bandaríkjanna. Hún verndar fleiri störf, atvinnurekendur þurfa að bera meiri byrgðar með launafólki jafnframt sem ekki er eins mikið af opinberu fé til að styðja við fjármálastofnanir sem margar fóru óvarlega. Það er hins vegar athyglisvert ef rétt reynist að félagslega sanngjarnari leið sé í þessu tilfelli hagkvæmari út frá hefðbundnum mælingum á velferð og efnahagslegum framförum. Hvað skildu Friedman og Hayek segja ef þeir gætu tjáð sig?"
7.9.2009 | 16:41
Olli Rehn: Fluttur í aðalsal H.Í.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.9.2009 | 21:59
Reinfelt opnar á Evruna
,,Fljótandi sænsk króna er ekki langtímalausn," sagði Fredrik Reinfelt, forsætisráðherra Svía í samtali við Berlingske Tidende fyrir skömmu.
,,Þegar allt gengur vel er ekkert vandamál að hafa lítinn sjálfstæðan gjaldmiðil, en þegar bjátar á er annað uppi á teningnum. Ég held að hinn almenni Svíi geri sér grein fyrir þessu. Við slitum tengslin við Evruna þegar við gengum í gegnum kreppuna í kringum 1990, en það er ekki framtíðarlausn," sagði Reinfelt í viðtalinu. Hann studdi upptöku Evrunnar, en hinsvegar felldu Svíar Evruna í atkvæðagreiðslu haustið 2003.
Sænska krónan hefur fallið talsvert gagnvart öðrum gjaldmiðlum síðan haustið 2008. Óvíst er þó hvort og hvenær Svíar ganga til atkvæða á ný, en þekkt er að einn stjórnarflokkanna, Frjálslyndi flokkurinn, vill gera það sem fyrst.
,,Jafnvel þó að sjálfstæð, fljótandi króna geti virkað hvetjandi fyrir efnahaginn til skamms tíma, getur þetta einnig leitt til vandkvæða, t.d. hvað varðar kaupmátt innanlands og í samskiptum við helstu viðskiptaaðila okkar," sagði Reinfelt ennfremur.
Hljómar þetta ekki dálítið eins og lýsing á öðru landi?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
4.9.2009 | 16:35
Olli Rehn, 10.30, miðvikud. 9. sept
Fyrirlestur Olli Rehn verður n.k. miðvikudag kl. 10.30 í Norræna húsinu. Smellið á myndina og síðan aftur eftir að hún hefur birst í nýjum glugga.
Tilkynnig Alþjóðamálastofnunar
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.9.2009 | 10:52
Engin spænsk innrás!
Þann 2. september ræddi Kristinn R.Ólafsson, fréttaritari RÚV á Spáni við Juan Carlos Fragueiro,yfirmann sjávarmála á Spáni. Í viðtalinu kemur fram að það verður ekki um að ræða neina spænska innrás á íslensk fiskimið. Juan Carlos Fragueiro segir einnig að yfirráð Íslands yfir fiskimiðunum muni ekki tapast. Um er að ræða áhugavert viðtal um það sem e.t.v. koma skal í samningaviðræðum, en þær verða væntanlega ekki eins og "að drekka vatn."
Hlustið á viðtalið hér
4.9.2009 | 10:26
Ekki bara fiskur og landbúnaður!
ESB snýst ekki bara um fisk og landbúnað fyrir okkur Íslendinga, þó þessi svið séu afar mikilvæg. Sé litið yfir "sviðið" (les: samfélagið) sést að við Íslendingar erum þátttakendur í Evrópusamvinnu á geysilega mörgum sviðum. Við sækjum til Evrópu og Evrópa sækir til okkar. Ánægjulegt dæmi um þetta má finna fréttavef stúdenta H.Í undir fyrirsögninni: Stúdentaleikhúsið fékk vænan styrk frá ESB. Í inngangi fréttarinnar segir: "Stúdentaleikhúsið hefur fengið nærri eina og hálfa milljón króna í styrk frá Evrópusambandinu til að safna gögnum og skrifa sögu leikhússins.Stúdentaleikhúsið fagnar 80 ára afmæli um þessar mundir en það hefur starfað frá árinu 1929."
Menning er hverri þjóð mikilvæg og virkilega ánægjulegt að Stúdentaleikhúsið geti nú ritað sína merku sögu, enda margir frægir listamenn leikið sín fyrstu hlutverk þar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.9.2009 | 22:29
Olli Rehn til Íslands
,,Olli Rehn, framkvæmdastjóri stækkunarmála hjá Evrópusambandinu, flytur í næstu viku erindi um viðhorf Evrópu til Íslands í tengslum við aðildarumsóknina. Er fyrirlesturinn á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands.
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, opnar fundinn og fundarstjóri er Baldur Þórhallsson, stjórnmálafræðiprófessor og stjórnarformaður Alþjóðamálastofnunar," segir orðrétt í fréttinni.
Án nokkurs vafa verður áhugavert að heyra hvað hann hefur að segja um stöðu mála.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 4.9.2009 kl. 10:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Eldri færslur
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Evrópusamtökin-heimasíða Heimasíða Evrópusamtakanna
- Aðildarviðræður við ESB
- Já-Ísland
- Evrópustofa Upplýsingar um ESB og Evrópumál
- Evrópusambandið-ESB
- Utanríkisráðuneytið
- Sendiráð ESB á Íslandi Sendiráð ESB á Íslandi
- Meirihlutaálit Utanríkismálanefndar Alþingis
- Skýrsla Evrópunefndar
- RÚV:ESB-vefur
- Uppl. fyrir blaðamenn
- Sterkara Ísland
- FRBL-Umræða-Leiðarar
- European Daily Fréttir frá Evrópu
- BBC-Evrópa
- EU-Observer
- EUtube ESB á you tube
- Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg.
- Evrópuskrifstofan
- EurActiv-Fréttir um ESB
- Euranet (Útvarp)
- Euronews
- Evrópusíða UTN Evrópusíða utanríkisráðuneytisins
- Ungt fólk og ESB Ungt fólk og ESB
- ESB-umfjöllun MBL
Fréttabréfið
Fréttabréf Evrópusamtakanna
Bloggvinir
- Arna Lára Jónsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Daði Einarsson
- Dofri Hermannsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Fararstjórinn
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðlaugur Kristmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Hinrik Már Ásgeirsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreinn Hreinsson
- Jón Gunnar Bjarkan
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Júlía Margrét Einarsdóttir
- Loopman
- Magnús Már Guðmundsson
- Marta B Helgadóttir
- Sveinn Arnarsson
- Tómas Þóroddsson
- Vefritid
- gudni.is
- Ágúst Hjörtur
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Rúnar Þorvaldsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Arnar Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Barði Bárðarson
- Björn Halldórsson
- Brattur
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- ESB
- Eva Benjamínsdóttir
- Eva G. S.
- Eyjólfur Sturlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðlaugur Hermannsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Heiðar Lind Hansson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Sigurðsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kama Sutra
- Kjartan Jónsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- Natan Kolbeinsson
- Óðinn Kári Karlsson
- Óskar Þorkelsson
- Ragnar G
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sema Erla Serdar
- Sigurður M Grétarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Sumarliði Einar Daðason
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Ungir evrópusinnar
- Þarfagreinir