Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2010
14.11.2010 | 09:41
FRBL um ESB,iðnaðinn og fleira

Gangi Ísland í ESB opnast ýmis sóknarfæri fyrir iðnaðinn, en mest munar um það ef evra verður tekin upp með fylgjandi stöðugleika. Hagsmuna sjávarútvegs þarf að gæta. Forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar lítur á ESB sem "taplið" en veit engan skárri kost. Þingmaður Sjálfstæðisflokks í iðnaðarnefnd sér engin jákvæð áhrif af ESB-aðild.
Á dögunum greindi Norræna ráðherranefndin frá því að nýsköpun á Íslandi mældist neðarlega miðað við önnur norræn ríki. ESB-ríkin þrjú, Danmörk, Finnland og Svíþjóð, voru í efstu sætunum en EES-ríkið Noregur var fyrir neðan Ísland.
Samtök iðnaðarins hafa um árabil mælt með aðildarviðræðum um inngöngu í Evrópusambandið. Hátækni- og hugbúnaðarfyrirtæki eru hlynnt inngöngu. Meirihluti fyrirtækja innan Samtaka ferðaþjónustunnar er það einnig. Að mati þessara fyrirtækja munar mest um evruna, meiri stöðugleika og auðveldari fjármögnun, sem fólk sér sem afleiðingu aðildar.
Ekki eru þó öll fyrirtæki jafn sannfærð. Innan samtaka iðnaðarins eru mörg fyrirtæki, sem þjónusta sjávarútveginn á ýmsan hátt, sem hafa áhyggjur af því að hagsmunir sjávarútvegsins verði fyrir borð bornir í aðildarviðræðum. Iðnfyrirtæki í landbúnaði, kjöt- og mjólkuriðnaði, eru heldur ekki hrifin af aðild."
Eins og fram kemur er rætt við þingmann Sjálfstæðisflokksins, en það er Jón Gunnarsson. Í greininni segir: ,,Jón Gunnarsson er fulltrúi Sjálfstæðisflokks í iðnaðarnefnd Alþingis. Hann er andsnúinn aðild að ESB, helst vegna þess að hann óttast að forræði Íslendinga yfir auðlindum geti skerst, að ESB breyti reglum um auðlindastýringu þannig að erlendir aðilar geti keypt af Íslendingum aðgang að auðlindum: "Ég get ekki séð að aðild muni færa okkur nein jákvæð áhrif umfram það sem við höfum í dag. Við erum aðilar að þessum EES-samningi og ég held að [innganga í ESB] sé ekki atriði sem muni laga samkeppnisstöðu okkar iðnaðar," segir hann.
Jón vill ekki blanda umræðu um ESB við gjaldmiðilsskipti og stöðugleika efnahagslífsins. Aðild að myntbandalagi Evrópu taki enda mörg ár. Þangað til gæti krónan bætt samkeppnishæfni landsins.
Í umsögn um þingsályktun um aðildarviðræðurnar segir Samorka, samtök orku og veitufyrirtækja, hins vegar að eignarhald náttúru-auðlinda innan ESB sé alfarið á hendi aðildarríkjanna sjálfra, ekki ESB. Iðnaðarráðuneytið segir að reglum um slíkt grundvallaratriði yrði ekki breytt í framtíðinni án samþykkis aðildarríkja."
Feitletrunin er okkar hér á ES-blogginu, en þetta er athyglisvert. Því þetta hangir nefnilega allt saman: ESB, Gjaldmiðilinn, og stöðugleikinn.
Þegar menn eru að tala um að krónan "gæti bætt samkeppnishæfni landsins" eru menn í raun að tala um að láta gengi krónunnar síga og sveiflast til að þjóna skammtímaþörfum. Einu sinni hét það gengisfelling.
Íslenskar gengisfellingar hafa farið illa með krónuna, og hafa leitt hörmungar yfir fyrirtæki sem ekki eru í útflutningi, en hafa verið háð innfluttum aðföngum.
Hér má lesa ágæta hugleiðingu um gengisfellingar úr Viðskiptablaðinu árið 2008, en það er nánast samdóma álit manna að gengisfellingar sé afar slæmt hagstjórnartæki og eiginlega það sem hægt er að kalla "skussaverkfæri" sem aðeins þjónar ákveðnum hagsmunum, en ekki heildinni.
Í grein FRBL koma fram sjónarmið Ferðamannaiðnaðarins, sem er sú atvinnugrein sem hefur vaxið hvað mest á undanförnum árum:
,,Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir að nú þegar hafi mest allt regluverk ESB sem snýr að ferðaþjónustu og flugi verið fært í lög og aðild breytti ekki miklu um það. Könnun innan samtakanna, skömmu eftir hrun, hafi leitt í ljós að 70 prósent félagsmanna telji að aðild yrði mjög hagstæð ferðaþjónustunni og að 83 prósent þeirra vilji nota evru í stað krónu.
"Og ég á ekki von á að þetta hafi breyst mikið síðan," segir Erna: "Fólk er orðið óskaplega þreytt á þessum sveiflum í gengi krónu. Það er ekkert grín að verðleggja til dæmis ráðstefnu eftir tvö til þrjú ár. Þú veist ekkert hvað þú færð fyrir krónuna eftir þann tíma," segir hún. Samtökin hafi kallað til ýmsa sérfræðinga og niðurstaðan sé sú að evran henti best og að hún verði ekki tekin upp með góðu móti án aðildar. Erna bendir á reynslu Finna.
"Finnsk ferðaþjónusta telur að það hafi fyrst og fremst verið evran sem gerði þeim kleift að gera skynsamlegar áætlanir fram í tímann og búa við stöðugleika," segir hún.
Þess skal getið að ekki eru allir sammála um árangur Finna eftir kreppu, svo sem í velferðarmálum. Almennt hefur finnskum iðnaði þó gengið vel og stöðugleiki náðst í efnahagslífi. Mikil skuldsetning og hátt gengi gjaldmiðils til að berjast við verðbólgu er meðal þess sem angraði Finna áður."
13.11.2010 | 13:36
Már ræddi peningastefnumál við Spegilinn
Már Guðmundsson, Seðlabankastjóri, ræddi peningastefnumál við Spegilinn í vikunni. Á þessari krækju hér að ofan má hlusta á þetta viðtal.
Á heimasíðu Seðlabankans má einnig lesa erindi sem Már hélt í vikunni á fundi hjá FVH (Félag Viðskipta og hagfræðinga).
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 13:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
12.11.2010 | 23:35
Noðrmenn vita að ESB tekur ekki af þeim olíuna
MBL segir frá því nýrri könnun þar sem fram kemur að andstaða við ESB-aðild er enn í kringum 60%. kemur s.s. ekkert á óvart. Norðmenn hafa jú, einir þjóða, fellt aðildarsamning að ESB og það tvisvar!
En það sem vekur athygli er þetta: "Á vef NRK er haft eftir Torunn Husvik, varaformanni samtaka norskra andstæðinga ESB-aðildar, að fjármálakreppan sé helsta ástæða þess að æ fleiri verða andsnúnir Evrópusambandinu. Hún segir það goðsögn, að ástæðan sé sú að Norðmenn vilji hafa olíuauðinn út af fyrir sig."
Noðmenn vita að ESB-mun ekki taka af þeim olíuna. Ekki hefur hún verið tekin af Dönum, ekki hafa skógarnir verið teknir af Finnum!
En það sem einkennir kreppur er að lönd vinna sig yfirleitt upp úr öldudalnum. Í dag var t.d. birt tilkynning á Eurostat, tölfræðiskrifstofu ESB þess efnis að hagvöxtur hefði aukist í ESB og á Evrusvæðinu um 0.4% á þriðja ársfjórðungi 2010, miðað við fjórðung tvö. Aukningin er 1.9% milli ára á þriðja fjórðungi.
Í frétt MBL segir einnig: ,,NRK hefur eftir Trygve Nordby, framkvæmdastjóra norsku Evrópusamtakanna, að þessar tölur komi honum ekki á óvart. Margir Norðmenn telji að EES-samningurinn sé fullnægjandi fyrir Noreg og einnig sjái Norðmenn sér ekki hag í því að tengjast Evrópusambandinu á sama tíma og mörg ESB-ríki berjist við afleiðingar fjármálakreppunnar. Þetta muni hins vegar breytast þegar frá líður.
Ef Ísland nær góðum samningi um sjávarútvegsmál og ef Danmörk og Svíþjóð taka upp evru gæti það haft áhrif á efnahag okkar, sem byggist á gasi. Það gæti leitt til þess, að okkur finnist við þurfa að styrkja grundvöll hagkerfisins og tryggja framtíðina betur," segir hann.
Við þetta má kannski bæta að Norðmenn hafa ekki verið að glíma við þau vandamál sem við glímum við: Himinháa vexti og verðbólgu, sem og gjaldmiðilshrun, með tilheyrandi lífskjaraskerðingu. Og þeir hafa ekki gjaldmiðil í spennitreyju!
Helstu kostir Norðmanna við aðild væru þær að "vera við borðið" og hafa pólitísk áhrif, en það hafa þeir ekki og til eru háðuglegar lýsingar af því þegar norskir embættismenn læðast eftir göngum í Brussel, til að fá upplýsingar um fundi og ákvarðanir sem hafa verið teknar á vettvangi ESB.
Sem Norðmenn og við verðum jú að taka upp og fylgja í gegnum EES-samninginn.
12.11.2010 | 23:15
Andstæðingur ESB skiptir um skoðun!
Sífellt bætast fleiri í þann hóp manna sem sjá að ESB-aðildin er rétti vegurinn fyrir Ísland. Einn þeirra sem við hér á ES-blogginu höfum tekið eftir er Hans Jakob Beck, lungnalæknir.
Á bloggi sínu segir Hans sína sögu, hvernig hann hefur snúist frá því að vera andstæðingur ESB, í að það vera fylgjandi aðild.
Honum finnst barátta Nei-sinna til að reyna að hefta framgang lýðræðisins hreinlega ,,lágkúrleg, heimskuleg og vond," eins og hann skrifar sjálfur.
En hann ber virðingu fyrir þeim sem segja nei og eru andsnúnir aðild. Það er kannski kjarni málsins; að vera sammála um að vera ósammála! Það er jú að margra mati innsti kjarni lýðræðisins.
Í færslu sinni segir Hans Jakob Beck: ,,Afstaða mín til umsóknar um aðild að Evrópusambandinu er lituð þeirri angurværð að hafa lagt upp sem harður andstæðingur, en orðið að sættast við að hafa lifað í blekkingu um dýrð hins sjálfstæða og óháða undralands í úthafi og hafa haldið, að það sem eitt sinn var hægt yrði alltaf hægt, jafnvel í heimi örustu breytinga.
Það er margt sagt um viðræðurnar við Evrópusambandið þessa dagana. Málflutningurinn á móti þeim verður æðisgengnari með hverjum deginum, eins og gerist þegar fólk finnur tímann renna sér úr greipum. Það sýnir þá innstu sannfæringu mótmælendanna, að þeir hafi þegar látið í minni pokann."
12.11.2010 | 21:23
Ekki heil brú í málflutningnum!
Í fasisma eru engin frjáls skoðanaskipti leyfð. Ekki kommúnisma heldur. Aðeins ein lína.
Lýðræði gengur hinsvegar út frá nokkrum forsendum: Frjálsu markaðskerfi, mannréttindum, umburðarlyndi, valddreifingu, frjálsum skoðunum og málfrelsi.
Nei-sinnarnir á Íslandi reyna nú í ESB-umræðunni að spyrða áhugamenn um Evrópumál, aðild, og fleira, við fasima, svona undir rós. Nýjast dæmið er hér.
Þetta er hinsvegar í hæsta máta ósmekklegt.
Í ljósi þessa er vert að minna á að Nei-sinnar vilja og reyna hvað þeir geta til þess að fá ESB-málið dregið til baka.
Þeir vilja hindra það að íslenska þjóðin fái þann möguleika að greiða atkvæði um ESB-málið, þegar aðildarsamningur liggur fyrir.
Menn eins og Styrmir Gunnarsson, sem er búinn að tala um BEINT LÝÐRÆÐI í mörg ár! Þessir menn segja NEI NEI NEI!
Það sér hver heilvita maður að það er ekki heil brú í þessum málflutningi!
12.11.2010 | 20:30
Hótanir? Enginn kannast við neitt!
Bæði í fréttum Stöðvar tvö og RÚV kom fram að ráðherrar VG kannast ekki við staðhæfingar Njét-sinna númer eitt, Ásmundar Daða Einarssonar um að beitt hafi verið ógnunum og hótunum í sambandi við atkvæðagreiðsluna um ESB-málið í fyrra.
Er þetta bara til í kollinum á ÁDE?
Ps. Jón Bjarnason svarar á mjög persónulegan hátt!
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 20:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.11.2010 | 20:00
Carl Bildt í Speglinum: Bjartsýnn á að náist hagstæð niðurstaða í sjávarútvegsmálum
Fyrrum leiðtogi hægri-manna, fyrrum forsætisráðherra og núverandi utanríkisráðherra Svía, Carl Bildt, ræddi við Spegilinn um ESB-málin í þætti kvöldsins.Sigrún Davíðsdóttir, fréttaritari RÚV í London, ræddi við hann.
Hann er m.a. bjartsýnn á að hægt verði að ná hagstæðum samningi um sjávarútvegsmál.
Hann ræddi m.a. þann ,,lýðræðishalla" sem felst í EES-samningnum, að EES-ríkin þurfi að taka upp löggjöf ESB, án þess að hafa áhrif á hana. Tók hann sérstaklega Noreg sem dæmi.
Hann telur að Ísland sé "fyrirmynd" í stjórnun fiskveiðimála.
Hér má sjá ræðu Carl Bildt í London: The Future Challenges of Europe
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 20:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.11.2010 | 19:36
Moggi í reykskýi!
Jón Frímann, einn af dyggum stuðningsmönnum ESB-aðildar og áhugamaður um Evrópumál setti krækju hér inn á bloggið um endurskoðum ESB-reikninga, sem Mogginn (les: Davíð Oddsson) reyndi að gera tortryggilega í gær.
Lesið þetta hér og þá sjáið þið sem lesið að Morgunblaðið veður reyk í þessu samhengi.
12.11.2010 | 19:31
Gísli Baldvinsson um fundinn fyrir norðan
Einn fundarmanna fyrir norðan var Gísli Baldvinsson, Eyjubloggari. Hann skrifar færslu um fundinn á blogg sitt og segir:
,,Formaður Sterkara Íslands, Jón Steindór, flutti inngangserindi en að því loknu töluðu þau Brynhildur Pétursdóttir hjá Neytendasamtökunum og Jón Þorvaldur Hreiðarsson, lektor við HA,
Merkilegt sem Jón Þorvaldur flutti okkur fregnir af. Varðandi krónuna og gengismál þá eigum við þrjá kosti:
* Halda krónunni á floti og kosta til mikinn gjaldeyrisforða. Borga svo með krónunni ef hún súnkar. Mun gerast af og til enda myntkerfið ekki sjálfbært.
* Taka upp erlenda mynt s.s. dollar. Kostar um 34 miljarða. Ekki vissa að stöðugleikinn myndi breytast ef dollarinn fer á rall.
* Ganga í Evrópusambandið og einbeita sér að því að Ísland verði evrutækt land. Því fylgja alls konar efnahagsleg ögun og sjálf upptaka evrunnar ekki fyrr en 2015-16. En á meðan færum við inn í forstofu Seðlabanka evrópu í ákveðna gæslu. . og fengjum svo evru án tilkostnaðar. Það sagði maðurinn.
A.m.k. við Valgerður á Lómatjörn sannfærðumst."
-
Þess vegna skil ég ekki þessa arfavitlausu meinloku manna að vera einfaldlega á móti ESB, án þess að kynna sér málin."
Eldri færslur
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Evrópusamtökin-heimasíða Heimasíða Evrópusamtakanna
- Aðildarviðræður við ESB
- Já-Ísland
- Evrópustofa Upplýsingar um ESB og Evrópumál
- Evrópusambandið-ESB
- Utanríkisráðuneytið
- Sendiráð ESB á Íslandi Sendiráð ESB á Íslandi
- Meirihlutaálit Utanríkismálanefndar Alþingis
- Skýrsla Evrópunefndar
- RÚV:ESB-vefur
- Uppl. fyrir blaðamenn
- Sterkara Ísland
- FRBL-Umræða-Leiðarar
- European Daily Fréttir frá Evrópu
- BBC-Evrópa
- EU-Observer
- EUtube ESB á you tube
- Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg.
- Evrópuskrifstofan
- EurActiv-Fréttir um ESB
- Euranet (Útvarp)
- Euronews
- Evrópusíða UTN Evrópusíða utanríkisráðuneytisins
- Ungt fólk og ESB Ungt fólk og ESB
- ESB-umfjöllun MBL
Fréttabréfið
Fréttabréf Evrópusamtakanna
Bloggvinir
- Arna Lára Jónsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Daði Einarsson
- Dofri Hermannsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Fararstjórinn
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðlaugur Kristmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Hinrik Már Ásgeirsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreinn Hreinsson
- Jón Gunnar Bjarkan
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Júlía Margrét Einarsdóttir
- Loopman
- Magnús Már Guðmundsson
- Marta B Helgadóttir
- Sveinn Arnarsson
- Tómas Þóroddsson
- Vefritid
- gudni.is
- Ágúst Hjörtur
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Rúnar Þorvaldsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Arnar Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Barði Bárðarson
- Björn Halldórsson
- Brattur
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- ESB
- Eva Benjamínsdóttir
- Eva G. S.
- Eyjólfur Sturlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðlaugur Hermannsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Heiðar Lind Hansson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Sigurðsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kama Sutra
- Kjartan Jónsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- Natan Kolbeinsson
- Óðinn Kári Karlsson
- Óskar Þorkelsson
- Ragnar G
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sema Erla Serdar
- Sigurður M Grétarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Sumarliði Einar Daðason
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Ungir evrópusinnar
- Þarfagreinir