Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2010

FRBL: Ísland er velkomið

esbis.jpgLeiðari Fréttablaðsins í dag, ÍSLAND ER VELKOMIÐ, fjallar um þá ákvörðun leiðtoga ESB að opna fyrir aðildarviðræður við Ísland. Í honum segir m.a.:

"Allar líkur eru á að leiðtogar aðildarríkja Evrópusambandsins samþykki á fundi sínum í dag að hefja aðildarviðræður við Ísland. Það er enn einn áfanginn í endurreisn íslenzks samfélags og efnahagslífs eftir hrunið. Ísland þarf á öflugum bandamönnum að halda, nothæfum gjaldmiðli og skýrum ramma um efnahagsstefnuna. Þetta fæst allt með inngöngu í ESB.

Sumir andstæðingar ESB-aðildar fara hamförum yfir að fjallað skuli um málið á þjóðhátíðardegi Íslendinga. Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Framsóknarflokksins, kallaði það „hroka" af hálfu ESB að ræða málið á þessum degi. Fundardagurinn, sem var ákveðinn fyrir löngu, ekki ólíklega áður en Ísland sótti um aðild að ESB, er auðvitað tilviljun. En vilji menn lesa eitthvað út úr tilviljunum ættu menn frekar að fagna því að ákvörðunina beri upp á þennan dag, því að hún er til merkis um að Ísland njóti viðurkenningar sem sjálfstætt, evrópskt lýðræðisríki. Ísland er velkomið í hóp nærri þrjátíu annarra, sem taka sameiginlegar ákvarðanir um mikilvæg mál en hafa hvorki fórnað sjálfstæði sínu né sérkennum."

Og síðar segir:

"Fyrir síðasta landsfund Sjálfstæðisflokksins sagðist Bjarni hins vegar vilja að samþykkt yrði opið umboð fyrir forystu flokksins að „taka heils hugar þátt í samningaviðræðum sem kunna að leiða til ESB-aðildar á grundvelli tiltekinna samningsmarkmiða". Niðurstaðan varð önnur og ekki varð vart við að væntanlegur formaður beitti sér gegn henni á landsfundinum. Þar með afsalaði Sjálfstæðisflokkurinn sér sínu sögulega hlutverki, sem hefur verið að hafa forystu fyrir meiriháttar ákvörðunum í utanríkismálum þjóðarinnar, ekki sízt um þátttöku í samstarfi vestrænna lýðræðisríkja.

Það fer forystusveit Sjálfstæðisflokksins ekki vel að kvarta undan forystuleysi í Evrópumálunum. Hún ætti sjálf að sýna þessa forystu."

 

 Allur leiðarinn


Gleðilegan þjóðhátíðardag!

thingvellir.jpgEvrópusamtökin óska öllum landsmönnum, nær og fjær, gleðilegs þjóðhátíðardags.Íslenska lýðveldið er 66 ára.

Njótið dagsins!


Óvinir óvina minna eru vinir mínir!

StéttabaráttanESB-málið getur tekið á sig furðulegar myndir. Styrmir Gunnarsson, pistlahöfundur MBL og Björn Bjarnason fyrrum alþingismaður, hafa sett á fót sína eigin gælusíðu um Evrópumál, kölluð Evrópuvaktin. Um er að ræða sömu síðu og AMX, nema bara með "Evrópu-innihaldi" Umsjónamaður er einnig sá sami og rekur AMX. Þetta er því næstum því sami grautur í sömu skál!

Um helgina kom þýðing á efni frá Noregi á síðu Styrmis og Björns. En það kom ekki frá neinu hægri-riti, heldur KLASSEKAMPEN (STÉTTABARÁTTAN!). Um er að ræða málgagn og dagblað vinstri-sinna í Noregi!

Hvenær hefði t.d. Mogginn notað efni úr Öreiganum eða Fréttum frá Sovétríkjunum?

En hér gildir hið fornkveðna: Óvinir óvina minna eru vinir mínir!

16.6: Uppfærsla: Á vef sínum segja Styrmir og Björn að ES-bloggið sé að VARA VIÐ Evrópuvaktinni!

Við erum einfaldlega að benda á hvaðan þessir landsþekktu hægri-menn eru að taka sitt efni, það verður að teljast athyglisvert. En þeir færa í stílinn, félagarnir. Hér er ekki varað við einu eða neinu!

Og hvað aldur ritara varðar,eins og þeir gera að  umtalsefni, þá var hann 23 ára þegar múrinn féll. Svo er bara að reikna!


Gunnar Bragi Sveinsson (þingflokksformaður) gegn Framsóknarflokknum/flokksþingi

Gunnar Bragi SveinssonNýlegar "aðgerðir" þingflokksformanns Framsóknarflokksins, Gunnars Braga Sveinssonar (mynd), hafa vakið athygli. Hann er einn af flutningsmönnum þingályktunartillögu um að draga ESB-umsóknina til baka. Hann flytur hana ásamt Ásmundi Daða Einarssyni, formanni Nei-samtakanna, Birgittu Jónsdóttur og Unni Brá Konráðsdóttur, Sjálfstæðisflokki. Í pistli á Pressunni segir Ólafur Arnarson Unni vera það sem hann kallar "hatrammasti einangrunarsinni á Alþingi Íslendinga."

Framsóknarflokkurinn og þ.a.l. Gunnar Bragi samþykktu fyrir rúmu ári metnaðarfullt Evrópuplagg:

"6. janúar 2009
Ályktun samþykkt um aðildarviðræður við ESB
Eftirfarandi ályktun var samþykkt í kvöld með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða á 30. flokksþingi framsóknarmanna: 

Ályktun um aðildarviðræður við Evrópusambandið

Markmið

Að Ísland hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið á grundvelli samningsumboðs frá Alþingi sem tryggi hagsmuni almennings og atvinnulífs og þá sérstaklega sjávarútvegs og landbúnaðar. Þá er fullveldi og óskorað forræði Íslendinga yfir auðlindum þjóðarinnar grundvallarkrafa í þeim viðræðum. Viðræðuferlið á að vera opið og lýðræðislegt og leiði viðræðurnar til samnings skal íslenska þjóðin taka afstöðu til aðildarsamnings í þjóðaratkvæðagreiðslu í kjölfar upplýstrar umræðu.

 Skilyrði

    * Skýr og einhliða úrsagnarréttur, sem er þegar viðurkenndur í aðalsáttmála ESB, verði hluti aðildarsamnings.
    * Staðfest verði að Íslendingar einir hafa veiðirétt innan íslenskrar fiskveiðilögsögu og að fiskveiðistjórnun verði áfram innanríkismál Íslendinga, enda styðjist hún við reglur ESB um stöðug hlutföll, nálægðarreglu og Lúxemborgarsamkomulagið. Ísland verði sjálfstæður aðili að samningum um flökkustofna.
    * Fæðuöryggi þjóðarinnar verði tryggt og viðurkennd nauðsyn á sérstökum ákvæðum vegna fámennis þjóðarinnar.
    * Viðurkennt verði að íslenskur landbúnaður sé heimskautalandbúnaður.
    * Framleiðsla og úrvinnsla íslenskra búfjárstofna verði tryggð ásamt sérstöðu og hreinleika íslenskra landbúnaðarstofna.
    * Staðfest verði að vegna aðstæðna á Íslandi og fámennis þjóðarinnar hafi Íslendingar varanlegan rétt til að setja lög um forgangsrétt manna með lögheimili og fasta búsetu á Íslandi til að eiga ráðandi hlut í jarðeignum, lóðum, fasteignum og atvinnufyrirtækjum, enda styðjast slík ákvæði við núgildandi reglur á Álandseyjum, Möltu, Azoreyjum og víðar innan ESB.
    * Í upphafi viðræðna verði gerður stöðugleikasamningur við Evrópska seðlabankann sem tryggi stöðugt gengi íslensku krónunnar þar til Íslendingar taka upp evru.
    * Tekið verði tillit til stöðu íslensks efnahagslífs við umbreytingu peninga- og gjaldeyrismála á Íslandi.
    * Ákvæði verði um varðstöðu um íslenska þjóðmenningu, þjóðtungu og þjóðhætti á Íslandi. Íslenska verði viðurkennt sem eitt hinna opinberu tungumála ESB.

Fyrstu skref

Þessi helstu samningsmarkmið, sem og önnur sem skilgreind verða í samvinnu hagsmunaaðila og stjórnvalda, með sem víðtækastri samstöðu, verði lögð til grundvallar því umboði sem samninganefnd Íslendinga fari með í samningaviðræður við Evrópusambandið."

Gunnar Bragi gengur því gegn þessari samþykkt flokksins með gerðum sínum.

 Í lokaályktun flokksþingsins frá því í fyrra segir einnig:

* Að Ísland hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið í samræmi við samþykkt 30. flokksþings Framsóknarflokksins.

Þessu gengur Gunnar Bragi líka gegn með gerðum sínum.

Eða greiddi Gunnar Bragi atkvæði gegn þessu á flokksþinginu?

Óneitanlega hlýtur sú spurning að vakna!

Hvað finnst leiðtoga Framsóknarmanna um þetta?

Ps. Svo stendur GBS einn fyrir þessu


Býlum fækkaði um næstum 3% frá 2006 til 2008!

KindurÍ nýjum Hagtölum landbúnaðarins 2010 er að finna ýmsar áhugaverðar tölur um íslenskan landbúnað. Þar kemur m.a. fram að býlum á Íslandi fækkaði á árunum 2006-2008 um tæp 3%, úr 3463 í 3366. Þá kemur einnig fram að meðalaldur "skráðra búfjáreigenda" hækkaði úr 52 árum í 54.

Takið eftir, þetta gerist á aðeins tveimur árum!

Helstu rök bænda gegn ESB er að aðild muni leggja íslenskan landbúnað í rúst! En á ESB hér einhvern hlut að máli?

 Hagtölur 2010


Video, video!

YouTubeEvrópusamtökin og Sterkara Ísland hafa birt viðtöl við nokkra Evrópusinnar þar sem viðkomandi tjá sig um ástæður þess að Ísland eigi að sækja um aðild að ESB. Enda veitir ekki af í þessu stórviðri neikvæðni sem nú tröllríður umræðunni á Íslandi þessa dagana.


Verkefnið spannar ríflega 100 viðtöl sem munu á næstu vikum og mánuðum bætast reglulega inn á netið, en sem stendur verður hægt að finna þau á www.vimeo.com/sammala

og á YouTube : http://www.youtube.com/user/viderumsammala


Í haust verður svo sérstök vefsíða byggð í kringum myndböndin öll.  En nú er markmiðið að þið öllu og sem flestir "dreifi" myndböndunum sem víðast svo sem flestir sjái þau og þar kemur Facebook, blogg, Twitter, email og slíkt að miklu gagni. 


En nú er um að gera að fara inn á : www.vimeo.com/sammala  og senda fyrstu myndböndin sem víðast út í netheim og hvetja fleiri til að gera slíkt hið saman næstu daga. 


Verðbólgan á niðurleið

Verðbólga undanfarinna ára" Hagstofan spáir því að verðbólga verði 6,0% að meðaltali í ár en komin í um 4,0% í lok ársins. Spáð er áframhaldandi hjöðnun verðbólgu árið 2011 og að hún verði á verðbólgumarkmiði (2,5% innsk. blm.) að meðaltali árið 2012."

Svo segir í frétt FRBL í morgun. Þetta er athyglisvert, því með þessu nálgast Ísland í raun verðbólguskilyrði Evrunnar nokkuð. Þau eru að verðbólga megi ekki vera meira en 1.5% hærri en meðalatal þriggja lægstu ESB-ríkjanna.

Fróðleikur:  Hvers vegna stöðugt verðlag?

Skilyrði EVRU-upptöku


Jón Sigurðsson: ESB umsókn skynsamleg

Jón Sigurðsson"Það er skynsamleg ákvörðun að Íslendingar leiti aðildar að Evrópusambandinu. Í EES erum við áhrifalaust annars flokks fylgiríki og sú staða er allsendis ófullnægjandi til lengdar. Í annan stað erum við um þessar mundir að taka nýja viðspyrnu til framtíðar eftir alvarlegt hrun. Því er einmitt tímabært að taka aðild að ESB inn í stefnumótun þjóðarinnar núna. Þetta gerum við sem frjáls og fullvalda þjóð."

Þetta er upphafið á grein eftir Jón Sigurðsson, fyrrum Seðlabankastjóra og iðnaðarráðherra, sem hann birtir í Fréttablaðinu í dag. Greinina er einnig að finna á www.pressan.is


Eyjan eftir Bloomberg: Grænt ljós á viðræður á fimmtudag. AFP staðfestir.

Fáni ESB"Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna munu samþykkja á fundi sínum síðar í vikunni að hefja formlegar aðildarviðræður við Ísland. Þetta kemur fram í drögum að ályktun sem Bloomberg fréttastofan hefur undir höndum.

Gangi þetta eftir munu aðildarviðræður hefjast með formlegum hætti í september eða október í haust. Hversu hratt þær ganga fer svo eftir því hvernig Íslandi gengur að standast skilyrði fyrir inngöngu."

Þannig byrjar frétt Eyjunnar í dag, en það hefur verið að skýrast undanfarna daga að grænt ljós verði gefið á aðildarviðræður Íslands og ESB. Enda ekki eftir neinu að bíða, Ísland búið að svara spurningum ESB, Þýska þingið búið að gefa grænt ljós.

Frétt Eyjunnar 

Í annarri frétt sem birtist í kvöld er einnig sagt að utanríkisráðherrar ESB hafi í dag samþykkt "in principle" að opna samningaviðræður. Það er fréttastofan AFP sem birti fréttina og er þetta haft eftir utanríkisráðherra Spánar, Miguel Moratinos. Lesið frétt AFP!


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband