Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2012
29.2.2012 | 21:42
Engin dagsetning komin í ESB-málinu - einfaldlega of snemmt
Það var Evrópustofa, sem stóð fyrir kynningarfundinum um stöðu mála innan sambandsins og gang aðildarviðræðna við Ísland, en fleiri fundir eru fyrirhugaðir víða um land á næstunni. Innanríkisráðherra og fleiri hafa undanfarið lýst þeirri skoðun að aðildarviðræðum verði hraðað og samningur lagður fyrir þjóðaratkvæði fyrir næstu alþingiskosningar.
Við teljum of snemmt að lýsa því yfir núna að við getum lokið viðræðunum fyrir árslok eða um mitt næsta ár, segir Morten Jung, yfirmaður Íslandsmála hjá stækkunarskrifstofu ESB. Viðræðurnar eru ótímasettar. Við ættum ekki að geta okkur til um hvenær þeim líkur.
Morten segir miklu skipta að menn séu ekki að flýta sér í samningaviðræðunum og horfi frekar á gæði samningsins heldur en lokadagsetningar."
29.2.2012 | 21:37
RÚV: Krónan dýr
Á RÚV var fjallað um gjaldmiðilsmál í kvöldfréttum og þar sagði : "Ríkisstjórnin hefur enn ekki mótað framtíðarstefnu í gjaldmiðilsmálum og forystumenn stjórnarflokkanna tala hvor í sína áttina í málaflokknum. Stærstu stjórnarandstöðuflokkarnir hafa heldur ekki mótað sér stefnu um framtíð krónunnar eða annan gjaldmiðil.
Staða íslensku krónunnar er sorgleg um þessar mundir. Hún styðst nú við belti og axlabönd í gjaldeyrishöftum og afnám haftanna gengur hægt. Það er lítið traust á gjaldmiðlinum og búist við að gríðarlegt fjármagn streymi úr landi ef höftin verða afnumin. Gengið sveiflast og verðbólgan með. Krónan styrkist á sumrin og veikist á veturna þegar flæði gjaldeyris til landsins minnkar. Hún hefur veikst um sjö prósent síðan í haust.
Við þurfum að horfast í augu við það að krónan, íslenski gjaldmiðillinn, er okkur verulegur fjötur um fót og ég orða það þannig, það er, hann er eins og fíll í stofunni. Það vill enginn kannast við hann en hann er þar, sagði Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, í fréttum 15. febrúar síðast liðinn."
Síðar sagði í fréttinni: "Krónan er dýr og það sem skiptir þar mestu máli er verðbólgan, vextirnir og óvissan í gengismálum. Þetta eru þeir þrír grundvallarþættir sem skipta máli fyrir hvern gjaldmiðil, segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Krónan er lítt samkeppnishæf að mati Vilhjálms og henni fylgja gengissveiflur sem leiða til verðbólgu og vaxtahækkana. Öll þessi óvissa skapar erfiðleika í rekstri og gerir árangur í rekstri minni en annars er."
29.2.2012 | 21:33
Opinber stefna Framsóknarflokksins - að taka upp Kanadadollar?
Elvar Örn Arason vekur athygli á Eyjubloggi sínu á ráðstefnu Framsóknarflokksins næstkomandi laugardag, þar sem gjaldmiðilsmálin verða rædd.
Yfirskriftin er: ER ANNAR GJALDMIÐILL LAUSNIN?
Eins og sagt hefur verið frá hér á blogginu hefur formaður hins mjög svo þjóðernissinnaða flokks, Framsóknarflokksins, farið til Kanada til þess að athuga þessi mál.
Elvar segir: "Það verður fróðlegt að heyra svör sendiherra Kanada á Íslandi, sem er ópólitískur diplómat, við hápólitískum spurningum á ráðstefnu Framsóknarflokksins á laugardaginn."
Ekki er annað hægt en að taka undir orð Elvars. Og spurningin er þá: Er Framsókn búin að afskrifa krónuna og er stefnan núna sett á Kanadadollar?
Tuttugu (Kanada)dollaraseðillinn prýðir Elísabet, drottning Englands, svo dæmi sé tekið.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 21:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.2.2012 | 18:07
Já-Ísland: Satt og logið um ESB
29.2.2012 | 17:41
Guðmundur Gunnarsson: Rjúfum vítahringinn
Guðmundur Gunnarsson skrifar nýjan pistil á Eyjuna, með yfirskriftinni Rjúfum vítahringinn og segir þar í upphafi:
"Forsvarsmenn bændasamtakanna eru hræddir við að bera ESB aðild undir þjóðina, þeir óttast að þjóðin muni samþykkja. Það væri harla einkennilegt ef þjóðin gerði það ekki, alla vega sjáum við það vel sem erum í tæknihlutanum að öll fjölgun starfa fer fram utan sjávarútvegs og landbúnaðargeirans. Sama á við um launamöguleika bestu launin eru utan þessara geira.
Forstjóri fyritækisins Össur, sem er eitt af glæsilegustu fyrirtækjum landsins, var fyrir skömmu með ágætis lýsingu á þeim skemmdarverkum sem unnin eru á íslensku samfélagi með krónunni. Í ummælum forystumanna bænda um erindi forstjórans, kom fram að það ætti ekki að taka mark á plastik fyrirtækinu Össur!!
Stærsta kjaramál íslenskra launamanna er að finna varanlega lausn á gjaldmiðilsmálum Íslendinga. Við verðum að horfast í augu við þá staðreynd að ef við ætlum að búa áfram við krónuna verður að taka upp mun strangari efnahagsstjórn en ef við tækjum upp Evru. Krónan kallar á mjög digra og dýra gjaldeyrisvarasjóði, sem veldur því að vaxtastigið þarf að vera um 3,5% hærra en það er t.d. í Danmörku.
Bændasamtökin hafna því að neytendur njóti hins frjálsa markaðar, þeir segja að tollvernd skapi nauðsynlegar rekstrarforsendur fyrir innlendan landbúnað. Bændur mega síðan flytja út niðurgreitt lambakjöt, heimsmarkaðsverð hafi hækkað og kalli á hækkun á heimamarkaði. Íslenskur rafvirki er t.d. 2 klst að vinna fyrir lærinu hér heima, fari hann hins vegar til Danmerkur er hann eina klst. að vinna fyrir íslenska lærinu úr danskri búð. Vöruverð er hér allt að 30% hærra en er í löndunum innan ESB og kaupmáttur okkar hækkar ekki í samræmi við umsamdar krónutöluhækkanir."
29.2.2012 | 08:03
Serbía fær stöðu umsóknarlands ESB
Í Fréttablaðinu í dag segir: "Á fundi utanríkisráðherra Evrópusambandsríkjanna var í gær samþykkt að Serbía fái stöðu umsóknarríkis.Leiðtogaráð ESB á þó eftir að staðfesta þessa niðurstöðu, en gerir það væntanlega á fundi sínum nú í vikunni. Í desember síðastliðnum komu Þjóðverjar í veg fyrir að Serbía fengi stöðu umsóknarríkis vegna óleysts ágreinings um Kosovo, sem Serbar viðurkenna ekki sem sjálfstætt ríki.Í síðustu viku tókust samningar um eftirlit Serbíu og Kosovo með sameiginlegum landamærum og að Kosovo fái eigin fulltrúa á alþjóðaráðstefnum."
Grannríki Serbíu, Króatía, verður bráðlega 28. aðildarríki ESB. Myndin er hinsvegar frá Belgrad, höfuðborg Serbíu.
29.2.2012 | 07:57
SI: Litlar breytingar á afstöðu til ESB
Samtök iðnaðarins hafa reglulega kannað afstöðu Íslendinga til ESB og gerðu fyrir skömmu nýja slíka könnun: "Ný könnun Capacent Gallup fyrir Samtök iðnaðarins um viðhorf til til aðildar að Evrópusambandinu og aðildarviðræðna gefur til kynna að 56,2% séu andvígir aðild en 26,3% hlynnt. Þessar tölur eru svipaðar og hafa komið fram í sambærilegum könnunum fyrir samtökin 2011 og 2010.
Þegar spurt var út í viðhorf til aðildarviðræðna kemur í ljós að 43,6% eru fylgjandi því að íslensk stjórnvöld dragi umsókn til baka en 42,6% andvíg. Munurinn er ekki tölfræðilega marktækur.
Mikil áhersla var lögð að vandaða framsetningu spurninga. Þannig var bæði spurt hvort viðkomandi væri fylgjandi eða andvígur að draga umsókn til baka og hins vegar hvort viðkomandi væri fylgjandi eða andvígur að ljúka aðildarviðræðum."
Um 65% þeirra sem spurðir voru, svöruðu, en úrtakið var 1350 manns.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 08:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.2.2012 | 19:07
Þýska þingið samþykkti aðstoð við Grikki - sigur fyrir Merkel
Á RÚV segir: "Þýska þingið samþykkti síðdegis neyðaraðstoð fyrir Grikkland með yfirgnæfandi meirihluta. Fréttaskýrendur í Þýskalandi áttu von á að Merkel kanslari yrði að treysta á stjórnarandstöðuþingmenn til að koma málinu í gegn, þar sem fjöldi þingmanna úr röðum stjórnarflokkanna hefur lýst andstöðu við að milljörðum evra verði varið í aðstoð við Grikkland. Að lokum fór þó svo, að 496 þingmenn greiddu atkvæði með tillögunni en 90 gegn."
Niðurstaðan þykir sigur fyrir Angelu Merkel, kanslara Þýskalands.
Bendum í sambandi við Grikkland á áhugaverðan pistil eftir Elvar Örn Arason um Grikki, en þar segir:
"Grikkir eru oft sakaðir um að vera letingjar sem nenna ekki að vinna. Slíkar fullyrðingar hafa verið áberandi eftir að fjármálakreppan í Evrópu skall á. Í þessari úttekt BBC á vinnumarkaðstölfræði OECD-ríkjanna kemur í ljós að Grikkir eru vinnusamasta þjóðin í Evrópu. Tölur OECD sýna að hver Grikki vinnur að meðaltali 2.017 vinnustundir á ári sem er það hæðsta sem þekkist í Evrópu. Til samanburðar vinnur hver Þjóðverji að jafnaði 1.408 vinnustundir á ári, sem þýðir að Grikkir vinna 40% lengur en Þjóðverjar."
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 19:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
27.2.2012 | 23:33
Hannes Hólmsteinn (sem Eisti) hefði sennilega kosið ESB!
Í beinni línu á DV komu þessir áhugaverðu punktar fram þegar Hannes Hólmsteinn Gissurarson sat þar fyrir svörum:
"Hallur Guðmundsson segir:
ESB - já eða nei?
Hannes Hólmsteinn Gissurarson segir:
Nei. En væri ég Eistlendingur, þá myndi ég sennilega kjósa aðild að ESB."
.....síðar:
"Ásgeir Ingólfsson segir
Af hverju er ESB vont fyrir Íslendinga en gott fyrir Eistlendinga?
Hannes Hólmsteinn Gissurarson segir
Vegna þess að Eistlendingar voru ekki eins heppnir með nágranna og við: Þeir höfðu Rússa og Þjóðverja, við Breta, Bandaríkjamenn og Norðmenn."
En í staðinn erum við svo rosalega heppin að búa með: Háum vöxtum, verðbólgu sem enginn ræður við og ónothæfum gjaldmiðli á gjörgæslu, sem enginn þorir að sleppa frjálsum.
Í dag eru hvorki Rússar né Þjóðverjar ógn gangvart Eistlandi, sem tók þá viturlegu ákvörðun að ganga í samband 28 lýðræðisríkja í Evrópu, nú með Króatíu sem 28. land!
27.2.2012 | 21:10
Hafa Bændasamtökin breyst?
Búnaðarþing stendur nú um þessar mundir. Það eru Bændasamtök Íslands sem halda það. Bændasamstök Íslands fá sitt árlega rekstrarfé (500 milljónir) frá íslenska ríkinu (=skattborgurum). Má því segja að íslenskir skattgreiðendur séu að halda búnaðarþing?
Hvað um það, þetta var bara hugleiðing.
Á Búnaðarþingi heldur leiðtogi íslenskra bænda ræðu. Sá er Haraldur Benediktsson. Hann skrifar líka stundum leiðarana í Bændablaðið, sem Bændasamtökin gefa út.
Í ræðu sinni á þingi búnaðar kom Haraldur inn á ESB-málið, en bændur sjá rautt, eins og naut í flagi, þegar minnst er á ESB! Í ræðu sinni sagði Haraldur:
"Eitt er það mál sem kannski fyrst og fremst heldur íslenskum landbúnaði í höftum og það er umsókn um aðild að ESB. Nú þekkir nánast hvert mannsbarn á Íslandi afstöðu bænda til aðildar. Við höfum með lýðræðislegri umræðu mótað afstöðu okkar. Við höfum með öflugu rannsóknar- og fræðslustarfi gert miklu meira en stjórnvöld hafa gert á eigin spýtur til að mynda þekkingu á málefninu. Þau hafa reyndar kallað hingað Evrópusambandið sjálft til að hlutast til fræðslu.
En hvernig sem stjórnvöld vilja halda á ESB-málunum þá hafa bændur lagt fram sínar áherslur í svokölluðum varnarlínum. Þar tökum við skýra afstöðu og útskýrum kröfur okkar varðandi fjölmörg atriði sem hafa verður í huga í ESB-vegferð ríkisstjórnarinnar. Margt bendir nú til að á vettvangi stjórnvalda sé þegar undirbúið að stíga yfir fjórar varnarlínur okkar af sjö.
Bændur segja því aðeins eitt við þig háttvirtur sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra; leiktu þér ekki að eldinum. Þú átt á hættu að aðild verði samþykkt. Gerðu allt sem þú getur til að gæta hagsmuna Íslands. Ekki fyrir bændur heldur fyrir framtíð þjóðarinnar. Ef það er svo að íslenskir samningamenn þora ekki að ganga fram með sterka kröfugerð eigum við sitja heima og viðurkenna að klúbburinn hentar okkur ekki og það er tímabært núna.
Heimurinn hefur breyst."
1) Hafa Bændasamtökin breyst?
2) Hvað hafa Bændasamtökin gert "miklu meira en stjórnvöld" til að mynda þekkingu á málinu? Jú, kannski skrifað í Bændablaðið, en það er nánast allt með neikvæðum formerkjum. Bændasamtökin hafa lagt mikla vinnu í það að finna neikvæða hluti um ESB, til að setja í Bændablaðið, sem stundum er dreift með Morgunblaðinu. Það er eins og að leita að nál í heystakki að finna jákvæð skrif um ESB í Bændablaðinu!
3) Eru bændur með hótanir í garð Steingríms J? "Þú átt á hættu að aðild verði samþykkt." Hvað gerist þá - ef aðild verður samþykkt? Hverskonar stíll er þetta? Eða eru bændur bara hræddir um og við að aðild verði samþykkt?
4) Er það virkilega ekki á tæru að samningamenn Íslands hafi sett sér það markmið að ná hagstæðum samningi fyrir Íslands hönd? Hvaða fréttir lesa menn eiginlega? Það hefur ávallt verið markmið að landa góðum samningi fyrir Íslands hönd! Og er enn!!
5) Bændasamtökin ættu að einbeita sér að því að hjálpa til við að ná slíkum samningi, í stað þess að vera í fýlu úti í horni!
6) Og hvernig í ósköpunum heldur ESB-málið íslenskum landbúnaði í höftum? Hvernig væri að útskýra þessa fullyrðingu? Hvað með okurvexti, verbólgu, hruninn gjaldmiðil? Eru þetta ekki þættir sem frekar halda íslenskum landbúnaði í höftum? Á hvaða plánetu eru menn?
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 21:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Eldri færslur
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Evrópusamtökin-heimasíða Heimasíða Evrópusamtakanna
- Aðildarviðræður við ESB
- Já-Ísland
- Evrópustofa Upplýsingar um ESB og Evrópumál
- Evrópusambandið-ESB
- Utanríkisráðuneytið
- Sendiráð ESB á Íslandi Sendiráð ESB á Íslandi
- Meirihlutaálit Utanríkismálanefndar Alþingis
- Skýrsla Evrópunefndar
- RÚV:ESB-vefur
- Uppl. fyrir blaðamenn
- Sterkara Ísland
- FRBL-Umræða-Leiðarar
- European Daily Fréttir frá Evrópu
- BBC-Evrópa
- EU-Observer
- EUtube ESB á you tube
- Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg.
- Evrópuskrifstofan
- EurActiv-Fréttir um ESB
- Euranet (Útvarp)
- Euronews
- Evrópusíða UTN Evrópusíða utanríkisráðuneytisins
- Ungt fólk og ESB Ungt fólk og ESB
- ESB-umfjöllun MBL
Fréttabréfið
Fréttabréf Evrópusamtakanna
Bloggvinir
- Arna Lára Jónsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Daði Einarsson
- Dofri Hermannsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Fararstjórinn
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðlaugur Kristmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Hinrik Már Ásgeirsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreinn Hreinsson
- Jón Gunnar Bjarkan
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Júlía Margrét Einarsdóttir
- Loopman
- Magnús Már Guðmundsson
- Marta B Helgadóttir
- Sveinn Arnarsson
- Tómas Þóroddsson
- Vefritid
- gudni.is
- Ágúst Hjörtur
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Rúnar Þorvaldsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Arnar Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Barði Bárðarson
- Björn Halldórsson
- Brattur
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- ESB
- Eva Benjamínsdóttir
- Eva G. S.
- Eyjólfur Sturlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðlaugur Hermannsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Heiðar Lind Hansson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Sigurðsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kama Sutra
- Kjartan Jónsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- Natan Kolbeinsson
- Óðinn Kári Karlsson
- Óskar Þorkelsson
- Ragnar G
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sema Erla Serdar
- Sigurður M Grétarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Sumarliði Einar Daðason
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Ungir evrópusinnar
- Þarfagreinir